Bændablaðið - 12.05.2011, Síða 36
36 Bændablaðið | fimmtudagur 12. maí 2011
Núverandi ábúendur á Ytri-
Bægisá 2 keyptu jörðina árið 1994
en höfðu þá leigt hana í nokkur
ár. Til að byrja með voru þeir
eingöngu með sauðfé, en fengu
sér eina heimilisbelju árið 2001
og aðra árið 2010. Samhlíða þessu
fóru þau að framleiða nautakjöt í
litlum mæli.
Býli? Ytri- Bægisá 2.
Staðsett í sveit? Hörgársveit í
Eyjafirði.
Ábúendur? Hjónin Stefán Lárus
Karlsson og Elisabeth Jóhanna
Zitterbart.
Fjölskyldustærð (og gæludýra)?
Stefán og Elisabeth eiga 4 börn, þau
Karl, 16 ára, Astrid Maríu, 14 ára,
og tvíburana Benedikt og Berg Þór,
11 ára. Svo eru á bænum þrír kettir
og þrír hundar.
Stærð jarðar? Heimaland er rúm-
lega 100 ha, ræktað land 30 ha. Þá
er Bægisárdalurinn sameign með
Ytri-Bægisá 1.
Tegund býlis? Sauðfjárbú og
nautgriparækt.
Fjöldi búfjár og tegundir?
Kindur eru 380, kýrnar tvær,
kálfar 19 og 12 hross.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Farið á fætur klukkan sjö. Svo er
mjólkað og gefið kálfum. Bóndinn
gefur kindunum eftir morgunmat
þegar konan er farin í vinnunna til
Akureyrar. Síðan er farið saman
í kvöldverkin um klukkan 17 og
standa þau til um klukkan 19:30.
Þess á milli er öðrum úti- og inni-
verkum sinnt.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Það eru ekki til
leiðinleg bústörf, bara miserfið.
Skemmtilegast er að fara í göngur
í góðu veðri.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir 5 ár?
Eftir fimm ár viljum við helst hafa
allt nokkuð svipað og í dag.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Enga sérstaka
skoðun.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í framtíðinni?
Framtíðarhorfur eru góðar.
Hvar teljið þið að helstu tæki-
færin séu í útflutningi íslenskra
búvara? Helstu útflutnings-
tækifæri liggja í sauðfjárafurðum
– ekki bara kjötinu, heldur alveg
eins ullinni og fleiri afurðum.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk og mjólkurvörur í ýmsum
útgáfum, egg og heimagerðar
sultur.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Það myndi fylla alla
síðuna að telja það allt upp.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Það var þegar Ófeigur
okkar fæddist 13.5. 2009. Komið
var að ánni látinni, en sást í litlar
klaufir sem hreyfðust og tókst að
draga lambið út. Var litli hrúturinn
alinn af börnunum og er núna
uppáhald okkar allra á bænum.
Hann er nú tveggja ára sauður;
einstaklega blíður og góður.
1 9 6 2
9 7 6
9 3 7 8
3 9 7
6 1 2 9
8 3 9
2 8 1 4
2 8 1 3
6
5 9
1 9
8
6 5 1 7 4
4 2
2 5 1
7 8 6
3 1 9 4
1 4 8 9 3
2 3 5
8 5
7 2 6
9 6 2 7
3 8 6 4
2 8
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er
að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn ar.
Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar
í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki
innan hvers reits sem afmarkaður er
af sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú sem
er lengst til vinstri er léttust og sú
til hægri þyngst en sú í miðjunni
þar á milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni
www.sudoku2.com og þar er einnig
að finna fleiri þrautir ef þessi
skammtur nægir ekki.
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Einfalt og frísklegt í sumarbyrjun
Nú er tími ferminganna í hámarki
og því tilvalið á þessum tímum
að útbúa kræsingarnar sjálfur til
að minnka kostnað eins og hægt
er. Mörgum vex í augum að baka
sína eigin kransatertu en sé farið
eftir leiðbeiningum og með góðri
æfingu getur útkoman orðið með
besta móti.
Fiskur í sumarskapi
fiskur að eigin vali
sinnep
1 egg
hrökkbrauð, fyrir rasp
salt
pipar
Aðferð:
Skerið fiskinn í hæfilega stóra bita
og smyrjið með sinnepi. Brjótið egg í
skál og pískið til. Myljið niður hrökk-
brauð sem þið notið sem rasp. Veltið
síðan fisknum upp úr hrærðu egginu
og síðan upp úr raspinum. Steikið
á pönnu og saltið og piprið að vild.
Berið fram með grænu salati, tóm-
ötum, gúrku og rauðlauk. Gott er að
nota salsasósu með fisknum.
(Fengið að láni frá Ny nordisk mat).
Sumarsalat
fyrir 4
klettasalat
paprika í ýmsum litum
½ agúrka
2 ferskir tómatar eða sólþurrkaðir
1 eggaldin
1 kúrbítur
2 kjúklingabringur
10 döðlur
½ pakki pekanhnetur
½ krukka fetaostur
20 saltstangir
Aðferð:
Skerið eggaldin og kúrbít í sneiðar og
léttsteikið. Skerið kjúklingabringurnar
í bita og steikið á pönnu, gott er að
setja örlítið salt og pipar á þær. Skerið
tómata, papriku og agúrku í sneiðar og
dreifið því yfir klettasalatið á fallegan,
stóran disk. Setjið steikta grænmetið
yfir og kjúklinginn. Skerið döðlurnar
í tvennt og pekanhneturnar í bita.
Bætið þeim ásamt fetaostinum yfir
salatið. Stingið síðan saltstöngum inn
í salatið hér og þar til að gera það enn
girnilegra og fallegra. /ehg
MATARKRÓKURINN
Ytri-Bægisá 2
Börnin þrjú og hundarnir á Ytri-Bægisá 2.
Astrid María.
Þessi einfalda uppskrift að
þá álpappír undir svo raspurinn
haldist betur á.
Mynd | Ny nordisk mat.