blaðið - 03.08.2007, Page 27
blaóió
FOSTUDAGUR 3. AGUST 2007
ORÐLAUSLÍFIÐ
ordlaus@bladid.net
Þetta er orðið hluti af samskipta-
mynstrinu milli tónlistarmanna og
hlustenda, og maður verður bara að
•___•«£ I_H U
sætta sio við hað."
MySpace-væðing tónlistarmarkaðarins
„Hljómsveitir taka loks
málin í sínar hendur“
MySpace-svæðin á verald-
arvefnum nýtast fleirum
en þeim sem vilja hafa
samskipti við vini og
vandamenn; tónlistar-
menn koma sér nefnilega
í æ ríkara mæli á framfæri
gegnum MySpace-síður
sínar.
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
„Ég sagði einhvern tímann að málið
væri ekki hvað maður geti heldur hvað
maður geri. Það er því bara af hinu góða
að hljómsveitir taki loks málin í sínar
hendur; hætti þessari óframfærni og
koma sér bara sjálfar á framfæri," seg-
ir Einar Örn Benediktsson, Sykurmoli
með meiru. Og það er einmitt það sem
MySpace fyrir tónlistarmenn snýst um;
að skapa þeim vettvang til að koma sér
sjálfir sér á framfæri.
Hluti af samskiptamynstrinu
Ghostigital, núverandi hljómsveit
Einars Arnar, er með síðu hjá MySpace.
„Þetta er orðið hluti af samskiptamynstr-
inu milli tónlistarmanna og hlustenda,
og maður verður bara að sætta sig við
það.“ Einar segir hlustendur nota My-
Space til að finna aftur hljómsveitir
sem þeir hafa heyrt í. „Ég tók t.d. eftir
því því að eftir tónleika sem við héldum
með Björk í Bandaríkjunum og á Italfu
fjölgaði mikið heimsóknum á MySpace-
síðu okkar.“
Einar segir það besta við MySpace
vera hversu gott aðgengi síðan veiti
hlustendum að nýrri tónlist. „Ég hef
t.d. sjálfur oft uppgötvað góða tónlistar-
menn á MySpace. Svo hef ég líka rekist
á fullt af gömlum kunningjum sem ég
hélt að væru löngu dauðir.“
Hjálpar íslenskum hljómsveitum
Árni Rúnar Hlöðversson er í hljóm-
sveitunum Motion Boys, FM Belfast,
Hairdoctor og Plúseinn, svo eitthvað sé
talið. Hann segir MySpace hafa hjálpað
öllum þessum hljómsveitum að koma
sér á framfæri. „MySpace er mjög fínt
tæki þegar maður er að reyna að sann-
færa einhvern um að bóka sig. Það er
svo auðvelt að benda tónleikahöldurum
á að hlusta á lög hljómsveitar á MySpace,
enda þekkja síðuna allir.“
Árni segist telja stórt og gott tengla-
safn vera það besta við MySpace.
„Hlustendur rekast oft fyrir tilviljun á
hljómsveit á MySpace í gegnum síður
hljómsveita sem þeim líkar vel við.“
MVSPACt MUSIC
BLOODG
MuilC V.'Jpoj DlftCto«V Top Arllttf
Blaðiö/Kristinn
MySpace íslenska hljómsveit-1
in Bloodgroup hefur verið
bókuð á tónleika í gegnum
MySpace-síðu sveitarinnar.
SAGA MYSPACE
2003 Forritið ellniverse
stofnar MySpace, og ýtir
úr vör keppni milli starfs-
manna um hver nái að afla
síðunni flestra notenda.
2005 News Corporation,
fyrirtæki Ruperts Murdoch,
kaupir MySpace á tæpa 37
miiljarða.
2007 MySpace er í þriðja
sæti yfir mest heimsóttu
heimasíður úr tölvum í
Bandaríkjunum, og í sjötta
sæti á heimsvísu.
Enn til miðar á
Innipúkann
Þeir sem kjósa menningu fram
yfir blautan svefnpoka og
brekkusöng um verslunarmanna-
helgina geta enn tryggt sér miða
á Innipúkann, sem fer fram á
nýja skemmtistaðnum Organ
að þessu sinni. Miðar eru seldir
í 12 Tónum á Skólavörðustíg, og
kostar hann 3.500 krónur. Að
sögn Einars, kenndan við Sonic,
hjá 12 Tónum hefur miðasala
gengið vel. „Nú þegar höfum við
selt um helming miða, en það
eru aðeins um 300 miðar í boði.
Þannig að ég held að það sé bara
tímaspursmál hvenær verður
uppselt.“
Haldin verður grillveisla á sunnu-
daginn fyrir tónleikagesti, og
þeir Arnar Eggert, Gísli Galdur,
Dj Steinþór og Dj Terrordisco
munu þeyta skífum fyrir og eftir
tónleikana. Að öðru leyti er dag-
skrá sem hér segir:
Laugardagur:
20:00 Hudson Wayne
21:00 Hjaltalín
22:00 Forgotten Lores
23:00 Ghostigital
00.00 JeffWho?
01:00 Stórsveit Nix Noltes
Sunnudagur:
20:00 Steypa
21:00 Mr. Silla & Mongoose
22:00 Seabear
23:00 Motion Boys
00:00 Bogomil og Flís
01:00 Mínus
02:00 FM Belfast
hos
Málaferli gegn
Kelly hefjast
Eftir fimm ár í kerfinu er loksins
kominn dagur á málaferlin gegn
rapparanum R. Kelly en hann
er ákærður fyrir að hafa haft
undir höndum töluvert magn af
barnaklámi og að hafa haft sam-
ræði við stúlku undir lögaldri.
Kelly lýsti sig saklausan af öllum
ákæruliðum á sínum tíma en
málið kom upp árið 2001 og seg-
ist stjarnan nú hlakka til að leiða
málið til lykta. Fjölmiðlafulltrúi
Kellys sagði í samtali við MTV
News að stjarnan væri tilbúin
fyrir réttarhöldin og að hann trúi
því að réttlætið muni ná fram að
ganga þegar staðreyndir málsins
verða gerðar ljósar.
Ferö um gleymd ævintýralönd
Nýjasta plata CocoRosie er ekkert
sérstaklega ný. Engu að síður finnst
mér vel við hæfi að fjalla örlítið um
hana nú. Því eftir þó nokkrar vin-
sældir hljómsveitarinnar i kringum
komu hennar á klakann í byrjun síð-
asta sumars, virðist sem landinn sé
meira eða minna búinn að gleyma
þessari frábæru sveit. Sem er synd,
því The Adventures of Ghosthorse
and Stillborn er engu síðri en það
sem hljómsveitin hafði áður gert.
Fyrir þá sem ekki þekkja til
CocoRosie er um að ræða samstarfs-
verkefni systranna Coco og Rosie.
Systrum þessum kom ekkert sér-
staklegajvel^samaaiotfikiu ogigekk
þaðf B'ýd ±arigt laff)ái»íkigliij}>slítKm
misstu þær alveg samband hvor
við aðra - bjuggu reyndar ekki
einu sinni í sama landi. Það var svo
ekki fyrr en þær voru komnar yfir
tvítugt að þær hittust aftur í París,
en báðar ólust þær upp í Bandaríkj-
unum. Sagan segir að mánuðina
eftir endurkynnin hafi systurnar
eytt hverri stundu saman við upp-
tökur og tónsmíðar.
Tónlist CocoRosie telst til þeirrar
stefnu sem hefur verið kölluð „Psych
Folk“; þar sem píanói eða kassagítar
er blandað saman við hin ýmsu
rafhljóðfæri, dýrahljóð og jafnvel
barnaleikföng. Á nýju plötunni
gætir .reyndar.^mcirii. hippphopp-
áhrifa en áður, og órafthðgMkí
hljóðfærin eru fyrirferðarminni.
Þá er óperutónlist skotið inn hér
og þar. En engu að síður held ég að
það megi réttilega kenna tónlist plöt-
unnar við „Psych Folk“ (eða frænku
hennar, „Freak Folk“).
The Adventures of Ghosthorse and
Stillborn er heldur tormeltari en síð-
asta plata sveitarinnar, Noah’s Ark.
Engu að síður eru á henni nokkur
lög, t.d. „Rainbowarriors“, „Werew-
olf“ og „Animals“, sem flestir ættu
að geta fílað án mikillar fyrirhafnar.
En fyrir þá sem gefa sér tíma til að
leggjast upp í sófa og leyfa plötunni
að renna nokkrum sinnum í gegn
án.þess að hugsa um.neitt annað en
tónlistina, bíður yndislegt ferðaikg
EftirHlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladld.net
TÓNUST ★★★★ý
ímyndunaraflsins aftur til skemmti-
legustu ævintýrasagna sem hlust-