Bændablaðið - 12.05.2011, Síða 20
Jötunn Vélar sérhæfir sig í sölu á
vélum og búnaði tengdum land-
búnaði og jarðvinnuverktökum,
auk þess að reka nýja og glæsilega
600 fermetra verslun í starfsstöð
sinni við Austurveg 69 á Selfossi,
þar sem hægt er að fá allt sem teng-
ist landbúnaði, auk vara til heim-
ilisins. Fyrirtækið hefur fjölgað
starfsmönnum sínum smátt og
smátt og sér bara fram á bjarta
tíma. Finnbogi Magnússon, fram-
kvæmdastjóri horfir því björtum
augum fram á veginn.
Góð staða
Hvernig er staðan hjá Jötni Vélum
í dag, hvernig er hljóðið í ykkur nú
þegar talað er um kreppuástand á
Íslandi?
„Staða okkar er góð og við
sjáum fyrir okkur áframhaldandi
uppbyggingu og vöxt á komandi
árum. Upplifun okkar er að á meðal
okkar viðskiptavina sé vaxandi
jákvæðni og bjartsýni á framtíðina
enda víða að komast niðurstöður í
óvissu tengda lánum og mesta áfallið
við fjármálahrunið liðið hjá. Okkur
hefur líka fundist sem hin svokallaða
kreppa sé að stórum hluta bundin við
suðvesturhornið og fjölmiðla lands-
ins. Fólk á landsbyggðinni upplifði
ekki nema í litlu mæli uppsveifluna
og hið svokallaða góðæri sem ríkti á
árunum fyrir hrun og því varð höggið
við hrunið þar víðast mun minna. Á
sumum svæðum er ástandið jafnvel
betra nú en það var í hinu svokallaða
góðæri. Margir spekingar hafa sagt
að í kreppum felist stærstu tækifærin
þó oft á tíðum sé erfitt að nýta þau.
Við höfum valið að horfa jákvæðum
augum á ástandið og reyna að nýta
þá möguleika til vaxtar sem ástandið
býður uppá. Það má heldur ekki
gleyma því að samdráttur eða kreppa
er óumflýjanlegur fylgifiskur okkar
hagstjórnar, eins og uppsveiflan, en
á samdráttarskeiðunum horfir maður
inn á við og reynir að finna þá hluti
sem betur mega fara í rekstri eigin
fyrirtækis og laga þá og koma þannig
sterkari inn í næstu uppsveiflu.“
Landsbyggðarfyrirtæki
„Jötunn Vélar er landsbyggðarfyrir-
tæki sérhæft í innflutningi og sölu á
landbúnaðartækjum og varahlutum í
þau og viðskiptavinir okkar eru fyrst
og fremst bændur og tengdir aðilar.
Markaðslega erum við sterkastir í
sölu hinna hefðbundnu landbúnaðar-
tækja s.s. dráttarvéla, jarðvinnu- og
heyvinnutækja en markaðshlutdeild
okkar í mjaltatækjum, fóðrunarkerf-
um og innréttingum í gripahús fer
mjög vaxandi.
Mestu sóknarfærin sjáum við í
áframhaldandi uppbyggingu versl-
unar okkar en velta hennar hefur
meira en tvöfaldast síðan fyrir hrun
sem skýrist að stærstum hluta af því
að við höfum aukið vöruframboðið
mikið og leggjum mikla áherslu á að
eiga algenga varahluti til á lager þar
sem bið eftir varahlutum getur verið
viðskiptavinum mjög dýr.
Varahlutaþjónusta við önnur
vörumerki en þau sem við flytjum
inn sjálfir er mjög vaxandi í okkar
starfsemi og munum við halda þeirri
uppbyggingu áfram á næstunni enda
njótum við góðs þar af gríðarlega
umfangsmikilli þekkingu sem starfs-
menn okkar hafa á allskonar vél-
búnaði.“
60% samdráttur á einni nóttu
„Auðvitað var hrunið haustið 2008
mikið högg fyrir okkur enda dróst
velta fyrirtækisins saman á einni
nóttu um 60% (veltan lækkaði úr
tæpum 1,700 milljónum niður í
rúmar 700 milljónir) en strax frá
upphafi ákváðum við að þetta væri
bara eins og hvert annað verkefni
sem takast þyrfti á við og leysa.
Á þessum tíma nutum við góðs af
því að á árunum fyrir hrun höfðum
við verið mjög íhaldssöm í manna-
ráðningum og bruðli í óþarfa, þar
sem við vildum hafa vaðið fyrir
neðan okkur ef ástandið breyttist.
Á þeim árum nutum við þess að
okkar góða starfsfólk var tilbúið
að vinna óheyrilega yfirvinnu til að
hlutirnir myndu ganga upp og því
komumst við hjá því að fækka starfs-
fólki verulega þegar hrunið varð.
Starfsmönnum hefur síðan hægt og
rólega fjölgað aftur eftir því sem
okkur hefur vaxið ásmegin og eru
starfsmenn í dag orðnir 20, sem er
sami fjöldi og 2007.“
Mun minni sala á nýjum tækjum
Eru bændur og búalið að versla sér
ný tæki eða eru þetta allt gömul og
notuð tæki ?
„Sala á nýjum tækjum er mun
meiri í ár en síðastliðin þrjú ár. Við
finnum greinilega aukinn áhuga við-
skiptavina okkar á fjárfestingum í
nýjum tækjum og okkur virðist sem
að fólk sé að sætta sig við það að
núverandi verðlag sé komið til að
vera og því sé ekki eftir neinu að bíða
lengur með fjárfestingar ef að þörfin
og fjármagnið er fyrir hendi. Sala á
notuðum tækjum er einnig mjög góð
en þar er sem fyrr stærsta verkefnið
að finna notuð tæki fyrir þá sem eru
að leita þar sem af sjálfu sér leiðir að
lítið framboð er af notuðum tækjum
þegar sala nýrra tækja er hæg.“
Eruð þið að flagga einhverjum
nýjungum?
„Við erum með ýmsar nýjungar
í undirbúningi og má þar nefna nýtt
jarðvinnslutæki sem við köllum
plógherfi og við ætlum að prófa á
næstu vikum.
Tæki eins og þessi eru mikið
notuð í akuryrkju erlendis og þá
oft í staðinn fyrir plóga, þar sem
þetta verkfæri er mun afkastameira
og ódýrara í notkun en plógur sem
skiptir miklu máli í dag á tímum
síhækkandi olíuverðs og vaxandi
akuryrkju hérlendis. Við teljum að
þessi tækni eigi fyllilega rétt á sér
hér á landi og geti að einhverju leyti
lækkað kostnað þeirra sem stunda
jarðvinnslu og aukið þannig arðsemi
t.d. kornræktar en þetta mun skýrast
betur á næstu vikum. Þá mun verða
fjallað um reynsluna af notkun
tækisins á heimasíðu okkar. Fleiri
nýjungar og spennandi lausnir eru í
deiglunni en við munum kynna þær
frekar þegar nær dregur.“
Ný og glæsileg verslun
„Þegar okkur bauðst síðasta haust
um 600 fermetra viðbótarhúsnæði
við hlið okkar núverandi húsnæðis
ákváðum við að vandlega íhuguðu
máli að láta gamlan draum rætast.
Stækka verslun okkar verulega og
gera þannig mögulegt að auka vöru-
úrval en smæð verslunarrýmis hefur
háð vexti verslunarinnar undanfarin
ár.
Verslunin er hugsuð fyrir bændur,
einstaklinga og rekstraraðila um allt
land þar sem saman fer mikið úrval
af sérhæfðum varahlutum í vélar
og tæki, almennir varahlutir í bíla
og tæki, almennar rekstrarvörur s.s.
sápur og hreingerningavörur, vörur
fyrir skepnuumhirðu og fóðrun,
handverkfæri, garðyrkjuvörur, raf-
girðingarefni og síðast en ekki síst
vinnufatnaður og stígvél.
Verslunin mun opna formlega
eftir stækkun nú á laugardag og erum
við mjög spennt fyrir að sjá viðbrögð
viðskiptavina okkar en við trúum
því að það sé pláss fyrir sjálfstæða
verslun sem þessa þar sem verslun á
Íslandi í dag einkennist mjög orðið
af fákeppni þar sem fáir stórir aðilar
ráða miklu og stjórna verðlagningu
eftir sinni hentisemi. Til að auðvelda
viðskiptavinum okkar annars staðar á
landinu að kynna sér vöruúrval okkar
erum við með öfluga vefverslun sem
við erum að uppfæra með auknu
vöruúrvali þessa daganna og síðan
bjóðum við hagstæð flutningsgjöld á
vörum hvert á land sem er í samstarfi
við póstinn og Flytjanda.“
/Magnús Hlynur Hreiðarsson
„Meðal okkar viðskiptavina er vaxandi
jákvæðni og bjartsýni á framtíðina“
– segir Finnbogi Magnússon, framkvæmdastjóri Jötuns Véla á Selfossi
Jötunn Vélar héldu Sunnlenska
sveitadaginn hátíðlegan 7. maí og
hefur þeim teksit að koma þessum
degi rækilega inn á kort lands-
manna.
„Þetta var þriðja árið sem
Sunnlenski sveitadagurinn er hald-
inn og miðað við reynslu síðustu
tveggja ára er hér klárlega um að
ræða atburð sem fólk vill taka þátt
í," segir Finnbogi Magnússon fram-
kvæmdastjóri.
Þreytt á endalausum bölmóði
og svartsýni
„Ástæðan fyrir að við byrjuðum
með þessa uppákomu var að við
vorum orðin þreytt á endalausum
bölmóði og svartsýni sem ein-
kenndi þjóðfélagið veturinn og
vorið 2009 og ákváðum því að gera
eitthvað skemmtilegt sem jafnframt
vekti eftirtekt á þeirri gríðarlega
umfangsmiklu og vönduðu fram-
leiðslu landbúnaðarvara sem ætti
sér stað á Suðurlandi. Niðurstaðan
varð Sunnlenski sveitadagurinn þar
sem áhersla er lögð á að gefa sunn-
lenskum framleiðendum tækifæri á
að koma vörum sínum á framfæri
við íbúa þéttbýlisins.
Verkefnið hefur síðan vaxið jafnt
og þétt en í fyrra er talið að á bilinu
6-8 þúsund manns hafi heimsótt
hátíðina. Auk þess að geta smakkað
mikið úrval matvæla stöndum við
fyrir sýningu nýrra véla og tækja auk
þess sem að einstaklingar koma með
gamlar dráttarvélar og bíla til sýn-
ingar. Þá eru algengustu húsdýrin til
sýnis á svæðinu og vekja þau jafnan
mikla athygli yngri gesta. Bak við
svona uppákomu liggur mikil vinna
sýnenda og stjórnenda hátíðarinnar
auk þess sem umtalsverður kostn-
aður fylgir svona uppátæki en það er
okkar mat að það sé fyllilega pening-
anna virði og sé jafnframt liður í því
að styrkja tengslin á milli dreifbýlis
og þéttbýlis.“
Tækifæri í stað ógnunar
„Mig langar að hvetja fólk til að
horfa á þau krefjandi verkefni sem
við stöndum frammi fyrir sem tæki-
færi í stað ógnunar, þó ég geri mér
grein fyrir að oft geti það verið erfitt.
Ég tel að við landbúnaðinum
blasi fjölmörg og spennandi tæki-
færi í náinni framtíð, bæði varðandi
útflutning á okkar frábæru afurðum
og eins varðandi aukna ræktun korns
og annarra fóðurplantna.
Vissulega eru ógnanir framundan
líka eins og hugsanleg aðild að ESB
er gott dæmi um, en ef við í sam-
einingu mótum stefnu til næstu ára
um hvernig við best nýtum okkar
tækifæri og kortleggjum um leið
ógnanirnar þá er ég viss um að nýtt
og mjög kröftugt uppbyggingar-
skeið er framundan í sveitum lands-
ins,"sagði Finnbogi.
Sunnlenski sveitadagurinn:
Gegn bölmóði
og svartsýni
Starfsmenn Jötuns véla, sáu um
skipulagningu Sunnlenska sveita-
dagsins 7. maí, sem heppnaðist vel
og var afar fjölsóttur.
er með sérstöku vatnshjóli, nýjung
sem fróðlegt að sjá hvernig virkar
á Íslandi.
Finnbogi við stýrið á einni af dráttarvélum fyrirtækisins en meðal helstu merkja sem Jötunn vélar eru með eru Valtra, Massey Ferguson, Pöttinger og
Schaffer. Myndir / MHH
20 - Tæki og fóðuröflun BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 12. MAÍ 2011