Bændablaðið - 19.11.2009, Blaðsíða 19
19 Bændablaðið | fimmtudagur 19. nóvember 2009
Nú er lokið afkvæmaprófun
nauta Nautastöðvar BÍ sem fædd
voru árið 2003. Ætlunin er hér
á eftir að gefa yfirlit um nokkr-
ar niðurstöður um dætur þess-
ara nauta sem þegar liggja fyrir.
Alls voru afkvæmarannsökuð 22
naut í árgangi 2003. Af þeim eru
14 þeirra undan Soldán 95010,
4 undan Túna 95024, 3 undan
Punkti 94032 og 1 undan Seif
95001.
Heildarmynd þessara dætra-
hópa er nokkuð breytileg og er
þessi nautaárgangur ekki líkt því
eins sterkur í ræktuninni og nauta-
árgangur 2002. Hér fylgja umsagn-
ir um helstu einkenni dætrahópa
nautanna.
Öðlingur 03002
F: Túni 95024, M: Ítalía 198,
Furubrekku, MF: Almar 90019
Mun fleiri dætur Öðlings eru tvílitar
en einlitar. Algengast er huppóttar
eða skjöldóttar. Grunnlitirnir rauð-
ur og bröndóttur eru langalgeng-
astir. Afurðasemi dætra Öðlings
er fremur góð en aðrir eiginleikar
fremur slakir og í heild er Öðlingur
fremur slakt naut. Dæturnar eru
með frekar létta bolbyggingu og
yfirleitt í tæpu meðallagi að stærð.
Júgurfesta og júgurdýpt góð, júg-
urband í tæpu meðallagi, spenar
langir en allvel staðsettir. Mjaltir
slæmar en skapgóðar kýr. Öðlingur
verður ekki tekinn í framhaldsnotk-
un.
Bani 03003
F: Soldán 95010, M: Sunneva
266, Búvöllum, MF: Daði 87003
Rauði liturinn er einkennislitur
þessara kúa en flesta grunnliti nema
gráan gaf að líta í hópnum. Flestar
eru kýrnar rauðhuppóttar eða rauð-
skjöldóttar. Afurðasemi dætra Bana
er mikil og skila kýrnar miklu í
verðefnum. Þær eru virkjamiklar
en fremur grófbyggðar. Júgurgerð
er í meðallagi en júgurdýpt slök.
Spenar eru vel gerðir og staðsetn-
ing þeirra góð. Umsögn um mjaltir
er breytileg og seinar mjaltir finn-
ast en kýrnar eru skapgóðar. Bani
verður ekki tekinn í framhaldsnotk-
un.
Brekkan 03004
F: Punktur 94032, M: Skinna 12
Litlu Brekku, MF: Tuddi 90023
Langflestar dætur Brekkans eru
einlitar eða yfir 80%. Rauði og
bröndótti liturinn eru yfirgnæfandi
þó að grunnliti aðra en gráu litina
sé þar að sjá. Afurðasemi dætra
Brekkans er góð bæði hvað varð-
ar afurðamagn svo og prótein og
fitu. Þetta eru fremur bolgrannar og
útlögulitlar kýr, malir eru breiðar
og sæmilega lagaðar, fótstaða frem-
ur slök. Júgurfesta, og júgurdýpt
í slöku meðallagi, en spenar vel
lagaðir og mjög vel settir. Mjaltir í
slöku meðallagi og kýrnar sérlega
skapgóðar samkvæmt umsögn.
Brekkan verður ekki tekinn í fram-
haldsnotkun að svo stöddu.
Birkir 03005
F: Soldán 95010, M: Rein 449
Ytri Tjörnum, MF: Kaðall 94017
Allir grunnlitir finnast í dætra-
hópi Birkis nema gráu litirnir.
Helmingur hópsins er einlitur og
algengasti tvílitur er huppóttur.
Afurðasemi dætra Birkis er mjög
góð, einkum varðandi próteinafurð-
ir. Þessar kýr eru fremur bolmiklar
með góðar útlögur, almennt nokkuð
stórar. Malir og fótstaða eru sterk.
Júgurgerð góð og júgur vel borin
en spenar fremur stuttir og allvel
settir. Mjaltir nokkuð breytilegar en
að jafnaði í slöku meðaltali. Skap
fær breytilega umsögn. Birkir hefur
verið tekinn í framhaldsnotkun.
Gyllir 03007
F: Seifur 95001, M: Fluga 254
Dalbæ I, MF: Soldán 95010
Alla grunnliti nema gráu lit-
ina er að sjá í þessum dætrahópi.
Meirihluti dætrahópsins er einlitur
og eru rauðar og kolóttar algengast-
ar. Afurðasemi dætra Gyllis er góð
bæði hvað varðar afurðamagn svo
og prótein og fitu. Þessi dætrahóp-
ur er með mikla boldýpt og góðar
útlögur. Malir eru fremur grannar
breiðar og jafnar, fótstaða fremur
slök. Júgurgerð er mjög góð, og
vel borin júgur, spenar góðir og
vel staðsettir. Mjaltir eru afbragðs-
góðar og kýrnar skapgóðar. Gyllir
hefur verið tekinn í framhaldsnotk-
un.
Akur 03009
F: Túni 95-024, M: Nr. 154 Stóru
Mörk, MF: Máni 95174
Einkennislitur systrahópsins er
rauð ur en samt var þar alla grunn-
liti að finna. Meiri hluti dætrahóps-
ins er einlitur, flestar tvílitu kýrnar
eru huppóttar en þó eru allmargar
húfóttar. Afurðasemi dætra Akurs
er slök, þó er próteinhlutfall hátt.
Þetta eru kýr með sterka yfirlínu,
og vel gerðar malir og góða skrokk-
byggingu. Júgurgerðin er gallalítil
og spenar hæfilega langir en þykk-
ir og fremur grófir. Umsögn um
mjaltir er mjög jákvæð en breytileg
um skap. Akur verður ekki tekinn í
framhaldsnotkun.
Arfur 03011
F: Soldán 95010, M: Fenja 172,
Gunn bjarnarholti, MF: Hólmur
81018
Mikill litafjölbreytileiki einkennir
þennan dætrahóp. Hér eru rauður,
bröndóttur og kolóttur litur allir
algengir, einnig komu fram svart-
ar kýr og eru tvílitar kýr í meiri-
hluta og algengastar eru skjöldóttar.
Afurðasemi dætra Arfs er allmikil
og próteinhlutfall er yfir meðallagi.
Þetta eru sterkbyggðar kýr með
mikla boldýpt og fremur breiðar
en þaklaga malir. Júgur fremur illa
löguð en júgurband í tæpu með-
allagi og júgurdýpt mikil. Spenar
fremur stuttir, vel gerðir og vel
settir. Mjaltir í slöku meðaltali.
Skapgóðar kýr. Arfur verður ekki
tekinn í framhaldsnotkun að svo
stöddu.
Trukkur 03012
F: Soldán 95010, M: Turbó 212,
Kotlaugum, MF: Hvanni 89022
Rauðar kýr eru algengastar í þess-
um hópi en einnig eru bröndóttar
og kolóttar kýr nokkuð algeng-
ar. Meirihluti kúnna er tvílitur og
algengasti tvílitur er huppóttur
og skjöldóttur. Afurðasemi dætra
Trukks er góð og próteinhlutfall
er mjög gott. Þessar kýr hafa góða
boldýpt og útlögur, malir eru frem-
ur grannar en vel lagaðar, skrokk-
fallegar kýr. Júgurbygging er frem-
ur slök og júgurdýpt fremur mikil.
Spenar fremur langir en mjög vel
lagaðir og allvel settir. Mjaltir slak-
ar en kýrnar eru skapgóðar. Trukk-
ur verður ekki tekinn í framhalds-
notkun.
Hegri 03014
F: Soldán 95010, M: Örk 166,
Hamri, MF: Almar 90019
Rauður er algengastur grunnlita í
þessum hópi en flestir grunnlitirnir
finnast. Ríflega helmingur dætra-
hópsins er einlitur og huppóttur
og skjöldóttur algengustu tvílitir.
Afurðasemi dætra Hegra er mjög
góð bæði hvað varðar afurðamagn
og verðefni. Þessar kýr eru fremur
grannbyggðar með slaka yfirlínu,
meðalbreiðar, fremur flatar og jafn-
ar malir. Mjög góð fótstaða. Júgur
vel löguð og vel borin. Spenar og
spenagerð góð. Mjaltir í slöku
meðallagi og nokkuð um mismjalt-
ir. Kýrnar mjög skapgóðar. Hegri
hefur verið tekinn í framhaldsnotk-
un.
Draumur 03015
F: Túni 95-024, M: Rauðanótt 222
Vorsabæ I, MF: Skutur 91026
Flestir grunnlitir finnast í þessum
dætrahópi. Algengastir eru rauður
og kolóttur. Algengustu tví litir eru
huppóttur og skjöldóttur. Afurða-
semi dætra Draums er af bragðs-
góð bæði hvað varðar afurða magn
og verðefni, þó er próteinhlutfall
liðlega í meðaltali. Þetta eru frem-
ur bolmiklar kýr með fremur grófa
yfirlínu. Góðar malir, þaklaga og
góð fótstaða. Júgurgerð er nokkuð
breytileg. Spenar langir en allvel
settir. Mjaltir fremur slakar og all-
mikið um mismjaltir en skap í með-
allagi. Draumur verður ekki tekinn
í framhaldsnotkun.
Mjölnir 03017
F: Soldán 95010, M: Gæla 294
Ytri Skógum, MF: Trefill 96006
Hér eru rauði og bröndótti liturinn
mjög ráðandi í hópnum. Meiri hluti
kúnna er tvílitur og langalgengasti
tvílitur er skjöldóttur. Afurðasemi
dætra Mjölnis er í meðallagi, þó
er próteinhlutfall mjög hátt. Þetta
eru grannbyggðar kýr með góða
malabyggingu en fremur slaka fót-
stöðu. Júgurgerðin er fremur slök.
Spenar hæfilega langir, vel gerðir
og vel staðsettir. Mjaltir í meðallagi
en skap mjög gott. Mjölnir verður
ekki tekinn í framhaldsnotkun að
svo stöddu.
Vængur 03021
F: Punktur 94032, M: Óvissa 262
Miðengi, MF: Soldán 95010
Mikill litafjölbreytileiki einkennir
þennan dætrahóp. Nær allar kýrnar
eru tvílitar. Enginn tvílitur sker sig
mjög úr en allmargar eru húfóttar
eða krossóttar. Afurðasemi dætra
Vængs er afbragðsgóð bæði hvað
varðar mjólk og verðefni mjólkur.
Þessar kýr eru fremur bolgrannar
með sterka yfirlínu, fremur grannar
malir og þaklaga og fótstöðu í með-
allagi. Júgurgerðin er breytileg en
yfirleitt slök, spenar hæfilega langir
en vel lagaðir og vel settir. Mjaltir
fremur slakar og nokkuð um mis-
mjaltir. Kýrnar mjög skapgóðar.
Vængur hefur verið tekinn í fram-
haldsnotkun.
Rex 03023
F: Soldán 95010, M: Öld 177
Dýrastöðum, MF: Kolur 97814
Rauði og bröndótti liturinn er
langalgengastur. Meirihluti kúnna
er einlitur en algengustu tvílit-
ir eru huppóttur og skjöldóttur.
Afurðasemi dætra Rex er góð sér-
lega hvað varðar prótein. Þetta eru
virkjamiklar kýr og sterkbyggðar.
Malir eru sterkar og vellagaðar og
fótstaða góð. Júgurgerðin er í góðu
meðallagi. Spenar eru vel lagaðir
en staðsetning breytileg. Mjaltir eru
slæmar og nokkuð um mismjaltir
og skap breytilegt. Rex verður ekki
tekinn í framhaldsnotkun.
Máni 03025
F: Soldán 95010, M: Tröð 482
Drumb oddsstöðum I, MF: Stígur
97010
Flestir grunnlitir finnast í þessum
dætrahópi. Meirihluti dætrahóps-
ins er einlitur og huppóttur og
skjöldóttur eru algengustu tvílit-
ir. Afurðasemi dætra Mána er góð
bæði hvað varðar mjólk og verð-
efni. Þessar kýr eru nokkuð breyti-
legar að stærð, en með góðar útlög-
ur en grófa yfirlínu. Malir fremur
breiðar, lítið eitt hallandi og lítið
eitt þaklaga. Júgur velborin og vel
gerð. Spenar ívið of langir en vel
settir. Mjaltir í meðallagi góðar og
kýrnar skapgóðar. Máni hefur verið
tekinn í framhaldsnotkun.
Tópas 03027
F: Punktur 94032, M: Perla 79
Króki, MF: Búi 89017
Þessi dætrahópur einkennist af því
að allir grunnlitir nema grátt finn-
ast og eru rauður og bröndóttur
ráðandi. Meirihluti dætrahópsins
er einlitur en flestir tvílitir finn-
ast. Afurðasemi dætra Tópasar er
afbragðsgóð, einkum hvað varðar
afurðamagn, prótein og fitu hlut-
föll eru í meðaltali. Þetta eru grann-
byggðar kýr, með fremur slaka
yfirlínu. Malir grannar og mjög
þaklaga, fótstaða fremur þröng og
lítið eitt hokin. Júgur er vel lagað
og allvel borið, sterkt júgurband.
Spenar eru stuttir og vel lagaðir
og vel settir. Mjaltir mjög góðar
en umsögn um skap í meðallagi.
Tópas hefur verið tekinn í fram-
haldsnotkun.
Leiknir 03028
F: Soldán 95010, M: Blökk 181
Hraunhálsi, MF: Negri 91002
Svarti liturinn er algengastur í
þessum dætrahópi en alla grunnlit-
ina nema gráan er þar að sjá. Um
tveir þriðju kúnna eru einlitar og
nær öll afbrigði af tvílit finnast.
Afurðasemi dætra Leiknis er mjög
góð, þó er fituhlutfall fremur lágt.
Þessar kýr eru boldjúpar með góðar
útlögur, góða yfirlínu, malabygg-
ingu í meðallagi og góða fótstöðu.
Júgurgerð er í slöku meðalagi,
þó júgurband sé sterkt. Spenar
eru langir og fremur grannir og
staðsetning framspena breytileg.
Mjaltir slæmar og allmikið um mis-
mjaltir. Umsögn um skap breytileg.
Leiknir verður ekki tekinn í fram-
haldsnotkun.
Finnur 03029
F: Soldán 95010, M: Finna 158
Móeiðarhvoli ( frá Miðkoti), MF:
Dúri 96023
Algengasti litur hjá þessum kúm er
rauður og bröndóttur en einnig finn-
ast aðrir grunnlitir. Um helmingur
hópsins er einlitur en algengustu
tvílitir eru huppóttur og skjöldóttur.
Afurðasemi dætra Finns er mjög
góð, einkum hvað varðar verðefni.
Þessar kýr eru fremur stórar með
mikið bolrými og útlögur en nokk-
uð grófbyggðar, með góða fótstöðu.
Júgurgerð er í slöku meðallagi og
allt of mikið ber á of síðu júgri.
Spenar fremur langir, vellagaðir, en
staðsetning framspena mjög breyti-
leg. Bæði mjaltir og skap fá jákvæða
umsögn. Finnur hefur verið tekinn í
framhaldsnotkun.
Hvinur 03032
F: Soldán 95010, M: Fjóla 437
Hríshóli, MF: Óli-Búi 97107
Rauður eða bröndóttur litur er
algengastur hjá þessum kúm, og
aðra grunnliti er vart að finna.
Ríflega helmingur hópsins er
tvílitur og finnast flestar útgáfur.
Afurðasemi dætra Hvins er fremur
slök, einkum hvað varðar mjólk-
urmagn þó er próteinhlutfall hátt.
Kýrnar eru yfirleitt fremur stórar
með góða boldýpt og útlögur en
fremur grófa yfirlínu. Malabygging
er sterk og fótstaða mjög góð.
Júgur festa og júgurband gott en
júgur tæplega nógu vel borið
Spenar ívið of langir en vel gerð-
ir og vel settir. Mjaltir slæmar.
Skapgóðar kýr. Hvinur verður ekki
tekinn í framhaldsnotkun.
Skandall 03034
F: Soldán 95010, M: Tígla 94
Nýjabæ II, MF: Óli 88002
Þessar kýr eru langflestar annað
tveggja rauðar eða bröndóttar.
Mun fleiri eru tvílitar og algeng-
astar eru huppóttar og skjöldótt-
ar. Afurðasemi dætra Skandals er
afbragðsgóð hvað varðar afurða-
magn og prótein en síðri hvað
varðar fitu. Þessar kýr eru yfirleitt
í meðallagi stórar og fremur grann-
byggðar. Malir fremur breiðar
þokkalega lagaðar og fótstaða góð.
Júgur allvel gerð en júgurdýpt of
mikil. Spenar hæfilega langir, vel
gerðir og vel staðsettir. Mjaltir
fremur slakar og skap í meðallagi.
Skandall hefur verið tekinn í fram-
haldsnotkun.
Brunnur 03036
F: Túni 95-024, M: Ljóma 121
Efri Brunná, MF: Búi 89017
Allir grunnlitir finnast í þessum
dætrahópi en algengastir eru rauður
og bröndóttur. Um helmingur hóps-
ins er einlitur en algengustu tvílitir
eru skjöldóttur, huppóttur eða lei-
stóttur. Afurðasemi dætra Brunns
er góð einkum fyrir mjólkurmagn
en síðri fyrir prótein og fitu.
Fremur fínlegar og grannbyggðar
kýr með sterka fótstöðu. Júgur er
yfirleitt mjög vel borið, júgurfesta
mjög góð og júgurband sterkt.
Spenar eru fremur grannir en vel
settir. Mjaltir góðar. Skapgóðar
kýr. Brunnur verður ekki tekinn í
framhaldsnotkun að svo stöddu, en
beðið meiri upplýsinga.
Depill 03037
F: Soldán 95010, M: Sjöfn 172
Hjarðarfelli, MF: Krossi 91032
Allir grunnlitir finnast í þessum
dætrahópi en algengastir eru rauð-
ur og bröndóttur. Flestar kýrnar eru
tvílitar og meirihlutinn skjöldóttur.
Afurðasemi dætra Depils er góð
einkum hvað varðar prótein. Þetta
eru sterkbyggðar kýr með góða
boldýpt og útlögur, allgóða mala-
byggingu og sterka fótstöðu. Júgur
vel lagað og júgurfesta góð. Spenar
vel lagaðir. Mjaltir slakar. Mjög
skapgóðar kýr. Depill verður ekki
tekinn í framhaldsnotkun að svo
stöddu.
Skarpur 03041
F: Soldán 95010, M: Skörp 309
Egilsstaðakoti ( frá Litla Ármóti),
MF: Almar 90019
Alla grunnliti má sjá í þessum
dætrahópi. Flestar kýrnar eru tvílit-
ar og öll afbrigði tvílits koma fyrir.
Afurðasemi dætra Skarps er góð
einkum hvað varðar afurðamagn og
verðefni. Þessar kýr eru í meðallagi
boldjúpar með fremur sterka yfir-
línu. Malir fremur grannar, lítið eitt
þaklaga. Góð fótstaða. Júgurgerð
frekar slök, spenar vel lagaðir en
gleitt settir framspenar. Mjaltir í
slöku meðallagi góðar en skap í
góðu meðallagi. Skarpur verður
ekki tekinn í framhaldsnotkun.
Magnús B. Jónsson
Gunnfríður E. Hreiðarsdóttir
Afkvæmarannsóknir á nautum Nauta-
stöðvar BÍ sem fædd voru árið 2003
Tveir nýir nautsfeður sem Nautastöðin er farin að nota, Gyllir 03007 (t.v.) og Ófeigur 02016.