Fréttablaðið - 24.04.2012, Page 28
FÓLK|HEILSA
Heimir & Kolla
vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist
alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00
Þráinn á tökkunum og
Gissur með fréttirnar
VIÐUR-KENNTAF EFSA
NÝ SENDING
Skipholti 29b • S. 551 0770
AF KJÓLUM!
Franski fæðingarlæknirinn Michael Odent er væntanlegur til landsins í vikunni en hann
heldur fyrirlestur á Hóteli Reykja-
vík Natura laugardaginn 28. apríl.
Odent er vel þekktur fyrir skrif sín
um tímabilið fyrir getnað, meðgöngu,
fæðingu og brjóstagjöf og hefur
gefið út þrettán bækur um þessi
efni. Hann er meðal annars upphafs-
maður vatnsfæðinga á Vesturlöndum
og mikill talsmaður náttúrulegra
fæðinga.
„Þetta er mjög umsetinn fyrirles-
ari og ég er mjög heppin að fá hann
til landsins,“ segir Fríða Nicollas
Hauksdóttir, osteopati hjá Heilsumið-
stöðinni 9 mánuðum, en Odent er hér
fyrir tilstuðlan hennar. „Hann verður
82 ára á þessu ári og líklega stutt í að
hann setjist í helgan stein. Þetta er
því einstakt tækifæri,“ bætir hún við.
Odent er, að sögn Fríðu, stofn-
andi Primal Health Research
Centre í London. „Meginmarkmið
stofnunarinnar er að prófa þá til-
gátu að heilsa mannsins mótist á
fósturstigi, í fæðingu og fyrsta árið
þar á eftir en stofnunin heldur utan
um allar rannsóknir á þessu sviði.
Á áttunda áratugnum kynnti Odent
hugmyndina um notkun vatns sem
verkjameðferð í fæðingu og innleiddi
í kjölfarið notkun fæðingarlauga á
fæðingardeildum. „Hann hefur því
haft víðtæk áhrif á ferlinum,“ segir
Fríða. Hún segir Odent ávallt byrja
fyrirlestra sína á að fjalla um lífeðlis-
fræði fæðingar, það er að segja þátt
hormóna í fæðingu en að hans mati
er hið náttúrulega ferli truflað í of
miklum mæli.
Fríða hefur mikinn áhuga á kven-
heilsu og hefur sérhæft sig í þjónustu
við konur fyrir getnað, á meðgöngu
og eftir fæðingu. „Osteopatia snýst
í grunninn um að greina og með-
höndla stoðkerfisvandamál en flestir
osteopatar sérhæfa sig á ákveðnu
sviði eins og algengt er um aðrar
heilbrigðisstéttir. „Við notum mörg
verkfæri eins og nudd, alls konar
liðlosanir, tog og teygjur en ég fer
líka mikið inn á mataræði og lífsstíl
og virkja fólk til að gera mikilvægar
breytingar.“
Nánari upplýsingar um fyrirlestur
Odent er að finna á 9manudir.is/odent.
UMSETINN FYRIR-
LESARI TIL LANDSINS
UPPHAFSMAÐUR VATNSFÆÐINGA Franski fæðingarlæknirinn Michael
Odent heldur fyrirlestur á Hóteli Reykjavík Natura á laugardag.
HEFUR HAFT VÍÐTÆK ÁHRIF
Odent kynnti hugmyndina um
notkun vatns sem verkjameðferð
í fæðingu á áttunda áratugnum
og hefur sú aðferð hlotið mikla
útbreiðslu síðan.
HEPPIN AÐ FÁ HANN TIL LANDSINS Fríða segir Odent mikinn talsmann náttúrulegra fæðinga. Hann vill að lífeðlisfræðilegt ferli
fæðingar sé sem minnst truflað. MYND/STEFÁN
Fönkþátturinn
Fimmtudagskvöld
kl. 22
Í kvöld á Stöð 2
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS