blaðið - 07.06.2007, Blaðsíða 6

blaðið - 07.06.2007, Blaðsíða 6
\/h*& VVhXtytA^ Skóverslun Kringlunni 8 -12 S: 553 2888 VIÐ HEIMTUM »A FARSIMA sem t.F\NNSSO/V (srábc) stcksbsa, ... þeqár sélir skír! J'í •! VOGABÆR Frábær köld með kjúklingi og lambakjöti og út á pizzuna. Góð á saltkexið með rifsberjahlaupi og sem ídýfa. Góð með kjúklingi, svínakjöti, reyktum laxi, grafiaxi, salatsósa og I kalt pastasalat hverskonar. 6 FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2007 blaðið INNLENT HJÓNASKILNAÐIR Ekki færri síðustu átta ár Alls skildu 498 hjón aö lögum í fyrra. Sama ár gengu 1.681 par í hjónaband. Hjónaskiln- uðum hefur fækkað milli ára og hafa ekki færri skilið síðan 1999 þegar 473 skildu að lögum. Árið 2005 skildu 564 hjón og 560 árið þar á undan. Auk lögskilnaðanna slitu 577 pör skráðri sambúð í fyrra. Alls voru börn úr sambúðarslitum og lögskilnuðum ell- efu hundruð talsins. Hjónavígslur hafa verið rétttæplega 1.500 til 1.770 frá aldamótum. r m Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur heida@bladid.net í búvörulögunum stendur að afurða- stöðvar í mjólkuriðnaði séu undan- skildar bannákvæði tíundu greinar samkepppnislaga sem fjallar um bann við ólögmætu samráði. Einnig er í þessum sömu lögum kveðið á um að sameining afurðastöðva sé undanþegin samkeppnislögum sem hefur það í för með sér að Samkeppn- iseftirlitið getur ekki haft afskipti af samruna þessara fyrirtækja. Samkeppniseftirlitið sendi land- búnaðarráðherra álit í október 2006 um opinberar samkeppnishömlur í mjólkuriðnaði. í álitinu stendur meðal annars að ákvæði búvöru- laga sem snúa að vinnslu og sölu mjólkur- og mjókurafurða raski samkeppni og feli í sér mismunun gagnvart einstökum fyrirtækjum í mjólkuriðnaði og fari því gegn markmiðum samkeppnislaga. Er ráðherrann hvattur til að gera breyt- ingar á lögunum en ekki hefur verið farið eftirþessum ábendingum Sam- keppniseftirlitsins. Stuttu eftir að álitið var birt sameinuðust afurða- stöðvarnar. „Segja má að skaðinn sé að einhverju leyti skeður,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppn- iseftirlitsins. „Það er engu að síður brýnt að gera þessar breytingar og almennt búa svo um hnútana að það sé grundvöllur fyrir samkeppni í þessum geira. Samkeppni á að geta unnið með hagsmunum neytenda á þessu sviði eins og öðrum. Jafn- framt er mikilvægt í sama skyni að draga úr innflutningshömlum.“ Vörur undir framleiðslukostnaði Samkeppniseftirlitið gerði húsleit hjá Mjólkursamsölunni, Auðhumlu og Osta- og smjörsölunni í fyrradag í kjölfar tveggja kæra sem Mjólka sendi til Samkeppniseftirlitsins. Er athugun Samkeppniseftirlitsins gerð á grundvelli elleftu greinar samkeppnislaga þar sem lagt er bann við misnotkun á markaðsráð- andi stöðu. Telja aðilar Mjólku að Mjólkursamsalan hafi vísvitandi notað markaðsráðandi stöðu sína með undirverðlagningu á fetaosti, jógúrt og sýrðum rjóma. Segist Ólafur Magnússon, framkvæmda- stjóri Mjólku, vita til þess að Mjólk- ursamsalan hafi boðið yfir fjörutíu prósenta afslátt af einstaka vörum. „Þessi aðgerð Samkeppniseftirlits- ins var mjög harkaleg og í sjálfu sér hörmum við að það hafi þurft að koma til slíkra aðgerða. En við verðum auðvitað að verja fyrirtæki okkar. Það er náttúrlega vonandi að menn læri af þessum mistökum og taki nú upp ný og betri vinnubrögð.“ Mjólka er eina fyrirtækið í ís- lenskum mjólkuriðnaði sem starfar alfarið fyrir utan greiðslumarks- kerfið í landbúnaði. Það nýtur þar af leiðandi ekki framleiðslustyrkja frá hinu opinbera. Hróbjartur Jónatans- son, lögmaður Mjólku, segir vanda Mjólku meðal annars vera þann að allt lagaumhverfið geri ráð fýrir því að hér sé rekinn ríkisstyrktur landbúnaður. Hafi þeir sem sömdu búvörulögin ekki gert ráð fyrir því að nokkur vilji standa utan við land- búnaðarkerfið og þiggja ekki styrki. Ólafur segir fyrirtækið hafa hlotið mikinn skaða af meintu hátterni Mjólkursamsölunnar. „Þessi skað- lega undirverðlagning hefur þær afleiðingar að fyrirtækið skaðast, tapar miklum tekjum og er kannski að fara með verð undir framleiðslu- kostnað. Við getum ekki keppt við slík niðurboð. Ef þetta ástand heldur áfram neyðumst við til þess að hætta með fyrirtækið. Annað væri mjög óábyrgt af okkur bæði hvað varðar þá bændur sem við erum í viðskiptum við og eins gagnvart því starfsfólki sem hér vinnur.“ Deila Egils Helgasonar og 365: Forstjórinn upplýsir launatölur í bloggheimum Ari Edwald forstjóri 365 svaraði í gær yfirlýsingu frá Agli Helgasyni á bloggsíðu Péturs Gunnarssonar. Egill birti þar yfirlýsingu um brotthvarf sitt frá 365 eftir að aðgangi Egils að vefsvæði hans á visir.is var lokað fyrirvaralaust. í bloggfærslu Ara Edwald, forstjóra 365 segir að Egill hafi samið um þáttagerð hjá 365 til tveggja ára með eina milljón króna á mánuði í laun og því til sönnunar birtir hann einnig tölvupóst sem hann sendi Agli eftir að þeir höfðu samið símleiðis. Ari segist líta svo á að með yfirlýsingu sinni hafi Egill kallað eftir því að tölvuskeyti sem gengu milli deilenda um starfskjör verði gert opinbert. „Ég get staðfest að þetta eru tölur sem rætt var um en þá var miðað við níu til tíu mánaða vinnu. Það er hins vegar ekki rétt að ég láti stjórnast af græðgi. Ég lækka í launum við að fara yfir til Rúv og það eru því aðrar ástæður sem ráða vistaskiptunum,” bætti Egill við. Egill hefur að ráði lögmanns við- urkennt að samningur hafi verið kominn á en setur þó ótal fyrivara. Egill hefur haldið úti sérstöku vef- svæði á visir.is í um fjögur ár og á umtalsvert magn greina og annars efnis á vefsvæði sínu. Hann sagð- ist í gær hafa óskað eftir aðgangi að efni sínu en hafði engin svör fengið.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.