blaðið - 19.06.2007, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2007
rHVAÐ Muntu sinna nýja starf-
Fir^NST inu með hangandi hendi?
folk@bladid.net
HEYRST HEFUR
ÞER?
„Ertu frá þér?! Ekki í þetta sinn."
Frámkváemdastjörí ákaftíells á Seyðisfirði:
-•—«-s_.
blaöiö
Ragnar Bjarnason, söngvari og borgar-
listamaður Reykjavíkur.
Ragnar Bjarnason hefur verið valinn borgarlistamaður Reykjavíkur
af Vilhjálmi Vilhjálmssyni borgarstjóra. Ragnar er þekktur fyrir
flutning sinn á íslenskum og erlendum dægurperlum og má segja
að vörumerki hans sé hln hangandi hendi.
BLOGGARINN...
Geiri kommi?
EINS OG lýðnum er ljóst var
Ragnar Bjarnason gerður að
borgarlistamanni Reykjavíkur í
ár af Vilhjálmi Vilhjálmssyni
borgarstjóra. Ragnar hefur verið
lengi að og er einn ástsælasti dæg-
urlagasöngvari þjóðarinnar. Hafa
þó sumir gagnrýnt ráðninguna þar
sem Ragnar tók þátt í kosninga-
baráttu Vilhjálms í fyrra og söng á
fjölmörgum stöðum er Vilhjálmur
kom fram á. Ósjaldan tók Vil-
hjálmur sjálfur lagið með Ragnari
og að sögn viðstaddra minnti það
ÓTRÚLEG tilkynning birtist á vef
mótorhjólaklúbbsins HSL fyrir
helgi þar sem boðið er upp á nám-
skeið í að stinga lögguna af. Hrað-
akstur bifhjólamanna hefur verið
mikið í fréttum sem og viðbrögð yf-
irvalda, sem hafa hækkað sektir og
boðað eignarnám bifhjóla þeirra
'"tk sem gerast brotlegir. Afþessari
l! J& auglýsingu að dæma má
þó búast við þvi að á
endanum þurfi lög-
^reglan kraftmeiri
j bíla og bifhjól í
framtíðinni eigi
þeir að geta
S* náð ökuþór-
Eunum...
OG ÞÓ! Kannski þurfa hinir vösku
verðir samfélagsins einungis að
læra betur á bílana sína. Hinn
kunni bílaáhugamaður, Birgir Þór
Bragason, auglýsir á sinni blogg-
síðu að hann taki að sér kennslu í
hraðakstri. Segir hann gjaldgenga
nemendur vera starfandi lögreglu-
menn. Virðist því ný atvinnugrein
hafa fæðst i öllum hraðaksturslát-
unum...
Bistró
rn
----T-
/ Skaftfelli er fágætt bókasafn sem vert er
að skoða. Blaöiö/Traustl
Fann staðinn fyrir tilviljun
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Þórunn Eyvindardóttir er fram-
kvæmdastjóri Skaftfells á Seyðis-
firði. Skaftfell er menningarmið-
stöð myndlistar á Austurlandi og
stendur í sögufrægu húsi frá því um
aldamótin 1900. Þórunn segir for-
réttindi að fá að starfa við áhugamál
sitt á svo fallegum og merkilegum
stað.
„Ég kom hingað eiginlega af til-
viljun. Árið 2001 ætlaði ég að dvelj-
ast í sveitinni hjá pabba á héraði,
en álpaðist hingað fyrir einhverra
hluta sakir og uppgötvaði þennan
frábæra stað. Hér fann ég ótrúlega
góðan anda og mikla grósku fyrir
myndlistarfólk eins og mig,“ segir
Þórunn sem nældi sér í BA-gráðu
í myndlist frá Listaháskóla Islands
auk þess að læra í Amsterdam og
Barcelona.
„Ég var með sýningu í maí á Akur-
eyri og á írlandi í nóvember. Maður-
inn minn er líka myndlistarmennt-
aður og við erum með lítið barn og
því stundum erfitt að finna tíma í
þetta allt, en það er alltaf eitthvað í
gangi hjá manni,“ segir Þórunn sem
finnur sig vel fyrir austan.
„Seyðisfjörður hefur alltaf verið
mikill menningarbær. Hér var
alltaf ein besta höfnin á landinu og
tengslin því við meginlandið sterk.
Hér gekk fólk um í sparifötunum
með sólhlífar og drakk te, svolítið
öðruvísi stemning en hjá hinum
almenna Islendingi á þeim tíma!“
segir Þórunn sem starfar einnig í
húsi með mikla sögu.
„Skaftfellshúsið varð hundrað ára
í ár og hefur séð tímana tvenna.
Hér var gullsmíðaverkstæði, tré-
smíðaverkstæði, öl- og veitingastofa,
heimili og nú er það gallerí, bóka-
„Skaftíellshúsið varð
hundrað ára í ár og hefur
séð tímana tvenna. Hér
var gullsmíðaverkstæði,
trésmíðaverkstæði, öl- og
veitingastofa, heimili og
nú erþað gallerí, bókasafn,
bístró og dvalarstaður
myndlistarfólks.“
safn, bístró og dvalarstaður mynd-
listarfólks. En það var árið 1996
sem eigendur hússins, þau, Garðar
Eymundsson og Karólína Þorsteins-
dóttir, gáfu það til slíkrar menning-
arstarfssemi sem það nú uppfyllir. I
kjölfarið var stofnaður Skaftfellshóp-
urinn sem ákvað að gera húsið að
menningarmiðstöð með áherslu á
myndlist. I þeim hópi er Björn Roth,
sonur Dieter Roth, sem dvaldist hér
á Seyðisfirði árin 1990 til 1998 þegar
hann lést, en í húsinu er einmitt Di-
eter Roth-akademían, sem við hann
er kennd.“
Á Seyðisfirði búa um 800 manns.
Einkenni bæjarins er fjöldi timbur-
húsa sem hann prýða og eru frá því
um aldamótin 1900. Þórunn segir
ekki óalgengt að listamenn leigi
slík hús til að dveljast í meðan þeir
vinna að list sinni.
„I Skaftfelli er ein íbúð/vinnu-
stofa til slíkra nota. Annars er fólk
að leigja hús í lengri eða skemmri
tíma yfir sumarið því það er óneit-
anlega meira um að vera þá en á vet-
urna. Til dæmist hefst listaárið hjá
okkur með komu 10 manna hóps
útskriftarnema frá Listaháskóla
íslands ásamt kennurum þar sem
þeir dveljast hér í þrjár vikur og
vinna að verkefnum sínum. Þeir fá
aðgang að öllum þeim verkstæðum
og vélum í bænum sem þeir þurfa
og því verður til mikil samvinna
og þátttaka milli bæjarbúa, sem
skilar sér síðan með frábærri mæt-
ingu á opnun sýninganna. Þetta er
einskonar snemmbúinn vorboði hjá
okkur og mikið fjör.“
Nánari upplýsingar er að finna á
slóðinni skaftfell.is
„/ dag, á sjálfan þjóðhátíðardag
Islendinga, reyndi forsætisráðherr-
ann á Austurvelli að réttlæta kvóta-
kerfið með innihaldslausu tali um
hagræðingu og árangur og öflug
fyrirtæki. Með því minnti hann á þá
sanntrúuðu kommúnista sem létu
ekki af trúnni þótt allar staðreynd-
ir æptu að þjóðkipulagið í Sovét
væri ekki að gera sig rétt eins og
kvótakerfið íslenska er ein rjúkandi
rúst. Það sést best á þeim byggð-
um sem byggja
á sjávarútvegi
með minnk-
andi afla og
minnkandi
tekjum."
Sigurjon Þórðarsson
sigurjonth.blog.is,
Siðblint íhaldið?
„Það er ótrúlegt að heyra suma ný-
kjörna þingmenn og konur tala um
að þau hyggist sitja ípólitískt kjörn-
um stöðum sínum á öðrum vettvangi
en Alþingi. Bara tveir nýir þingmenn
hafa t.d. tilkynnt að þau muni hætta
í þorgarstjórn. Aðrir þingmenn
og konurláta íveðri vaka að þau
muni halda áfram að sinna málum
í sveitastjórnum. Og hvað stærsti
hluti þessa
fólks sem er
svona siðþlint
að mínu mati eru
Sjálfstæðismenn. “
Guðmundur Óli Scheving
gudmunduroli.blog.is
Fáninn svívirtur
„Það ermeð ólíkindum hvað sumir
eru tilbúnir til að ganga langt í að
vanvirða það sem hverri þjóð er
heilagast, sjálfan þjóðfánann. I
gær á sjálfum þjóðhátíðardegi
Islendinga var íslenzki þjóðfáninn sví-
. virtur á mjög gróflegan
- hátt. Fimm
mótmælend-
ur voru
handteknir
eftir að hafa
hengt utan á Þjóöleikúsið fána sem
iíktist þeim íslenzka. Framan á hann
hafði verið gert íslenzkt skjaldar-
merki með nöfnum Alcoa, Alcan og
Norðuráls. Það er krafa þjóðarinnar
að á svona málum verði tekið mjög
hart og þeir sem voru þarna staðnir
að verki verði refsað eins þungt og
lög framast leyfa.“
Guðmundur Jónas Kristjánsson
zumann.blog.is
Félag SkrúSgarSyrkjumeistara
HELLULOGN
www.meist-ari.is
Su doku
5 8 7 1
6 1 2 9
3 9 4 5 7
6 4 7
2 9 3 6
4 5 1
1 8
2 3
7 9 8 3 2
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum fra 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hvertala kotni ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétteða tóðrett. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Þú ert greinilega mikill dýravinur, Elli minn.
HERNIAN
eftir Jim Unger