Bændablaðið - 19.11.2009, Blaðsíða 22

Bændablaðið - 19.11.2009, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | fimmtudagur 19. nóvember 2009 Hafist var handa við gerð garðs við Núp í Dýrafirði árið 1909 og fékk hann heitið Skrúður, að sögn eftir uppástungu vinnukonu á fermingaraldri á bæ í Köldukinn í Þingeyjarsýslu einhverjum árum áður. Af heitinu er talið að orðið „skrúðgarður“ hafi svo verið tekið og, eins og kunnugt er, notað um þá garða sem eru okkur bæði til augnayndis og fróðleiks. Vitað er að Jón Rögnvaldsson í Fífilgerði í Eyjafirði notaði samheitið „skrúð- garður“ í samnefndu riti árið 1937. En hvað sem því líður þá er ald- arafmælis garðsins Skrúðs á Núpi minnst þetta árið og því ekki seinna vænna að heiðra þennan ágæta garð með smá umfjöllun á afmælisárinu, auk þess sem hér er um að ræða einn af fáum skrúðgörðum landsins sem eru opnir almenningi og vert er að kíkja á næst þegar leið liggur um Vestfirði. Í fjallshlíðinni Garðurinn Skrúður stendur enn, en það er ekki síst fyrir framtak sem kennarar við Garðyrkjuskólann og fleira áhugafólk um varð- veislu garðsins stóð fyrir upp úr 1990, en áratuginn þar á undan hafði garðinum víst hnignað mjög. Árið 1992 var stofnuð nefnd til viðreisnar Skrúði og hafa nem- endur Garðyrkjuskólans farið vestur árlega til þess að huga að garðinum og vinna að viðhaldi. Upphafsmaður garðsins var þó hann séra Sigtryggur Guðlaugsson, sem var allt í senn prestur, skóla- stjóri og kennari að Núpi. Sig- tryggur og frú Hjaltlína, kona hans, voru lengi framan af einnig umsjónarfólk garðsins. Sigtryggur var fæddur í Garðs- árdal í Eyjafirði og var prestur í Ljósavatnsprestakalli áður en hann fluttist vestur að Núpi þar sem bróðir hans bjó fyrir. Sigtryggur skrifar svo um tilurð garðsins: „Við bræður Kristinn og eg höfð- um erft frá föður okkar yndi af gróðri jarðar og vinnu að honum. Og þegar eg vorið 1905 fluttist til Dýrafjarðarþinga og settist að hjá bróður mínum, þá bauð hann mér að kjósa hvern blett, sem eg vildi á eignar- og ábýlisjörð sinni, Núpi, til gróðrarreits mér til ánægju. Þótti mér mjög vænt um boð þetta og ásetti mér að nota það.“ Garðinum fann Sigtryggur svo stað allskammt frá bænum, örlítið upp í fjallshlíð- inni þar sem ræktunarskilyrði þykja heldur hrjóstrug enda einn tilgang- ur garðsins að sýna fram á það hvað allt væri hægt að rækta – þrátt fyrir bág skilyrði. Mannrækt og garðrækt Séra Sigtryggur hugsaði garðinn þó fyrst og fremst sem kennslutæki og lærdómsstað fyrir nemendur á Núpi, þangað sem þeir gætu komið til þess að fræðast um plöntur og garðrækt og ýmislegt annað í nátt- úrufræðum. Hann lagði töluverða áherslu á ræktun nytjajurta og það að venja nemendur á neyslu þeirra. Í hugmyndafræði hans tíma fóru því saman mannrækt og garðrækt, ekki ósvipað þeim pælingum sem nú liggja að baki skólagörðum sam- tímans og þeim námsgörðum sem nú eru að sækja fram og komast í tísku, en þar læra börnin einmitt að rækta ofaní sig um leið og fram fer kennsla í ýmsu tengdu náttúrufræð- um og fleiri fögum. Fyrstu nytjaplönturnar sem ræktaðar voru í Skrúði voru kart- öflur, rófur og rabbarbari en fljót- lega bættust í hópinn berin rifs og sólber, auk kúmens. Íslenskar jurt- ir voru Sigtryggi einnig ofarlega í huga og komu hér við sögu garða- brúða, blákolla, umfeðmingur, mjað jurt, jarðarber, sigurskúfur, beiti lyng og fjóla. Þessar komu úr Fnjóskadal og Eyjafirði. Aðrar voru nærtækari eins og baldursbrá, aronsvöndur, jökulsóley, melasól, bláklukka, ætihvönn, geitla, brúð- berg, brönugrös og fleiri. Þriðji lið- urinn í ræktuninni voru svo ýmsar trjátegundir. Reyniplöntur og hvalbeinshlið Á stofndegi garðsins, sem var þann 7. ágúst 1909, var veður gott og nokkur hópur manna viðstaddur. Þessi dagsetning var engin tilvilj- un en hún átti að vísa í að 150 ár voru þá liðin frá því að séra Björn Þorláksson setti niður fyrstu kart- öflurnar í Sauðlauksdal, eða öllu heldur kom þeim fyrir í jarðvegi. Á stofndeginum var reist myndarlegt hlið úr hvalbeinum sem enn stend- ur og myndar inngang garðsins. Til þess að vekja enn betur athygli nemenda á garðinum og staðnum datt Sigtryggi í hug að bjóða hverjum nemanda sem út- skrif aðist úr skólanum að gróður- setja reyniplöntu sem sá hinn sami nemandi gat svo hlúð að og haft umsjón með. Þetta var gert fyrstu ár garðsins og varð auðvitað líka til þess að garðurinn stækkaði og óx um leið og útskrifuðu nemendur skutu þarna rótum á táknrænan hátt og um leið skrúðgarðrækt. Heimildir: Sigtryggur Guðlaugsson: Skrúður á Núpi. Græðsla og gróður í 40 ár. Fram- kvæmda sjóður Skrúðs, 2004. Skrúður – til fæðu, fjölnytja og fegurðar Nú er góður tími til þess að fara í göngu í næsta lystigarð eða skrúðgarð og skoða gróðurinn í snemmvetr- ar búningi. Nú þegar komið er vel fram í nóvember þá er gróð- urinn kominn í vetrarskrúðann og augljóst tækifæri til þess að upplifa þær sem slíkar. Þetta er ekki síður áhugavert fyrir þau sem eru að huga að einhverri endurnýjun í garðinum og eru að velta fyrir sér hvaða plöntur er gaman og gott að velja. Þá er nefninlega ekki síður mikilvægt að sjá hvernig þær eru yfir vetr- artímans eins og yfir sumartím- ann. Minnisvarði var reistur í garðinum Skrúði við Núp í Dýrafirði um þau hjónin Sigtrygg og frú Hjaltlínu, upphafsfólk og umsjónarfólk garðsins lengi vel. Kristín Þóra Kjartansdóttir sagnfræðingur og garðyrkjunemi kristinkj@gmx.net Gróður og garðmenning NÚ, ÞEGAR framundan eru sauðfjár- sæðingar, er ástæða til að nefna örfá atriði og velta þeim aðeins fyrir sér. Þessi starfsemi á sér langa sögu hér á landi og hefur skilað miklum framförum í íslenskri sauðfjárrækt. Á síðasta áratug hefur umfang starfseminnar aukist mikið og ekk- ert vafamál að það á sinn ómælda þátt í miklum ræktunarframförum allra síðustu ára. Það má segja að veiki hlekkur- inn í þessari starfsemi hafi verið að upplýsingar um sæðingaárangur frá stöðvunum hafa verið brotakennd- ari en eðlilegt er um jafn umfangs- mikla starfsemi og raun ber vitni. Úr þessu var reynt að bæta á síðasta vetri þegar tekin var upp skipuleg skráning sæðinga í FJARVIS.IS, sem gefur möguleika á samræmdu uppgjöri um starfsemina um allt land. Reynt verður að gefa yfirlit um árangurinn í desember 2008 í næsta eða þarnæsta blaði. Við blasir samt að árangri sæð- inganna hefur líklega eitthvað örlít- ið hrakað á allra síðustu árum. Þetta er þróun sem verður að snúa við. Í því sambandi er ástæða til að benda á að um þessa starfsemi getum við helst borið okkur saman við Norðmenn. Við höfum lengstum verið með talsvert meira umfang í þessari starfsemi hér á landi og lengstum hefur árangur okkur við notkun á fersku sæði verið umtals- vert betri en þar. Nú hefur þetta snúist okkur allt á verri veg. Á síðustu tveim árum hefur árang- urinn hjá Norðmönnum við notk- un á fersku sæði batnað umtals- vert meðan við horfum á öndverða þróun og hafa þeir nú greinilega náð nokkru betri árangri en hér er nú. Þeir hafa lagt gríðarmikla áherslu á vönduð vinnubrögð við sæðingarnar og þakka árangurinn eingöngu því. Þarna er greinilega talsvert fyrir okkur að vinna og full ástæða til, vegna þess að augljóst er að um hagkvæmni sæðinganna er góður árangur lykilatriðið. Þá virðist alveg ljóst að árang- ur sæðinga, ef notuð er samstilling gangmála, verður lakari með hverju ári og virðist ekki með nokkru móti mögulegt að mæla með slíku nema þegar sérstakar aðstæður kalla á það. Á síðustu árum hafa sæðinga- tilraunir aðallega snúið að notkun á djúpfrystu sæði. Árangurinn við notkun þess reynist of breytilegur en þar sem mest er vandað til verka eru menn að ná góðum árangri. Ljóst er samt að þessi aðferð verður um kostnað aldrei samkeppnisfær við notkun á fersku sæði og virð- ist sem á næstu árum verði notkun þess öðru fremur bundin nokkrum svæðum á landinu sem enn búa við ótryggar samgöngur á þeim tíma sem þessi starfsemi fer fram. Tilgangur sæðinganna, sem er að dreifa besta erfðaefninu í stofn- inum hraðar en mögulegt er á annan hátt og þannig ná meiri rækt- unarframförum, má að sjálfsögðu aldrei gleymast. Í sambandi við kjötgæði, sem lögð hefur verið mest áhersla á við val stöðvahrútanna um árabil, blas- ir feikilega mikill árangur við um allt land. Þetta sést glöggt á þeim ótrúlegu framförum sem orðið hafa um allt land í gæðum dilkakjöts, bæði vöðvamati og á allra síð- ustu árum ekki síður í fitumatinu. Auðvelt er að sýna fram á að þær breytingar má að meginhluta rekja beint til vals sæðingahrútanna. Framfarir sýnast það örar að víða sér maður að bú sem lagt hafa af notkun sæðinga í þrjú eða fjögur ár dragast strax verulega aftur úr í þróuninni. Greinilegast sést samt árangur í ómsjármælingum lamb- anna. Þar eru framfarir með ólík- indum miklar og líklega meiri en dæmi eru um í nokkru öðru landi. Það er hins vegar ljóst að nauð- synlegt er fyrir okkur að stefna að því að ná hliðstæðum árangri í ræktunarstarfinu á næsta áratug afurðaeiginleikum ánna (frjósemi og mjólkurlagni). Fyrir þessa eig- inleika hafa breytingar ekki verið sem skyldi á síðustu tveim áratug- um. Með því að virkja sæðinga- starfsemina í því ræktunarstarfi á hliðstæðan hátt og fyrir kjötgæðin eigum við að geta náð hliðstæðum árangri þar. Þetta mun skila sauð- fjárbændum mun meiru í aðra hönd en einhliða áhersla á kjötgæði, þó að áfram verði stefnt að því að auka þau. Ég vænti þess að á síð- ustu tveimur, þremur árum megi í hrútaskrá stöðvanna greina skýra breytingu í þessa veru. Nýleg, norsk rannsókn á skipu- lagi sauðfjárræktar, sem vonandi gefst tækifæri til að fjalla nánar um hér í blaðinu á næstunni, sýnir að árangursríkasta skipulag í rækt- unarstarfi við aðstæður eins og eru hér á landi er áreiðanlega notkun sæðinga á líkan hátt og hér hefur verið um árabil. Það sem hér hefur verið bent á ætti því að vera bændum, sem vinna að ræktunarstarfi í sauðfjár- rækt hér á landi, hvatning til að nýta sæðingastarfsemina í sauðfjár- rækt áfram af sama krafti og verið hefur. Slíkt mun áfram skila okkur hagkvæmari sauðfjárstofni fyrir framleiðsluna en við höfum áður haft. Um leið verður að hvetja til vandvirkni við framkvæmd sæð- inganna þannig að öfugþróun allra síðustu ára og versnandi árangri, sem ræddur er í byrjun greinarinn- ar, verði snúið við. JVJ Sauðfjársæðingar í vetur MÉR ER sagt að það tíðkist sums staðar á landinu að tjóðra hunda langtímum saman og við illa aðbúð stundum. Hundaeigendur sem þetta gera ættu að gá að sér og hugsa til þess hvernig aum- ingjans hundunum líður og setja sig í þeirra spor. Í reglugerð nr. 1077/2004 um aðbúnað og umhirðu gælu- dýra segir svo í III. kafla 9.gr. m.a. Ekki skal skilja hund eftir einan og eftirlitslausan lengur en 6 klst. í senn nema í undantekn- ingartilfellum. Aðeins er heimilt að tjóðra hunda, ef nauðsyn ber til og þá einungis stuttan tíma í senn. Óheimilt er að loka hund inni í litlu, þröngu og gluggalausu rými. Sé hundur hafður í búri eða stíu skulu þau uppfylla lágmarks- kröfur, sem koma fram í viðauka við reglugerðina. Hvernig væri að dýralæknar og dýraverndarfólk og allir góðir menn létu þetta til sín taka og bentu eigendum tjóðurhunda á að bæta sitt ráð. Til dæmis með því að rétta þeim afrit af þess- um pistli. Eigendur tjóðurhunda eru líka flestir góðir, eða jafnvel allir, en líklega hugsunarlausir. Í stað þess að tjóðra hundana mætti útbúa gerði, sem fullnægði kröf- um um dýravernd. Farið vel að öllum dýrum, líka hundum, og látið þau njóta réttar síns. Hundsleg meðferð Sigurður Sigurðarson dýralæknir sigsig@hi.is Sauðburður

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.