Bændablaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 12

Bændablaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 12
12 Bændablaðið | fimmtudagur 12. maí 2011 Bók Hildar Hákonardóttur, Æti- garðurinn – hand bók grasnytj- ungsins, hefur nú verið endur- útgefin en hún hefur verið ófáanleg frá árinu 2008. Bókin kom fyrst út árið 2005 og seldist upp á örfáum mánuðum. Ári síðar var hún gefin út að nýju og seldist hún þá upp á tveimur árum. Mikil eftirspurn hefur síðan verið eftir bókinni, enda hefur áhugi á matjurtarræktun og nýtingu villtra jurta farið ört vaxandi á Íslandi á undanförnum árum. Ætigarðurinn er ekki hefðbundin garðyrkjubók – ekki uppflettirit – heldur einkennist af andríkri frásögn af dásemdum náttúrulegra fyrirbæra. Forvitnilegum hugmyndum um nýt- ingu jurta er svo blandað saman við þar sem ómæld virðing fyrir gömlum aðferðum, lærdómi sögunnar, skín í gegn. Hildur var heimsótt á vordögum og var blaðamanni veitt svolítil inn- sýn inn í hugmyndaheim bókarinnar. „Með bókinni er ég á vissan hátt að skila hluta af mínu uppeldi til kom- andi kynslóða – ákveðinni reynslu og kannski einhverri visku. Þegar ég var að alast upp á Bústaðaholtinu í stríðinu þá þótti alveg óhætt að flytja villtar plöntur í garðana sína; eins og kerfil, sigurskúf, hvönn og njóla. Þar undu þær sér án þess að breiða úr sér út um allt eins og nú vill verða. Móðir mín notaði þessar jurtir og sendi mig út í garð að sækja eitthvað grænt. Ég fékk ekki neinar sérstakar leiðbeiningar um hvað ég átti að sækja – ég átti bara að leita að einhverju og koma með það inn. Ég lærði auðvitað hvað hún notaði og tók mið af því og ég hef alla tíð verið þakklát fyrir að hafa hlotið þetta uppeldi.“ Norrænt eldhús – gamalt og nýtt Hin svokallaða nýnorræna mat- reiðsla, sem átt hefur mjög upp á pallborðið hjá matgæðingum um allan heim á síðustu árum, virðist að ýmsu leyti vera skyld þeirri nálgun sem Hildur hefur í Ætigarðinum. Veitingastaðurinn NOMA á Norður- bryggju í Kaupmannahöfn er oft kenndur við þessa matreiðslu, en hann hefur nú tvö ár í röð verið útnefndur heimsins besti veitinga- staður af breska tímaritinu Restaurant Magazine og státar af tveimur Michelin-stjörnum. „Hann Rene Redzepi, sem nýlega hefur verið valinn meistarakokkur á heimsvísu og það í annað sinn, fer líka á vorin út í skóg og rótar þar undir sinu og laufum til að finna villtan vorgróður. Það eru örfáar vikur á vorin sem við getum nýtt villtu jurtirnar á meðan þær eru bragðmildar, en stilkarnir tréna fljótt og blöðin verða beisk eða römm. Meistarakokkurinn á Norður- bryggju hefur sagt skemmtilega frá því hvernig honum varð ljóst, eftir að hann ákvað að byggja á staðbundnu, norrænu hráefni, að hann varð að flæða með því sem var að gerast í náttúrunni. En eins og vorið er mikil- vægt þá er skipta síðsumar og haust líka miklu máli í lífstaktinum og í raun lít ég svo á að náttúran andi inn á vorin en út á haustin; þegar hún gengur frá fyrir veturinn.“ Smakkið á „illgresinu“ „Það eru forréttindi að geta skroppið á vorin út í móa eða í mýri og tínt villtar jurtir. Ef fólk hefur áhuga á að nýta sér þær þá bendi ég því á smakka á „illgresinu“ og kíkja núna eftir brenninetlu, ef hún vex einhvers staðar nærri. Hún er notuð víða í Norður-Evrópu til að hreinsa líkamskerfið eftir veturinn. Súrur er ákaflega gott að nýta á vorin áður en þær fara að vaxa upp í stöngul og mynda fræ – bæði hráar og steiktar í smjöri. Hvönnin er bragðmild núna og ekki orðin beisk. Af henni er hægt að nýta bæði knúppa, blöð og stilka á þessum tíma. Svo myndi ég sér- staklega leita uppi túnfífilinn. Hann er bestur áður en hann blómstrar, en þó nýti ég hann allt sumarið einkum blöðin í salat. Ekki má gleyma njól- anum. Við vefjum honum gjarnan utan um fisk og grillum hann þannig. Svo gildir það með allar þessar jurtir að hægt er að laga úr þeim ljúffengt te eða móasopa eins og farið er að kalla jurtate. Mjaðjurtin, sem er að koma upp núna, hentar sérstaklega vel til tegerðar og er góð fyrir meltinguna – enda er hún kölluð magnyl magans.“ Hildur segist ekki hafa búist við því að Ætigarðurinn nyti slíkrar velgengni. „Ég varð svolítið hissa en þykir ákaflega vænt um hvað bókin fékk góðar viðtökur. Ég er ekki með neinar nærtækar skýringar, en kannski hefur það verið vegna þess að hún er svolítið óskipuleg af handbók að vera eða að fólk hafi gaman að lesa um gróður og ræktun í slíkum hug- vekjustíl.“ Hildur á sér eftirlætisplöntu, en hennar nýtur hún eiginlega ekki nema með fegurðarskyninu. „Ég myndi segja að það væri hrafna- klukka. Hún á að auka mönnum draumfarir, en mér finnst hún svo falleg að ég hef aldrei tímt að tína hana svo nokkru nemi.“ /smh Ætigarðurinn endurútgefinn Móasopi úr mjaðjurt og steiktar vorsúrur myndir | smh

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.