Bændablaðið - 12.05.2011, Side 4

Bændablaðið - 12.05.2011, Side 4
4 Bændablaðið | fimmtudagur 12. maí 2011 Fréttir Alþjóðlega NJF-ráðstefnan "Housing and management of hor- ses in Nordic and Baltic climate" verður haldin á Hótel Loftleiðum dagana 6. og 7. júní nk. Ráðstefnan er ætluð öllu áhugafólki um hross og hestamennsku. Markmið ráðstefnunnar er að draga saman nýjustu rannsóknarnið- urstöður og leiðbeiningar varðandi meðferð hrossa, bæði innan- sem utanhúss, með sérstaka áherslu á nærumhverfi hrossa og manna. Fagsvið ráðstefnunnar verða fjölbreytt og spanna vítt svið. Á ráðstefnunni munu margir þekktir sérfræðingar í húsvist og aðbúnaði hrossa halda erindi. Aðalfyrirlesarar eru: dr. Eileen Fabian Wheeler (Háskólanum í Pennsylvaníu, Bandaríkjunum - margir þekkja hana sem höfund bóka um hönnun hest- húsa), dr. Eva Søndergaard (Agro Food Park, Danmörku), dr. Knut Bøe (Náttúruvísindaháskólanum í Noregi) og dr. Michael Ventorp (Landbúnaðarháskólanum í Svíþjóð). Auk þess eru fjölmargir aðrir fyrir- lesarar, m.a. helstu sérfræðingar Íslands á sviði atferlis og aðbúnaðar hrossa. 50% afsláttur fyrir Íslendinga Athygli er vakin á því að íslenskir þátttakendur geta fengið 50% afslátt af ráðstefnugjaldi (borga þá 150 evrur) óski þeir eftir því. Þetta kemur reyndar ekki fram á heima- síðunni, en stjórn ráðstefnunnar tók þessa ákvörðun og mun ráðstefnu- stjóri hafa samband við alla íslenska þátttakendur og bjóða þessi sérkjör. Viðkomandi skráir sig því eins og um fullt gjald sé að ræða en fær svo afslátt. Hægt er að skrá sig á vefsíðunni: www.njf.nu eða með því að senda tölvupóst á ráðstefnustjóra (Snorra Sigurðsson, Landbúnaðarháskóla Íslands): snorri@lbhi.is. Alþjóðleg ráðstefna um meðferð og aðbúnað hrossa Skagfirskir bændur og Reiðhöllin Svaðastaðir við Sauðárkrók blása til landbúnaðarsýningar og bændahátíðar í Skagafirði þann 20. ágúst nk. Líkt og undanfarin ár kallast hátíðin Sveitasæla og þar mun margt fróðlegt og skemmtilegt bera fyrir augu manna. Má þar nefna sveita- bænda og vélasala, húsdýragarð, leiktæki fyrir börn, kynningu á fyrirtækjum tengdum landbúnaði, fróðleik um fornar vinnsluað- ferðir til sveita, smalahundasýnin- gu, hrútasýningu, kálfasýningu, keppni í dráttarvélaakstri, gæðin- þess verður öllum gestum boðið í - mtikraftar láta ljós sitt skína. Það til þess að taka daginn frá og sækja - inn 20. ágúst. Landbúnaðarsýningin Sveita- sæla í Skagafirði 20. ágúst Í fjarnám á Búfræðibraut Landbúnaðarháskóla Íslands eru nýnemar teknir inn annað hvert ár að hausti (næst haustið 2011). Umsóknir þurfa að berast FYRIR 4. júní 2011. Takmarkaður fjöldi er innrit- aður hverju sinni. Námið er ætlað þeim sem starfa í landbúnaði og hafa náð 25 ára aldri. Starfandi bændur geta lokið búfræðiprófi á þennan hátt en aðrir þurfa oftast að taka ein- hvern hluta námsins með sama sniði og staðarnemar. Góð tölvu- kunnátta er lykilatriði í þessu námi, forkröfur um annað nám eru ekki gerðar, enda uppfylli umsækjandi öll framangreind atriði. Miðað er við að fjarnemar taki námið á rúmlega hálfum hraða miðað við staðarnám. Fjarnemar greiða sama innritunargjald og staðarnemar fyrir hvert námsár, auk þess einingagjald fyrir hverja fjarnámseiningu sem þeir taka. Allir fjarnemar þurfa að mæta í byrjun hverrar annar og síðan í verklega þætti hvers áfanga skv. kennsluskipulagi viðkomandi áfanga. Haustönn hefst síðari hluta ágústmánaðar og vorönn í janúar- byrjun. Próf eru í annalok (desemb- er og maí). Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans einnig er hægt að senda fyrirspurnir á umsjónarmann búfræðifjarnámsins edda@lbhi.is. Síðustu forvöð að sækja um fjarnám í búfræði 100 ár liðin frá fæðingu dr. Halldórs Pálssonar Þann 26. apríl s.l. voru liðin 100 ár frá fæðingu dr. Halldórs Pálssonar búvísindamanns og búnaðar- málastjóra, en hann var fæddur á Guðlaugsstöðum í Blöndudal, 26. apríl 1911. Í því tilefni efndu Bændasamtök Íslands og Minningarsjóður Dr. Halldórs Pálssonar búnaðarmála- stjóra til minningarsamsætis þann dag í Bændahöllinni þar sem saman komu á þriðja tug vina,velunnara, fyrrum starfsmanna o.fl. Samsætið hófst með stuttri myndasýninu sem Már Pétursson annaðist. Þá kynnti dr. Jón Viðar Jónmundsson rannsóknarverk- efni tveggja meistaraprófsnema,þeirra Eyþórs Einarssonar og Eyjólfs Ingva Bjarnasonar, á sviðum gæðamats dilkakjöts og sauðfjárkynbóta. Síðan fluttu þeir erindi um niðurstöður sínar sem vöktu verðskuldaða athygli og urðu tilefni ágætra umræðna. Báðir hafa þeir nýlega hlotið styrki úr minningarsjóði dr. Halldórs. Við þetta tækifæri greindi dr. Ólafur R. Dýrmundsson frá þeirri ákvörðun sjóðsstjórnar að næsta styrkveiting yrði til útgáfu nýrrar kennslubókar um sauðfjárrækt sem Ragnhildur Sigurðardóttir, Landbúnaðarháskóla Íslands, ritstýrir, og kynnti hún það verkefni. Samsætinu lauk með veit- ingum í boði Bændasamtaka Íslands og Landbúnaðarráðuneytisins en þar flutti dr. Sigurgeir Þorgeirsson erindi og rifjaði upp kynni sín af Halldóri. Þá flutti Jón Bjarnason landbúnaðar- ráðherra ávarp en Halldór markaði djúp spor í þróun íslensks landbún- aðar á liðinni öld og var heimsþekktur vísindamaður á sviði sauðfjárræktar. Þess ber að geta að Halldór lést vorið 1984 en eiginkona hans Sigríður Klemensdóttir lést í mars s.l., á 99. aldursárinu. Þeirra beggja minntust gestir samsætisins með virðingu og þökk. /ÓRD Frá fundi sem Bændasamtök Íslands og Minningarsjóður Dr. Halldórs Pálsso- nar búnaðarmálastjóra héldu í Bændahöllinni 26. apríl. Brjóstmynd af dr. Halldóri Pálssyni Vaxtarsprotar er stuðningsverk- efni sem hefur það að markmiði að hvetja og styðja við fjölbreytta atvinnusköpun í sveitum lands- ins. Verkefninu, sem er á vegum Impru, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Framleiðnisjóðs land- búnaðarins, var hleypt af stokk- unum á árinu 2007 og hefur síðan farið víða um land. Nú á vormisseri var komið að Suðurlandi í annað sinn og þar með var mikilli eftirspurn svarað, en Vaxtarsprotanámskeið var haldið þar síðast árið 2007. Þátttaka að þessu sinni var góð og munu 17 þátttakend- ur sem standa að 15 atvinnuskapandi verkefnum ljúka námskeiðinu. Að sögn Erlu Sigurðardóttur verkefnis- stjóra er viðfangsefni þátttakenda þeirra eigin viðskiptahugmyndir sem lúta að atvinnusköpun í heimabyggð. „Verkefnin misstór og spanna allt frá einyrkjaverkefnum til stærri verkefna, sem geta mögulega skapað mörgum atvinnu. Kynningarfundir voru haldnir um miðjan janúar og kennsla hófst svo fyrsta þriðjudag í febrúar, kennt var alla þriðjudaga út apríl, að dymbilviku undanskilinni. Einu sinni þurfti að fresta kennslu vegna veðurs. Núna taka menn smá hlé og sinna vorverkum um leið og þeir leggja lokahönd á viðskipta- áætlanir en formleg námskeiðs- lok og útskrift verða í byrjun júní. Þátttakendur hafa sýnt mikinn dugn- að og elju og hafa ekki látið válynd veður aftra sér að ferðast, sumir um langan veg, og verja góðri dagstund á Hótel Heklu þar sem kennsla fór fram og vinnusmiðjur voru. Þar var öll aðstaða til fyrirmyndar og aðbúnaður góður. Þátttakendur komu víða að af Suðurlandi; allt austan úr Álftaveri.“ Viðskiptaáætlanir og grundvallaratriði í rekstri Samstarfsaðilar á Suðurlandi eru Búnaðarsamband Suðurlands (BSSL) og Atvinnuþróunarfélag Suðurlands (AÞS). Hafa ráðgjafar frá þeim, auk verkefnisstjóra á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, fylgt þátttakendum eftir. Erla segir samstarfið við BSSL og AÞS hafa verið einstaklega ánægju- legt og gefandi. „Lögð er áhersla á að skapa tengsl við þátttakendur og að þeir hafi allan námskeiðstímann og í framhaldinu greiðan aðgang að stuðningi og einstaklingsmiðaðri leiðsögn. Megin viðfangsefni nám- skeiðsins er stofnun og rekstur fyrir- tækja og markaðssókn, auk þess sem styrkjamöguleikar og mögu- leikar stoðkerfisins eru kynntir. Markmiðið er að í lok námskeiðs hafi þátttakendur náð nokkuð góðum tökum á helstu þáttum sem lúta að gerð viðskiptaáætlunar og grund- vallaratriðum í rekstri fyrirtækja.“ Reynslan af Vaxtarsprotaverk- efnum um land allt er að sögn Erlu góð og eru fjölmörg Vaxtarsprotafyrirtæki, stór og smá, starfandi víða á landinu. Hún segir að auk haldgóðrar þekkingar séu þau tengsl sem myndast á námskeiðinu afar mikilvæg og gagnleg – og oft sprettur af þeim öflugt samstarf. Austur-Skaftafellssýsla í haust Vaxtarsprotanámskeið hafa verið í boði um nær allt land á undanförnum fjórum árum. Erla segir að einungis eitt landssvæði sé ónumið, en það er Austur-Skaftafellssýsla. Það eigi að bæta úr því á næsta haustmisseri. Gera má ráð fyrir að það námskeið hefjist um miðjan september og standi fram að aðventu. „Nú er um að gera fyrir Austur-Skaftfellinga að setja sig í stellingar og hrista rykið af hugmyndum sem enn hafa ekki komist í framkvæmd hvort sem þær eru nýjar af nálinni eða snúa að umbótum í núverandi rekstri,“ segir Erla Sigurðardóttir. /smh Vaxtarsprotar á Suðurlandi Frá uppskeruhátið Vaxtarsprota á Vesturlandi sem haldin var í Breiðabliki á Snæfellsnesi 6. desember sl. Sauðburður stendur nú yfir í sveit- um landsins, en breytilegt er eftir svæðum hversu langt hann er kom- inn, að sögn Ólafs G. Vagnssonar ráðunautar hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar. „Sums staðar er hann langt kominn en annars staðar rétt um það bil að byrja,“ segir hann. Ólafur segir engin sérstök vanda- mál hafa komið upp á sauðburðinum og almennt gangi hann vel. „Það er reyndar athyglisvert hversu margir hafa talað um að lömbin séu í stærri kantinum þetta vorið og það eru dæmi þess, einkum hjá gemlingum, að áföll hafi orðið. Í einstaka tilfellum hafa lömb ekki náðst frá ánum nema dauð og þá veit ég einnig dæmi þess að ærnar sjálfar hafi drepist við burð,“ segir Ólafur. Hann segir að menn hafi velt skýr- ingum fyrir sér en eflaust séu þær margþættar. Æ fleiri bændur nota gjafagrindur fyrir heyrúllur, þannig að kindurnar standa í æti allan sólar- hringinn. Þá sé hey yfirhöfuð mjög gott. „Þetta er jafnan fínasta taða og ef til vill má segja að þetta sé óþarflega mikið eldi,“ segir Ólafur. Hann bætir við að menn hafi einnig velt fyrir sér hreyfingarleysi kindanna, flestar séu á húsi allan veturinn, en áður fyrr var meira um að þær væru reknar til beitar yfir veturinn. „Hreyfing er alltaf af hinu góða,“ segir hann. /MÞÞ Lömbin óvenju stór á þessu vori

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.