Bændablaðið - 12.05.2011, Side 8

Bændablaðið - 12.05.2011, Side 8
8 Bændablaðið | fimmtudagur 12. maí 2011 Fréttir Dýraverndarmál í brennidepli - Ódýr matur er á kostnað velferðar búfjár, segir formaður Dýraverndarsambands Íslands Að undanförnu hafa birst í fjöl- miðlum fréttir af aðbúnaði hús- dýra þar sem bent er á að víða sé pottur brotinn í þeim efnum. Meðal annars hefur verið vakin athygli á þeim aðstæðum sem varphænur á Íslandi búa við, að standa á neti allt sitt líf og bent á að víða í Evrópu sé verið að hverfa frá því að bjóða hænunum slíkar aðstæður enda samræmist þær ekki kröfum um dýravelferð. Fleiri dæmi hafa verið tínd til, svo sem geldingar svína auk annars. Ein ástæða þess að þessi mál hafa komist í auknum mæli í umræðuna upp á síðkastið er stofnun félagsskap- arins Velbús í febrúar síðastliðnum. Velbú eru frjáls félagasamtök um bætta velferð og lífsskilyrði búfjár á Íslandi. Stefna félagsins er að skapa tenglanet sem tengist öðrum félögum sem starfa að sömu eða svipuðum málefnum. Sömuleiðis ætlar Velbú sér að vera virkt á Facebook og netinu almennt. Blaðamaður settist niður með tveimur stjórnarmönnum Velbús á dögunum, þeim Sif Traustadóttur og Róbert Heimi Helgasyni og ræddi við þau um markmið félagsins og stöðu dýravelferðar á Íslandi. Þau segja að félagar í Velbú séu fólk úr ólíkum áttum sem deili þeirri skoðun að ástæða sé til að hafa áhyggjur af þróun mála varðandi dýravelferð hér á landi. „Flestir í Velbú hafa reynslu af því að búa erlendis og hafa fylgst með þróun mála þar. Staðreyndin er sú að neytendur hér á landi hafa sáralítið val um vöru sem er vistvæn eða líf- ræn og dýravelferð er fyrir borð borin víða,“ segir Sif. Erum á hættulegri leið Róbert ólst upp í Bandaríkjunum en kom heim á sumrin í sveitina. „Þegar ég var yngri var staðan úti sú sama og mér finnst vera hér, þ.e.a.s. að það var bara um eina vöru að ræða. Neytendur höfðu ekki val um afurðir af búfé sem hafði búið við aðstæður sem við viljum meina að uppfylli kröfur um dýravelferð. Svo breyttist þetta mjög hratt, kannski á áratug. Þá var farið að bjóða upp á slíkar afurðir. Þegar ég fluttist til Íslands vildi ég vekja athygli á þeirri hættu sem við stöndum frammi fyrir. Þá á ég við að kröfur um lágt verð og hagræðingu verði til þess að gæði vörunnar og velferð dýranna verði látin víkja.“ Ísland að dragast aftur úr Velbú hyggst til að byrja með reyna að beita sér af krafti fyrir bættum aðstæðum í kjúklinga- og eggjarækt. Róbert segir að þar virðist Ísland vera að dragast verulega aftur úr. „Langstærstur hluti eggjafram- leiðslunnar er til dæmis frá búr- hænum, sem er lægsti gæðaflokkur í aðbúnaði varphæna, þrátt fyrir að það sé ekki brot á þeim reglum sem gilda núna. Stærsti vandinn við breytingu yfir í betri aðbúnað er að betri aðbúnaður þýðir hærra verð og það þurfa að vera neytendur sem eru tilbúnir til að kaupa slíka vöru. Það sem við viljum sýna bændum fram á er að sá hópur neytenda er til.“ Deilt á loðdýraræktina Velbú hefur tekist vel upp við að ná eyrum fjölmiðla frá stofnun. Þau hafa sent frá sér ábendingar og yfirlýsingar sem fjallað hefur verið um og þráðurinn spunninn áfram. Meðal annars sendu samtökin frá sér bréf til helstu fjölmiðla þar sem þau gagnrýndu hugmyndir um kynningu Íslands sem ákjósanlegs lands fyrir erlenda fjárfestingu í loðdýrarækt. Í því var meðal annars gagnrýnt að staðið væri að slíkri kynningu í ljósi þess að hér væru reglur ekki eins strangar eins og í Evrópu og sömuleiðis að beitt væri aðferðum við aflífun dýranna sem ekki sam- ræmdust kröfum um dýravernd. Þessu bréfi svaraði formaður Sambands íslenskra loðdýrabænda í grein í Fréttablaðinu 28. apríl síðastliðinn. Í greininni gagnrýndi hann málflutning Velbús harðlega og taldi að þau gerðu rétt í að ræða við loðdýrabændur og kynna sér þeirra aðstæður áður en farið væri af stað með málflutning sem ekki stæðist skoðun, að hans mati. Þau Sif og Róbert segja að almennt hafi þau fengið góð við- brögð við sínum málflutningi frá bændum og búgreinafélögum. „Fólk upplifir þetta kannski svo- lítið sem árás en þegar það kynnir sér hvað við erum að setja fram og við fáum tækifæri til að ræða við bændur hefur mér fundist að fólk taki okkar málflutningi af skynsemi,“ segir Sif. Þau vilja gjarnan þiggja boð loð- dýrabænda um samræður og hafa þá trú að þessir tveir hópar muni ná skilningi á stöðu hvor annars ef þeir setjast saman niður. Peningar skipta máli Velbú eru samtök um dýravelferð eins og áður segir. Róbert segir hins vegar að þau geri sér grein fyrir því að peningar skipti miklu máli í þeirri baráttu. „Það þýðir ekkert að standa skrækjandi með skilti fyrir framan bóndabýli og ætlast til þess að bóndinn breyti aðbúnaði dýranna þegar verðið sem hann fær fyrir sínar afurðir ræður að bróðurpartinum því sem hann getur gert til úrbóta. Það sem þarf að gera er að skapa markað þar sem neytendur kalla eftir bættum aðbúnaði, vistvænum og lífrænum vörum. Slíkum kröfum fylgir dýra- velferð.“ Sif segir að Velbú vilji vinna með framleiðendum. „Við erum ekki á móti þeim og viljum hjálpa fram- leiðendum til að bæta dýravelferð, til að koma þeim vörum á markað og til að fá hærra verð fyrir þær. Við höfum reynt að ná eyrum búgreinafélaganna og höfum átt mjög gagnlega fundi með þeim.“ Þau benda á að staða búgreina sé afar misjöfn og víða sé framleið- endum stakkurinn þröngt skorinn í breytingum á búum sínum í átt til aukinnar velferðar dýranna. „Þetta er til dæmis mjög erfitt í svínakjöts- framleiðslunni. Það eina sem neyt- andinn virðist horfa á er verðið og hann vill þrýsta því neðar og neðar. Eina leiðin fyrir framleiðendur er því að taka tillit til þess og það kemur óhjákvæmilega niður á gæðum og velferð dýranna. Krafa neytenda hefur verið lágt verð. Þegar er hins vegar bara um eina vöru að ræða, ef allt svínakjöt er í grunninn eins, þá er auðvitað bara um eitt verð að ræða,“ segir Róbert. Öfgarnar það sem er að í dýravernd Það skiptir öllu máli hvernig hlutirnir eru settir fram, að mati Sifjar. „Það næst enginn árangur nema unnið sé með framleiðendum. Við í Velbú segjum ekki, eins og til dæmis PETA, [stærstu dýraverndarsamtök í heimi, innsk. blm.] að allir eigi bara að vera grænmetisætur. Það er bara ekki hægt. Yfir níutíu prósent fólks er kjötætur og vill vera það áfram. Við erum það sjálf. Við viljum hins vegar hafa val um að kaupa kjöt sem við getum verið örugg um að sé af dýrum sem hafa verið alin við viðunandi aðstæður.“ „Við viljum ekki verða öfgasam- tök. Það er það sem er að í dýravernd, samtök eins og PETA. Þau gera nokkuð sem flestum er náttúrulegt, að hafa samúð með og bera góðan hug til dýra, að einhverju hlægilegu eða hallærislegu. Að halda því fram að allir sem borði kjöt séu morðingjar mun ekki vinna málstaðnum stuðn- ing. Við viljum ástunda dýravernd með skynsemi og samvinnu að leiðarljósi,“ segir Róbert. /fr Róbert Heimir Helgason og Sif Traustadóttir stjórnarmenn í Velbúi. Þýðir ekki að standa skrækjandi með skilti fyrir framan bændur, segir stjórnarmaður í Velbúi: „Viljum ekki verða öfgasamtök“ - Dýravernd með skynsemi og samvinnu við framleiðendur að leiðarljósi Í lok síðasta mánaðar var haldið fjölmennt málþing í Norræna húsinu þar sem fjallað var um aðbúnað dýra í íslenskum land- búnaði. Það var Norræna húsið sjálft sem stóð fyrir þinginu en það var haldið í kjölfarið á sýningunni Manna sem fjallaði um tengsl fæðu og umhverfis. Í kynningu á fundinum kom fram að umræða hefði sprottið upp um ýmsa van- kanta á aðbúnaði og velferð dýra í íslenskum landbúnaði. Meðal gesta voru m.a. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra, sem ávarpaði samkomuna. Fyrsti ræðumaður var Linda Pétursdóttir, fyrrum alheimsfegurð- ardrottning og eigandi Baðhússins, en hún fjallaði um sjónarmið neyt- enda til dýraverndar. Hún sagðist vera mikill dýravinur og hefði verið alla tíð. Nýlega hefði hún tjáð sig um dýraverndarmál á Netinu og vakið hörð viðbrögð. Linda taldi mikilvægt að neytendur, bændur og matvælaframleiðendur tækju höndum saman til þess að dýr gætu lifað lífi sínu á mannúðlegan og náttúrulegan hátt. Mikill tvískinnungur í umræðunni Ólafur R. Dýrmundsson hélt erindi sem hann kallaði „Ódýr matur – dýrkeypt blekking“. Ólafur, sem er jafnframt landsráðunautur BÍ í líf- rænum búskap, kom fram á fundinum sem formaður Dýraverndarsambands Íslands og talaði í þeirra nafni. Ólafur sagði að ódýr matur væri dýrkeypt blekking að því leyti að fórnarkostn- aðurinn fælist m.a. í verri velferð búfjár. Hann sagði mikinn tvískinn- ung gæta í umræðunni um þessi mál. Dæmi væri um að sama fólkið, annars vegar, gerði kröfu um lægra matar- verð og að búin stækki og hins vegar að dýrin fái að njóta eðlislægs atferlis við sem náttúrulegastar aðstæður líkt og í lífrænt vottuðum búskap. Ólafur taldi mikla þörf á aukinni umræðu og mikilvægt væri að upplýsa neytendur um landbúnað og endurvekja tengsl á milli sveita og þéttbýlis. Skiptar skoðanir um hvað felst í velferð Sif Traustadóttir dýralæknir sem rætt er við hér á síðunni tók fyrir uppeldi og líf búrhænsna í eggja- framleiðslu. Hún sýndi myndir úr hænsnabúum og útskýrði aðbúnað sem hún taldi ekki til eftirbreytni. Nefndi hún í því samhengi þröng búr, skort á fersku lofti og dagsbirtu, að fuglar geti ekki breytt úr vængjum og þyrftu að standa á neti alla sína tíð. Í umræðum á eftir erindum tók Jarle Reiersen, dýralæknir alifugla og starfsmaður Reykjagarðs, til máls og mótmælti ýmsum fullyrðingum Sifjar. Hann færði m.a. rök fyrir því að „kannibalismi“ væri stærra vanda- mál þar sem búra nyti ekki við og baráttan við sjúkdóma skilaði meiri árangri við þær aðstæður sem væru á flestum hænsnabúum hérlendis þar sem hænum er ekki hleypt undir bert loft. Jarle benti jafnframt á að huga þyrfti að velferð neytenda og hún væri betur tryggð ef farið væri eftir ströngum reglum um sjúkdómavarnir á alifuglabúum. Lokaerindið hélt Oddný Anna Björnsdóttir en hún gerði að umtals- efni lítið úrval af lífrænum vörum á Íslandi. Á eftir hennar erindi spunnust upp líflegar umræður en til þess að svara spurningum gesta komu í pall- borð, auk frummælenda, þeir Kristján Oddsson bóndi á Neðra-Hálsi í Kjós og Hörður Harðarson svínabóndi í Laxárdal. Almennt voru umræður málefnalegar á þinginu en bændur voru þar áberandi ásamt dýralæknum og öðru áhugafólki um dýravelferð. /Myndir og texti: TB

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.