Bændablaðið - 12.05.2011, Qupperneq 7

Bændablaðið - 12.05.2011, Qupperneq 7
7Bændablaðið | fimmtudagur 12. maí 2011 Óvenju fáir spreyttu sig á lausn síðustu vísnagátu Sveins Víkings. Ásta Sverrisdóttir Ytri Ásum bregður þó ekki vana sínum, og sendir lausnina í lipurlega gerðri vísu. Svo ég geri tilraun til að greina bragarhátt Ástu, þá er mér næst að halda háttinn „valhentan“ og þar að auki „rímvikaðan“. Þó eru örlítil frávik frá ofangreindum hætti í vísugerð Ástu. Mætti jafnvel álíta háttinn blending „braghendu“ og „valhendu“. Lausnarorðið er sem sagt „lán“: Ef að „lánið“ eltir mann á annað borð, ljós þá alltaf liggja fyrir lausnarorð. Allt frá gerð síðasta vísna- þáttar, hef ég átt væra daga og sæmilegan símafrið. Skýringu á þessum friðartíma fékk ég í vísu- formi frá „ónæðismanni mínum“ Einari Kolbeinssyni: Nú er ég í Bostonborg í búðarápi ströngu, og fótalúinn tölti um torg týndur fyrir löngu. Sigurður Atlason bóndi á Ingjaldsstöðum í Þingeyjarsveit er einn af ónæðismönnum þeim er sykra vísum í símann minn. Misjafnlega er bóndi stemmdur, og sýnist það nokkuð stjórnast af tíðarfari hverju sinni: Þó vísast sé ég verkasmár, og vanti í mig snilli. sýnist mér ég svol’tið klár, svona inná milli. Eftir þessa hóflegu lýsingu eigin ágætis, orti Sigurður vísu velgerða um aftökurnar 2. maí síðastliðinn: Víst nú batnar veröldin, verður allt í haginn. Drepnir voru björn og bin báðir sama daginn. Til að létta lúnum lesendum, birt- ist hér forn ritdómur eftir Svein frá Elivogum. Varla hefur þeim er dóminn hlaut verið skemmt undir þessu orðkynngi bragsnill- ingsins: Saman hrúgast saurugt skraf, svörtum búið lýtum, helst til drjúgur ertu af andans fúaspýtum. Rags manns gaman raup þitt er, róttækt glamur kenni, ei sem frama eykur þér andans lamamenni. Þín er skitin skáldaflík, sködduð,bitin, núin, dauðum rituræfli lík, rotin,slitin,fúin. Þessi visa Guðrúnar Þórðar- dóttur frá Valshamri gæti verið sútarfullum sauðfjárbændun örlítil hugfró: Þegar ég er mædd og móð mínum yfir kindum, oft til gamans yrki ég ljóð ein á fjallatindum. Umsjón: Árni Jónsson kotabyggd1@simnet.is Í umræðunni MÆLT AF MUNNI FRAM Endurmenntunarnámskeið Landbúnaðarháskóla Íslands: Um 2.500 manns taka þátt í um 200 námskeiðum á hverju ári Ásdís Helga Bjarnadóttir starfar hjá Endurmenntun Land búnaðar- háskóla Íslands á Hvanneyri. Hún segir þau fjölmörgu námskeið sem skólinn býður upp á hafa verið mjög vel sótt. „Við stílum líka inn á að vera með námskeið sem henta hverjum ársfjórðungi og hlustum mjög eftir óskum fólks um námskeið. Þess vegna gengur þetta kannski betur heldur en að vera með föst „rútínu" námskeið. Við spilum þetta því mikið eftir eftir- spurninni. Það er boðið upp á námskeið á öllum fagsviðum skólans. Allt frá blómaskreytingum, skrúðgarðyrkju upp í sauðfjár- og nautgripatengd námskeið. Einnig námskeið sem tengd eru handverki og falla að land- búnaðarframleiðslu, aukaafurðum og forritum tengdum framleiðslu í land- búnaðargeiranum. Þetta eru námskeið sem bæði eru ætluð ómenntuðu fólki sem og allt upp í einingabæra háskóla- áfanga. Þau eru því á öllum mennta- stigum. Fólk kemur allsstaðar að en síðan erum við líka að halda námskeiðin út um allt land. Þannig erum við í nánu samstarfi við búnaðarfélög, atvinnuþróunarfélög og ýmis áhuga- mannafélög eins og búgreinafélög, kvenfélög eða annað." - Er eitthvað um fjarnám á slíkum námskeiðum? „Fjarnám hefur aðeins verið í boði. Flest þessara námskeiða eru þó þannig að það er oftast ákveðinn hluti þeirra verklegur þannig að fjarnám hefur ekki verið mikið notað nema helst þegar eingöngu er um að ræða bóklegt efni." Nýta ferðaþjónustuna til námskeiðahalds - Eru þessi námskeið á landsbyggð- inni þá haldin í skólum? „Nei, við nýtum okkur meira ferðaþjónustuaðila og höldum nám- skeið þar sem aðstaða er fyrir hendi, veitingaþjónusta til staðar og þátt- takendur komast fyrir. Síðan erum við í sambandi við tengiliði á viðkomandi stöðum." Ásdís segir að námskeiðin geti verið frá því að taka nokkra klukku- tíma upp í að vera tveggja til þriggja ára námskeiðsraðir sem fólk getur sótt samhliða vinnu. Þar má nefna námskeið eins og Grænni skóga, Reiðmanninn, Betri velli (sem er fyrir starfsmenn golf- og íþrótta- valla). Þá eru teknir tveir til þrír dagar í einu tvisvar á hverri önn í tvö til þrjú ár. „Þetta eru því eins dags námskeið, tveggja daga námskeið, vikunám- skeið og núna vorum við t.d. með námskeið fyrir frjótækna. Það var ein vika bókleg á staðnum með verklegri þjálfun í sláturhúsi og síðan heima- vinna í gegnum fjarnám. Þá fóru nemendur með sæðingamanni um viðkomandi svæði og fóru þá aftur í bóklegt nám og verklega þjálfun með útskrift í framhaldinu. Námskeiðin eru því skipulögð út frá viðkomandi viðfansgefni þannig að nemendur fái sem mest út úr þeim. Við erum líka með námskeiðaröð sem tekur eitt og hálft ár og er kallað Sáðmaðurinn. Það snýst um jarðvegs- og fóðurfræði. Þar er nauðsynlegt að námskeiðið nái yfir vortímann með sáningu, áburðardreifingu og síðan uppskerutímanum á sumrin. Í fram- haldinu er það sýnataka, skráningar og að finna út hvernig túngróðurinn er samsettur á hverju túni og hversu mikið var borið á. Á haustin eru það uppskerutölur og seinna um veturinn er farið yfir hvernig skipuleggja á næsta ár og skoða nýtingu á fóðrinu hjá viðkomandi gripum." Afar góð aðsókn - Hvernig hefur aðsóknin verið á þessum námsskeiðum? Við höfum boðið upp á um og yfir 200 námskeið á ári. Það eru um 2.500 manns sem hafa sótt þessi námskeið á ári. Sum þessara nám- skeiða eru þó bundin við ákveðinn fjölda á hvert námskeið eins og rún- ingsnámskeið sem rúmar ekki meira en 8 í einu. Í tamningu fjárhunda komast ekki nema tíu í einu og svo má lengi telja. Síðan eru önnur námskeið sem eru alveg opin og óháð fjölda. Ef ein- hverjir komast ekki að þá reynum við að bjóða upp á aukanámskeið eftir bestu getu. Það má t.d. nefna námskeið um forndráttarvélar. Þar ákváðum við að bjóða bara upp á eitt námskeið í upphafi en ég held að þau séu orðin níu og fullt á þau öll. Það kom skemmtilega á óvart. Námskeið í ostagerð er líka mikill áhugi fyrir sem og nýsköpun sem við tengjum þá ferðaþjónustunni. Þá vorum við með námskeið í mati á æðardúni til að reyna að byggja upp þá grein og styrkja tengsl. Eins vorum við með námskeið um íslenska geitfjárrækt sem um 40 manns sóttu. Þessi hópur hefur síðan haldið mjög saman," segir Ásdís Helga Bjarnadóttir. /HKr. Myndir / HKr. Garðyrkjunemar í dráttarvélanámi Mynd / HKr.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.