Bændablaðið - 12.05.2011, Side 28

Bændablaðið - 12.05.2011, Side 28
28 Bændablaðið | fimmtudagur 12. maí 2011 Utan úr heimi Þrátt fyrir að lítið hafi selst af mjaltaþjónum hér á landi á síðustu tveimur árum hefur hlutfall mjólk- ur frá mjaltaþjónabúum aukist, samhliða auknum afurðum frá þessum búum. Þetta kemur fram í nýrri samantekt frá tæknihópi NMSM, en NMSM eru mjólkur- gæðasamtök afurðastöðva á Norðurlöndunum. Tæknihópur NMSM heldur sér- staklega saman upplýsingum um mjólkurgæði frá mjaltaþjónabúum, enda afar mikilvægt að fylgjast náið með þeim málum. Vitað er að bæði líf- og frumutala er heldur hærri í mjólk frá þessum búum að jafnaði en þó eru margar framleiðslueiningar með afurðir á við það sem best ger- ist. Þessi staðreynd bendir til þess að bústjórn hafi meira um það að segja hver gæði mjólkurinnar eru en endilega tæknin sem notuð er til þess að mjólka. Danir heldur hærri Um síðustu áramót nam hlutfall mjólkur frá kúabúum með mjalta- þjóna hér á landi 26,4% af heildar- framleiðslu ársins 2010 eða 33 milljónum lítra. Einungis Danmörk hafði hærra hlutfall mjólkur á heims- vísu eða 26,9%, þarlent magn er þó afar mikið eða 1,3 milljarðar lítra mjaltaþjónamjólkur. Ekki liggja nákvæmar tölur fyrir frá hinum Norðurlöndunum en NMSM eru þó að vinna að því að þessar upplýsingar verði aðgengilegar. MTT í Finnlandi telja að hlutfall mjaltaþjónamjólkur þar sé um 7% en alls óvíst er með bæði Noreg og Svíþjóð. Þó má telja líklegt að hlutfall mjaltaþjónamjólk- ur sé í báðum tilfellum undir 15%. 33 þúsund kúabú á Norðurlöndunum Um síðustu áramót voru mjalta- þjónar á 14,3% íslenskra kúa- búa, sem er næst hæsta hlutfall á Norðurlöndunum á eftir Danmörku, þar sem 22,2% búanna eru með mjaltaþjóna. Í Svíþjóð er þetta hlut- fall 12,8% og lægra en 6% í bæði Noregi og Finnlandi. Alls voru um síðustu áramót 33 þúsund kúabú á Norðurlöndunum en einungis um þrjú þúsund þeirra voru með mjalta- þjóna (sjá meðfylgjandi mynd). Ef horft er til stærðar mjaltaþjó- nabúanna eru langstærstu kúabúin í Danmörku, þar sem eru að jafnaði 2,5 mjaltaklefar á hverju búi. Næst stærstu búin eru í Svíþjóð með 1,5 mjalta- klefa á búi en svo koma hin Norður löndin, svo til öll eins með um 1,2 m j a l t a k l e f a að jafnaði á hverju búi. Hver mjaltaþjónn getur afkastað 1 milljón lítra Nýting mjaltaþjónanna er afar mis- jöfn þegar horft er til framleiðsl- unnar á milli Norðurlandanna. Þar kemur sterkt fram að nýting mjalta- tækninnar hér á landi er langt frá því sem best lætur. Mesta framleiðsla í mjaltaþjóni hér á landi árið 2010 var um 460 þúsund lítrar, en mesta framleiðslan á Norðurlöndunum var í Danmörku með yfir eina milljón lítra frá hverjum mjalta- klefa. Skýringanna er auðvitað fyrst og fremst að leita í mun á afköstum kúnna sjálfra en sum af þeim kúakynjum sem notuð eru við mjólkurframleiðslu á hinum Norðurlöndunum mjólka nærri tvöfalt meira að jafnaði en íslenska kúakynið. Mikill munur innan landanna Ef horft er frá gríðarlegum mun á afurðum kúakynjanna sjálfra er engu að síður ljóst að nýtingu mjalta- þjóna hér á landi má auka verulega. Meðalframleiðslan frá mjalta- þjónaklefum hér á landi árið 2010 nam ekki nema 285 þúsund lítrum, sem er 38% minni framleiðsla en þar sem mestar afurðir voru. Út frá þessu má ætla að heildar fram- leiðslugeta mjaltaþjóna hér á landi ætti að geta farið í a.m.k. 45% af landsframleiðslunni, án þess að fjár- festa þyrfti í einu einasta mjaltatæki til viðbótar. Þó er rétt að benda á að þar sem mest framleiðsla er, er fjöldi árskúa að jafnaði í kringum 65-70 árskýr, svo ekki er víst að öll fjós rúmi slíkan fjölda. Á hinum Norðurlöndunum er einnig töluvert mikla framleiðslu- aukningu að sækja í þegar fjárfestum mjaltaþjónum og allt upp í mörg hundruð þúsund lítra á mjaltaklefa. Sem dæmi má nefna að á dönskum kúabúum með afurðamiklar kýr, þ.e. bústofn sem mjólkar að jafnaði í kringum 12 þúsund lítra, er algeng framleiðsla um 700-750 þúsund lítrar á mjaltaklefa. Áður hefur verið greint frá því að hægt er að ná 1 milljón lítra í gegnum mjaltaklefann á ári eða um 2.740 lítrum á dag. Til að svo megi verða þarf þó bústjórnin að vera hreint einstök og flæði kúa innan fjóss, fóðrun þeirra og aðbún- aður eins og best verður á kosið. Mikilvægi samstarfs Norðurlandanna Þrátt fyrir að mikill munur sé á fram- leiðsluaðstöðunni á milli landanna eiga þau það sameiginlegt að notuð er sama tæknin til þess að mjólka. Ör þróun undanfarin ár í átt að auk- inni sjálfvirkni kallar á virkt sam- starf okkar við nágrannaþjóðirnar, svo mögulegt sé að halda faglegri þekkingu hér á landi á því stigi sem greinin þarfnast. Þátttaka okkar í starfi NMSM er þar lykillinn að aðgengi að fagfólki á sviði mjólkur- gæða og miðlun upplýsinga frá okkur til hinna Norðurlandanna. Snorri Sigurðsson Auðlindadeild Landbúnaðarháskóla Íslands Þessi sumarlega mynd var tekin við akur rétt norðan Árósa í Danmörku nú í byrjun maí. Haustsáning á olíurepju kom vel undan vetri þar í landi, eins og sést á myndinni. Þarna er Tinna Rós Snorradóttir að njóta ilmsins af blóm- strandi repjunni. Mynd | SS. Rúmur fjórðungur mjólkurinnar frá mjaltaþjónabúum Í nýrri skýrslu frá Umhverfis- verkefni Sameinuðu þjóðanna, UNEP, er varað við að býflugum í heiminum fækki hratt. Þessi fækkun er ógn við matvælaöflun jarðarbúa, segja sérfræðingar SÞ, sem bæta því við að ekki hafi enn komið fram raunhæfar tillögur um aðgerðir til að sporna við fækk- uninni. Framkvæmdastjóri UNEP, Achim Steiner, hefur í fréttatilkynningu lýst áhyggjum sínum af því sinnuleysi sem fækkun býflugna er sýnd. „Mannkynið telur sér trú um að tækniþekking þess verndi það fyrir lögmálum náttúrunnar. Hinn óút- skýrði býflugnadauði sýnir að það er skammsýni. Við erum jafn háð lög- málum náttúrunnar og áður,“ segir hann. Samkvæmt skýrslunni „Global Bee Colony Disorders and others Threats to Insect Pollinators“ nálg- ast vandamálið að verða hnattrænt án þess að nokkur skýring á því hafi komið fram. Síðustu dæmi um stórfelldan býflugnadauða eru frá Japan, Kína og Egyptalandi. Þar með hafa tvær nýjar heimsálfur orðið fyrir áfalli í þessum efnum. Sérfræðingar telja að býflugnadauðinn í Egyptalandi sé einangrað tilfelli, bundið við bakka árinnar Nílar. Í Japan er hins vegar fjórðungur útbreiðslusvæðis býflugna í landinu í hættu. Í Kína nær skaðinn þegar yfir stór svæði landsins. Að sögn Achim Steiners hefur eitthvað óútskýrt átt sér stað í lífi býflugna víða um heim. Vandamálið er það að enginn hefur enn komið með haldbærar skýringar á því sem gerst hefur. Skýrsla Umhverfisverkefnis SÞ dregur upp ógnvænlega mynd. Af 100 mikilvægustu tegundum nytjajurta heims frjóvgast um 70 með hjálp býflugna. Þær skila um 90% af samanlagðri uppskeru matjurta. Vissulega stafar býflugnadauðinn af ýmsum ólíkum ástæðum eða sam- verkun þeirra, segja sérfræðingarnir, og benda á nokkrar þeirra. Skaðleg skordýr dreifa sér hraðar en áður um ný svæði vegna aukinna heimsvið- skipta. Nýjar tegundir hættulegra sveppa og veira dreifast um víða veröld með auknum viðskiptum. Í landbúnaði er einnig á síðari árum farið að nota efni sem eru býflugunum hættuleg. Þar má nefna efni sem eru notuð gegn óæskilegum skordýrum. Það flækir rannsóknir á áhrifum þessara efna að eituráhrif þeirra aukast þar sem fleiri en eitt þeirra er notað samtímis. Blómjurtum fækkar Þrengt hefur að lífsskilyrðum býflugna við það að blómjurtum í náttúrunni hefur fækkað. Býflugurnar þurfa á þeim að halda sér og lirfum sínum til viðurværis. Loftmengun getur spillt möguleikum flugnanna til að komast af. Þær finna þá einfaldlega ekki lykt- ina af þeim blómum sem þær sækja næringu sína til. Veðurfarsbreytingar geta einnig aukið vandann, m.a. með því að blómgunartími jurta breytist sem og dreifing úrkomunnar. Þar með getur aðgangur býflugnanna að frjókornum minnkað. Fræðimenn telja að enn séu ókunnar ýmsar ástæður fyrir fækkun býflugna. Þeir leggja til að bændur bregðist nú við þeirri stöðu, sem upp er komin, með því að auka ræktun gróðurs sem bæti lífsskilyrði þeirra. Það gæti falist í því að sá og planta tegundum jurta, sem bera blóm, í kringum ræktunarspildurnar. Þá þarf að gæta aukinnar varúðar í notkun jurtavarnarefna. Framkvæmdastjórn ESB hækkaði í september á sl. ári framlag sitt til rann- sókna á lífsskilyrðum býflugna úr 26 í 32 milljónir evra. Þá hefur hún sett í gang verkefni til að kanna ítarlega umfang á hruni býflugnastofnsins í náttúrunni. Í því skyni hefur verið stofnuð sérstök rannsóknarstofnun. Tillaga stjórnarinnar hefur verið send fjölþjóðlegum vinnuhópum innan ESB sem og Evrópuþinginu. Verkefninu er stjórnað í Sviss, en þar hafa frá árinu 2003 farið fram umfangsmiklar rannsóknir á fækkun býflugna. Þá er í gangi undir forystu Svisslendinga samstarfsverkefni sem ber heitið „Coloss“ og 50 lönd eiga aðild að. /ME/Landsbygdens Folk, Fækkun býflugna er hnattrænt vandamál ÞÓR HF REYKJAVÍK - AKUREYRI Þ Ó R H F | R e y k j a v í k : K r ó k h á l s i 1 6 | A k u r e y r i : L ó n s b a k k a | S í m i 5 6 8 - 1 5 0 0 Tætarar í vorverkin Sterkbyggðir og öflugir hnífatætarar frá CELLI til afgreiðslu strax. 2 stærðir: Vbr. 285 cm, aflþörf 90 hö. Vbr. 310 cm, aflþörf 115 hö. Tannhjóladrif, hvorki reimar né keðjur. Stillanlegt op á afturhlera. L - laga hnífar, 6 á hverjum flangsi og halla innávið. 25 cm vinnsludýpt og skór á hliðum Drifskaft með yfirálagskúplingu Tryggið ykkur eintak, takmarkað magn í boði. Hagstætt verð.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.