Bændablaðið - 12.05.2011, Síða 25
„Það sem vantar alveg inn í vélasö-
luflóruna í dag er dráttarvélasalan,
þar er algjört hrun. Hún er nánast
engin og aðeins er búið að skrá níu
vélar á árinu, þar af sex í apríl,“
segir Stefán Bragi Bjarnason
framkvæmdastjóri Vélaborgar
landbúnaðar. „Það virðist heldur
enginn vera að flytja inn nýjar
dráttarvélar um þessar mundir
og engar vélar á leið til landsins
með skipafélögunum. Flestar vélar
sem seljast eru svokallaðar eftir-
ársvélar. Sala á heyvinnuvélum og
fjölnota smávélum virðist þó vera
að glæðast.“
Breyttar áherslur í tækjakaupum
„Ég held að bændur séu margir farnir
að huga að því að vera einungis með
eina stóra dráttarvél en spara í fjár-
festingum með því að kaupa það sem
kallaðir eru liðléttingar (smávélar) til
margvíslegra nota.“
Þá segir Stefán að mikil vakning sé
hjá bændum varðandi heimavinnslu
á landbúnaðarafurðum, sem kallar á
margvíslegan búnað.
Óþarflega mikil svartsýni
bjartsýni í landbúnaðinn. Evró-
bændum eins og draugur og mjög
margir bændur sem maður talar við
telja sig í óvissuástandi vegna þessa.
Þeir telja sig ekki vita hvort óhætt sé
að fjárfesta vegna þess að svo mikil
óvissa sé í íslenskum landbúnaði.
Þetta er mjög slæmt þar sem mikil
þörf er á endurnýjun á tækjum og
búnaði í greininni. Ég skil ekki af
hverju menn eru með þessa svartsýni
því mjög miklir möguleikar eru t.d.
skyr erlendis,“ segir Stefán og nefnir
sérstaklega jógúrt, sem hvergi sé eins
gott og á Íslandi.
Heimavinnslan fer hratt vaxandi
Það er þó ekki bara eintóm depurð
ríkjandi í íslenskum landbúnaði ef
dæma má af stóraukinni sölu á ýmis-
konar tækjum og búnaði til heima-
vinnslu í sveitum. Þar má nefna
ísgerðarvélar, strokka, kjöthakka-
vélar, bjúgnapressur, hamborgara-
vélar, korn- og hveitimyllur og fleira.
Þannig eru stöðugt fleiri bú að setja
upp heimavinnslu og sölu á eigin
vörum undir því sem nefnt hefur
verið „Beint frá býli“. Undir þetta
falla líka bú ferðaþjónustubænda sem
eru í stöðugri sókn.
„Það er greinilegt að bændur eru
mjög mikið farnir að huga að því
að ná stærri hluta virðisaukans til
sín og reyna þannig að bjarga sér í
kreppunni. Það á bæði við varðandi
framleiðslu úr umframmjólk, sem
þeir fá hvort sem er mjög lítið fyrir,
og vinnslu á kjöti. Það er mikil vakn-
ing í þessa veru og engin spurning
að þetta á eftir að vaxa mjög mikið.
Nú eru bændur t.d. farnir að spá í
ostagerðarpotta.“
Opna Lely sýningarsal
Hjá VB landbúnaði er nú verið að
setja upp það sem þeir kalla „Lely
Center“ en hollenski landbúnaðar-
tækjaframleiðandinn Lely á 25%
hlut í VB landbúnaði ehf. Þarna
verður um að ræða sýningarsal þar
sem bændur geta komið og séð ýmis
tæki sem VB landbúnaður er að selja,
t.d. LELY mjaltaþjóna, fóðurýtara,
flórgoðann og önnur tæki og tól og
kynnst þeim af eigin raun. Fyrstu
tveir gámarnir með heyvinnuvélum
frá Lely sem þarna verða til sýnis
komu til landsins í vikunni.
Starfsemi VB landbúnaðar hefur
einmitt talsvert snúist um þjónustu
við mjaltaþjóna frá Lely síðustu ár.
Þar er um að ræða 83 mjaltaþjóna
víða um land sem þurfa eftirlit sex
sinnum á ári. Þar af er tveir nýir á
þessu ári af gerðinni Astronaut A4,
sem er nýjasta gerð Lely mjalta-
þjónanna.
Stefán segist gera ráð fyrir að
Lely verði kominn með 50% hlut í
fyrirtækinu innan þriggja ára. Hann
segir dálítið sérstakt að það skyldu
einmitt hafa verið Hollendingar sem
hafi verið tilbúnir að hlaupa undir
bagga með því að gerast hluthafar í
fyrirtæki á Íslandi þegar allt hrundi
hér 2008 og þrátt fyrir alla Icesave
umræðuna. Vélaborg hafði þá fengið
mikinn skell og fjöldi þekktra fyrir-
tækja í þessari grein orðið gjaldþrota
eða verið yfirtekin af lánadrottnum
eins og Vélaver, Vélfang, Kraftvélar,
Sturlaugur Jónsson, Íshlutir, Hekla
og fleiri. Sum þessara fyrirtækja
hafa síðan verið endurreist á sömu
nöfnum.
Góðan fyrirvara þarf í dag til
tækjakaupa
Stefán segir að auglýsingar
Vélaborgar og annarra fyrirtækja
varðandi dráttarvélar virðist flestar
byggja á að bændur panti með góðum
fyrirvara og greiði inn á pantanir
fyrirfram. Hann segir ástæðuna m.a.
vera þá að margir dráttarvéla- og
landbúnaðartækjaframleiðendur hafi
verið að tapa gríðarlegum fjárhæðum
á viðskiptunum við innflutnings-
fyrirtæki sem hafi orðið gjaldþrota
í hruninu.
„Þá eru fjármögnunarfyrirtækin
ekki lengur tilbúin að fjármagna
tæki sem enn eru erlendis, eins og
tíðkaðist reyndar á árunum löngu
fyrir 2007 og allt aftur til 2000. Þá
dugði innflytjendum að koma með
erlenda nótu fyrir tæki sem verið var
að selja og fjármögnunarfyrirtækin
borguðu. Við innflutning forskráðust
tækin þá á fjármögnunarleigurnar.
Nú er þetta alveg aflagt og þær vélar
sem seljast eru að mun lægri hluta
fjármagnaðar hjá fjármögnunar-
fyrirtækjunum, mest 70%. Síðasta
dráttarvél sem við seldum var á 41%
láni. Það er svo sem enginn að búast
við því að ástandið fari í sama horf
og það var.“
Algert hrun í dráttarvélasölu
„Staðreyndin er að það eru á milli
7 og 8 þúsund dráttarvélar í notkun
á Íslandi hjá bændum og bæjar-
félögum. Ef maður reiknar 20 ára
endingartíma á þessum dráttarvélum
þá er eðlileg endurnýjunarþörf sem
nemur um 350 vélum á ári. Nú erum
við að fara inn í fjórða árið í niður-
sveiflu og aðeins hafa verið skráðar
níu nýjar vélar. Þetta er því lélegasta
söluárið hingað til.
Í fyrra vorum við með 40%
markaðshlutdeild í sölu með John
Deere dráttarvélar en það voru samt
allt eftirársvélar af árgerð 2008 og
engin nýinnflutt. Nú virðist vera að
eftirársvélarnar séu að verða búnar
hjá söluaðilum og eingöngu nýjar
vélar í boði sem panta þarf með fyrir-
vara. Verðin eru bændum ofviða svo
að það eru fáir tilbúnir í slíka fjár-
festingu. Það er mest verið að selja
minni vélar, nema að ég veit um einn
bónda sem var að flytja inn nýjan
Zetor erlendis frá. Við erum t.d. að
flytja inn eina notaða John Deere
dráttavél sem við keyptum úti og
ég veit af nokkrum vélum sem eru
í farvatninu. Nú er hinsvegar komið
fram í maí og nær ekkert að gerast.
Það er algert hrun.“
Endurnýjunarþörfin hleðst upp
Stefán segir að endurnýjunarþörfin
sé nú að hlaðast upp en hún skili
sér ekki í pöntunum á nýjum drátt-
arvélum. Nú líti út fyrir að árið 2011
verði versta árið í innflutningi á drátt-
arvélum til Íslands síðustu áratugina.
Hann telur að þetta byggist að stórum
hluta á lægra gengi krónunnar og því
að nú verði söluaðilar hérlendis að
greiða stóran hluta af kaupverðinu
fyrirfram og áður en vélin fer í fram-
leiðslu.
„Frá því þú greiðir líða kannski
tveir til þrír mánuður þar til vélin
fer í skip. Síðan þarf vélin að komast
heim og fara í sölu. Ef hún selst eru
kannski liðnir fjórir mánuðir frá því
söluaðili lagði út fyrir vélinni og
ég held að það sé enginn tilbúinn í
slíka bindingu á fjármagni. Þegar við
seljum þá er alltaf uppítaka á notaðri
vél á móti sem þarf að liggja með
í einhvern tíma. Að vísu hafa allar
vélar sem losna selst mjög hratt þar
sem engar notaðar dráttarvélar eru
til hjá söluaðilum í landinu. Ef við
fáum notaða dráttarvél á skrá hjá
okkur eru venjulega komin tvö til
þrjú tilboð í hana áður en dagurinn er
liðinn. Fjármögnunarleigufyrirtækin
sem tóku dráttarvélar af verktökum
og einstaka bændum seldu þær
beint úr landi. Við höfum verið
að selja nokkrar af þessum vélum
fyrir fjármögnunarfyrirtæki eins
og McCormick, þær hafa aðallega
verið seldar til Noregs. Svo kemur
hugsanlega í ljós að þessar vélar
voru á ólöglegum fjármögnunar-
leigusamningum og þá er spurningin
hvað fyrri eigendur gera.“
Skelfilegt í verktakageiranum
„Við höfum þó séð að bændur eru
flestir að komast sæmilega frá sínu
og hafa ekki misst margar vélar
vegna vanskila. Verktakageirinn
hefur aftur á móti komið skelfilega
út. Þar var mikið af einyrkjum með
eina vél eða einn bíl. Þegar þeir
misstu síðan verkefni og tækin voru
tekin af þeim misstu þeir um leið alla
sína framfærslu. Margir þeirra voru
bara með sitt meirapróf og vinnu-
vélapróf og áttu litla möguleika á
að komast inn í aðrar greinar. Nú er
spurning hvað þeir geta gert ef þeir
voru settir í gjaldþrot vegna ólög-
legs fjármögnunarleigusamnings.
Hvar standa þessir menn og hvaða
rétt hafa þeir ef samningarnir verða
síðan dæmdir ólögmætir, eins og
kominn er héraðsdómur um gagn-
vart Íslandsbanka fjármögnun?“ spyr
Stefán Bragi Bjarnason. /HKr.
BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 12. MAÍ 2011
Mjög lítil sala dráttarvéla það sem af er ári og bætist það við söluhrun áranna frá 2008:
Mikil sala á búnaði til heimavinnslu
- Framkvæmdastjóri VB landbúnaðar segir samt vanta svolitla bjartsýni í landbúnaðinn
Stefán Bragi Bjarnason framkvæmdastjóri Vélaborgar landbúnaðar segir jarðvinnslu- og heyvinnuvélar vera
ofarlega á baugi þessa dagana. Áherslur séu þó að breytast í tækjakaupum þar bændur eru farnir að spara sér
dráttavélakaup og fjárfesta frekar í ódýrari liðléttingum til margvíslegra nota. Mynd / HKr.
Stefán við eina John Deere dráttarvél
en það merki var söluhæst í fyrra.
Tæki og fóðuröflun - 25
Notkunarstaðir hjá
Tígli á Gýgjarhóli
sumarið 2011
Húsgangmál: Vatnshollti 1a Flóahreppi, uppl. gefur Erling og
Aðalheiður í símum 486-3404 og 892-0373.
Fyrragangmál:
uppl. gefur Róbert í síma 898-6247.
Seinnagangmál: Hoftún við Stokkseyri,
uppl. gefur Davíð í síma 693-4060.