Bændablaðið - 12.05.2011, Side 23

Bændablaðið - 12.05.2011, Side 23
23Bændablaðið | fimmtudagur 12. maí 2011 Sláturfélag Suðurlands svf. Fosshálsi 1 IS-110 Reykjavík Sími 575 6000 Fax: 575 6090 www.ss.is Verðskrá 2011 Með 3% staðgr.afsl. Með 3% og 3% magn Verð án vsk. - kr/rúllu Listaverð magn.afsl. afsl. Magn á bretti Rúlluplast: Polybale 750 x 0,025 x 1500 Ljósgrænt 12.074 11.711 11.349 32 rúllur Teno Spin 750 x 0,025 x 1500 Hvítt 13.009 12.619 12.228 15 rúllur Teno Spin 500 x 0,025 x 1800 Hvítt 10.655 10.335 10.016 24 rúllur Net og garn: Net Westfalía 123cm x 3000 m 25.530 24.764 23.998 „Salan fer vel af stað og mér sýnist að hún verði bara lífleg í sumar, það virðist vera að lifna yfir markaðn- um,“ segir Einar Guðmundsson hjá Búvís á Akureyri en fyrirtækið sér- hæfir sig í sölu og þjónustu búvéla og auk þess að selja rekstrarvörur af ýmsu tagi fyrir landbúnað. Búvís var stofnað árið 2006, en sérstaða fyrirtækisins er m.a. sú að sölu- menn hafa sjálfir reynt þau tæki sem seld eru sem og aðrar vörur og geta því veitt nákvæma og faglega ráðgjöf. Þá segir Einar að fyrir- tækið sé alltaf opið ef þannig megi að orði komast, en ávallt sé unnt að ná í starfsmenn þess. Búvís hóf í fyrra samstarf við pólska fyrirtækið Samasz og flytur inn frá því fyrirtæki m.a. sláttuvélar, rakstrarvélar og heyþyrlur, eða fjöl- fætlur. „Við byrjuðum á þessu sam- starfi í fyrra og seldum fyrstu vélarnar til bænda fyrir síðasta sumar. Það er skemmst frá því að segja að allar þær vélar sem við fluttum inn seldust. Á því áttum við ekki von, salan gekk mun betur en við nokkurn tíma þorðum að vona,“ segir Einar. Gott verð og gæði Hann segir að vélarnar hafi komið vel út og reynsla þeirra sem keyptu í fyrrasumar hafi verið góð. Spurður um helstu kosti Samaz vélanna nefnir Einar að vélarnar séu sterkbyggðar og saman fari gott verð og gæði. Einar á von á því að salan á tækjum tengdum heyskap aukist fyrir sumarið og segir fyrirspurnir og pantanir ein- dregið benda til þess. „Við gerum okkur ágætar væntingar um að salan verði góð fyrir sumarið,“ segir hann en bendir á að mikil endurnýjun hafi orðið á tækjakosti bænda á árunum fyrir hrun, 2005 til 2007, en veru- lega hægt á sölunni fyrstu árin eftir að efnahagsþrengingarnar skullu á. Samaz sláttuvélar eru til í mismun- andi stærðum, þær slá allt frá 1,35 metrum og upp í 9 metra. Rúllusamstæður farnar að hreyfast á ný Þá má nefna að Búvís er með Agronic rúllusamstæðu, sem er eina sambyggða vélin sem hefur verið prófuð hlutlaust hér á landi, en það var í búvélaprófun á Hvanneyri árið 2005. Um er að ræða sambyggða rúllu- og pökkunarvél, sem framleidd er í samstarfi Agronic Oy í Finnlandi og Orkel As. í Noregi, pökkunarhlut- inn er smíðaður í fyrrnefnda land- inu, rúlluhlutinn í því síðarnefnda. Takmark framleiðenda var að sögn Einars að smíða sambyggða vél sem væri áreiðanleg og ynni sem best við erfiðar aðstæður. Valsarnir eru ekki á legum heldur fóðringum og því getur samstæðan framleitt mjög pressaðar rúllur, allt að 1200 kílóum. Aðrir kostir samstæðunnar eru m.a. þeir að í vélinni er smurstöð sem smyr allar legur og fóðringar. Stýritölva í henni er á íslensku og segja nemar til um ef eitthvað hefur komið upp á. „Þetta er mjög sterkbyggð samstæða, hún bindur ákaflega þéttar og fastar rúllur og þá hefur bændum einnig þótt það mikill kostur að tölvubúnaðurinn í henni er á íslensku,“ segir Einar um rúllusamstæðuna. „Vélar af þessu tagi seljast ekki þegar þrengir að, en við höfum tekið eftir því núna að það er að lifna yfir markaðnum, bændur eru farnir að spyrjast fyrir og jafnvel að festa kaupa á svona samstæðu. Senda bændum vörur heim Búvís býður einnig Orkel sturtu- vagna af ýmsum stærðum, þeir eru framleiddir í Noregi, eru sterk- byggðir og á góðum flotdekkjum. Mest seldi vagninn er TT130 og setja bændur á hann allt að 14 rúllur. Þá er Búvís einnig með ávinnsluherfi, þrjár gerðir, með fjögurra, sex og átta metra vinnslubreidd og eru þau stærri með vökvatjökkum. „Það hefur verið góð sala í þessum tækjum núna, enda í notkun hjá bændum um þessar mundir,“ segir Einar. Stærsti þáttur starfseminnar er sala á áburði og rúllubaggaplasti. Rani rúllubaggaplast sem fyrirtækið selur hér á landi kemur frá Finnlandi og segir Einar það auðvelt og þægi- legt í notkun og vinsældir þess séu miklar meðal íslenskra bænda. Þá hefur einning verið aukning í sölu á útistæðuplasti frá Rani frá fyrir- tækinu. Bændur fá plast og áburð frá fyrir- tækinu send heim í hérað, ef pantað er tímanlega og hefur það mælst vel fyrir. „Við höfum jafnan verið sterkastir á Norðausturlandi, en sala á plasti hefur vaxið ár frá ári og nú förum við með það um land allt,“ segir Einar. „Flutningskosnaður innanlands er sífellt stærri kostnað- urliður í rekstri bænda og því kunna þeir vel að meta að fá vöruna heim í hérað.“ /MÞÞ Einar Guðmundsson hjá Búvís á Akureyri: Salan fer vel af stað og útlit fyrir líflegt sumar Einar Guðmundsson hjá Búvís á Akureyri við Orkel sturtuvagn. Hann er bjartsýnn á söluna fyrir sumarið og segir mikið um pantanir. Mynd | MÞÞ

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.