Fréttablaðið - 24.04.2012, Side 32
24. apríl 2012 ÞRIÐJUDAGUR24
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar okkar
ástkæra eiginmanns, föður, fósturföður,
afa, langafa og langalangafa,
EINARS ÞÓRIS SIGURÐSSONAR
Frostafold 14 Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 3.N á
hjúkrunarheimilinu Eir.
Hulda Ingimundardóttir
Vera Björk Einarsdóttir Hjalti Kristjánsson
Íris Huld Einarsdóttir Kári G. Schram
Guðmundur Bjarnason Ásta Jóhanna Einarsdóttir
Brynja Bjarnadóttir Steindór Rafn Theódórsson
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
EVELYN ÞÓRA HOBBS
lést fimmtudaginn 19. apríl sl. á hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni. Útförin fer fram föstudaginn
27. þ.m. frá Dómkirkjunni kl. 13.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á
Barnauppeldissjóð Thorvaldsensfélagsins.
Hróbjartur Hróbjartsson Karin Hróbjartsson-Stuart
Skúli Hróbjartsson Unnur Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
INGU BJARNADÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Ljósheima
á Selfossi fyrir frábæra umönnun og hlýtt
viðmót.
Þórdís Skarphéðinsdóttir
Bjarni Guðmundsson Inga Karólína Guðmundsdóttir
Anna Guðmundsdóttir Erlendur Ragnar Kristjánsson
Elís Kjartansson Ragnheiður Kr. Björnsdóttir
Bára Guðnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
ÁRNÝ ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR
Sóltúni 2, áður Boðagranda 7, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
laugardaginn 21. apríl sl.
Fyrir hönd aðstandenda,
Stefán Tyrfingsson
Elskuleg eiginkona mín,
ÞÓRUNN NANNA RAGNARSDÓTTIR
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi,
föstudaginn 20. apríl. Jarðarförin auglýst
síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jóhann Hólmgrímsson
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
KRISTLAUGAR ÓLAFSDÓTTUR
(STELLU).
Starfsfólki Hjúkrunarheimilisins Holtsbúðar
sendum við sérstakar þakkir fyrir hlýhug og
frábæra umönnun.
Ingvar Finnur Valdimarsson María Karlsdóttir
Guðjón Þór Valdimarsson Guðrún Ólafsdóttir
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
RAGNHEIÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR
lést á Hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum að
kvöldi laugardagsins 21. apríl sl. Jarðarförin
verður auglýst síðar.
Oddur Helgason
Anna Oddsdóttir Steinar Friðgeirsson
Halldóra Oddsdóttir Jón B. Björgvinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Blóði drifin byggingar-
list – arkitektúr í stríði og
friði, er yfirskriftin á fyrir-
lestri Hilmars Magnússonar
alþjóðastjórnmálafræðings í
Listaháskóla Íslands í hádeg-
inu á fimmtudag.
Þar fjallar Hilmar um
samfélagslegt hlutverk
byggingalistarinnar í átök-
um mismunandi menn-
ingarhópa víða um heim.
Hann mun að þessu sinni
taka fyrir átökin í Bosníu og
Herse góvínu á 10. áratug 20.
aldar og fjalla um „Gömlu
brúna“ eða Stari Most í
bænum Mostar. Hilmar mun
skyggnast með áhorfendum
aftur í tímann og fjalla um
tilurð brúarinnar og sögu
fram að þeim tíma er hún
var sprengd í loft upp haust-
ið 1993. Þá mun hann fjalla
um Menningarmálastofn-
un Sameinuðu þjóðanna,
UNESCO, hlutverk hennar
við verndun menningararfs
og aðkomu að endurbygg-
ingu brúarinnar. Í ár eru 40
ár liðin frá gildistöku samn-
ingsins um verndun heims-
minja en stofnunin hefur á
þessum tíma víða komið við
sögu og hafa verkefni henn-
ar jafnt vakið aðdáun, spurn-
ingar sem deilur.
Fyrirlesturinn hefst
klukkan 12.15 í stofu 113
hjá hönnunar- og arkitektúr-
deild, Skipholti 1. Aðgangur
er ókeypis og öllum opinn.
Byggingalist og stríð
HILMAR MAGNÚSSON Fjallar
um samfélagslegt hlutverk
byggingarlistarinnar í átökum
mismunandi menningarhópa
víða um heim.
Páskauppreisnin, sem hófst á
öðrum degi páska árið 1916, var
vopnuð uppreisn af hálfu Íra gegn
breskum yfirráðum á Írlandi. Upp-
reisnin er frægasta tilraun herskárra
írskra lýðveldissinna til þess að ná
fram sjálfstæði Írlands með valdi.
Það var „Hið írska bræðralag lýð-
veldisins” sem skipulagði uppreisn-
ina, tók yfir pósthús borgarinnar og
lýsti þar yfir sjálfstæði Írlands.
Lýðveldissinnarnir náðu smátt og
smátt yfirráðum víðs vegar um
borgina. Bretar sneru vörn í sókn og
nokkrum dögum seinna var upp-
reisnin brotin á bak aftur.
Uppreisnarmennirnir nutu ekki
mikils stuðnings meðal almenn-
ings, því litið var á þá sem óábyrga
ævintýramenn. Almenningsálitið
snerist þó á sveif með uppreisnar-
mönnunum eftir að það spurðist út
að fimmtán þeirra hefðu verið teknir
af lífi. Vopnuð átök héldu áfram
næstu árin og Írar fögnuðu svo
sjálfstæði árið 1922 með stofnun
lýðveldis.
Heimild: wikipedia.is
ÞETTA GERÐIST: 24. APRÍL 1916
Páskauppreisnin hefst
Haukur Guðlaugsson, fyrr-
verandi söngmálastjóri
Þjóðkirkjunnar, leikur
verk eftir J. S. Bach, Cler-
am bault og Boëllmann á
hádegistónleikum í Hafnar-
fjarðarkirkju í dag, þriðju-
daginn 24. apríl, klukkan
12.15.
Haukur lauk burtfarar-
prófi í píanóleik frá Tón-
listarskólanum í Reykjavík
árið 1951. Hann stund-
aði nám í orgelleik við
Staat liche Hochschule für
Musik í Hamborg og fram-
haldsnám við Accademia di
Santa Cecilia í Róm. Hauk-
ur starfaði við píanókennslu
og stjórn Karlakórsins Vísis
á Siglufirði um fjögurra
ára skeið og var skólastjóri
Tónlistarskólans á Akra-
nesi, organisti og söng-
stjóri við Akraneskirkju
og söngstjóri Karlakórsins
Svana frá 1960. Árið 1974
var hann skipaður Söng-
málastjóri Þjóðkirkjunnar
og starfaði við það til ársins
2001. Haukur hefur haldið
orgel- og kórtónleika bæði
innanlands og utan, leikið
einleik með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands og komið fram
í útvarpi og sjónvarpi og
leikið inn á plötur og diska.
Haukur hefur einnig samið
Kennslubók í organleik í
þremur bindum.
Haukur á hádegistónleikum
HÁDEGISTÓNLEIKAR Haukur
Guðlaugsson leikur verk meistara
á orgel í Hafnarfjarðarkirkju í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Myndlistarmaðurinn Ásgeir
Valur Sigurðsson opnar sýn-
ingu á verkum sínum í hús-
næði Samtakanna ´78 að
Laugavegi 3 í dag, þriðju-
daginn 24. apríl, klukkan 17.
Ásgeir Valur, sem vinnur
verk sín með olíu á striga og
pappír, hefur meðal annars
sýnt í Ráðhúsi Reykjavíkur
og á samsýningunni List án
landamæra. Á síðarnefndu
sýningunni gerði Ásgeir
Valur meðal annars tilraun
til að selja dýrasta málverk
í heimi, sem var verðlagt á
400.000.000 Bandaríkjadali.
Sýningin stendur yfir til 12.
maí.
Ásgeir Valur sýnir
hjá Samtökunum 7́8
Í tilefni Alþjóðlega dans-
dagsins næstkomandi laug-
ardag, 28. apríl, býður
dansskóli SalsaIceland í
samvinnu við Háskóladans-
inn, Tangóævintýrafélag-
ið, Lindy Ravers og Salsa
Mafíuna upp í dans.
Tilgangurinn er að vekja
athygli á pardönsum sem
heilbrigðum og skemmtileg-
um möguleika í skemmtanaf-
lóru Íslendinga og bjóða upp
á ókeypis kynningar á þeim.
Dagskráin fer fram í dans-
stúdíói SalsaIceland á Grens-
ásvegi 12a, 2. hæð, og boðið
er upp á prufutíma í eftirfar-
andi: Zumba, rueda de cas-
ino, west coast swing, tangó,
salsa, boogie woogie
og lindy hop.
Um kvöldið verður svo
teiti í dansstúdíói Salsa-
Iceland þar sem spiluð
verður blönduð tónlist úr
öllum stílum og sýningarat-
riði í boði. Ókeypis er á alla
viðburði dagsins, en frekari
upplýsingar má finna á Sal-
saiceland.is.
Boðið upp í pardans á laugardag
DANS Boðið verður upp á prufutíma í ýmsum dönsum á laugardag. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
ÁSGEIR VALUR Sýning mynd-
listarmannsins stendur yfir til 12.
maí. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR