Bændablaðið - 12.05.2011, Page 37
37Bændablaðið | fimmtudagur 12. maí 2011
YFIRHEYRSLA
Þó að vorið sé farið að kíkja á
okkur þá er ennþá gott að hafa
eitthvað létt og hlýtt um hálsinn.
Þessar litlu hyrnur eru mjög
vinsælar núna í vor og hægt er að
prjóna þær í öllum litum vorsins
ef vill til að lífga upp á kjóla og
peysur.
Efni:
Aðferð:
-
-
Gleðilegt sumar
Inga Þyri Kjartansdóttir
Hlý og góð hyrna um hálsinn
Eygló Arna Guðnadóttir býr á
Þúfu í Vestur-Landeyjum þar
sem hún unir sér við sveitastörfin
á milli tarna í skólanum og við
íþróttaiðkun. Íþróttir og hestar
eiga hug hennar og fer sumarfríið
hjá Eygló Örnu að mestu í að
sinna áhugamálunum.
Nafn: Eygló Arna Guðnadóttir.
Aldur: 15 ára.
Stjörnumerki: Naut.
Búseta: Þúfa, V-Landeyjar.
Skóli: Hvolsskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Íþróttir.
Hvert er uppáhalds dýrið þitt?
Hestar.
Uppáhaldsmatur: Nachos-
kjúklingaréttur.
Uppáhalds hljómsveit: Ég veit
ekki.
Uppáhaldskvikmynd: Taken.
Fyrsta minningin þín? Þegar
Hekla (tíkin okkar) eignaðist hvolp,
hann Smell, og var úti í hlöðu í
járnbala með hann.
Æfir þú íþróttir, eða spilarðu
á hljóðfæri? Já, ég æfi fótbolta,
frjálsar og fimleika. Ég hef einnig
lært á píanó og þverflautu.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir í tölvu? Að vera á
Facebook.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Hestakona og
fótboltakona.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Að fara í fallturninn
í tívolíinu í Kaupmannahöfn og
stóra rússíbanann þar.
Hvað er það leiðinlegasta sem
þú hefur gert? Að byrja að lesa
Íslendingasögur því ættirnar eru
svo langar.
Ætlar þú að gera eitthvað sér-
stakt í sumar? Ég ætla að fara
í fótboltaferðalag til Spánar á
Landsmót hestamanna og í hesta-
ferðalag á Löngufjörum. /ehg
Fer í fótboltaferðalag til Spánar í sumar
PRJÓNAHORNIÐ
Borum eftir heitu
og köldu vatni
ásamt öðrum
borverkum um
allt land. Liprir
og sanngjarnir
í samvinnu og
samningum.
Hagstætt verð.
Bændur - sumarhúsaeigendur
Upplýsingar gefur Júlíus Guðnason í síma 864-3313.