Fréttablaðið - 24.04.2012, Qupperneq 21
JÓGAVIÐBURÐUR Í LJÓSHEIMUM
Hamingjan í núinu er viðburður sem verður í jógasal Ljósheima á
fimmtudagskvöld kl. 20. Öflug kundalini-jógakriya, hugleiðsla og
djúp gongheilun. Losað er um og leystar upp gamlar minningar og
mynstur úr fortíð svo hægt sé að lifa í hamingju núsins. Sólbjört
Guðmundsdóttir og Unnur Einarsdóttir kenna.
Ólafur Már Björnsson, augn læknir og áhugaljósmyndari, talaði fyrir fullu Háskólabíói um fjall-
göngur ásamt Tómasi Guðbjartssyni,
prófessor, á dögunum en þeir eru báðir
meðlimir í Félagi íslenskra fjallalækna,
FÍFL. Tilefnið var heimsókn Renötu
Chlumska til landsins í boði félags-
ins og 66°Norður, en Renata var fyrst
sænskra kvenna til að ganga á Mount
Everest. Markmiði FÍFL er að stuðla
að útivist og hreyfingu fólks í góðum
félags skap.
„Í félaginu viljum við ýta undir áhuga
fólks á að stunda útivist og þetta fyrir-
lestrakvöld var liður í því. Það tókst
mjög vel en við fylltum Háskólabíó
af áhugafólki um fjallgöngur,“ segir
Ólafur. Hann segir áhuga almennt vera
að aukast í þjóðfélaginu á allri útivist
og íþróttaiðkun. Þá verði hann var við
aukna eftirspurn eftir sjónlagsaðgerðum
frá fólki sem stundar fjallamennsku.
Fólk vilji frelsi til að stunda íþróttir og
til að geta notið umhverfisins.
„Fólk lendir oft í vandræðum með
gleraugu og linsur í fjallgöngum og
annarri útivist þar sem allra veðra er
von. Það sækist eftir því frelsi sem fylgir
því að fara í sjónlagsaðgerð og losna
þar með við þessa aukahluti. Fólk sem
stundar t.d. maraþonhlaup, golf eða
skíði hefur mikið sótt í svona aðgerðir,“
segir Ólafur en með aðgerðinni má
laga nærsýni og fjarsýni og einnig sjón-
skekkju.
„Tæknin hefur verið til staðar í yfir
tuttugu ár og hefur fyrir löngu sannað
sig. Hún veitir góðan og stöðugan
árangur til frambúðar. Aðgerðirnar eru
gerðar þegar sjónlagið er orðið stöðugt
sem er yfirleitt um og upp úr tvítugu.
Notuð er leisertækni til að forma horn-
himnuna, sem er fremsta lagið á auganu
en með því að breyta lögun hennar og
ljósbroti er allri þörf fyrir gleraugu eða
linsur eytt. Eftir aðgerð er fólk nokkuð
fljótt að jafna sig og ætti að geta farið
í fjallgöngu nokkrum dögum eftir að-
gerðina án vandræða.“
Sjónlagsaðgerð gagnast þó ekki
öllum og er því nauðsynlegt að gerð sé
forskoðun hjá augnlækni. Milli 20 og
30 prósent þeirra sem leita eftir sjón-
lagsaðgerð eru ekki kandídatar í aðgerð.
„Forskoðunin veitir hins vegar miklar
upplýsingar frá fyrstu hendi um hvað
sé hægt og hvað ekki og farið er ítarlega
yfir hverjir eru kostir og gallar við að
fara í sjónlagsaðgerð,“ útskýrir Ólafur.
FRELSI TIL FERÐALAGA
SJÓNLAG AUGNLÆKNASTÖÐ KYNNIR Ólafur Már Björnsson, augnlæknir
og fjallgöngugarpur, segir útivistarfólk sækja í sjónlagsaðgerðir.
Ólafur Már Björnsson,
augnlæknir hjá Sjónlagi
Augnlæknastöð.
MYND/STEFÁN
ÚTIVISTARÁHUGI Ólafur Már Björnsson, augnlæknir hjá Sjónlagi Augnlæknastöð, gengur reglulega á fjöll með Félagi íslenskra
fjallalækna. Hann verður var við aukna eftirspurn eftir sjónlagsaðgerðum frá útivistarfólki. MYND/ÚR EINKASAFNI
Stuðnin
gs
stöngin
Stuðningsstöngin er hjálpar- og öryggistæki sem auðveldar fólki að vera virkt og athafnasamt við daglegt líf án þess að þurfa að reiða sig
á aðra. Margir Iðjuþjálfarar, sjúkraþjálfarar og læknar hafa mælt með stuðningsstöngunum fyrir sína skjólstæðinga.
Stuðningsstangirnar hafa fengið verðlaun fyrir notagildi, öryggi og hönnun á alþjóðlegum hjálpartækjasýningum í USA.
Yfir 500
0 noten
dur
á Ísland
i síðan
1999
Boston
leður
svart, hvítt st. 35-48
rautt st. 36-42
blátt st. 36-47
Roma
Rúskinn
lj.blátt d.blátt
36-42
Verona
svart, hvítt
st. 36-41
Bari
leður
rautt, sand, blátt
st. 36-42
Monako
leður
svart, hvítt
rúskinn og
microfib.
st. 36-46
Paris
leður
svart, hvítt,
blátt
m/microfib og
rúskinnssóla
st. 36-42
Boníto ehf. • Praxis
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 • www.friendtex.is • soo.dk
Opið mán. – fös. kl. 11–17. Lokað á laugardögum
Verð: 11.900 kr.
Verð: 7.990 kr.
Verð: 8.600 kr.
Verð: 10.900 kr.
Verð: 7.990 kr.
Verð: 6.990 kr.
Teg CAITLYN - heldur rosalega vel
við og fæst í vænum skálastærðum
DD,E,F,FF,G,GG,H,HH,J,JJ á kr. 8.950,-
STÓRGÓÐUR - nýkominn nýr litur
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Þú mætir - við mælum og aðstoðum
www.misty.is
Opið frá 10-18 virka daga.
10-14 laugardaga
Save the Children á Íslandi