blaðið - 03.08.2007, Page 2
2
FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2007
blaóiö
Niðurskurður
þeim að þakka
Bresku náttúruverndarsamtökin
Samtök um verndun sjávar (Mar-
ine Conservation Society) hafa
fagnað ákvörðun íslensku rík-
isstjórnarinnar um mikinn nið-
urskurð þorskkvóta. Samtökin
segja að við ákvörðun leyfilegs
þorskafla fyrir næsta fiskveiðiári
hafi íslenskir stjórnmálamenn
orðið fyrir áhrifum af herferð
samtakanna fyrir því að breskir
stórmarkaðir kaupi einungis inn
fisk úr stofnum sem eru í góðu
ásigkomulagi.
Á fréttavef Shetland Marine News
segir talsmaður samtakanna að
djarfur niðurskurðurinn, sem
hafi verið í samræmi við tillögur
vísindamanna, sýni hver máttur
vel vökulla neytenda geti verið.
Goldfinaer
missir leyfið
Næturklúbburinn Goldfinger
hefur misst heimild til nektarsýn-
inga og kom fram í fréttum Ríkis-
útvarpsins, að ekki sé útlit fyrir
að klúbburinn fái heimildina
aftur. Lögreglustjóri höfuðborg-
arsvæðisins hefur lagst gegn því
að staðurinn fái umrætt leyfi.
Ofsaakstur vegna
náttúruperlna
að sjá Gullfoss og Geysi áður en
þau færu af landi brott. Atvikið
átti sér stað um ellefuleytið í gær-
morgun en sektin við umferðar-
lagabrotinu var samtals 100.000
krónur. bm
Virða ekki
forgangsakstur
T ögregla, sjúkraflutningamenn
cg slökkvilið segja algengt
að þeim sé ekki sýnd nægileg
tillitssemi þegar ekinn er for-
gangsakstur. Dæmi eru um að
lögregla eða aðrir aðilar hafi lent
í árekstrum eða öðrum óhöppum
vegna þessa.
Ökumenn eru beðnir um að víkja
vel fyrir forgangsakstri og halda
athygli sinni óskertri við akstur-
inn þannig að þeir geti brugðist
sem best við.
ejg
Lögreglan í Reykjavík stöðvaði
bíl rússneskrar fjölskyldu sem
ók Vesturlandsveg á 139 km
hraða. Fjölskyldufaðirinn var
við stýrið, eins og fram kemur í
lögreglutilkynningu, en í fram-
sætinu var níu ára sonur hans,
án bílbeltis. í aftursætinu sat
fjölskyldumóðirin sem hélt á fjög-
urra ára dóttur sinni og notuðust
þær mæðgur við sama bílbeltið.
Astæða hraðakst ursins ku vera
sú að fjölskyldunni lá mikið á
Enn fjölgun á
feröalöngum
Fyrstu sex mánuði ársins fjölg-
aði erlendum ferðamönnum á
íslandi um 19% miðað við sama
tímabil í fyrra. í júní fjölgaði
ferðamönnum um fjórðung
milli ára. Fyrri helming árs fóru
177.831 ferðamaður um Leifsstöð
miðað við 149.132 í fyrra. Flestir
ferðamannanna eru Bretar, þar
næst eru Bandaríkjamenn og
svo Danir. Miðað við í fyrra
fækkar Bandaríkjamönnum
hér en einstaklingum fjölgar frá
öllum öðrum þjóðum. Því hefur
verið spáð að fjöldi ferðalanga á
íslandi í ár verði hálf milljón.
bm
Virkjum ORKUSTÖÐVARNAR
Hefurðu hugleitt hvar þú
færð ódýrasta eldsneytið?
ÞAÐ MUNAR
UM MINNA
mammmmmmmm
Eurostat birtir samantekt á raforkuverði í Evrópu
Ódýrast á íslandi
Islensk heimili greiða lægra
raforkuverð en aðrir íbúar Norð-
urlanda og talsvert lægra en íbúar
Evrópusambandsins að meðaltali.
Samanburður á verðskrá Orkuveitu
Reykjavíkur og nýrrar samantektar
hagstofu Evrópusambandsins
(Eurostat) sýnir fram á þetta.
Viðskiptavinir Orkuveitunnar
greiða tæpar 36 þúsund krónur
fyrir 3.500 kWh ársnotkun en Danir
rúmar 76 þúsund krónur sem jafn-
framt er það hæsta í Evrópusam-
bandinu. Af 27 ríkjum Evrópusam-
bandsins er verðið aftur á móti
lægst í Búlgaríu eða tæpar 20 þús-
und krónur á ári. hlynur@bladid.net
Raforkuverð til heimila
í janúar2007
Miðast við 3500 KW stunda ársnotkun
Búlgaria Orkuveita Fi'nnland Sviþjóð
Reykjavíkur
ESB
MEÐALTAL
r^-
CNi
CNJ
cd
Árviss mannekla
■ Óvíst hvort tekst að manna stöður ■ Leikskólavist gæti frestast
Hver eru launin?
Launaflokkur Til og með 34 ára frá 35 ára frá 40 ára
Eftir Björgu Magnúsdóttur
bjorg@bladid.net
Mannekla á leikskólum virðist
vera árleg grýla í byrjun nýs skóla-
árs. Mikil óvissa ríkir víða um
mönnun og einhverjir kunna að
spyrja hvort unnt verði að fullnýta
pláss á leikskólum ef mikill skortur
verður á starfsfólki. Hjá Reykjavik
vantaði hátt í 200 starfsmenn í
vor, í Garðabæ vantar um fjóra ein-
staklinga fyrir komandi haust en
ekki fengust tölur hjá Kópavogi þó
fregnir hermi að nánast alla leik-
skóla bæjarins vanti starfsfólk.
80 skólar með 1.800 starfsmenn
Ingunn Gísladóttir, starfsmanna-
stjóri á leikskólasviði Reykjavíkur-
borgar, segir að haldbærar tölur
um skort á starfsfólki á leikskólum
hafi ekki verið teknar saman. „Við
tökum vanalega saman í septemb-
erbyrjun hversu margt starfsfólk
vanti á leikskóla borgfmnar. I vor
vantaði hátt í 200 manns til starfa,
en við höfum enn sem komið er
ekki hugmynd um hver talan verður
í byrjun september." Hún segir
mikið um ráðningar inn á leik^kól-
ana um þessar mundir en á vegum
Reykjavíkurborgar eru starfræktir
í kringum 80 leikskólar þar sem
starfa um 1.800 starfsmenn. „Við
reynum að sjálfsögðu að taka inn
öll börn sem hafa fengið loforð um
vistun en það kemur í ljós á næstu
vikum hvort þurfi að fresta inntöku
einhverra barna.“
Eðlilegt að starfsfólk vanti
Samúel Örn Erlingsson, formaður
leikskólanefndar Kópavogs, segir
að eðlilegt sé að starfsfólk vanti á
VEÐRIÐ I DAG
Dregur úr vindi
Hæg austanátt noröantil og þurrt fram yfir
hádegi en síðan rigning. Dregur úr vindi og
úrkomu sunnanlands seinni partinn. Hiti 6
til 17 stig, hlýjast suðvestantil.
101 187.013
102 189.818
103 192.665
104 195.555
105 198.488
alla leikskóla á þessum árstíma en
hann telur að það vanti starfsfólk á
nánast alla leikskóla Kópavogs sem
eru fast að 20 talsins. „I lok sumars
er alltaf óvissa varðandi ráðningar
því margir starfsmenn leikskólanna
eru ýmist í námi eða á leið í nám að
hausti. Við sáum fram á talsverðan
vanda í byrjun þessa árs, sem vel var
leyst úr og erum vissulega byrjuð að
takast á við ráðningu starfsfólks nú
í sumarlok.“ Þá segist hann vona
að börn komist í leikskólavist eins
fljótt og mögulegt sé.
ÁMORGUN
Þurrt suðvestantil
Vaxandi norðaustanátt, víða 10-15 m/s
nálægt hádegi, en talsvert hægari norðaust-
anlands fram til kvölds. Skýjað með köflum
og þurrt suðvestantil, en annars rigning
eða súld. Hiti 7 til 18 stig, svalast með
norðurströndinni.
192.623 198.402
195.512 201.378
198.445 204.398
201.422 207.464
204.443 210.576
Vantar fjóra í Garðabæ
Hjá Garðabæ horfa mál öðruvísi
við en að sögn Önnu Magneu Hreins-
dóttur, leikskólafulltrúa bæjarins,
hefur verið vel staðið að Ieikskóla-
málum að undanförnu. „Þetta Htur
ágætlega út og erum við búin að
manna alla leikskóla nema tvo af tíu
fyrir haustið en það vantar í kringum
tvo starfsmenn á hvorn leikskólann.“
Einnig segir hún að öll börn 18 mán-
aða og eldri séu komin með örugga
leikskólavist fyrir veturinn og að
ástandið sé betra en fyrir ári síðan.
Skotið á bíl í
Reykjanesbæ
Það virðist
sem skotið
hafi verið úr
loftbyssu eða
loftriffli á bfl
í Reykjanesbæ
í fyrrakvöld
eins og fram
kemur á fréttavef Víkurfrétta.
Stúlka var að taka barn úr bílstól
þegar ein rúða bifreiðarinnar
mölvaðist. Við nánari athugun
fannst lftið gat efst á rúðunni.
Lögreglan lítur málið alvarlegum
augum og segir að stórhættulegt
hefði verið fyrir stúlkuna eða
barnið að lenda í skotinu. mbi.is
Leiðrétt
Ritstjórn Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann aö vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
VÍÐA UM HEIM
Algarve 25
Amsterdam 21
Ankara 31
Barcelona 28
Berlln 23
Chicago 29
Dublin 17
Frankfurt 22
Glasgow 16
Halifax 24
Hamborg 17
Helsinki 19
Kaupmannahöfn 19
London 19
Madrid 33
Mílanó 29
Montreal 24
Miinchen 21
New York 27
Nuuk 15
Orlando 24
Osló 18
Palma 25
París 22
Prag • 22
Stokkhólmur 19
Þórshöfn 11