Fréttablaðið - 24.04.2012, Síða 4

Fréttablaðið - 24.04.2012, Síða 4
24. apríl 2012 ÞRIÐJUDAGUR4 UTANRÍKISMÁL José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambands- ins, fullyrðir að deila Íslendinga og ESB um makríl sé ótengd umsókn Íslendinga að ESB. Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismála- nefndar Alþingis, hitti Barroso í Kaupmanna- höfn í gær og ræddi um makríldeiluna, en nokkrir þingmenn í sjávarútvegsnefnd ESB hafa lýst yfir vilja til að tengja þessi tvö mál. Barroso sagði að makrílkvóti Íslendinga væri allt of hár. „Og ég er vonsvikinn yfir því, vegna þess að þrátt fyrir að það sé engin bein tenging við aðildarviðræðurnar hjálpar þetta ekki til. Þetta er erfitt ástand.“ Nokkrir þingmenn í sjávarútvegsnefnd ESB hafa lagt til að Ísland verði beitt viðskipta- þvingunum. Hann telur ólíklegt að slíkt verði samþykkt af framkvæmdastjórninni, enda brjóti það í bága við EES-samninginn. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir að almennt sé viðurkennt að um óskyld mál sé að ræða, en umræðan sé ekki góð. „Þetta bætir auðvitað ekki andrúms loftið en fyrir utan þennan þrönga hóp makríl- þingmanna hef ég ekki heyrt neina tengja deiluna við viðræðurnar enda óskyldir hlutir. Ég hef til dæmis ekki heyrt af neinum sem vill tengja makríl beint við opnunarviðmið vegna sjávarútvegskaflans og hef frekar gert ráð fyrir að það gæti orðið svipað og þau sem varða kaflana um landbúnað og byggða- mál, þ.e.a.s. um einhvers konar tíma settar áætlanir, þar sem tekið yrði líka tillit til niðurstöðu viðræðnanna. Stækkunarstjórinn kom því svo kyrfilega á framfæri eftir fund með makrílhópnum í síðustu viku að ESB liti svo á að það væri engin tenging á milli makríls og aðildarviðræðnanna.“ - kóp François Hollande og sitjandi for- seti Nicolas Sarkozy báru höfuð og herðar yfir aðra frambjóðendur í fyrstu umferð forseta kosninganna í Frakklandi um helgina. Hollande fékk 28,44 prósent atkvæða og Sarkozy 27,05 prósent. Kosið verður á milli þeirra tveggja í annarri umferð kosninganna 6. maí næstkomandi. Hér að neðan getur að líta þau sem heltust úr lestinni í fyrstu umferð. Marine Le Pen, frambjóðandi Þjóðfylkingarinnar, fékk 18,3 prósent atkvæða. Jean-Luc Melenc- hon, frambjóðandi Vinstrifylkingarinnar, fékk 11,1 prósent atkvæða. Francois Bayrou, leiðtogi Lýðræðis- hreyfingarinnar, fékk 9,1 prósent atkvæða. Eva Joly, frambjóð- andi Græningja, fékk 2,3 prósent atkvæða. Nicolas Dupont- Aignan, borgarstjóri og þingmaður, fékk 1,8 prósent atkvæða. Philippe Poutou, frambjóðandi Nýja andkapítalista- flokksins, fékk 1,2 prósent atkvæða. Nathalie Arthaud, frambjóðandi Verka- lýðsbaráttunnar, fékk 0,6 prósent atkvæða. Jacques Chem- inade, frambjóðandi Samstöðu og framfara, fékk 0,3 prósent atkvæða. Þau eru úr leik GENGIÐ 23.04.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 228,4086 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 126,27 126,87 203,26 204,24 165,95 166,87 22,303 22,433 21,958 22,088 18,737 18,847 1,5559 1,5651 194,85 196,01 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is Í frétt blaðsins í gær kom fram að 12 karlar og 14 konur leituðu til Aflsins á Akureyri, samtaka gegn kynferðis- ofbeldi, í fyrra. Því skal haldið til haga að um er að ræða nýjar komur til samtakanna, en heildarfjöldi ein- staklinga er mun meiri. HALDIÐ TIL HAGA Nýr formaður Samfok Margrét Valgerður Helgadóttir er nýr formaður Samfoks, samtaka foreldra og grunnskólabarna í Reykjavík. Aðal- fundur samtakanna var haldinn fyrir skömmu og var nokkur endurnýjun í stjórninni umfram nýjan formann. ATVINNUMÁL SAMFÉLAGSMÁL Nýstofnaður Menntunarsjóður Mæðrastyrks- nefndar Reykjavíkur óskar eftir sjálfboðaliðum í Ráðhús Reykja- víkur í dag klukkan 17 til 21 til að aðstoða við að búa til Mæðra blómið 2012. Takmarkið er að búa til eitt þúsund blóm sem seld verða í tengslum við mæðradag- inn. Afla á fjár til að styrkja konur í lægstu tekjuþrepunum til náms. Blómin verða búin til undir handleiðslu Steinunnar Sigurðar dóttur og fleiri hönn- uða og no ta á að mestu afganga eða gömul föt í blómin. Fólk er einnig beðið að koma með efnis- afganga eða gamlar rauðar flíkur. - ibs Konur styrktar til náms: Sjálfboðaliðar óskast við gerð Mæðrablóma MÆÐRABLÓMIÐ FRÉTTASKÝRING Gefur fyrsta umferð frönsku forseta- kosninganna fyrirheit um endanlega niðurstöðu? Í fyrstu umferð frönsku forseta- kosninganna á sunnudag gerðist það í fyrsta sinn að sitjandi forseti varð undir í atkvæða- greiðslunni. Nicolas Sarkozy, for- seti Frakklands, var með næst- flest atkvæði í kosningunni, og 27 prósenta fylgi. Í fyrsta sætinu var François Hollande, með 28,44 prósenta fylgi. Í frönskum fjölmiðlum er því haldið fram að staða Hollande sé sterkari en forsetans fyrir kosn- ingarnar 6. maí þegar kosið verður á milli þeirra, enda hafi hann haft betur í fyrstu umferðinni. Óvænt gengi Marine Le Pen í fyrstu umferðinni er hins vegar sagt auka mjög óvissu um niður- stöðuna í maí, þar sem erfitt sé að spá fyrir um hvernig fylgis- menn hennar eigi eftir að greiða atkvæði. Marie Le Pen er þjóðernissinni yst af hægri væng stjórn málanna og frambjóðandi Þjóð fylk- ingarinnar, flokks sem stofnaður var fyrir um fjórum áratugum af föður hennar, Jean-Marie Le Pen. Sarkozy, sem er leiðtogi Íhalds- flokksins, hefur í aðdraganda fyrstu umferðar kosninganna biðlað til þeirra sem síður eru umburðarlyndir í garð útlendinga og hefur boðað hertar aðgerðir gegn ólöglegum innflytjendum og raunar útlendingum almennt, sem hann segir orðna allt of marga í Frakklandi. Líklegt verður að teljast að mál- flutningur sem þessi hugnist áhangendum Þjóð fylkingarinnar ágætlega. Marine Le Pen hlaut nálægt því fimmtung atkvæða í fyrstu umferð kosninganna. Forsíður sumra blaða í Frakk- landi hafa slegið upp slagnum í maí undir fyrirsögnum á borð við „Einvígið“ og „Samstuð“, meðan önnur hafa lagt áherslu á þátt Le Pen. Þannig slær Figaro upp fyrir- sögninni „Gengi Marine Le Pen blæs lífi í seinni umferðina“ og Liberation segir „Hollande sigur- vegari, Le Pen spillir fyrir“. Í umfjöllun fréttavefs Breska ríkis útvarpsins, BBC, um fyrri umferð kosninganna er vitnað í leiðara Figaro í gær þar sem sigur Hollandes er ekki sagður afgerandi vegna þess að færri en búist hafi verið við hafi lagt lag sitt við full- trúa harðlínuvinstrimanna, Jean- Luc Melenchon. Að mati blaðsins njóta vinstri menn enn ekki meirihluta stuðnings í landinu og því komi til með að skipta miklu í kosningunum í maí hvort fylgismenn Le Pen kjósi Sarkozy til að stöðva framgang frambjóðanda sósíalista. Leiðari Liberation segir svo aftur á móti að sigur Hollandes í fyrstu umferðinni sé skýr vísbending um kall frönsku þjóðarinnar eftir stefnubreytingum og breyttum stjórnarháttum. olikr@frettabladid.is Erfitt að spá fyrir um niðurstöðu í maí Kjósa þarf á milli Sarkozy og Hollande í frönsku forsetakosningunum. Þeir voru jafnir eftir fyrstu umferð. Fylgi Marine Le Pen, þjóðernissinna yst af hægri kanti, í þriðja sæti kom á óvart. Gengi hennar þykir auka á óvissu í maí. SPENNANDI STAÐA Á þessari samsettu mynd má sjá sigurvegara fyrstu umferðar forsetakosninganna í Frakklandi, en kosið verður á milli þeirra tveggja í maíbyrjun. Vinstra megin er Nicolas Sarkozy, Frakklandsforseti og leiðtogi hægri manna, og hægra megin François Hollande, frambjóðandi Sósíalistaflokksins. NORDICPHOTOS/AFP Frá kr. 34.950 Ótrúlegt tilboð - allra síðustu sætin Heimsferðir bjóða nú einstakt tilboð á síðustu flugsætunum til Prag 27. apríl í 4 nætur. Þú kaupir 2 flugsæti en greiðir aðeins fyrir 1. Við bjóðum þér fjölbreytta gistingu meðan á dvölinni stendur. Verð kr. 34.950 Flugsæti með sköttum, m.v. 2 fyrir 1 tilboð 27. apríl í 4 nætur. Netverð á mann. Verð áður kr. 69.900. Verðdæmi fyrir gistingu: Kr. 15.800 í tvíbýli á hótel ILF *** í 4 nætur. Verð fyrir einbýli kr. 28.800 Kr. 26.600 tvíbýli á hótel Mövenpick **** í 4 nætur. Verð fyrir einbýli kr. 49.000 2 fyrir 1 til Prag 27. apríl Formaður utanríkismálanefndar hitti forseta framkvæmdastjórnar ESB: Makríldeilan og umsóknin eru ótengd ÁRNI ÞÓR SIGURÐSSON JOSÉ MANUEL BARROSO ÖSSUR SKARP- HÉÐINSSON VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 21° 15° 15° 10° 12° 11° 13° 13° 20° 11° 18° 14° 23° 12° 12° 20° 10°Á MORGUN Víða hæg breytileg átt. FIMMTUDAGUR Hægur vindur. 8 5 0 6 1 0 1 4 4 7 2 4 5 9 7 5 6 5 11 7 14 3 6 3 1 -1 2 7 4 4 0 3 ÁFRAM FÍNT Í dag eru horfur á strekk- ingi allra syðst en annars verður að mestu hæglætis- veður. Það gæti orðið nokkuð bjart í innsveitum S- og V-til en annars verður heldur skýj- að og líkur á éljum við NA-ströndina. Hlýjast SV-til en áfram nokkuð svalt NA-lands. Soffía Sveinsdóttir veður- fréttamaður

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.