Bændablaðið - 12.05.2011, Page 21
- tilvalinn fyrir pizzastaði, bakarí, skyndibitastaði, sportbari og veitingahús.
- bakar 60 stk. af 12-tommu pizzum á klst.
- hægt að stafla allt að 4 ofnum ofan á hvorn annan, sé einn ekki nóg.
High h Conveyor 2020TM
VERÐLAUNA OFN FRÁ TURBOCHEF
– einstök gæði og ótrúleg afköst
Einstök High-h hitablásturstækni, sem
Turbochef er með einkaleyfi á, hitar matinn
hraðar en nokkur önnur eldunaraðferð.
Hreinsibúnaður sem TurboChef er með
einkaleyfi á, hreinsar blásturinn þannig að
ekki er þörf fyrir loftræstiháf.
HhC 2020 vann til verðlauna 2010, sem
besti færibandaofn í heimi. (“FF&210 Best in
Class Award in the Conveyor Category”).
Umfjöllun um HhC 2020 ofninn
er í nóvember hefti Pizza to Day.
HREIN SNILLD!
„Ofninn er hrein snilld. Það sá ég strax, þegar ég bar hann saman
við aðra færibandaofna og ég skoðaði marga. Það er stutt síðan
ég tók ofninn í notkun, en ég er strax farinn að sjá sömu
viðskiptavini koma aftur og aftur.“
Grillhöllin – Hafnarfirði
Tjarnarvöllum 15 – sími 555 6767
Jonni
Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Reykjavík www.pmt.is
Allar nánari upplýsingar hjá okkur í síma 567 8888 og á www.pmt.is
Hafðu samband og við sendum þér bækling!
– að hafa 30 – 50% meiri afköst en aðrir
færibandaofnar í sömu stærð.
– að vera eini færibandaofninn með
vottun fyrir notkun án loftræstiháfs.
– að taka lítið pláss og afkasta meir en
stærri ofnar.
– bragðbetri pizzur og stöðug gæði,
þrátt fyrir meiri hraða.
– að nota minna rafmagn en aðrir
hefðbundnir færibandaofnar.
– að geyma mismundandi rétti í minni
(pizzur, subs, borgara, steikur ...)
– að vera auðveldur í notkun og einfaldur
í þrifum.
VERÐLAUNIN VORU VEITT FYRIR:
SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS
Háþrýstidælur
Vinnuþjarkar ætlaðir til
daglegra nota
HD 10/25-4 S
■ Vinnuþrýstingur
30-250 bör
■ 500-1000 ltr/klst
■ Stillanlegur úði
■ Sápuskammtari
■ Túrbóstútur + 50%
HD 6/16-4 M
HD 6/16-4 MX
■ Vinnuþrýstingur
30-160 bör
■ 230-600 ltr/klst
■ 15 m slönguhjól
■ Stillanlegur úði
■ Sápuskammtari
■ Túrbóstútur + 50%
Forsvarsmenn Kraftvéla telja líkt
og aðrir vélasalar að nokkuð sé
land að eðlilegar fjárfestingar eigi
sér stað í vélum og tækjum fyrir
landbúnaðinn Bændur fari sér
hægt meðan ekki sé búið að koma á
hreint hvernig farið verði með þau
lán sem á landbúnaðinum hvíla.
Þrátt fyrir það eru Kraftvélamenn
bjartsýnir og eru stöðugt að efla
sína þjónustu við bændur. Nú eru
þeir að fá í hús fjölda heyvinnuvéla
sem verða þar til sýnis og sölu um
næstu mánaðamót.
Auking fyrirspurna og
vísbendingar um söluaukningu
Í byrjun maí var búið að selja 9
nýjar dráttarvélar hér á landi sem
er töluverð aukning frá fyrra ári.
Eiður Steingrímsson, sölustjóri land-
búnaðarvéla hjá Kraftvélum, segir að
miðað við þessar tölur ættu að seljast
allavega 30-40 dráttarvélar á árinu.
Hann sé þó að gera sér vonir um allt
að 100% söluaukningu á dráttarvéla-
markaðnum í heild á árinu miðað
við árið 2010. Það telst samt ekki
mikið því salan færi þá einungis í 50
vélar í stað 25 í fyrra. Þrátt fyrir þá
aukningu yrði markaðurinn senn afar
langt frá meðaltalinu í dráttarvéla-
sölunni undanfarin áratug.
„Það getur vel verið að þetta sé
einhver bjartsýni í mér. Maður finnur
samt fyrir auknum fjölda fyrirspurna
en fyrir ári voru menn ekki einu sinni
að spyrja um vélar. Þetta segir manni
að það er kominn hugur í menn,
ábyggilega út af þörfinni og síðan
hefur það strax áhrif þegar bjartsýnin
eykst. Í dag er ástandið þannig að það
eru ekki einu sinni til notaðar vélar
á markaðinum til að anna eftirspurn.
Margt spennandi að gerast
Eiður segir margt spennandi að
gerast í þróun tækja fyrir land-
búnaðinn. Menn leiti í dag leiða
til að gera hlutina á ódýrari hátt
en áður fyrr. Horfa bændur mikið
til nýrra heyverknaraðverða til að
losna við rúllubaggaplastið og
verka í útistæður. Þá sé nú verið að
gera breytingar á dráttarvélum til
að mæta hertum mengunarkröfum
Evrópusambandsins samkvæmt Tier-
4 staðli. Nýjar dráttarvélar með 150
hestafla mótor eða stærri eru þannig
að koma með svokölluð AdBlue kerfi
sem kallar á breytt vinnubrögð í með-
höndlun vélanna. Eiður segir að þó
margvíslegar tækninýjungar séu að
koma fram þá sé það óvissan í þjóð-
félaginu mikill dragbítur sem þegar
er búin að valda miklu tjóni.
Lánamálin enn erfið
„Stjórnvöld eru búin allt frá hruni að
vera að gefa mönnum væntingar um
að lífið sé að fara í eðlilegan farveg
en það virðist enn ætla að verða bið
á því. Þar skiptir t.d. mjög miklu
máli að bændur og aðrir fái niður-
stöðu varðandi það hvar þeir standa í
sínum lánamálum. Það veit það eng-
inn ennþá og á meðan halda menn
eðlilega að sér höndum," segir Eiður
Auðvitað eru einhverjir bændur
sem standa mjög illa. Ég hef samt þá
trú að stærsti hluti íslenskra bænda
séu í þokkalegum málum og sem
betur fer einhverjir í góðum málum.“
Miklar sveiflur erfiðar
Eiður segir að endurnýjunarþörf sé
greinilega að hlaðast upp eftir afar
slaka sölu á t.d. dráttarvélum allt
frá hruninu 2008. Hann segir slíkt
mjög óheppilegt fyrir alla aðila. Þá
komi endurnýjunin fram í miklum
sveiflum sem erfitt sé fyrir þjón-
ustufyrirtækin að mæta af einhverri
skynsemi og útilokað að gera lang-
tíma áætlanir við slíkar aðstæður.
„Við viljum að þróun sé jöfn og
stígandi en ekki í stórum toppum
með miklum öldudölum á milli.
Við erum því ekkert sérlega ginn-
keyptir fyrir því að fá einhver toppár
í traktorasölu. Slíkt skapar svo mikla
þenslu, kostnað og óþægindi sem
skilar sér örugglega ekki í góðri
þjónustu við bændur.
Lærum vonandi af hruninu
„Hrunið hefur þó líka sínar góðu hlið-
ar. Ég gagnrýndi það t.d. oft hvernig
menn höguðu sér í góðærinu í tækja-
kaupum þó maður hafi á sama tíma
getað glaðs yfir miklum viðskiptum.
Þá var kannski að koma til manns
aðili sem keypti tæki og búnað fyrir
milljónatug eða meira en allt varð
það gert með skyndiákvörðun. Það
er mitt mat að hvort sem menn eru
að kaupa traktor eða annað þá á slíkt
ekki að vera nein skyndiákvörðun.
Því tel ég það bara af hinu góða að
nú neyðast menn vegna ástandsins til
að taka yfirvegaða ákvörðun um slík
kaup með margra mánaða fyrirvara.
Þá verða menn líka að hafa það í
huga dráttarvélaframleiðendur fram-
leiða ekki vélar á lager. Ég er því að
vona að við lærum það af hruninu
að við þurfum alltaf að hafa borð
fyrir báru.“
Með New Holland skrautfjöður í
hattinum
Flestöll sölu- og þjónustufyrirtæki
með landbúnaðartæki fóru mjög illa
út úr kreppunni. Mörg hafi orðið
gjaldþrota en búið að endurreisa sum
þeirra á grunni gömlu fyrirtækjanna
líkt og Kraftvélar. Fengu endurreistar
Kraftvélar reyndar nýja skrautfjöður
í sinn hatt sem er umboðið fyrir New
Holland dráttavélarnar. Það var sölu-
hæsta merkið á markaðnum flest árin
frá 2000.
Einnig bjóða þeir dráttarvélar frá
Case IH, heyvinnuvélar frá Fella
ásamt fjölda annara landsþekktra
vörumerkja í landbúnaðarvélum.
Þjónustan lykilatriði
„Þegar bændur huga að dráttavéla-
kaupum þá eiga þeir að íhuga vel
hvernig þeir hyggjast nýta vélina,
hver þörfin er, hvar bjóðist bestu
kjörin og ekki síst hver býður bestu
þjónustuna. Þjónustan er nefnilega
einn stærsti þátturinn í þessu til
lengri tíma litið,“ segir Eiður."
/HKr.
Kraftvélar að taka inn nýjar heyvinnsluvélar á lager:
Reikna með að sala
dráttarvéla í landinu
tvöfaldist á árinu
Bleikjuseiði til sölu
Fjallableikja ehf.
að Hallkelshólumí Grímsnesi
hefur til sölu bleikjuseiði.
Upplýsingar: Jónas 862-4685 og Guðmundur
8939-777 eða fjallableikja2010@gmail.com
Eiður Steingrímsson, sölustjóri landbúnaðarvéla hjá Kraftvélum og Ævar
Þorsteinsson forstjóri við glæsilega New Holland dráttarvél við höfuðstöðvar
Kraftvéla í Kópavogi. Mynd / HKr.
BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 12. MAÍ 2011 Tæki og fóðuröflun - 21