Bændablaðið - 19.11.2009, Blaðsíða 14

Bændablaðið - 19.11.2009, Blaðsíða 14
14 Bændablaðið | fimmtudagur 19. nóvember 2009 Uppskeruhátíð hestamanna fór fram á Broadway laugardaginn 7. nóv. sl. Að hátíðinni standa Félag hrossabænda og Landssamband hestamannafélaga. Á hátíðinni eru veitt verðlaun þeim knöp- um og hrossaræktendum sem þykja hafa skarað fram úr á árinu. Sérstök valnefnd, skipuð fjölmiðlafólki og dómurum, velur þá er verðlaunin hljóta í hverj- um flokki og fagráð í hrossarækt útnefnir hrossaræktarbú ársins. Hrossaræktarbúið Strandar hjá- leiga var að þessu sinni útnefnt hrossaræktarbú ársins. Þetta er í fimmta sinn sem búið er tilnefnt en það hefur ekki áður hampað titl- inum. Fimm hross voru sýnd frá Strandarhjáleigu í ár og fóru fjög- ur þeirra yfir 8,0 í aðaleinkunn, sum í feiknarlega háar tölur; með- aleinkunn sýndra hrossa var 8,25. Meðalaldur var 5,8 ár. Ræktendur í Strandarhjáleigu eru þau Þormar Andrésson og Sigurlín Óskarsdóttir á Hvolsvelli ásamt sonum sínum Óskari, Ívari, Heiðari og Elvari, og tók fjölskyld- an öll við verðlaununum á hátíðinni úr hendi Kristins Guðnasonar, for- manns Félags hrossabænda. Sigurður Sigurðarson knapi ársins Mikil spenna ríkti einnig um val á knapa ársins og fór svo að Sigurður Sigurðarson í Þjóðólfshaga hamp- aði þeim titli. Sigurður náði frábærum árangri í ár á hinum ýmsu sviðum hestamennskunnar; sýndi m.a. fjölda kynbótahrossa og hlaut háa dóma fyrir, vann tvo Íslandsmeistaratitla og varð þriðji á HM í Sviss. Sigurður er fjölhæfur íþróttamaður, góð fyrirmynd og vel að sigrinum kominn. Í öðrum verðlaunaflokkum knapa urðu úrslit þau að kynbótak- napi ársins var Erlingur Erlingsson í Langholti, skeiðknapi ársins Sigurbjörn Bárðarson á Oddhóli og gæðingaknapi ársins Guðmundur Björgvinsson í Kirkjubæ. Aðrir verðlaunahafar voru þau Rúna Einarsdóttir-Zingsheim og Jóhann R. Skúlason, sem bæði búa erlendis og deildu með sér titli íþróttaknapa ársins, og Linda Rún Pétursdóttir úr Mosfellsbæ var valin efnilegasti knapi ársins. Siggi Sigmunds hlaut heiðursverðlaunin Sigurður Sigmundsson ljósmyndari og fréttaritari hlaut sérstök heið- ursverðlaun á uppskeruhátíðinni, en valnefndin hefur heimild til að veita slík verðlaun fyrir margs konar afrek, t.d. langa og dygga þjónustu við íþróttina, brautryðj- endastarf og fleira. Að þessu sinni varð Sigurður fyrir valinu, en hann hefur um hálfrar aldar skeið tekið myndir af hestum og hestamönn- um um allt land og framlag hans til kynningar á hestaíþróttinni er óum- deilt. Sigurður hefur starfað fyrir Morgunblaðið, Eiðfaxa og fleiri fjölmiðla og er myndasafn hans ómetanlegt verðmæti. Hann hefur alla tíð verið virkur í hestamennsku sjálfur, tekið þátt í félagsstörfum, ferðast á hestum og jafnvel brugð- ið sér á keppnisvöllinn á góðum dögum. Ferill hans er samofinn íslenska hestinum og óhætt er að segja að ekki sé til sá hestamaður á Íslandi sem ekki veit hver Siggi Sigmunds er. Mikil gleði ríkti á hátíðinni og skemmti fólk sér vel. Eingöngu hestamenn sáu um skemmti- atriðin, en veislustjóri var Hermann Árnason og Björk Jakobsdóttir leik- og hestakona tróð upp við mikinn fögnuð. Brokkkórinn, sem er kór hestamanna á höfuðborgarsvæðinu, vakti líka mikla lukku undir stjórn Magga Kjartans. Uppskeruhátíðin var vel heppnuð og greinilegt að engan bilbug er á hestamönnum að finna, sem enn kunna að skemmta sér þrátt fyrir kreppu. Texti og myndir: Hulda G. Geirsdóttir Strandarhjáleiga er hrossaræktarbú ársins Á árlegri ráðstefnu hrossaræktarinn- ar fyrir skemmstu hlutu fimm hryssur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Reyndar uppfylltu sex hryssur kröfurnar, en eig- andi einnar kaus að þiggja ekki verðlaun- in. Þær fimm sem hlutu verðlaun voru: 1. sæti Þerna frá Arnarhóli með 120 stig og 5 dæmd afkvæmi. 2. sæti Þöll frá Vorsabæ II með 117 stig og 6 dæmd afkvæmi. 3. sæti Þerna frá Feti með 117 stig og 5 dæmd afkvæmi. 4. sæti Ljónslöpp frá Ketilsstöðum með 117 stig og 5 dæmd afkvæmi (brotamunur á 3. og 4. sæti). 5. sæti Hryðja frá Hvítanesi með 116 stig og 5 dæmd afkvæmi. Til að hljóta heiðursverðlaun þurfa hryss- urnar að ná amk. 116 stigum í kynbótamati og eiga amk. 5 dæmd afkvæmi. Efsta hryssan hlýtur jafnframt Glettu- bikarinn og tóku þau Páll Stefánsson og Edda Björk Ólafsdóttir við bikarnum fyrir hryssu sína Þernu frá Arnarhóli, sem er undan Páfa frá Kirkjubæ og Vöku frá Arnar- hóli. Þerna á átta afkvæmi, þar af hafa fimm hlotið dóm og fjögur þeirra hlotið fyrstu verðlaun. HGG Eigendur heiðursverðlaunahryssna með verð launagripina á ráðstefnunni Hrossarækt 2009. Sigurður Sigmundsson hlaut sér- stök heiðursverðlaun á Upp skeru- hátíð hestamanna 7. nóv. sl. Verðlaunaknapar ársins saman- komnir. Sigurður Sigurðarson, knapi ársins, er fremstur. Með hópn um stendur Ólafur Rafnsson, for seti ÍSÍ. Hrossaræktendur ársins, Sigurlín Óskarsdóttir og Þormar Andrésson, ásamt sonum sínum Óskari, Ívari, Heiðari og Elvari. Kristinn Guðnason, formaður Félags hrossabænda, stendur hjá. Þerna efst heiðursverðlaunahryssna

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.