Bændablaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 26
„Það er landbúnaðurinn sem hefur
verið að halda uppi sölu atvinnu-
tækja þar sem verktakamarkað-
urinn hefur mjög lélegur allt frá
hruninu 2008. Landbúnaðurinn
heldur áfram starfsemi hvað sem
á gengur í þjóðfélaginu. Þar hefur
samt verið dregið saman í fjár-
festingum. Því eru menn helst að
horfa á viðhald og sölu varahluta
og slíka hluti,“ segir Eyjólfur Pétur
Pálmason framkvæmdastjóri hjá
Vélfangi ehf.
Fyrirtækið var stofnað í mars
2004. Það er með umboð fyrir
mörg þekkt merki eins og Fendt
dráttarvélar, Claas dráttarvélar og
heyvinnslutæki, Kuhn, Kverneland
og síðan JCB traktorsgröfur.
Þjónustan sífellt mikilvægari
„Þjónustuhlutinn hefur því stóreflst,
sem kemur reyndar af sjálfu sér þar
sem vélar og tæki eldast og þarfnast
meira viðhalds,“ segir Eyjólfur.
„Áður voru menn að endurnýja vélar
á tveggja til þriggja ára fresti. Nú
hefur orðið stöðvun á því og nýj-
ustu vélarnar flestar orðnar þriggja
til fimm ára gamlar og farnar að
þarfnast aukins viðhalds.
Það hefur líka verið dræm sala í
nýjum tækjum fyrir landbúnaðinn
en það er þó aðeins farið að votta
fyrir því að nýju. Landbúnaðurinn
er þá helst að taka aðeins við sér í
minni dráttarvélum og léttari hey- og
jarðvinnutækjum.
Það er augljóslega komin upp-
söfnuð þörf vegna lítillar endurnýj-
unar véla undanfarin ár. Ég held að
það sé óhætt að segja að árið 2010
hafi verið það lélegasta sem maður
hefur séð. Þetta ár lítur mun betur út
og þörfin er fyrir hendi. Það er þó enn
lítil sem engin sala í dráttarvélum en
virðist aðeins vera að byrja.“
Áherslan á minni dráttarvélar
„Núna leggjum við áherslu á Claas
dráttarvélarnar. Þær eru hagstæðari
í verði en aðrar. Menn eru að byrja
á 100 hestafla vélum og þar yfir. Í
stærri dráttarvélunum, sem mikil sala
var í hjá okkur áður, voru það Fendt
150 hestafla og upp í 360 hestöfl. Þar
er enn rólegt enda frekar dýrar vélar
um að velja.“
Segir Eyjólfur að 100 hestafla vel
útbúin vökvaskipt Claas dráttarvél
kosti um 7 milljónir króna án tækja.
Hann segir að í stærri vélunum sé
hægt að útvega dráttarvélar með
ámoksturstækjum frá 10 til 12 millj-
ónum króna fyrir utan virðisauka-
skatt.
„Stærstu Fendt vélarnar fara alveg
upp í 25 til 30 milljónir króna. Það
eru reyndar tæki með 360 hestafla
mótorum, sem þó nokkuð mikið er til
af hér á landi. Þetta eru dráttarvélar
sem vega um 10 tonn á stórum og
breiðum dekkjum og hafa mikið
flot.“
Dýrt merki og gott
„Við segjum hiklaust að Fendt sé
dýrasti traktor í heimi en þar ertu líka
að fá eitthvað fyrir peninginn. Maður
þarf því ekki að skammast sín fyrir
að vera með dýra vöru þegar hún
er jafn góð og raun ber vitni. Þetta
eru vélar með mikla sparneytni sem
skiptir miklu máli í dag og endur-
söluverðið er mjög gott. Nú þegar
menn horfa meira í endursöluverð og
endingu þá sjá menn að það er ekki
alltaf best að kaupa það ódýrasta.
Þá ættu bændur að huga meira að
samnýtingu á dýrum tækjum en gert
hefur verið.“
Verðhækkanir vegna
mengunarkrafna og aukinnar
eftirspurnar
„Verð á vélum hefur í raun ekki
hækkað frá birgjum í mörg ár. Núna
eru þó blikur á lofti varðandi verð á
dráttarvélum óháð framleiðendum.
Almennt eru vélar að hækka í verði
á þessu ári um 10-12% vegna nýrrar
Evróputilskipunar um mengunar-
staðla. Í dráttarvélunum kemur þetta
aðeins seinna en í vörubílunum en í
stærri mótorana í dráttarvélunum er
svo farið að nota AdBlue íblöndunar-
tæknina.
(AdBlue er vörumerki þýsks gæða-
staðals fyrir AUS32 eða „Aqueous
Urea Solution 32.5%“ eins og notuð
hefur verið í mörgum evrópskum
vörubílategundum undanfarin ár til
að draga úr mengun í dísilvélum með
SCR búnaði. - Innskot blaðamanns)
Síðan hefur verið gríðarleg söluaukn-
ing í Evrópu og er ástandinu nú líkt
við 2007 ævintýrið. Ástæðan er mikil
hækkun á hrávöruverði, ástandið í
Afríku, jarðskjálftar í Japan og fleira
sem veldur því að hrávörur hækka í
verði. Það kallar á aukna framleiðslu
á landbúnaðarvörum í Evrópu, sem
kallar á aukinn tækjabúnað.“
Búist við 25-40% söluaukningu
erlendis
„Er nú verið að tala um 25 til 40%
aukningu í sölu á sumum tækjum.
Það leiðir síðan til hækkandi verðs
á stáli sem aftur leiðir til hækkunar
á landbúnaðartækjum. Við erum
því fyrst núna að sjá verðhækkanir
á slíkum tækjum frá birgjum síðan
hruninu 2008. Í apríl varð t.d. um
2% hækkun á landbúnaðartækjum
að meðaltali að mér sýnist.
Ég held þó að erlendir birgjar séu
okkur almennt hliðhollir og reyni
að halda verðhækkunum til Íslands
niðri. Allavega þeir sem ekki hafa
verið að tapa hér miklum peningum
í hruninu. Við erum því svolítið að
horfa á að vera færðir niður um verð-
flokk og að Íslands verði þar ekki
lengur talið með ríkjum í þessum
þróaða heimi. Við erum því komin
á svipaðan stað og fyrrum austan-
tjaldslönd hvað kaupgetu varðar.“
Hætt að framleiða vélar á lager
„Vegna stóraukinnar sölu á landbún-
aðartækjum í Evrópu er ekki lengur
um það að ræða að við getum gengið
að lagerum erlendis. Verksmiðjurnar
eru líka hættar að framleiða nema
eftir pöntunum. Við verðum því bara
að fara í röðina og höfum verið að
kalla eftir pöntunum frá bændum
fyrir áramót. Þannig er gert þríhliða
samkomulag á milli kaupanda, okkar
og erlendu birgjanna. Þetta er það
umhverfi sem koma skal. Í varahlut-
unum liggja menn ekki heldur með
birgðir nema af því allra nauðsyn-
legasta. Annað er bara pantað jafn
óðum. Allt sem pantað er fyrir hádegi
er þá komið til okkar daginn eftir og
kemst þá í póst áfram út á land.
Þetta fyrirkomulag hefur gengið
vel og salan það sem af er ári hefur
farið fram úr björtustu vonum. Salan
er margföld á við það sem var í fyrra,
sem var kannski ekki svo erfitt að
toppa. Þá eru engar birgðir til í
landinu af tækjum, hvorki nýjum né
notuðum. Þá stíga umboðin mjög
varlega til jarðar hvað varðar upp-
ítöku á vélum og bankarnir eru lítið
í því að lána peninga til rekstrar.“
100% lánsfjármögnun liðin tíð
Hvernig fara bændur þá að því að
fjármagna kaup á tækjum?
„Það hefur verið mest salan á
þessum minni tækjum, sem kosta frá
einni og upp í þrjár milljónir króna.
Það hafa menn að mestu fjármagnað
með eigin fé út úr sínum rekstri.
Það er þó einstaka fjármögnun sem
fer í gegnum banka eða fjármögn-
unarleigufyrirtæki. Þá eru menn með
35-40% eigið fé í slíkum kaupum.
Með stærri vélar þá halda menn
greinilega að sér höndum vegna
þess að það er of dýrt að kaupa núna
vegna lágs gengis krónunnar. Þeir
munu því væntanlega bíða í um tvö
ár í viðbót.
Vandinn er að á dráttarvélamark-
aðnum hefur salan verið langt undir
meðaltali síðustu 15 ár og því ört að
byggjast upp endurnýjunarþörf. Ég
held að framtíðin verði að vera sú
að þegar bændur ákveða að kaupa
sér dráttarvél þá verði menn einfald-
lega að hafa þriggja til sex mánaða
fyrirvara á því. Ég held að slíkt fyrir-
komulag verði líka öllum til hags-
bóta.“
Margar nýjungar á leiðinni
Eyjólfur segir að vegna stöðnunar
í dráttarvélasölu að mestu í þrjú ár
hafi farið framhjá mönnum hér marg-
vísleg þróun á búnaði. Þannig séu
bæði Claas og Fendt að kynna nýjar
útgáfur af sínum vélum. Fendt hefur
verið að kynna nýjungar í stórum
tæplega 400 hestafla vélum vegna
breyttra mengunarstaðla. Árið 2009
kynnti Fendt nýja og uppfærða línu
af 200 Vario 70-100 hestafla drátt-
arvélum og frá þeim tíma eru allar
Fendt vélar sem framleiddar eru með
stiglausri Vario skiptingu.
Claas er svo að koma með mjög
skemmtilega 100-120 hestafla
vél, sem Eyjólfur telur eiga mikið
erindi inn á íslenska markaðinn. Þá
er Claas með nýja rúllusamstæðu
og er að gera sig gildandi í stærri
dráttarvélum, allt upp í 400 hestöfl.
Eyjólfur segir einnig mikla þróun í
gangi í heyvinnuvélunum og margt
skemmtilegt framundan.
Skotbómulyftarar sniðug lausn
„Þá eru bændur hérlendis farnir að
horfa meira á léttari fjölnotatæki sem
aukavélar á móti stórum dráttarvél-
um. Við teljum að þeir ættu allavega
að hugsa um það sem valkost að fá
sér skotbómulyftara, sem eru mikið
meiri fjölnotatæki en dráttarvélarnar.
Þeir bændur sem farið hafa þessa leið
hafa áttað sig á því að skotbómulyft-
ararnir eru í dag mest notuðu tækin á
búunum. Þeir eru mun léttari, liprari
og eyðslugrennri en traktorar og hægt
er að nota þá bæði úti og inni, vetur
sem sumar.“
Viðskiptavinirnir halda tryggð
við merkin
„Annars erum við mjög stoltir af
því að allir traktorar sem seldir hafa
verið hér út úr húsi síðan 2004 hafa
verið endurnýjaðir hjá okkur. Þeir
kaupendur hafa ekki verið að skipta
um merki sem ég held að séu bestu
meðmælin með þeim tegundum
sem við höfum verið að bjóða og
líka okkar þjónustu. Sama á við um
sambyggðu Kuhn BIO rúllupökk-
unarvélarnar, þær hafa verið að koma
mjög vel út og bændur hafa verið
að koma og endurnýja þær í sömu
tegund. Enda kemur það í ljós í svona
kreppuástandi hvað þjónustuþáttur-
inn skiptir miklu máli bæði hvað
ábyrgðir varðar og þjónustuna sjálfa.
Það er farið að telja mikið núna
í bókhaldi bænda að geta fengið
bættar ábyrgðarviðgerðir í tveggja
til þriggja ára gömlum vélum. Það
skiptir því máli að vel sé vandað til
kaupanna í upphafi. Þá skiptir líka
máli að á bak við þetta séu traust og
góð fyrirtæki eins og Claas, sem er
mjög stórt í þessum geira og stendur
vel á bak við okkur í Vélfangi.“
Æskilegt að fara varlega í
fjármálunum
„Það er að mínu mati mikill kostur
að menn fari varlega, því ég held að
enginn vilji fá aftur þetta ástand sem
ríkti hér á árunum 2007-2008. Ég
segi því hiklaust að þegar farið var
að lána til vélakaupa um 90 til 100%
af kaupverði þá hafi það verið upp-
hafið að hruninu. Menn voru jafnvel
að skipta út vél ef það kom rispa á
húddið og greiddu þá lítið út á milli.
Slíkt gat aldrei gengið.
Ég held að fjármögnunarfyrir-
tækin eigi að halda sig við 60-70%
fjármögnun og að kaupendur þurfi
þá að leggja fram 30-40% eigið fé.
Þannig var þetta áður og gekk vel og
það hélt hlutunum í ákveðnu jafn-
vægi. Það er engum til góðs að menn
séu að fjárfesta langt umfram getu,“
segir Eyjólfur. /HKr.
Árið 2010 var það lélegasta í vinnuvélasölunni, segir framkvæmdastjóri Vélfangs:
Útlitið á þessu ári er mun betra
„Við segjum hiklaust að Fendt sé dýrasti traktor í heimi en þar ertu líka að
fá eitthvað fyrir peninginn.“
„Núna leggjum við áherslu á Claas dráttarvélarnar. Þær eru hagstæðari í verði en aðrar,“ segir Pétur Pálmason framkvæmdastjóri hjá Vélfangi ehf.
Myndir | HKr.
BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 12. MAÍ 201126 - Tæki og fóðuröflun