Bændablaðið - 22.03.2005, Side 19
Þriðjudagur 22. mars 2005 19
ZooLac
®
PROPASTE
®
Zoolac í lömbin - Hrein afurð
Söluaðilar: Dýralæknar um land alt,
Apótekarinn Akureyri
Vetis ehf - Sími: 4611290 - Heimasíða: www.vet.is - Rafpóstur: vetis@vet.is
Austurvegi 69 - Selfossi - Sími 4 800 400
jotunn.is
Plógar, herfi og valtarar
Mikið úrval,
hagstætt verð
Scan fjaðraherfi,
dragtengd fjaðraherfi
í mörgum stærðum.
Vogel & Noot plógar,
vandaðir og sterkir.
Scan valtarar,
mikil afköst og góð þjöppun.
Að kreista
mjólk úr steini
Miðvikudaginn 30. mars og fimmtudaginn 31. mars
standa verkefnið Sóknarfæri til sveita,
Frumkvöðlafræðslan ses. og Lifandi landbúnaður,
félagsskapur kvenna í landbúnaði, fyrir kynningar- og
umræðufundum um nýsköpun og tækifæri í dreifbýli.
Á fundunum verður rætt um menntunarmöguleika,
viðskiptahugmyndir, stoðkerfi fyrir frumkvöðla þ.e.
fjármögnun og ráðgjöf, tengslanet, heimavinnslu og
sölu afurða beint frá býli, ferðaþjónustu, afþreyingu,
handverk og fleira allt eftir óskum fundargesta.
Fundarstaðir og tímasetningar eru:
Staðarflöt, Hrútafirði, 30. mars kl. 13:30 - 14:30
Sjálfstæðissalurinn, Blönduósi, 30. mars kl. 17:00-18:00
Reykhólaskóli, Reykhólum, 31. mars kl. 13:30-14:30
Dalabúð, Búðardal, 31. mars kl. 17:00-18:00
Fundirnir eru haldnir í samvinnu við Búnaðarsamtök
Vesturlands og Ráðunautaþjónustu Húnaþings og stranda.
Það leynast víða tækifæri Við hvetjum fólk til að koma og
kynna sér þá þjónustu sem er í boði.
Reglur verndaráætlunarinnar geri
bændum kleift að selja á markaði
sauðfjárafurðir sem vottað er að
séu frá slíkum verndarsvæðum.
Sérstaklega verði kannað hvernig
tryggja megi að slátrun fari fram
innan verndarsvæðanna hvers og
eins eða sameiginlega. Við gerð
verndaráætlunarinnar skal endur-
meta allar sauðfjárveikivarnaregl-
ur sem í gildi hafa verið.“
Þingsályktunartillagan er til
umfjöllunar í landbúnaðarnefnd
eftir að hafa verið rædd við fyrstu
umræðu í þinginu. Nýlega til-
kynnti landbúnaðarráðherra að
hann hefði skipað nefnd til að end-
urskoða sauðfjárveikivarnir og
sagði Jóhann að hann vænti þess
að hugmyndin um sérstök verndar-
svæði yrði rædd samhliða. Riða
hefur ekki látið á sér kræla á
Ströndum, Snæfellsnesi og á
Norðausturhorni landsins.
Jóhann sagði að án efa þætti
mörgum sauðfjárbændum, sem
búa á þekktum riðusvæðum, ekki
spennandi að bændur á ósýktum
svæðum gætu selt afurðir sínar
með sérstakri vottun þar að lút-
andi. „Ég tel þrátt fyrir allt að full
ástæða sé til að skoða þessa hug-
mynd mína. Mörg þessara riðu-
svæða gætu farið í flokk ósýktra
svæða eftir vissan árafjölda. Fag-
menn myndu úrskurða um það
hvenær hættan væri liðin hjá.“
Íslenski
fjárstofninn er auðlind
Í greinargerð með þingsályktunar-
tillögu Jóhanns segir að riðan
hafði herjað víða um land en enn
séu nokkur svæði ósýkt og séu
uppspretta líflamba fyrir önnur
svæði. „Innan fárra ára verður
mögulegt að endurmeta svæði þar
sem veikin hefur ekki komið upp
lengi og taka þau inn í flokk
ósýktra svæða.“
Jóhann segir í greinargerðinni
að það sé áhyggjuefni að nú sé
sauðfé flutt landshorna milli til
slátrunar. Þótt ekki hafi verið flutt
fé af riðuveikisvæðum inn á ósýkt
svæði til slátrunar hafa sömu flutn-
ingatækin farið um sýkt og ósýkt
svæði. Sjúkdómurinn sé svo illvíg-
ur að þessi aðferð geti ekki talist
örugg. Því þurfi að tryggja að
slátrun á þessum svæðum fari fram
innan þeirra en huga mætti þó að
þeim möguleika að fé yrði flutt
milli ósýktra svæða til slátrunar ef
sú aðferð stæðist þær öryggiskröf-
ur sem settar yrðu.
Ósýkt svæði verði
varðveitt til framtíðar
Í greinargerðinni segir að eðlilegt
markmið stjórnvalda ætti að vera
að tryggja með öllum tiltækum
ráðum að ósýkt svæði verði varð-
veitt til framtíðar, a.m.k. þar til
tekst að ráða niðurlögum veikinnar
í öðrum landshlutum. Sérstök
vernd svæðanna feli líka í sér
möguleika til að markaðssetja
sauðfjárafurðir frá þeim sérstak-
lega og vitað er að fyrirspurnir um
hvort slíkt hafi verið í boði hafa
komið erlendis frá. Sérstök vernd-
aráætlun fyrir slík svæði gæti því
aukið möguleika bænda til að selja
vöru sína bæði hér og erlendis með
sérstakri gæðavottun hvað þessa
veiki varðar.
Þá segir að margvíslegar ráð-
stafanir hafi verið gerðar hér á
landi til að hefta útbreiðslu sjúk-
dóma í sauðfé með ágætum ár-
angri en þó hafi riðuveikin stungið
sér niður víða um land og komið
upp aftur á bæjum þar sem fé hefur
verið skorið niður jafnvel mörgum
árum síðar. „Til dæmis voru 18 ár
liðin frá því að skorið var niður á
bæjum í Skagafirði og Jökuldal
þar til veikin kom upp aftur. Í
Vatnsdal eru dæmi um 14 ár og
einnig að 20 ár hafi liðið frá niður-
skurði þar til veikin kom upp aftur.
Sérfræðingar telja að smitefni
veikinnar hafi með einhverjum
hætti lifað í umhverfinu. Afar erfitt
er að viðhalda þekkingu almenn-
ings og skilningi á varúðarráðstöf-
unum sem nauðsynlegar eru til svo
langvinnrar baráttu sem nauðsyn-
leg er til að ráða niðurlögum sjúk-
dómsins. Til eru ný og gömul
dæmi um skemmdir á varnargirð-
ingum vegna utanvegaaksturs,
notkun fjárhúsa á sýktum svæðum
fyrir dýr sem svo hafa verið flutt
til ósýktra svæða og ferðalög á
hestum þar sem fóður af sýktum
svæðum hefur verið með í för.“
Íslenski fjárstofninn er auðlind
„Flutningar af ýmsu tagi, t.a.m. á
búvélum eða búnaði, geta valdið
því að veikin berist milli lands-
hluta. Vitað er að að riða hefur
borist milli landshluta vegna við-
skipta með fóður. Ástæður þess að
menn brjóta varúðarreglur eru oft-
ast þekkingarleysi og það andvara-
leysi sem smám saman vill verða
vegna þess að svo langt er liðið frá
því að veikin herjaði á viðkomandi
svæðum. Það er hægara sagt en
gert að viðhalda þeirri stöðugu ár-
vekni sem þarf til að kveða þennan
illvíga sjúkdóm endanlega niður.
Þess vegna er að mörgu að huga ef
fyrirbyggja á áratugum saman að
veikin berist milli svæða. Ástæða
er til að gera ráð fyrir langri bar-
áttu við þennan sjúkdóm í landinu.
Ósýktu svæðin ætti að vera auð-
veldara að verja ef þeirra verður
sérstaklega gætt en ómælanlegur
skaði yrði ef sjúkdómurinn kæmi
upp á þeim og þess vegna er full
ástæða til að huga alveg sérstak-
lega að vernd þeirra og góð rök
fyrir að kosta þar nokkru til.
Frumkvæði og stuðningur hins
opinbera við verndaráætlun eins
og hér er lagt til að verði til stofn-
að er að mati flutningsmanns þess-
arar ályktunar fyllilega réttlætan-
legur. Það er hlutverk hins opin-
bera að verja með tiltækum ráðum
auðlindir landsins. Íslenski fjár-
stofninn er ein þessara auðlinda.
Tillagan er flutt í þeim tilgangi að
verja hann fyrir þeim sjúkdómi
sem erfiðast hefur verið að ná tök-
um á.“
Vill varðveita svæði
sem eru ósýkt af
sauðfjárriðu
Í upphafi þinghalds í haust flutti Jóhann Ársælsson tillaga til þings-
ályktunar um verndaráætlun fyrir svæði sem eru ósýkt af sauðfjárr-
iðu. Í ályktuninni segir: „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að
undirbúa og leggja fyrir næsta reglulegt Alþingi verndaráætlun um
að varðveita svæði sem eru ósýkt af sauðfjárriðu svo að þar megi ala
líflömb fyrir svæði sem hafa sýkst.