Fréttablaðið - 24.04.2012, Síða 16

Fréttablaðið - 24.04.2012, Síða 16
16 24. apríl 2012 ÞRIÐJUDAGUR Óhjákvæmilegt er að benda á nokkur undanskot staðreynda í máli Sigurðar Arnar Sigurðs- sonar, forstjóra Húsasmiðjunnar, í viðtali við Markaðinn 11. apríl síðastliðinn. Sigurður kannast ekki við að eignarhald Landsbankans og Framtakssjóðs Íslands á Húsa- smiðjunni hafi skapað fyrirtæk- inu betri stöðu en ella. Staðreynd- ir tala öðru máli. Landsbankinn breytti 11 milljarða króna skuldum í hlutafé. Landsbankinn leysti til sín stórt húsnæði Húsasmiðjunn- ar og veitti fyrirtækinu síðan 2,5 milljarða króna kúlulán til 5 ára með afar lágum endurgreiðslum fyrstu 5 árin. Seint verður nokkuð af þessu talið eðlileg fyrirgreiðsla til fyrirtækis í bullandi taprekstri eftir milljarða afskriftir. Ljóst er að Húsasmiðjan naut þess að eiga ríka pabbann Landsbank- ann. Aftur á móti höfðu hluthafar Landsbankans og lífeyrisgreið- endur, eigendur Framtakssjóðs- ins, minna en ekkert upp úr sölu Húsasmiðjunnar þegar loks kom að henni. Forstjórinn kennir skuldsettum yfirtökum á árunum fyrir hrun um bága skuldastöðu Húsasmiðj- unnar. Það er varla nema hálfur sannleikur. Hömlulaus útþensla Húsasmiðjunnar út um allt land með uppkaupum fyrirtækja og stækkun verslana allt fram að bankahruni verður varla tekið út fyrir sviga. Forstjórinn gumar af því að hafa lækkað kostnað með fækk- un starfsmanna og launalækkun þeirra sem eftir sitja. Þessi glans- mynd stenst illa nánari skoðun. Samkvæmt nýjustu tiltækum árs- skýrslum var starfsmannakostn- aður Húsasmiðjunnar tæplega 19% af veltu sem er tugum pró- senta hærri en hjá helstu sam- keppnisaðilum hennar. Lýsing forstjórans á ástæðum fyrir rannsókn Samkeppniseftir- litsins á samkeppnislagabrot- um Húsasmiðjunnar er furðuleg. Hann telur að rannsóknin snú- ist um framkvæmd verðkannana hjá samkeppnisaðilum. Sú lýsing fer ekki beint heim og saman við þá staðreynd að Samkeppniseftir- litið réðst í umfangsmiklar hús- leitir, símahleranir og handtökur 19 manna hjá Byko og Húsasmiðj- unni. Málið hlýtur að vera miklu stærra og alvarlegra en vegna „framkvæmdar verðkannana“. Það segir líka sína sögu að Húsasmiðj- an er búin að taka frá tugi milljóna króna í varúðarskyni til að borga sekt fyrir þessi meintu samkeppn- islagabrot. Vandséð er hvers vegna forstjóri Húsasmiðjunnar getur ekki komið hreint fram við lesendur. Ég hélt að sá tími væri liðinn að menn mættu í viðtöl við fjölmiðla til þess að pumpa sig og fyrirtæki sín upp og sleppa að ræða það sem gæti minnkað loftið í froðunni. Svona sjálfsupphafning gerir ekki mikið til að stuðla að vitrænni umræðu um byggingavörumarkaðinn. Það er kvartað undan því víða í samfélaginu að fólk búi ekki yfir nægri færni í meðferð íslensks máls. Háskólakennarar fórna gjarnan höndum og sumir tala um að allir háskólanemar þurfi á rit- unarkennslu að halda. Einnig þykir mörgum sem talsvert sé um ambög- ur í netmiðlum og þá ekki síður í ljósvakamiðlum. Sumum þykir jafn- vel sem kennararnir sjálfir séu ekki nógu vel að sér og í skýrslu um íslenskukennslu í átta fram- haldsskólum, sem menntamála- ráðuneytið lét gera og birt var í fyrra, er vitnað í forráðamann sem hefur þetta eftir einum kennaran- um: „Mér hlakkar svo til að kenna börnum ykkar íslensku í vetur.“ Það er óþarfi að fordæma skóg- inn þótt finnist nokkur fölnuð lauf- blöð, en í rauninni er ekkert skrýt- ið að fólki skuli vera mislagðar hendur að þessu leyti vegna þess að þjálfunin sem það fær í grunn- og framhaldsskólum er í mýflugu- mynd. Og það er ekki langt síðan ritlist varð að fullgildri námsgrein á háskólastigi. Líklega væri ungt fólk mun verr skrifandi ef það nýtti sér ekki samskiptamiðla óspart. Nú eru auðvitað margir frábærir íslenskukennarar starfandi í land- inu en eigi að síður gæti dæmigerð íslenskukennsla á grunn- og fram- haldsskólastigi farið nokkurn veg- inn svona fram: Áhugalitlir nemendur ganga inn í kennslustofuna. Kennari tilkynn- ir hvort farið verði í málfræði eða bókmenntasögu. Stunur og nöldur frá nemendum. Kennari skellir upp glærukynningu og les upp af henni eða lætur krakkana skrifa allt heila klabbið niður. Nemendur skilja ekki til hvers né af hverju. Kenn- ari talar í hálftíma. Nemendur tala sín á milli á meðan. Kennari kynn- ir heimaverkefni sem hægt er að vinna í tímanum ef nemendur eru duglegir. Nemendur biðja um að fá að fara. Endurtekið í hálfan áratug svo úr verður vítahringur leiða og firringar. Hvað þætti fólki um tónlistarnám sem færi þannig fram að nemand- inn sæti löngum stundum yfir tón- fræði og tónlistarsögu, fengi jú að hlusta á tónlist en sjaldan að taka í hljóðfæri? Og þá sjaldan honum byðist að taka í hljóðfæri fengi hann litla tilsögn, honum yrði ekki gert kleift að prófa sig áfram en lokaeinkunn fengi hann samt fyrir að semja eða flytja lag. Er líklegt að góðir hljóðfæraleikarar eða frum- leg tónskáld kæmu út úr kennslu af þessu tagi? Í áðurnefndri skýrslu um íslenskukennslu í framhaldsskól- um er bent á að efla þurfi sköpunar- þáttinn: „Ef dregin eru saman helstu atriði í því sem viðmælendur telja ábótavant í íslenskukennsl- unni má einkum nefna tvennt, þ.e. ritun og munnlega tjáningu,“ segir í skýrslunni. Rétt eins og tónlistar- nemar þurfa íslenskunemar að fá mikla þjálfun í meðferð hljóðfær- is síns. Þeir þurfa stöðugt að æfa sig í að beita tungunni á skapandi hátt, bæði í ræðu og riti, enda benda rannsóknir til þess að æfingin skapi meistarann í þessu sem öðru. Það blasir því við að þjálfa þurfi íslenskukennara í ritlistarkennslu. Í Bandaríkjunum tíðkast sums stað- ar að menntaskólakennarar sérhæfi sig í slíkri kennslu. Íslenskukenn- arar þurfa að hafa svigrúm til þess að láta nemendur fara í gegnum allt ritunarferlið, því verk er ekki nema hálfnað þegar uppkast er komið og framfarir verða ekki síst við umrit- un undir handleiðslu hæfs kennara. Ritlistarkennsla er auk þess gef- andi og skemmtileg og býður upp á að virkja nemendur, nokkuð sem áðurnefndir skýrsluhöfundar telja brýnt. Í ritlistaráföngum framleiða nemendur námsefnið að miklu leyti. Ekki þarf að einskorða sig við rit- vinnsluforrit við slíka kennslu heldur má nýta ýmsa miðla, bæði mynd- og netmiðla, til að höfða til sem flestra. Ritun kann enn fremur að vera besta leiðin til að öðlast lesskiln- ing, læra stafsetningu, málfræði og annað sem að tungumálinu lýtur. Þá getur ritlistin einnig nýst ungu fólki til þess að finna ástríðurnar í lífinu því skrif endurspegla innri mann. Háskólakennarar fórna gjarnan höndum og sumir tala um að allir háskólanemar þurfi á ritunarkennslu að halda. Það segir líka sína sögu að Húsa- smiðjan er búin að taka frá tugi milljóna króna í varúðarskyni til að borga sekt fyrir þessi meintu … Betri nýting á regnvatni Þegar regn fellur til jarðar síast hluti þess niður í jarð- veg og hluti rennur sem yfir- borðsvatn í lækjum og ám. Ógegndræpir fletir í borgarum- hverfinu, eins og þök, götur og gangstéttir, raska örlögum regnvatns með þeim hætti að mun hærra hlutfall rennur sem yfirborðsvatn heldur en síast í jörðina. Hefðbundin regn- vatnsstjórnun safnar regnvatni í lagnakerfi. Í eldri hverfum Reykjavíkur er regnvatni bland- að saman við skólp og hitaveitu- vatn, hreinsað og síðan veitt út í sjó. Aukið álag í asahláku og rigningu minnkar hreinsigetu slíkra skólpstöðva og í verstu til- fellum er óhreinsuðu vatni veitt út í sjó. Þessi hefðbundna söfnun og flutningur regnvatns getur haft slæm áhrif á vatnsbúskap, m.a. lækkað grunnvatnsstöðu þannig að lækir, tjarnir og vot- lendi þorna upp. Blágræn regnvatnsstjórnun Nú ryður sér til rúms ný stefna, sem miðar að því að skilja ofan- vatn frá skólpi, nýta það og hreinsa. Sumar lausnir miða að því að gera borgarumhverfið náttúrulegra með því að auka vægi vatns (blátt), og gróður- þekju (grænt). Urriðaholt í Garðabæ er fyrsta hverfið á Íslandi hannað með þessa nýju blá-grænu hugmyndafræði að leiðarljósi. Einnig kemur til greina að endurnýta vatnið, t.d. til að vökva garða eða til að sturta niður úr klósettum. Með því minnkar álagið á drykkjar- vatnsauðlindir. Jafnframt skap- ast meira öryggi við fjölbreytt- ara aðgengi að vatni. Endurbætur í gömlum hverfum Á sama hátt og ný hverfi eru hönnuð eins og Urriðaholt eru miklir möguleikar á endur- bótum í eldri hverfum. Þetta á sérstaklega við þar sem regn- og skólp er flutt í sameigin- legum lögnum, eins og í Vestur- bænum. Í vor unnu nemendur í umhverfis- og byggingarverk- fræði við Háskóla Íslands til- lögur að blágrænni regnvatns- meðhöndlun á háskólalóðinni. Hópurinn vann undir leið- sögn dr. Hrundar Andradóttur dósents og dr. Sveins Þórólfs- sonar prófessors við NTNU. Þökum eldri bygginga má t.d. umbreyta í græn þök að fyrir- mynd torfbæjanna. Regnvatni er hægt að beina í fallega vatns- farvegi og regngarða. Þaðan má flytja vatnið í tjarnir sem geta nýst til útivistar og skautaiðk- unar á vetrum. Að auki mætti veita regnvatni til friðlandsins í Vatnsmýrinni, og auka vatna- skiptin þar. Allar þessar lausnir stuðla að vatnsvernd og náttúru- legri hreinsun á þungmálmum, örverum og lífrænum mengunar- völdum úr ofanvatninu. Mikil tækifæri Mikil tækifæri geta falist í því að innleiða grænbláar regn- vatnslausnir í nýjum og eldri hverfum á Íslandi. Ráðstefna um sjálfbært skipulag, dæmi um háskólavæðið, verður haldin í stofu 132 í Öskju, miðvikudag- inn 25. apríl kl. 15-17. Regnvatns- stjórnun Hrund Andradóttir dósent í umhverfis- og byggingaverkfræði við HÍ FRÓÐLEIKUR Á FIMMTUDÖGUM Molar af vettvangi skatta og reikningsskila 26. apríl | kl. 8:30 | Borgartúni 27 Fyrirhugaðar breytingar á skattalögum Fyrirhugaðar breytingar á lögum um ársreikninga Framkvæmd CFC löggjafar Reglur um ívilnanir vegna nýfjárfestinga Skráning og nánari upplýsingar á kpmg.is Ekki drekkja þeim í andlausri setninga iðu Forstjóri Húsasmiðj- unnar leiðréttur Menntamál Ísak Rúnarsson framhaldsskólanemi Rúnar Helgi Vignisson rithöfundur og lektor í ritlist við HÍ Viðskipti Baldur Björnsson framkvæmdastjóri Múrbúðarinnar

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.