Bændablaðið - 12.03.2009, Blaðsíða 18
BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 12. MARS 2009 18 búnaðarþing 2009
Ályktanir Búnaðarþings frh.
Greinargerð með ályktun um fæðuöryggi
Óvissutímar í efnahagsmálum þjóðarinn-
ar, gjaldeyrisskortur og gjaldeyrishöft hafa
vakið upp spurningar um hvernig fæðuöryggi
landsmanna verði best tryggt. Það liggur
fyrir að þegar efnahagsörðugleikar dynja
yfir hugsa einstakar þjóðir fyrst og fremst
um að tryggja sínum eigin þegnum mat. Á
liðnu hausti sáust bæði dæmi um að þjóðir
takmörkuðu útflutning með lögum eða skatt-
lögðu hann sérstaklega. Ekki er því alltaf
hægt að treysta á að unnt sé að flytja inn mat-
væli eða aðföng til matvælaframleiðslu. Þessi
sömu vandamál geta einnig skapast vegna
styrjalda, náttúrhamfara, sjúkdóma eða ann-
ars konar hruns í milliríkjaviðskiptum. Ekki
er til heildstæð áætlun um fæðuöryggi hér á
landi. Leita verður samvinnu við stjórnvöld
um málið, fara yfir núverandi framleiðslu,
skilgreina lágmarksbirgðir af matvælum og
nauðsynlegum aðföngum til innlendrar fram-
leiðslu. Jafnframt þarf að meta hvaða aðgerða
er þörf ef fæðuöryggið er ekki fullnægjandi,
eins og hvort styrkja og auka þurfi innlenda
matvæla- og fóðurframleiðslu.
Ályktun um skráningu á framleiðslu
Markmið
Skilgreina lagalega stöðu framleiðslu innan
gildandi búvörusamninga sem nýtt er til
heimavinnslu.
Leiðir
Búgreinafélög skoði hvernig heima vinnslu sé
best borgið innan sinnar greinar.
Framgangur máls
Búnaðarþing 2009 beinir því til stjórnar BÍ að
útfæra reglur um skráningu heimavinnsluaf-
urða í samráði við viðkomandi búgreinafélög.
Ályktun um skilaverð við útflutning
landbúnaðarvara
Markmið
Búnaðarþing 2009 telur að bændur eigi að
njóta í meira mæli þess ábata sem orðið hefur
við útflutning landbúnaðarvara vegna lækk-
unar gengis krónunnar.
Leiðir
Auka gagnsæi í myndun skilaverðs til
bænda.
Framgangur máls
Stjórn BÍ taki málið upp við stjórnendur
afurðastöðva.
Ályktun um Lífeyrissjóð bænda – verðmat
jarða
Markmið
Búnaðarþing 2009 telur rétt að kostnaður
lántakenda við verðmat jarða, vegna lántöku
hjá Lífeyrissjóði bænda, sé sá sami óháð
staðsetningu jarða.
Leiðir
Stjórn Lífeyrissjóðs bænda finni leið til að
jafna þennan kostnað.
Framgangur máls
Ályktunin verði send stjórn Líf eyr is sjóðs
bænda.
Ályktun um búnaðargjald
Markmið
Búnaðarþing 2009 samþykkir að endurskoða
innheimtu búnaðargjalds með það að mark-
miði að lækka búnaðargjald.
Leiðir
Skipuð verði nefnd af stjórn Bændasamtaka
Íslands sem hafi eftirfarandi starfssvið:
► Finni leiðir til að lækka eða leggja niður
búnaðargjald, í núverandi mynd í áföng-
um.
► Finni leiðir til að fjármagna félagskerfi
bænda með öðrum hætti.
► Komi með tillögur um breytingar á félags-
kerfi landbúnaðarins í tengslum við breyt-
ingar á búnaðargjaldi.
Framgangur máls
► Stjórn Bændasamtakanna skipi í nefndina.
► Hún hraði störfum svo sem verða má.
► Nefndin leggi fram tillögur sínar á næsta
Búnaðarþingi.
► Leitað verði leiða til að koma fyrsta áfanga
í lækkun búnaðargjalds til framkvæmda á
næsta
Ályktun um mikilvægi landbúnaðar
Markmið
Búnaðarþing 2009 vekur athygli á mikilvægi
landbúnaðar í íslensku samfélagi. Hann skipt-
ir miklu máli fyrir fæðuöryggi, leggur grunn
að fjölmörgum störfum um allt land og er
efnahagslega mikilvægur, ekki síst á tímum
þrenginga og gjaldeyrisskorts. Þingið hvetur
landsmenn til þess að slá skjaldborg um land-
búnaðinn til framtíðar og skorar á stjórnvöld
að taka afdráttarlausa afstöðu með íslenskum
landbúnaði.
Skapa þarf þverpólitíska sátt um landbúnað á
Íslandi. Bændur eru reiðubúnir til þess að vinna
með stjórnvöldum að mótun slíkrar sáttar.
Leiðir
– Að mörkuð verði stefna í málefnum land-
búnaðar til framtíðar.
– Að stjórnvöld standi við búvörusamninga.
– Ekki verði ráðist í breytingar á starfsum-
hverfi eða löggjöf landbúnaðarins sem
ógna matvælaöryggi, s.s. heilbrigði manna
og dýra.
– Bændur og almenningur taki höndum
saman um að efla umræðu um íslenskan
landbúnað og mikilvægi hans.
Framgangur máls
– Haldnir verði fundir með frambjóð-
endum og almenningi í aðdraganda
Alþingiskosninga og kynningarefni útbú-
ið.
– Dreifing Bændablaðsins í þéttbýli verði
aukin og stöðugt unnið að því að koma
málstað bænda að í almennri umræðu.
– Stjórn BÍ hefji stefnumótunarvinnu sem
miði að því að koma skýrum skilaboðum
bænda á framfæri um æskilega þróun
landbúnaðar á Íslandi.
Ályktun um aðild VOR að BÍ
Búnaðarþing 2009 hafnar umsókn VOR –
félags framleiðenda í lífrænni ræktun að
Bændasamtökum Íslands.
Ályktun um forsendur landbótaáætlana
Markmið
Búnaðarþing 2009 telur nauðsynlegt að
bænd ur sem vinna eftir landbótaáætlunum
inn an gæðastýringar í sauðfjárrækt, eigi þess
kost að uppfylla kvaðir gildandi samninga á
lengri tíma en samningarnir mæla fyrir um.
Leiðir
Landgræðsla ríkisins taki tillit til gríðarlegr-
ar hækkunar á áburðarverði og gefi bændum
kost á lengri tíma til að framkvæma núgild-
andi landbótaáætlanir.
Framgangur máls
Stjórn BÍ leggi fram erindi til Landgræðslu
Ríkisins um málið.
Ályktun um búvörusamninga
Markmið
Búnaðarþing 2009 mótmælir því að ekki
skuli staðið við gerða búvörusamninga.
Tryggja þarf festu í framkvæmd samninga
sem ríkisvaldið hefur gert við samtök bænda
um stuðning við einstakar búgreinar.
Leiðir
Nauðsynlegt er að stjórn BÍ og viðkomandi
búgreinafélög leiti allra leiða til að leysa
málið með samningum við ríkisvaldið og
eyða þannig núverandi óvissu.
Framgangur máls
Óska eftir viðræðum við stjórnvöld um lausn
á málinu með samningum.
Ályktun um rekstrarumhverfi
landbúnaðarins
Markmið
Búnaðarþing 2009 leggur áherslu á að tryggja
þarf rekstrarumhverfi íslensks landbún-
aðar. Gera verður nú þegar ráðstafanir til að
fjármálafyrirtæki geti veitt landbúnaðinum
nauðsynlega fyrirgreiðslu. Brýnt er að leita
varanlegra lausna í stað bráðabirgðaúrræða
sem viðhalda óvissu og óöryggi.
Leiðir
Aðgangur að fjármagni, lækkun vaxta, skuld-
breytingar, skilmálabreytingar á lánum og
fleiri aðgerðir sem nauðsynlegar eru.
Framgangur máls
Stjórn BÍ haldi áfram viðræðum við stjórn-
völd og fjármálastofnanir.
Ályktun um álftir og gæsir
Markmið
Búnaðarþing 2009 ítrekar mikilvægi þess að
dregið verði úr tjóni af völdum álfta og gæsa.
Leiðir
– Að meta með faglegum hætti tjón af völd-
um álfta og gæsa á ræktarlöndum.
– Að bæta skilvirkni stjórnvalda við veit-
ingu undanþága frá friðun fugla þar sem
um tjón af völdum þeirra er að ræða.
Framgangur máls
Stjórn BÍ beiti sér fyrir því að matsskýrsla um
tjón af völdum álfta og gæsa á ræktarlöndum
verði unnin.
Stjórn BÍ komi tilmælum um skilvirkari
stjórnsýslu á framfæri við stjórnvöld.
Ályktun um nýtingu á lífrænum úrgangi
Markmið
Búnaðarþing 2009 vekur athygli stjórnar BÍ á
mikilvægi þess að finna leiðir til þess að nýta
á sem skynsamlegastan hátt þau hráefni sem
til falla við matvælavinnslu í landinu. Einnig
til að auka fóðuröryggi í loðdýraræktinni.
Leiðir
Að skipa starfshóp sem fjallar faglega um
málið.
Framgangur máls
Stjórn BÍ beiti sér fyrir því að settur verði á
stofn starfshópur skipaður fulltrúum Bænda-
samtakanna, loðdýrabænda, afurðastöðva,
Umhverfisráðuneytis, Sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytis og Samtaka iðnaðarins.
Ályktun um nettengingar
Búnaðarþing 2009 bindur vonir við að ný-
gerður samningur á milli Fjarskiptasjóðs og
Símans um háhraðatengingu, verði til þess að
íbúar strjálbýlla svæða njóti sömu þjónustu
á sambærilegu verði og aðrir þegnar þjóð-
félagsins.
Ályktun um bjargráðasjóð
Búnaðarþing 2009 leggur til að hluta af eigin
fé A-deildar Bjargráðasjóðs verði varið til þess
að styrkja áburðarkaup bænda vorið 2009, eins
og gert er ráð fyrir í drögum að lagafrumvarpi
um sjóðinn sem ætlunin er að leggja fram á
Alþingi. Búnaðarþing felur stjórn BÍ að fylgja
þessu atriði eftir og gæta þess jafnframt að við
endurskoðun laga verði tjónaflokkar endur-
skoðaðir. Í samráði við aðildarfélög BÍ verði
tryggt að aðkoma búgreinanna að B-deild
sjóðsins verði þeim ásættanleg.
Ályktun um fjallskil
Búnaðarþing 2009 felur stjórn BÍ að senda
sveitarfélögum og héraðsnefndum skýrslu
starfshóps um framkvæmd fjallskila. Í
skýrslunni er bent á ýmsa þætti sem færa má
til betri vegar með breyttum fjallskilasam-
þykktum og vinnubrögum við fjallskil innan
núverandi lagaramma.
Ályktun um rafmengun
Erindi Búnaðarsambands Austurlands um
rafmagn, rafmengun og frágang rafmagns í
sveitum
Búnaðarþing 2009 beinir því til stjórnar BÍ
að hún sjái til þess að gerð verði fagleg úttekt
á frágangi rafmagns í sveitum og hugsanleg
tengsl rafmengunar við vanheilsu búfjár og
jafnvel manna. Einnig þarf að skoða hvort
rekja megi alvarlega bruna í gripahúsum að
undanförnu til ónógs frágangs jarðskauta.
Greinargerð
Erindi þetta er í raun tvískipt, annars vegar að
skoða þátt rafveitna í að ganga frá rafmagni
skv. gildandi reglum; hins vegar sá hluti sem
snýr að búfé og hvernig rafmagn eða öllu
heldur rafmengun getur haft skaðleg áhrif á
skepnurnar.
Árið 1998 sendi BsA samskonar erindi til
búnaðarþings. Ljóst er að vandinn hefur síður
en svo minnkað síðan þá. Svo virðist sem
saman fari athugasemdir um heilsu búfjár og
skorti á frágang jarðskauta við hús og híbýli.
Reynslan sýnir að þar sem bætt hefur verið
úr og hús jarðtengd rækilega, hefur gripum
og mönnum liðið betur og ýmis óþægindi og
kvillar horfið.
Vegna þess hve umdeild tilvist og áhrif
rafmengunar er ennþá, er nauðsyn að fram
fari í fyrsta lagi skráning á þeim bæjum, þar
sem bændur eru ósáttir við heilsufar og afurð-
ir búfjár síns og hvað telst hafa breyst eftir
að rafmagn hefur verið lagað. Síðan þarf að
rannsaka og bera saman þar sem rafmagn er
,,í ólagi“ og síðan í ,,topplagi“.
Að lokum skal bent á að erindi BsA frá
1998 er enn í fullu gildi.
Niðurstaða: Máli vísað til stjórnar BÍ
Ályktun um verð á aðföngum
1. Erindi Búnaðarsambands Austurlands
Búnaðarþing 2009 beinir því til stjórnar
Bændasamtaka Íslands, að sjá til þess að
gerður verði verðsamanburður á aðföngum
í landbúnaði hérlendis og í nágrannalönd-
unum, til að auðvelda bændum baráttuna við
það okurverðlag sem nú tíðkast.
Greinargerð
Þessi verðlagsakönnun verði gerð reglulega,
t.d. á þriggja mánaða fresti og birt í bænda-
blaðinu. Upphæðir þarf að birta í íslenskum
krónum, að teknu tilliti til flutningskostnaðar
og óraunhæfs gengismunar á hverjum tíma.
2. Erindi búnaðarþingsfulltrúa Búnaðarsam-
bands Suðurlands
Búnaðarþing 2009 felur stjórn Bændasamtaka
Íslands, í samvinnu við aðra hagsmunaaðila,
að kanna og fylgjast með verðlagningu, verð-
myndun og verðþróun á litaðri olíu í sam-
anburði við díselolíu og bensín.
Greinargerð
Í lögum nr. 87/2004 um olíugjald og kíló-
metragjald er kveðið á um undanþágu frá inn-
heimtu olíugjalds á dráttarvélar og fleiri tæki
sem ekki aka alla jafna um þjóðvegi landsins.
Skal sú olía vera auðkennd með litarefni og
vera ódýrari en ólituð díselolía. Verðmunur
á litaðri og ólitaðri olíu hefur hins vegar
minkað mikið frá því lögin tóku gildi og full
ástæða til að kanna hvað veldur.
Niðurstaða: Máli vísað til stjórnar BÍ
Ályktun um raforkuverð
Erindi Félags ferðaþjónustubænda um raf-
orkuverð
Félag ferðaþjónustubænda óskar eftir því að
búnaðarþing 2009 mótmæli harðlega hækk-
unum á raforkukostnaði í sveitum landsins
vegna hækkana á verðskrám opinberra orku-
fyrirtækja og lækkunar á jöfnunarkostnaði
frá ríkinu.
Greinargerð með erindi Félags ferðaþjón-
ustubænda
Raforkuverð til fyrirtækja og heimila í dreif-
býli hefur hækkað um 30-40% á nokkrum
árum og nýlega hafa opinber orkufyrirtæki
tilkynnt um hækkun á orkuverði og dreif-
ingakostnaði fyrir árið 2009. Framlag ríkis
til jöfnunar orkuverðs í strjálbýli hefur ekki
fylgt verðlagshækkunum síðustu ára og nið-
urgreiðslur ríkisins vegna rafhitunar hafa þar
að auki verið óbreyttar í nokkur ár. Útlit er
því fyrir 30-40% hækkun á raforkukostnaði í
dreifbýli á árinu 2009 sem eykur á erfiðleika
fyrirtækja og heimila og er með öllu óásætt-
anlegt.
Niðurstaða: Máli vísað til stjórnar BÍ.
Ályktun um hagmunagæsla
Erindi Búnaðarsambands Austurlands um
afdrif samþykkta búnaðarþings
Málin rædd á Búnaðarþingi.
Þarna má m.a. sjá Guðrúnu
Stefánsdóttur, Sigurbjartur
Pálsson, Jónas Helgason, Sveinn
Ingvarsson, Borgar Þór Bragason
og Jón Benediktsson.