Fréttablaðið - 24.04.2012, Qupperneq 27
| FÓLK| 3HEILSA
Sprotafyrirtækið RemindMe bar nýlega sigur í frum-kvöðlakeppnina Gulleggið.
Á bak við fyrirtækið standa fimm
nemendur á lokaári í iðnaðar-
verkfræði við Háskóla Íslands.
Hugmynd þeirra gengur út á
þróun á sjálfvirkum og læsan-
legum lyfjaskammtara sem
stuðlar að markvissari og betri
lyfjameðferð. Hópinn skipa Hildi-
gunnur Björgúlfsdóttir, Ingunn
Ýr Guðbrandsdóttir, Ólafur Helgi
Guðmundsson, Sveinn B. Magn-
ússon og Vaka Valsdóttir.
ALGENGT VANDAMÁL
Þau segja hugmyndina hafa
fæðst í kennslustund í faginu
Nýsköpun og gerð viðskipta-
áætlana. „Þar áttum við að koma
fram með nýsköpunarhugmynd
og búa til viðskiptaáætlun. Við
vissum að það er algengt vanda-
mál að margt fólk tekur lyfin sín
inn á rangan hátt, sérstaklega
aldraðir og fólk með skert minni.
Þetta vandamál kallast skortur á
meðferðarheldni lyfjagjafa og er
þekkt um allan heim.“
BETRI STJÓRNUN Á LYFJAGJÖF
Lyfjaskammtarinn gagnast helst
fólki sem tekur inn mikið af
lyfjum á hverjum degi, til dæmis
fimm til sjö töflur allt að sjö
sinnum á dag. „Slíkt fyrirkomulag
getur orðið mjög ruglandi fyrir
marga, sérstaklega aldraða sem
eiga erfitt með að vita alltaf hvað
tímanum líður.“ Að þeirra sögn
er þetta vandamál yfirleitt leyst í
dag með lyfjaskömmtun í pokum.
Þar er lyfjum pakkað vélrænt í
poka í apótekum sem sjúklingar
taka með heim. Hver poki inni-
heldur einn skammt og á honum
standa ýmsar nauðsynlegar
upplýsingar, til dæmis nafn lyfs
og hvenær sjúklingur á að taka
lyfið. Þau segja slíkt fyrirkomulag
gagnast sumum ágætlega en alls
ekki öllum. „Lyfjaskammtarinn
sem við erum að þróa heldur
utan um þessa lyfjapoka. Hann
kemur í veg fyrir að fólk taki lyfin
inn of snemma með sérstakri
læsingu. Þannig koma pokarnir
sjálfvirkt út á réttum tíma og
tækið lætur vita með ljós- og
hljóðmerki þegar skammturinn
er tilbúinn. Lyfjaskammtarinn
er forritanlegur og því hægt að
stýra því hvenær pokarnir koma
úr tækinu.“
STEFNT Á ERLENDAN MARKAÐ
Lyfjaskammtarinn kemur einnig í
veg fyrir að sjúklingur gleymi að
taka lyfin sín. Þegar skammtur
hefur staðið út úr tækinu í
ákveðið langan tíma sendir tækið
sms-skeyti á aðstandanda eða
umönnunaraðila og lætur vita
að lyfin hafi ekki verið tekin
inn. Lyfjaskammtarinn verður
fyrst settur á markað á Íslandi
en síðan er stefnt að sölu og
markaðs setningu erlendis.
Hópurinn er nokkur bjartsýnn
enda segist hann ekki hafa fundið
neina sambærilega vöru erlendis.
„Auðvitað vitum við aldrei full-
komlega hvað er í sölu erlendis
eða hvaða vörur er verið að
þróa. Við höfum hins vegar ekki
enn rekist á lausn sambærilega
okkar.“
HÖNNUÐU FULLKOMINN LYFJASKAMMTARA
NÝSKÖPUN FÉKK FYRSTA SÆTIÐ Ungt fyrirtæki þróar sjálfvirkan og læsanlegan lyfjaskammtara. Markmiðið er að setja
hann á markað erlendis.
FENGU HUGMYND AÐ LYFJA-
SKAMMTARA Hópinn skipa
Hildigunnur Björgúlfsdóttir, Ingunn Ýr
Guðbrandsdóttir, Ólafur Helgi Guð-
mundsson, Sveinn B. Magnússon og
Vaka Valsdóttir. Þau útskrifast öll frá
HÍ í vor. MYND/VALGARÐUR GÍSLASON
afsláttur
full búð af nýjum vörum
til sunnudags
Sumarbomba
30-50%