blaðið - 19.06.2007, Blaðsíða 6
Jn><n»H A
6 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2007
blaðiö
INNLENT
HAGSTOFAÍSLANDS
Aflaverðmæti 25 milljarðar Afiaverðmæti
íslenskra skipa nam 24,8 milljörðum króna á fyrstu
þremur mánuðum ársins. Hefur aflaverðmæti aukist
um 29,2 prósent á milli ára en á sama tímabili í fyrra
var það 19,2 milljarðar. (lok mars hafði aflaverðmæti
þotnfisks aukist um 21,6 þrósent frá því í fyrra.
UMFERÐARSLYS
Steypubifreið valt
Fullfermd steyþubifreið valt um kl. tíu í gærmorgun og
lokaði báðum akreinum Sæbrautar.Ökumaðurinn slapp
með lítilsháttar meiðsli en var fluttur á Landspítalann til
aðhlynningar. Lögreglan lokaði Sæbraut og var vegurinn
ekki opnaður aftur fyrr en um tveimur og tíma síðar.
kARL ÁGÚST ÚLFSSON
Bæjarlistamaður Garðabæjar
Karl Ágúst Úlfsson er bæjarlistamaður Garðabæjar
árið 2007. Afhenti Gunnar Einarsson bæjarstjóri
Karli Ágústi starfsstyrk í Vídalínskirkju 17. júní.
Bæjarlistamaðurinn er valinn af bæjarstjórn Garða-
bæjar í samráði við menningar- og safnanefnd.
TENGINGVIÐ
TÆKIFÆRIN
Vi& erum ráðgjafar í fyrirtækjaviðskiptum og aðstoðum
bæði seljendur og kaupendur meðalstórra fyrirtækja við
alla þætti slíkra viðskipta:
• Leit að heppilegum fyrirtækjum eða kaupendum
• Verðmat fyrirtækja.
• Viðræðu- og samningaferli.
• Fjármögnun.
• Gerð kaupsamninga og tenadra samninga.
Við höfum engin fyrirtæki til sölu en við vitum af fjölda
fyrirtækja sem geta verið fáanleg fyrir rétta kaupendur.
Við vitum líka af mörgum aðilum sem eru að leita að
góðum fyrirtækjum í ríestum greinum afvinnurekstrar.
Tengsl okkarvið viðskiptavini eru trúnaðarmál. Upplýs-
ingar um fyrirtæki eru ekki gefnar upp í síma. Vinsam-
lega hringið og pantið tíma, síminn er 414 1200, en
einnig er nægt að nota tölvupóst: jens@konfakt.is
eða brynhildur@kontakt.is
Eftirfarandi fyrirtæki eru ekki til sölu,
en við teljum þau fáanleg:
• Stór heildverslun með leikföng og gjafavörur.
• Framkvæmdasljóri/meðeigandi óskast að góðu bílaþjónustufyrilæki í miklum vexti.
• Rótgróin húsgagnaverslun í góðum rekstri. EBITDA 30 m. kr.
• Þekkt lítil bílaleiga.
• Meðeigandi/framkvæmdastjóri óskast að jarðverktakafyrirtæki á Austurlandi.
Mjög góð verkefnastaða.
• Rótgróið bakarí í Reykjavík. Góð velta og EBITDA.
• Deild úr heildverslun með gjafavörur. Arsvelta 60 m. kr.
• Heildverslun með smávörur. Góð framlegð. EBITDA 20 m. kr.
• Þekkt skyndibitakeðja. Ársvelta 130 m. kr.
• Sérverslun með þekktar gjafavörur. Ársvelta 40 m. kr.
• Vélsmiðja. Ársvelta 200 m. kr.
• Lítil, þekkt barnaverslun með umboð fyrir umhverfisvænar vörur.
• Rótgróið lítið byggingafyrirtæki með fasta viðskiptavini. Fjórir fastráðnir
starfsmenn. Góð verkefnastaða.
• Rótgróin húsgagna- og gjafavöruverslun. EBITDA 14 m. kr.
• Stórir byggingaverktakar í einu Eystrasaltslandanna. Ársvelta 3.800 m. kr.
• Innflutningsfyrirtæki með sumarvörur. Ársvelta 300 m. kr.
• Deild úr heildverslun með þekktar garðvörur.
• Lítil húsgagnaverslun í Kaupmannahöfn.
• Lítið þjónustufyrirtæki á ferðamarkaði.
• Heildverslun/sérverslun með fatnað. Ársvelta 100 m. kr.
• Rótgróin umboðs- og heildverslun á Austurlandi. Ársvelta 100 m. kr.
• Heildverslun með gjafavörur. Ársvelta 50 m. kr.
• Þekkt sérverslun með herrafatnað.
Gagnlegur fróðleikur og fleiri fyrirtæki,
sjá: www.kontakt.is
KONTAKT
Fyrirtækjaráðg jöf
Suðurlandsbraut 4, 7. hæð. • Sími: 414 1200
www.kontakt.is • Netfang: kontakt@kontakt.is
Jens Ingólfsson rekstrarfræðingur, jens@kontakl.is
Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhogfræóingur, brynhildur@kontakt.is
Ragnar Marteinsson fyrirtækjaráðgjafi, rognar@kontakf.is
Sigurður A. Þóroddsson hdl. lögg. fosteignasali, sigurdurökontakf.is
Evo Gunnarsdóttir skrifstofustjóri, evo@kontakt.is
Aðiii að global
Spilakassar Skuldir spila-
fíkla geta numið mörgum
milljónum. BMiö/Krislinn
P^rrverancfFspilafíkill
Milljóna skuld á bakinu Hanga á lygavefnum
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Um 3000 manns, spilafíklar og
aðstandendur, hafa haft samband
við SÁS, Samtök áhugafólks um
spilafíkn, frá því að samtökin voru
stofnuð fyrir rúmum þremur árum.
Stofnandi samtakanna, Júlíus Þór
Júlíusson, telur að spilafíklarnir séu
margfalt fleiri en þeir sem leitað
hafa eftir aðstoð. Hann segir póker-
mótið sem haldið var á dögunum
það sama og að skvetta olíu á eld.
„Unga fólkinu þykir þetta spenn-
andi en það er ekki hægt að líkja
þessu við brids eða skák eins og gert
var. Pókermótið var ekkert annað
en að skvetta olíu á eldinn. Hingað
hafa komið menn á þrítugsaldri
með konu og nýfætt barn og jafnvel
móður og tengdamóður. Það hefur
allt verið komið í steik. Þeir hafa
verið búnir að spila frá sér á hálfu
ári þessum 20 prósentum sem þeir
áttu í íbúðinni sinni. Þeir hafa jafn-
vel verið búnir að missa vinnuna
og hættir að stunda íþróttina sem
þeir voru góðir í,“ greinir Júlíus
frá og bætir því við að fræða þurfi
ungt fólk um hættuna af slíkri
spilamennsku.
Heimsóknir á heimasíðu samtak-
Mér var hálfpart-
inn skammtaður
peningur
Júlíus Þór Júlíusson,
stofnandi Samtaka
áhugafólks um spilafíkn.
anna eru orðnar rúmlega 68 þúsund
frá því að hún var sett upp í maílok í
fyrra. „Ýmsir eru auðvitað að skoða
síðuna en við verðum að taka mark
á þessu. Þetta er engin skemmtisíða
og þetta hlýtur þess vegna að segja
sína sögu,“ leggur Júlíus áherslu
á. Samtökin fræða um spilafíkn á
heimasíðu sinni auk þess sem þau
hafa gefið út fræðslumyndband og
bæklinga til að dreifa í skóla og á
félagsmiðstöðvar.
1 haust ætla samtökin að veita
spilafíklum stuðning sem felst í
ráðgjöf sálfræðings og úttekt á fjár-
hagsstöðunni áður en sjálf stuðn-
ingsviðtölin hefjast. „SAÁ myndi
aldrei setja áfengissjúkling í eftir-
meðferð nema afeitra hann fyrst.
Spilafíkillinn getur ekki komið í við-
töl með fleiri milljóna króna skuld
á bakinu og geggjaða aðstandendur.
Fyrst verður að gera ættingjum og
vinum, sem gengist hafa í ábyrgð
og standa frammi fyrir gjaldþroti
vegna spilafíkilsins, grein fyrir
fjárhagsstöðunni. Ástandinu hefur
kannski verið leynt í áraraðir. Fík-
illinn er snillingur í lygasögum og
hangir á lygavefnum fram í rauðan
dauðann. Við munum fara í banka
og ræða við þjónustufulltrúa með
leyfi viðkomandi til að þeir séu með-
vitaðir um stöðuna. Þá fyrst verður
hægt að fara að vinna með spila-
fíkilinn," segir Júlíus sem sjálfur
hafði spilað í 15 ár og skuldaði háar
upphæðir þegar hann hætti fyrir
fjórum árum. Hann kveðst gæta sín
á að koma ekki að neinu sem tengist
fjárhættuspili.
„Fyrsta árið setti ég mér auðvitað
ýmis markmið, eins og til dæmis að
Iáta aðra sjá um mín fjármál. Mér var
hálfpartinn skammtaður peningur.
Ég fór ekki inn á staði þar sem voru
spilakassar. Ég kaupi hvorki lottó-
miða né happdrættismiða og ég læt
konuna mína sjá um að styrkja ýmis
happdrætti í kringum jólin.“
Spilafíklarnir eru í öllum stéttum,
að sögn Júlíusar. „Þetta eru öryrkjar,
flugstjórar, tannlæknar, lögfræð-
ingar, skipstjórar og allt þar á milli.
Flestir eru karlar, og því miður
alltof margir ungir. Og því miður er
konum sem stunda fjárhættuspil að
fjölga.“
Skipuleggjandi segir
Póker er
„Þetta var gert vegna þessaðþetta
heitir póker og við erum að gjalda
fyrir það,“ segir Sindri Lúðvíksson,
forsvarsmaður pókermóts sem var
haldið á vegum vefverslunarinnar
gismo.is á laugardag.
Lögreglan stöðvaði mótið þegar
rúmlega tuttugu spilarar voru eftir
af þeim 150 sem hófu leik. Fjögur
þúsund króna þátttökugjald var í
mótinu og rann það að fullu í verð-
launaféið, sem var áætlað um 600
þúsund krónur.
Sindri segir aðgerðir lögregl-
unnar þó ekki hafa komið sér bein-
leiðis á óvart. „Auðvitað vonuðumst
við til að þetta yrði ekki stöðvað en
vissum alveg af áhættunni. En við
töldum að það yrði ekki gert vegna
þess að þetta var allt saman frítt. Ég
borgaði fyrir salinn, auglýsingar og
allt annað. Við græddum ekkert á
þessu.“
póker ekkert öðruvísi en bridds:
hugaríþrótt
É-
| Sindri Lúðvíksson
Skipuleggjandi mótsins
segir ákveðna fordóma
gangvart póker hafa ráðið
því að 150 manna póker-
mót hafi verið stöðvað af
lögreglu á laugardag.
BMið/Eyþór
Hann telur ákveðna fordóma
gagnvart póker hafa ráðið för. „Það
eru svo margir sem vita ekkert
hvað póker er og halda að þetta sé
eins og að setja pening í spilakassa.
En þetta er hugaríþrótt líkt bridds
þar sem útkoman ræðst á heppni,
því það er auðvitað hending hvaða
spil þú færð.“
Sindri segist vera að ráðfæra sig
við lögmann um framhaldið en
samkvæmt þeim upplýsingum sem
hann hefur fengið er en ekki búið
að taka ákvörðun hvort að málið
fari í ákæruferli. „Mér var sagt að
þetta mál fengi forgang þannig að
við trúum því að það fáist fljótlega
niðurstaða í þessu.“