Bændablaðið - 17.04.2007, Blaðsíða 19
Bændablaðið | Þriðjudagur 17. apríl 200719
Nýju dráttarvélarnar frá KUBOTA:
KUBOTA M125X - 125 hö
KUBOTA M105s - 105 hö
KUBOTA ME9000 - 94 hö
Hafið samband og fræðist um þessar nýju
glæsilegu dráttarvélar frá KUBOTA.
Þ Ó R H F | R E Y K J A V Í K : Á r m ú l a 1 1 | S í m i 5 6 8 - 1 5 0 0 | A K U R E Y R I : L ó n s b a k k a | S í m i 4 6 1 - 1 0 7 0 | w w w . t h o r . i s
Þrír vænlegir kostir frá KUBOTA
Laugardaginn 21. apríl verð-
ur efnt til Skeifudags Hesta-
mannafélagsins Grana, sem er
félag nemenda við Landbún-
aðarháskóla Íslands. Skeifudag-
urinn verður í glæsilegri reiðhöll
að Mið-Fossum í Borgarfirði.
Dagskráin hefst klukkan 12:30.
Á Skeifudeginum sýna nemend-
ur í hrossarækt við LbhÍ afrakstur
vetrarstarfsins í reiðmennsku og
frumtamningum.
Keppt verður um Gunnarsbik-
arinn sem Bændasamtök Íslands
gáfu til minningar um Gunnar
Bjarnason, fyrrum hrossaræktar-
ráðunaut og kennara á Hvanneyri.
Þá verður Morgunblaðsskeifan af-
hent þeim nemenda LbhÍ, sem stóð
sig best í reiðmennsku- og frum-
tamninganámi vetrarins. Þess má
geta að nú er hálf öld liðin frá því
að Morgunblaðsskeifan var afhent
í fyrsta sinn. Kennari í vetur var
tamningameistarinn Reynir Aðal-
steinsson.
Á Skeifudaginn munu hesta-
mannafélögin Faxi og Grani efna
til úrslitakeppni þar sem efstu
keppendur úr mótaröð Faxa í vetur
heyja lokabaráttu. Ýmislegt fleira
skemmtilegt verður gert þennan dag.
Skeifudagur á
Mið-Fossum
Heimti fé af fjalli
Jón Guðjónsson, fyrrverandi
hreppstjóri að Laugabóli í Ísa-
fjarðardjúpi, sem nú býr í Borg-
arnesi, heimti nýverið fé af
fjalli. Fimmtán fjár hafðist við
í Húsadal, sem liggur að Kolla-
fjarðarheiði, en að auki fund-
ust tvær ær í Hvannadal sem er
talsvert norðar. Féð var í nokk-
uð góðu ásigkomulagi miðað
við aðstæður og var sumt í ull-
arskilun, einn lambhrútur var
genginn úr reifinu og á tveimur
var hvergi hönd á festandi, þeir
voru í bröggun, segir í frétt á vef
Skessuhorns.
Jón segir að vetur hafi verið
umhleypingasamur nyrðra, en lítil
snjóalög hafi verið síðan snjóavet-
urinn 1995 og því ekki óeðlilegt
að fé heimtist af fjalli í einmánuði.
Hann segir að síðan jarðir hafi farið
í eyði norðan fjalla megi búast við
ýmsu í göngum og fjallskil á svæð-
inu séu ekki nógu vel skipulögð af
hendi sveitarstjórnarmanna.
www.bbl.is