Bændablaðið - 08.07.2010, Blaðsíða 10
Helgina 24.-27. júní sl. var
garðyrkju- og blómasýn-
ingin „Blóm í bæ“ haldin
í Hveragerði í annað
sinn. Á þessu ári fagnar
Garðyrkjufélag Íslands 125
ára afmæli sínu og tók sýn-
ingin talsvert mið af þeim
tímamótum. Þema sýn-
ingarinnar var „Börn og
ævintýri“ og mátti því sjá litla
ævintýraheima hér og hvar í
bænum.
Íbúarnir tóku virkan þátt
í sýningunni með því að
skreyta hús sín og garða á
frumlegan hátt með blómum
og víða var gestum og gang-
andi boðið upp á grænmet-
issúpu.
Að sögn Elvu Daggar
Þórðardóttur, verkefnisstjóra
sýningarinnar, gekk sýningin
mjög vel og er áætlað að um
30 þúsund manns hafi sótt
hana heim, sem er svipað og
í fyrra. Hún segir að nú hafi
verið gerð varanleg sýning-
arsvæði undir garðplöntur
sem og sérstakt rósasýning-
arsvæði.
Smágarðar
Sýning frá smágarðasamkeppni Félags íslenskra landslagsarkitekta og Hveragerðisbæjar frá 2009. T.v. er Farfuglagarður eftir Birki Einarsson og Kryddkistan eftir Björn Axelsson t.h..
Í Lystigarðinum
Í Lystigarðinum í Hveragerði var garðplöntusýning-
arsvæði garðplöntuframleiðenda og þar vöktu litfagrir
blómaskúlp túrar mikla athygli.
Markaðssvæðið var þar steinsnar frá og þar mátti finna
garðyrkjutjöld, handverkstjöld, umhverfistjald og mat-
vælatjald.
Í íþróttahúsinu var sýning á afskornum blómum og pottaplöntum á miðju gólfinu. Sölu- og kynningarbásar voru umhverfis sýninguna.
Blómasýning