Fréttablaðið - 24.04.2012, Side 14

Fréttablaðið - 24.04.2012, Side 14
14 24. apríl 2012 ÞRIÐJUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 U m málareksturinn gegn Geir H. Haarde fyrir Lands- dómi er óhætt að segja að fjallið hafi tekið jóðsótt og fæðzt lítil mús. Dómur Landsdóms er ekki í neinu samræmi við það sem lagt var upp með þegar meirihluti Alþingis ákvað að ákæra Geir, einn fyrrverandi ráðherra, fyrir lögbrot í aðdraganda bankahrunsins. Af sex upphaflegum ákæruliðum hefur tveimur verið vísað frá dómi og Geir var í gær sýknaður af þremur til viðbótar. Hann er sakfelldur fyrir einn lið; að hafa látið undir höfuð leggjast að boða til ráðherrafunda um mikilvæg stjórnarmálefni. Upphafsmenn málarekst- ursins eru varla ánægðir með þessa niðurstöðu, því að hún þýðir í raun ekki annað en að það verklag sem ótal ríkis- stjórnir hafa viðhaft hafi ekki verið í samræmi við stjórnarskrá. Dómur Landsdóms hlýtur þá að vekja spurningar um hvort fleiri venjur í íslenzkri stjórnsýslu standist ekki bókstaf stjórnarskrárinnar. Umræður um ábyrgð á hruninu hafa snúizt um margt, en alls ekki um það hvort fundir hafi verið boðaðir í samræmi við 17. grein stjórnarskrárinnar. Raunar má fullyrða að 17. greinin hafi svo gott sem ekkert verið til umræðu í tengslum við stjórnmál og stjórnsýslu á Íslandi yfirleitt, þau rúmlega 90 ár sem hún hefur verið í stjórnarskránni. Geir er þannig sakfelldur fyrir fremur afkáralegt aukaatriði í ákærunni. Þótt meirihluti dómsins sé gagnrýninn á ýmis störf hans í aðdraganda hrunsins og telji hann hafa gert mistök – sem hann hefur sjálfur viðurkennt – kemst hann ekki að þeirri niður- stöðu hvað varðar efnislegt innihald ákærunnar að öðru leyti að Geir hafi brotið lög. Það var rangt að ákæra Geir H. Haarde fyrir Landsdómi og það er jafnrangt af þeim sem voru ósáttir við þá ákvörðun að hóta núverandi ráðherrum Landsdómi vegna hinna og þessara ákvarðana þeirra. Stjórnmálamenn, bæði þeir sem stóðu að ákærunni á hendur Geir og hinir sem lögðust gegn henni – og þeim fjölgaði eftir því sem leið á málareksturinn – hljóta nú að sjá að Landsdómsleiðin var frá upphafi röng. Lögin um Landsdóm eru gömul og tryggja sakborningi ekki sama rétt til réttlátrar málsmeðferðar og nýrri lagaákvæði um meðferð sakamála. Pólitískt eðli ákærunnar og dómstólsins dregur að auki úr öllum trúverðugleika málsmeðferðarinnar. Það er þessi óheppilega blanda af lögfræði og pólitík, sem gerir nánast óhjákvæmilegt að sá sem er sakfelldur af Landsdómi deili við dómarana eins og Geir H. Haarde gerði í gær eftir að dómur var kveðinn upp. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra kallar eftir því í Fréttablaðinu í dag að stjórn og stjórnarandstaða setjist niður og geri breytingar á lögunum um Landsdóm. Til þess er full ástæða. Pólitíska ábyrgð eiga menn að axla á hinum pólitíska vettvangi, en um lögbrot ráðherra eiga að gilda sömu almennu reglur og um önnur sakamál. Vonandi var dómsuppsagan í Landsdómi í gær því bæði sú fyrsta og síðasta. FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is HALLDÓR Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Þessa dagana heyrist sagt að annað hvort hafi menn viljað samningaleið eða dóm- stólaleið í Icesave; verið samningamenn eða dómstólamenn! Og nú hafi þeir sem vildu dómstólaleiðina fengið sínu framgengt! Þannig var þetta náttúrlega ekki. Ice- save-skuldbindingarnar átti að greiða úr þrotabúi Landsbankans eða eftir atvikum úr Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjár- festa. En eins og við vitum varð reyndin sú, að til að skapa traust á eigin fjármálakerfi, greiddu Bretar og Hollendingar upp tap innistæðueigenda innan sinna landamæra. Síðan reyndu bresk og hollensk stjórnvöld að þröngva okkur til samninga um endur- greiðslur með ríflegum vöxtum að við- bættum tilkostnaði þeirra við samninga- umleitanir! Rökrétt svar Íslendinga var eftirfarandi: Ef þið teljið ykkur eiga fjárkröfu á íslenska ríkið í staðinn fyrir viðkomandi banka og Tryggingarsjóð innstæðueigenda, þá eigið þið að leita réttar ykkar fyrir dómstólum. Hvaða dómstólar væru það? Héraðs dómur Reykjavíkur, hvort sem væri gagnvart Landsbankanum sem á heima í Reykjavík eða íslenskum skattborgurum því þar er varnarþing íslenska ríkisins. En þetta var hægara sagt en gert. Í samninga viðræðum um Icesave vildu Bretar og Hollendingar að þeir hefðu for- ræði um dómsmálið og gætu ákveðið að fara með það fyrir evrópskan dómstól sem yrði úrskurðaraðili en ekki íslenskir dómstólar. Við sögðum á hinn bóginn að íslenskur dóm- stóll ætti að dæma en að illmögulegt yrði að meina stefnanda að óska eftir áliti frá EFTA-dómstólnum ef hann krefðist þess. Það yrði þó aldrei meira en álitsgerð. Þau sem lögðust gegn þvingunar- samningum Breta og Hollendinga litu aldrei á það sem sérstaka óskastöðu fyrir íslenska skattgreiðendur að lenda í deilum fyrir rétti. En þeim sem teldu á sér brotið væri hins vegar í lófa lagið að leita réttar síns fyrir dómstólum í stað þess að beita ofbeldi í krafti valds hjá Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum eða hjá Evrópusambandinu eins og gert var. Ef Bretar og Hollendingar teldu sig eiga fjárkröfur á íslenska ríkið vegna innistæðna í gjaldþrota einkabanka, þá ættu þeir að snúa sér til Héraðsdóms Reykja- víkur. Það væri vissulega dómstólaleið sem þessi ríki gætu farið. Þar með væri þó ekki lögð blessun yfir rangláta kröfugerð þeirra. Hinn eðlilegi farvegur væri þrotabús- og innstæðutryggingarsjóðsleið! Nú hefur framkvæmdastjórn ESB bætt gráu ofan á svart með aðkomu sinni að málshöfðun gegn Íslandi. Það breytir því ekki að niðurstaðan verður ekki ráðin í Brussel heldur í Reykjavík. Dómstólaleið: Til upprifjunar Icesave Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra 204 STK. PAKKNINGAR 2mg 2.871kr. 5.742kr. 4mg: 3.999kr. 7.998kr. Sérkennilegur húmor Geir H. Haarde var nokkuð niðri fyrir þegar hann tjáði sig um niðurstöðu Landsdóms í gær. Skiljanlega, allt þetta ferli hlýtur að hafa íþyngjandi áhrif á hvern þann sem í því lendir. Geir taldi það ákæruatriði sem Landsdómur sakfelldi hann fyrir vera smáatriði, algjört formsatriði, og raunar sprenghlægilegt. Það hlýtur að teljast nokkuð sérkennileg niðurstaða hjá Geir. Landsdómur er æðsti dómstóll landsins og dómarar við hann voru sammála ákæru valdinu um að háttalag Geirs sem forsætisráðherra bryti í bága við stjórnarskrá íslenska lýðveldisins. Húmor er fínn í öllum sínum myndum en það hlýtur að teljast sérkennilegur húmor að finnast þetta fyndið. Alvarleg ásökun Öllu alvarlegri var sú ásökun Geirs að dómarar við Lands- dóm hefðu látið pólitíkina hlaupa með sig í gönur. Það þýðir, ef satt er, í raun að réttarkerfið hafi brugðist og á Geir hafi verið framið dómsmorð. Það er býsna alvar- legt fyrirbæri og því er óskiljanlegt að Geir skuli vera að velta því fyrir sér að fara með málið fyrir mannréttinda- dómstól Evrópu. Trúi hann eigin orðum, er það beinlínis skylda hans að gera það. Hvað segir dómurinn? En hvað segir í dómsorði Landsdóms um þetta mál? Þar segir einfaldlega að hefð sem stjórnvöld hafi komið sér upp, óformlegt samráð oddvita stjórnmálaflokkanna, leysi forsætis- ráðherra ekki undan þeim skyldum sem stjórnarskráin leggur honum á herðar. Og er það ekki nokkuð lógískt að svo sé? Að vinnuregla ríkis- stjórnar sé ekki stjórnarskránni æðri? kolbeinn@frettabladid.is Fyrsti og vonandi síðasti dómur Landsdóms: Fædd lítil mús

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.