Bændablaðið - 12.05.2011, Síða 18

Bændablaðið - 12.05.2011, Síða 18
18 Bændablaðið | fimmtudagur 12. maí 2011 Þegar dráttarvélarnar hófu inn- reið sína í íslenskan landbúnað þýddi það gjörbyltingu fyrir líf og störf í sveitum. Þrátt fyrir að ekki fari mikið fyrir þeim við hliðina á þeim gríðarstóru vélum sem brúkaðar eru í dag voru áhrif þeirra jafnvel enn meiri en þegar hundrað hestafla vélar tóku að flæða yfir landið. Margar þessara véla voru notaðar út í hið óendanlega og sumar þeirra hafa nú glatast. Hins vegar eru víða til vélar sem fólk hefur haldið við eða gert upp af miklum myndarskap. Einn þeirra sem hafa staðið í slíku er Sigmar Jóhannsson, fyrrverandi bóndi í Sólheimum í Sæmundarhlíð í Skagafirði og núverandi landpóstur í Lindabæ, en hann hefur um árabil safnað gömlum búvélum og gert þær upp. Fyrsta vélin sem Sigmar gerði upp var Farmall Cub sem komið hafði í Hnausa í Flóahreppi árið 1954 en sams konar vél hafði einmitt verið til á Sólheimum í búskapartíð Sigmars. Sigmar hefur nú byggt tvær skemmur yfir uppgerðu vélarnar og hefur í hyggju að byggja tengibygg- ingu með þjónustuaðstöðu á milli þeirra. Þegar því verður lokið verður hægt að opna safnið en Sigmar segist ekki geta svarað hvenær það verði. Dráttarvélarnar sem gerðar hafa verið upp eru á sjötta tug, auk annarra tækja. Fjöldi tegunda er í safninu. Meðal þeirra er Leyland 154 sem Sigmar er að gera upp um þessar mundir ásamt Jóni Gíslasyni í Miðhúsum, en hann hefur ásamt ýmsum öðrum komið að uppgerð vélanna. Sigmar segist telja að þetta sé eina vélin af þessari tegund sem til sé á landinu og því mikilvægt að varðveita hana. Á safnadeginum þann 11. júlí í fyrra var farin hópkeyrsla á nokkr- um þessara véla í byggðasafnið í Glaumbæ, eins og meðfylgjandi mynd sýnir. Ásamt Sigmari keyrðu kona hans, Helga Stefánsdóttir, og vinir og kunningjar vélarnar að ógleymdum Jóni Bjarnasyni sjáv- arútvegs- og landbúnaðarráðherra. Jón sat við stýrið á Ferguson og var fyrrverandi bóndinn í Bjarnarhöfn örskotsstund að rifja upp kynnin við „vélina heima“. Vorið kom í íslenskum landbúnaði Hópkeyrsla dráttavéla að byggðasafninu í Glaumbæ á safnadegi 2010. - Gömlu dráttarvélarnar gerðar upp af myndarskap Mikil aðsókn að leikritinu Með fullri reisn og sýningar hefjast á ný í haust: Naktir, misvel vaxnir norðlenskir bændur slá í gegn Leikfélag Hörgdæla hefur nú gert hlé á sýningum á leikritinu Með fullri reisn eftir Terrence McNally, í leikstjórn Jóns Gunnars Þórðarsonar. Sýningar hefjast á ný í haust. Verkið hefur verið sýnt fyrir fullu húsi í félagsheimilinu Melum í Hörgársveit frá því í byrjun mars. Hörgdælskir bændur voru í aðalhlut- verkum en þeir þurfa nú að snúa sér alfarið að sauðburði og öðrum vor- verkum heima við og hafa því ekki tíma til að striplast á Melum. Í leikritinu Með fullri reisn er fjallað um atvinnulausa karla sem reyna að skapa sér tekjur með nektar- dansi. Hinir hörgdælsku hafa ekki látið sig muna um að klæða sig úr hverri spjör kvöld eftir kvöld. Gríðarlega góð aðsókn hefur verið að verkinu, nánast fullt út úr dyrum á hverri sýn- ingu og biðlisti eftir miðum lá fyrir þegar vorið bankaði upp á norðan heiða með tilheyrandi önnum til sveita. Þar sem enn var til staðar áhugi á að berja hina fáklæddu hörgdælsku bændur augum hefur verið ákveðið að hefja sýningar á ný á komandi hausti, eða í október. Nekt selur „Það virðist ekki vera neitt lát á vin- sældum verksins, en við verðum því miður að gera hlé á sýningum því önnur störf kalla, vorannir eru fram- undan,“ segir Bernharð Arnarson formaður Leikfélags Hörgdæla, en alls eru 30 sýningar að baki og áhorfendur um 2800 talsins. Ákveðið var í ljósi vinsælda og fjölda skráninga á biðlista að taka verkið til sýninga á ný þegar um hægist hjá bændum í haust. Bernharð segir menn afskaplega ánægða með hversu vel tókst til og að verkið hafi algjörlega slegið í gegn. Mikið var um aðkomufólk á sýningum félagsins í vetur og komu sumir um langan veg til að sjá sýninguna. „Við teljum okkur hafa sannað að nekt selur, sama í hvaða mynd hún er, misvel vaxnir bændur sem fækka fötum hafa greinilega mikið aðdráttarafl,“ segir Bernharð. /MÞÞ „Við teljum okkur hafa sannað að nekt selur, sama í hvað mynd hún er,“ segir Bernharð Arnarson formaður Leikfélags Hörgdæla, sem sýnt hefur leikritið Með fullri reisn síðustu vikur, en víkur nú af fjölunum þar sem hörg- dælskir bændur verða önnum kafnir í sauðburði og öðrum vorverkum. Líkast til verða þeir fullklæddir við fyrir þeim að fækka fötum í sýnin- gunni. Mynd | Ragnar Th. Ragnarsson. Hagþjónusta landbúnaðarins hvetur bændur til að skila búreikningum vegna rekstrarárs 2010 til stofnunarinnar. Búreikningar eru mikilvægir í kjarabaráttu bænda og t.d. undir- staða við gerð búvörusamninga. Búreikningar eru for- senda við gerð rekstrar- áætlana. Hagþjónustan greiðir fyrir þitt framlag! Fullur trúnaður ríkir í meðferð gagna. Til þeirra sem færa bókhald í DK-Búbót! Búreikningar eru þegar farnir að berast til Hagþjónustunnar en æskilegt er að þeir berist eigi síðar en 20 júní n.k. Allar nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Sigurðardóttir í síma 433-7084. Tölvupóstfang: ingibj@hag.is Búreikningar Árið 2010 Hagþjónusta landbúnaðarins, Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes. Sími 433-7080.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.