blaðið - 03.08.2007, Qupperneq 18
26
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÍIST 2007
blaóiö
LÍFSSTÍLLBÍLAR
bilar@bladid.net
Hann hleypur á tugum sá fjöldi fólks sem hefði undanfarin
2 - 3 ár mátt forða frá alvarlegu líkamstjóni og dauða í
umferðinni ef menn hefðu einfaldlega sleppt því að setjast
undir stýri undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna.
ÚR BÍLSKÚRNUM
Átta frumsýningar
Volkswagen mun frumsýna
átta nýja bíla á bílasýningunni
í Frankfurt sem haldin verður
13.-23. september. Aðalnúmerið
verður að sjálfsögðu hinn nýi
Tiguan, litli bróðir Touareg
sem beðið hefur verið með
óþreyju. Auk þess verður
kynntur hræódýr hugmynda-
bíll sem kallaður er City Expert
og fregnir herma að muni
um margt minna á gömlu
Bjölluna!
Vetnis-tvinn-RX-8
Já, þú last rétt. Síðastliðinn
miðvikudag var efnahags-,
viðskipta- og iðnaðarráðuneyti
Japans afhentur Mazda RX-8
sem gengur bæði fyrir vetni og
bensíni. Bíllinn verður notaður
til daglegra nota á vegum ráðu-
neytisins og er allsérstæður
fyrir sakir rotary-mótorsins
sem lútir öðrum lögmálum en
hefðbundin bílvél.
Nýr Corsa
Nýr og gjörbreyttur Opel Corsa
verður frumsýndur hjá Ingvari
Helgasyni á næstu vikum.
Bíllinn verður stærri en fyrri
gerðir og hægt verður að velja
á milli þriggja útfærslna; 1,2
lítra með beinskiptingu, 1,4
litra með sjálfskiptingu og svo
192 hestafla OPC útgáfu. Allir
eru þeir búnir ESP, MP3-tengi
og 6 loftpúðum, svo eitthvað
sé nefnt.
Mjög fínir leðursandalar með
innleggi og vœnum sólum
í stœrðum 41 -46 á
kr. 7.550,-
Flottir leðursandalar,
sömuleiðis með innleggi í
stœrðum 41-46 á kr. 7.550,-
Misty, Laugavegi 178
Sími 551 2070
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
Stór hluti íslendinga fer í ferðalag um verslunarmannahelgina
Er bíllinn
Tjaldið er komið úr geymslunni,
þú hreinsaðir skrítna blettinn úr
svefnpokanum og í ísskápnum eru
tvær dollur af túnfiskssalati sem þú
ætlar að borða á brauð um helgina.
Þú ert klár í slaginn, eða hvað?
klár fyrir helgina?
Langstærstur hluti þeirra sem
fara út á land um helgina ferðast á
einkabílum. Bílskúrsteymi Blaðs-
ins hefur tekið saman lista yfir at-
riði sem ferðalangar ættu að hafa
í huga áður en lagt er í ‘ann. Sum
þeirra eru nauðsynleg, varða ör-
yggi bílsins og farþega hans, og allir
ættu að gefa sér tíma í að athuga.
Önnur eru sniðug ferðaráð sem geta
aukið á þægindi, öryggi og ánægju
ferðalagsins.
Farangursrými ■
Er varadekkið á sínum
stað og í lagi? En
tjakkur og felgulykiil?
Kanntu að skipta um
dekk? Ertu með örygg-
isþríhyrning? Veistu til
hvers hann er?
í blíðu og stríðu /
Það er góð regla að vera alltaf með
smá nesti, nóg af óáfengum drykkjum
og nokkur teppi i bilnum á ferðalögum.
Vökvi hjálpar bílstjóra að halda einbeit-
ingu og matur og teppi geta gert ferðina
þægilega fyrir alla, auk þess að koma að
góðum notum ef eitthvað kemur upp á.
Sólgleraugu /
Sólin í ágúst er býsna
sterk og getur verið
lágt á lofti fyrri- og
seinnipart dags.
Sólgleraugu eru því ör-
yggistæki um leið og
þau auka þægindi.
Vélarhús ■ Olíur /
Athugaðu olíuna á vélinni og Það er óvitlaust,
skiptingu. Farðu á smur- eða sérstaklega fyrir
bensinðtöð ef þú treystir þér eigendur eldri
ekki í það sjálf(ur). Passaðu að bila, að vera
nóg vatn sé á vatnskassanum með auka oliur
(og að hvergi sjáist leki) og að og kælivökva
rúðuvökvatankurinn sé fullur. meðferðis.
,/
Tappar 1
Þeir sem kunna með
taþpasett að fara ættu
ávallt að hafa slikt
meðferðis.
Eldsneyti t/
Það þarf ekki endilega að
skemma helgina þó maður
gleymi að taka eldsneyti, en
það auðveldar ferðalöngum
að halda áætlun. Sé haldið
i langferð eða til fjalla þarf
að huga að bensínstöðvum
og aukaeldsneyti.
Belti
Bílstjóri ber ábyrgð á farþegum
sinum og ætti því að setja sem
skilyrði að allir séu í öryggisbelti.
Það vill enginn hafa dauða vína
og vandamanna á samviskunni.
Sjúkrakassi I Vimulaus feröalög '
I öllum bilum ætti að Það þarf ekki að taka þaö fram að
vera sjúkrakassi með* bílstjórar eigi að vera allsgáðir á
sáraumbúðum og þess ferðum sínum. Hitt hugsa fáir út í
háttar. Mikilvægt er að að ölvun farþega getur skaþað vand-
kunna að nota innihald ræði og hættu ef til óhapps kemur,
kassans. Lærðu eða ef komið er að slysi. Við gerum
skyndihjálp við fyrsta meira gagn allsgáð. Geymum drykkj-
tækifæri. una þar til komið er á náttstað.
öryggi %/
Það getur komið sér vel, ekki síst fyr-
ir þá sem eru með tengihýsi, að hafa
auka rafmagnsöryggi með í för.
Hjólbarðar \
Mynstur ætti alls staðar að vera 2 mm djúpt eða
meira. Slitnir hjólbarðar hafa minna veggrip og
hemlunarvegalengd eyksttil muna, sérstaklega
á blautu undirlagi. Athugaðu lika loftþrýstínginn.
Töflu yfir ráðlagðan loftþrýsting má oft finna í hurða-
falsi bílstjórahurðar, innan á eldsneytisloki eða
í eigendahandbók bílsins. Rangur loftþrýstingur
eykur eyðslu og vald þitt á bílnum minnkar.
Til að hringja á hjálp
Gott er að hafa bilhleðslutæki
fyrir símann meðferðis svo
hann verði ekki rafmagns-
laus á ögurstundu. Þeir sem
halda til fjalla ættu að vera
með NMT-síma líka.
I = Nauðsynlegt
y = Sniðugt
Ljós '
Athugaðu hvort allar perur séu heilar.
Þú getur notað endurspeglun í stór-
um búðarglugga til að auðvelda þér
verkið. Skiþtu um bilaðar perur og
mundu að þokuljós á aldrei aö nota
þannig að þau lýsi á aðra bíla.
TIL UMHUGSUNAR
• Eftirvagnar (kerrur, hjólhýsi,
tjaldvagnar o.s.frv.), breyta akst-
urseiginleikum bifreiða. Þær verða
þyngri, óstöðugri og vilja rása til á
vegum. Ef eftirvagn er breiðari en
ökutækið og hindrar baksýni þarf
að framlengja hliðarspegla bílsins
báðum megin.
Almenna reglan er sú að
fólksbifreið og sendibifreið með
eftirvagn má ekki aka hraðar en 80
km/klst Það borgar sig að athuga
hvort ökumaður hafið tilskilin
réttindi til að draga eftirvagn eða
tengitæki en það er hægt að sjá á
heimasíðu Umferðarstofu, us.is.
• Ölvunar- og annars konar vímu-
efnaakstur er ein algengasta orsök
banaslysa og alvarlegra slysa i
umferðinni. Hann hleypur á tugum
sá fjöldi fólks sem hefði undanfarin
2 - 3 ár mátt forða frá alvarlegu lík-
amstjóni og dauða í umferðinni ef
menn hefðu einfaldlega sleppt því
að setjast undir stýri undir áhrifum
áfengis og annarra vimuefna. Ger-
um verslunarmannahelgina ekki
aö upphafi sorgar og dapurlegra
minninga. Blöndum ekki saman
áfengi og akstri og aukum með því
líkurnar á gleðilegri helgi.
• Það er mikilvægt að bílstjórar taki
tillit til þess að bifhjólamenn eru stór
hluti vegfarenda og þeir hafa sama
rétt í umferðinni og aðrir. Mundu
aö bifhjól sjást ekki eins vel og bíll.
Þau em smærri, það er erfiðara að
gera sér grein fyrir hraða þeirra og
oftast fara þau hraðar en þér sýnist.
Einnig virðast þau oft fjær en raun
ber vitni. Gáðu tvisvar áður en þú
ekur af stað á gatnamótum. Ekki
aka af stað fyrr en að þú ert viss um
að það sé óhætt. Gefðu stefnuljós
þegar þú skiptir um akrein og gerðu
það tímanlega. Það getur verið hjól
við hlið þér eða rétt fyrir aftan bílinn
og það eru töluverðar líkur á að þú
sjáir ekki hjólið i hliðarspeglinum.
(www.us.is)
Compe-hvaö?
Á þriðjudaginn svipti
Alfa-Romeo hulunni af 8C
Competizione (hvílíkt nafn!),
sportbíl sem verður aðeins
framieiddur í 500 eintökum
og dregur nafn sitt af 6C
Competizione-kappaksturs-
bílnum sem gerði garðinn
frægan á Mille Miglia árið
1950. í húddinu er 4,6 lítra V8
sem dundar sér við að fram-
leiða 450 hestöfl.
Stór Mini
Á Netinu má nú finna fjöldann
allan af myndum af nýjustu
afurð Mini sem kallaður er
Clubman. í bílskúrnum hafa
afturhurðirnar á þessari stóru-
bróður-útfærslu vakið mesta
lukku en þær opnast aftur-
ábak, eða „suicide-style“ eins
og það hét í gamla daga.
Fiat 500 uppseldur
ítalar eru snarklikkaðir. Þetta
höfum við alltaf vitað. En þeir
framleiða bara svo skemmti-
lega bíla! Það þarf því engan
að undra að af þeim 58.000
Fiat 500 sem gert er ráð fyrir
að rúlli af færibandinu í ár
hafa ítalar sjálfir pantað
51.000 stykki. Frakkar hafa
pantað 6.000 til viðbótar svo
ársframleiðslan er við það að
seljast upp, þremur vikum
eftir að bíllinn fór á sölu.
Umhverfisvænasti bíll í heimi?
Ekki fyrir grænmetisætur
Hvernig fer maður að því að búa til bíl sem er
95% niðurbrjótanlegur í náttúrunni eða endur-
vinnanlegur? Jú, með því að velja hráefni sem
er að mestu leyti lífrænt.
Með því að nota plöntur til að smiða flest
nema stýrishjólið, sætið og rafkerfið verður
til bíll að nafni Eco One Speedster. Bíllinn er
gríðarlega umhverfisvænn en kemst samt yfir
200 km hraða og 0-100-tíminn er undir fjórum
sekúndum. Eldsneytið gerjuð blanda, búin til
úr hveiti og sykurrey. Þannig er nánast hægt
að „rækta“ bíl frá grunni, nokkuð sem án
efa á eftir að verða vinsælt í framtíðinni, svo
fremi sem grænmetisætur borði þá ekki alla
jafnóðum.
Fari bíllinn einhverntíma í framleiðslu
kemur hann til með að vera verðlagður
„einhverstaðar norðan við 12 milljónir króna.“
Það þykir kannski í það mesta fyrir eins sætis
bíl en hvað gerir maður ekki til að halda
samviskunni góðri og bjarga umhverfinu?
Bremsuborðar:
Gerðir úr malaðri skum
kastaníuhneta. Ryk
afborðunumer , —v
ekkiskaðlegt ' ~
pmhverfinu. ■
Hjólbarðar:
Að hluta til úr
kartöflusterkju. Það
minnkar eldsneyti-
snotkun þarsem
vegviðnám er minna.
Hámarskhraði: 241 km • Eyðsla: 6,71/1 OOkm • Lengd: 2,74 m • Breidd: 1,52 m
Yfirbygging:
Blandaaf r Súw
hamp-massaog' "x-Aþf /
fræolíu sem er Jpl/
meðhöndluð 0
mótuð.
< m
1
\m ~j>
Eldsneyti:
Úr gerjuðu
hveiti og
sykurreyr.