Bændablaðið - 12.05.2011, Side 35
35Bændablaðið | fimmtudagur 12. maí 2011
Inngjafabyssa
fyrir lömb
Frábær fyrir
ormalyf og
AB-mjólk.
1/2 líters plast-
flaska passar á
byssuna.
Egilsholti 1, 310 Borgarnesi
Afgreiðsla, sími 430 5500
Opið virka daga 8-18
laugardaga 10-15
www.kb.is, margret@kb.is
Bændablaðið
á netinu... www.bbl.is
„Hátt verð á dísilolíu og bensíni er
að verða meiri háttar vandamál,
sérstaklega í dreifbýlinu,“ sagði í
ályktun félagsins Landsbyggðin
lifi þann 26. apríl 2011.
Þar sagði einnig að leiðir til
að fá þjónustu, komast í verslun
eða stunda félagslíf séu langar, svo
ekki sé nú minnst á það hve dýrt
er að komast til höfuðstaðarins.
„Flutningskostnaður á vöru og
þjónustu er orðinn óbærilegur fyrir
byggðirnar.“
Landsbyggðin lifi krefst þess að
ríkisstjórnin beiti áhrifum sínum
til að lækka verð á bílaeldsneyti.
Til þess hafa stjórnvöld tvo aug-
ljósa kosti:
1) Að stórlækka eða afnema
eldsneytisskatta.
2) Að gera kröfu á olíufélögin
um lægri álagningu.
Í greinagerð með ályktuninni
segir síðan:
„Það er rangt og óréttlátt að
leggja háa skatta á eldsneyti á þeirri
forsendu að það leiði til þess að fólk
noti þá minna af því. Í nútímaþjóð-
félagi eru bílar sem ganga fyrir
olíu eða bensíni nauðsyn, en ekki
lúxus.
Álagning olíufélaganna er allt of
há. Þetta er afar einfaldur rekstur.
Vegna bruðls og óhófs virðast þau
mörg á jötunni hjá okkur skatt-
greiðendum, sem auk okursins
þurfa nú líka að borga þau út úr
eigin skuldasúpu. Geti olíufélögin
ekki selt okkur eldsneyti með eðli-
legri álagningu, væri rétt að kanna
hvort ríkiseinkasala mundi ekki
gagnast okkur betur.“
Landsbyggðin lifi:
Vill lækkun
eða afnám
eldsneytisskatta
- og lægri álagningu