blaðið - 05.06.2007, Síða 6
22- MATUR
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2007 blaöiö
Spennandi sumarkokteiiar!
Það er ekkert skemmtilegra en
að fá sér góðan kokteil á sumrin.
En það reynist oft erfitt að finna
uppskrift að hinum fullkomna
drykk. Barþjónar á fjórum vin-
sælum skemmtistöðum í Reykjavík
koma því hér með uppskriftir að
heitustu og vinsælustu kokteilum
sumarsins.
Hressó
Cerebal Hemisphere
1,5 cl Bacardi lemon
1,5 cl Blue curaqao - blár
appelsínulíkjör
3 kreistir límónubátar
6 cl ananasdjús
Sett í kokteilglas og skreytt með
límónu.
Vegamót
Heitur sumarkokteiil
15 cl Grenadin
4 sítrónusneiðar, börkurinn tekinn af
5 hvítir sykurmolar
ísmolar
Allt þetta blandað saman í blandara
Síðan erþetta sett í kalt kokteilglas
Einföldum exante hellt yfir
Glasið er svo skreytt og um að gera
að láta hugmyndaflugið ráða.
Thorvaldsen bar
Blueberry Mojíto
Absolut Currant vodka 4cl.
3 brómber
4-5 bláber
2- 3 límónusneiðar
3- 5 basillauf eftir stærð
3 tsk. hrásykur
Toppað með Sprite
Brómber, bláber, límóna, basillauf
og hrásykur er sett í hátt glas og
mulið saman.
Mulinn ís fylltur í glasið, vodka sett
út í.
Svo er öllu hrært vel saman með
teskeið og svo smá Sprite hellt yfir
í lokin. Glasið er skreytt með blá-
berjum og brómberi.
Oliver
Strawberry Caipirovska :
3cl Pampero romm
3 jarðarber
3 bitar límóna
2 tsk. hrásykur
Smá sódavatn
Mulinn ís
Þetta er síðan hrært saman og
hellt í glas.
» •<!<
Mýtt á íslandi:
KitchenArt-eldhúsáhöld
Gott fyrir sumarið:
Ferskar grillvörur
Það er óhætt að fullyrða að grill-
mennska og sumarblíða tengist
órjúfanlegum böndum. Um leið og
sól hækkar á himni fer fólk að kynda
upp í grillunum og yndislegur mat-
arilmurinn af grilluðu kjöti og hvers-
konar meðlæti svífur yfir hverfi og
bæi landsins. Ferskar Kjötvörur
hafa nú um nokkurn tíma markaðs-
sett vörur undir vörumerkinu Fersk
og nú í sumar mun verða bætt enn
meira við girnilega flóru vörumerk-
isins með gómsætum grillvörum.
Fyrst ber að nefna ferskt kartöflu-
salat sem inniheldur minni fitu og
minna majónes en gengur og ger-
ist. Salatið er með heilum kartöflu-
bátum svo að það er einstaklega
girnilegt og bragðgott. Ferska býður
einnig upp á girnilega kryddlegna
grænmetisblöndu sem innheldur
rauðlauk, snjóbaunir, papriku, kúr-
bít og sveppi. Þessi blanda er tilvalin
í álbakkann á grillið eða þá bara í
eldfast mót og svo beint inn í ofn.
Ferska býður upp á gott úrval af
girnilegu meðlæti og nægir þar að
nefna frískandi sumarsalatsblöndu
með papriku, bæði rauðri og grænni,
vínberjum og kirsuberjatómötum
að ógleymdri hinni svoícölluðu blá-
berjablöndu sem er frískandi ávaxta-
blanda fyrir eftirréttinn.
Síðast en alls ekki síst ber að nefna
aðalatriðið, kjötið. Til að kitla bragð-
laukana í sumar verður boðið upp á
hunangs-BBQ-grísalærisvöðva sem
mun passa afbragðsvel með hinum
stórgóðu grillvörum frá Ferskum
Kjötvörum.
KYNNING
Til að tryggja að ekkert fari úr-
skeiðis í eldamennskunni er kjörið
að láta fylgja með matreiðsluleið-
beiningar fyrir grillkjötið góða.
Pönnusteiking eða grillsteiking
Panna eða grill snarphitað. Kjötið
snöggsteikt á báðum hliðum svo
það lokist. Hiti lækkaður og kjötið
klárað á 5-7 mínútum. Snúið af og
til.
Borið fram með brakandi Fersku
salati, kartöflusalati, grillsósu og
tilheyrandi.
Nú eru komnar á markað á fs-
landi vörur frá KitchenArt sem
eru með glæsilegri vörum sem eru
í boði fyrir eldhúsið. Þessar vörur
sameina nýstárlega hönnun og
mikið notagildi. Eldhúsáhöldin
frá KitchenArt eru stílhrein eld-
húsáhöld sem sóma sér inni á
hvaða heimili sem er.
í KitchenArt-vörulínunni er
hægt að fá öll möguleg áhöld,
glæsilegar kryddhillur og stillan-
legar mæliskeiðar og vönduð eld-
húsáhöld. Kryddhillurnar eru sér-
staklega smekkleg lausn á geymslu
fyrir helstu krydd heimilisins.
Þær fara vel á borði en má einnig
hengja upp undir innréttingu
eða stafla tveimur saman. Mæli-
skeiðarnar eru ýmsum kostum
búnar. Þetta eru tvær skeiðar með
færanlegum kvarða og leysa því
af hólmi allar fyrri mæliskeiðar.
Mæliglösin frá KitchenArt eru
smekkleg lausn á þessum nauðsyn-
lega hlut. Þau fara vel á borði, eru
handhæg í notkun, með kvarða
fyrir bæði þurrefni og vökva og síð-
ast en ekki síst þá mega þau fara
í uppþvottavél. Hið sama gildir að
sjálfsögðu um mæliskeiðarnar.
Bollamálin eru líkt og mæli-
skeiðarnar og glösin með stillan-
legan kvarða og geta mælt allt frá
1/8 úr bolla og upp í lA bolla. Það
hentar bæði fyrir vökva og þurr-
efni, er einstaklega þægilegt og
tryggir nákvæmni.
En það eru ekki bara mæliglös og
skeiðar sem fólki stendur til boða
frá KitchenArt. Fyrirtækið býður
einnig upp á vönduð eldhúsáhöld
sem eru vinnuvistvæn og skarta
góðu gripi. Þar er boðið upp á áhöld
eins og ostaskera, hvítlaukspressur,
ísskeiðar, dósaopnara og pitsahnífa.
Það þarf vart að taka það fram að
öll eldhúsáhöldin eru snyrtilega
hönnuð, þægileg í notkun og eru
prýði í hverju eldhúsi.
Þeir sem vilja kynna sér nánar
glæsilegt úrval eldhúsáhalda frá
KitchenArt geta skoðað heima-
síðu umboðsaðila hér á íslandi,
www.altmuligt.is, eða virt þau
fyrir sér á endursölustöðum, til
dæmis í Nóatúni.
Sérstakt salat:
Jafnt fyrir hunda oq menn
Það er fátt sem jafnast á við róm-
antíska lautarferð með ástinni sinni.
Þeir sem eru einhleypir hafa hingað
til farið á mis við þessa skemmtilegu
athöfn en þökk sé eldhúsgyðjunni
Rachael Ray þá er kominn sérstakur
réttur sem er hannaður fyrir bæði
hunda og menn. Því er hægt að fara
með hvutta sinn í rómantíska lautar-
ferð og deila svo með honum góm-
sætu salati.
Salthnetu-, appelsínu- og
gulrótarsalat
V4 bolli hnetusmjör
3 matskeiðar tamari (dökk
sojasósa)
safi úr einni appelsínu
1 u.þ.b. tommu löng engiferrót,
skræld og rifin
450 grömm rifnar gulrætur
4 vorlaukar, þunnt skornir (bara
fyrir mannfólkið)
Vt saxaðar hnetur (salthnetur)
salt og pipar
Hitið hnetusmjörið í u.þ.b. 10 sek-
úndur í örbylgjuofni til að mýkja
það. Blandið sojasósunni, appels-
ínusafanum og engifer saman við.
Setjið smávegis af heitu vatn saman
við ef sósan fer að þykkna.
Setjið gulræturnar saman við og
hrærið vel. Takið hluta af salatinu
nú frá fyrir hvutta og merkið það.
Bætið vorlauknum og hnetunum
saman við restina af salatinu og
kryddið með salti og pipar.