Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.04.2012, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 24.04.2012, Qupperneq 36
24. apríl 2012 ÞRIÐJUDAGUR28 28 menning@frettabladid.is Tónlist ★★★ ★★ Aldarminning dr. Róberts Abrahams Ottóssonar. Söngsveitin Fílharmónía. Stjórnandi: Magnús Ragnarsson. Ein- söngur: Hallveig Rúnarsdóttir. Orgel: Steingrímur Þórhallsson. Langholtskirkja, sumardaginn fyrsta 19. apríl. Hið blómlega tónlistarlíf á Íslandi er ekki síst útlenskum tónlistarmönnum að þakka. Margir þeirra flúðu Þýska- land nasismans og námu hér land. Á þessum tíma var tónlistarlífið á Íslandi fátæklegt, en með innfluttri þekkingu fóru hjólin að snúast. Einn af þessum mönnum var dr. Róbert Abraham Ottóson. Hann var fjölhæfur tónlistarmaður; tónskáld, útsetjari, fræðimaður, kennari, hljóm- sveitarstjóri og kórstjóri. Hann stofnaði Söngsveitina Fílharmóníu tæpum ára- tug eftir að Sinfóníuhljómsveit Íslands varð til. Hugmyndin var að Fílharmónía yrði samstarfskór hljómsveitarinnar. Í framhaldinu fengu Íslendingar að heyra nokkur helstu stórvirki kór- og hljóm- sveitartónlistar. Á fimmtudagskvöldið hélt Söng- sveitin upp á aldarminningu Róberts í Langholtskirkju. Efnisskráin var vegleg, fyrst nokkur stutt lög, þar af eitt eftir Róbert en hin útsett af honum. Inn á milli voru lesin upp minningarorð, oft býsna skondin. Róbert var ljúfmenni, en eldhugi og nokkuð skapmikill. Hann átti það til að rjúka út af æfingum, bölvandi og ragnandi. Ég má til með að vitna í texta tónleikaskrárinnar (eftir Árna Heimi Ingólfsson) þar sem segir frá einu slíku atviki. Verið var að æfa verk eftir Brahms. Kristján frá Djúpalæk var meðal kórfélaga og kvað hann þá: Óma lögin eftir Brahms / undurþýð og dreymin / ásamt skömmum Abrahams / út í himingeiminn. Stuttu lögin á tónleikunum voru ágætlega flutt undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar. Söngurinn var hreinn og samhljómurinn þéttur. Hins vegar var túlkunin dálítið ferköntuð, styrkleikabrigðin helst til fátækleg, þetta fínlega vantaði. Útkoman var fremur einsleit. Svipaða sögu er að segja um annars mjög glæsilega tónsmíð eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, sem var samin sérstaklega fyrir tilefnið. Hún heitir Náttsöngur og er fyrir kór, orgel og einsöngvara. Þetta er litríkt verk, stílhreint og vel samansett, með mögnuðum hápunktum sem létu hárin rísa. Textinn er úr Þorlákstíðum, en um þær fjallaði einmitt doktorsritgerð Róberts. Tón- málið er hefðbundið, en framvindan fersk og spennuþrungin. Kórsöngurinn var kraftmikill en ég hefði viljað heyra þetta lágstemmda betur mótað. Orgelparturinn var flottur, með nettri hryllingsmyndaáferð sem skapaði athyglisvert mótvægi við andaktina í söngnum. Steingrímur Þórhallsson spilaði á orgelið og gerði það af stakri fagmennsku. Tær, hljómmikill ein- söngur Hallveigar Rúnarsdóttur var sömuleiðis fallegur og tilkomumikill. Söngsveitin Fílharmónía er góður kór. Flestir kórfélagar eru áhugafólk og það heyrist. Tæknin er ekki mikil. Hugsanlega hefur of mikill tími farið í tæknileg atriði, áherslan öll verið á raddbeitingu og samhljóminn. Það hefði mátt huga meira að skáldskapnum. Jónas Sen Niðurstaða: Skemmtilega samsett efnisskrá, frábært verk eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, en söngurinn helst til einsleitur. // dale.is // KYNNINGARFUNDIR ÁMÚLA 11, 3. HÆÐ Miðvikudaginn 25. apríl Kl. 19 fyrir 10-15 ára – 5.-10. bekkur Kl. 20 fyrir 16-25 ára – menntaskóli / háskóli // NÁMSKEIÐ FYRIR 10 - 12 ÁRA Hefst 11.júní – allir virkir dagar vikunnar kl. 9-13 //NÁMSKEIÐ FYRIR 13 -15 ÁRA – 8.-10. BEKKUR Hefst 21. maí – mánudaga og miðvikudaga kl. 17-21 //NÁMSKEIÐ FYRIR 16 - 20 ÁRA – MENNTASKÓLI Hefst 22. maí – þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18-22 //NÁMSKEIÐ FYRIR 21-25 ÁRA – HÁSKÓLI Hefst 22. maí – þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18-22 Gyrðir Elíasson hlaut Íslensku þýðingaverð- launin í gær fyrir ljóða- safnið Tunglið braust inn í húsið. Þetta er enn ein rósin í hnappagat Gyrðis á skömmum tíma. Katrín Jakobsdóttir menntamála- ráðherra afhenti Gyrði Elíassyni Íslensku þýðingaverðlaunin við hátíðlega athöfn á Gljúfrasteini í gær. Fjórir aðrir þýðendur voru tilnefndir til verðlaunanna: Bjarni Jónsson fyrir Andarslátt eftir Hertu Müller; Hermann Stefánsson fyrir Fásinnu eftir Horacio Castellanos Moya; Pétur Gunnars son fyrir Regnskóga- beltið raunamædda eftir Claude Lévi-Strauss og Jón St. Krist- jánsson fyrir Reisubók Gúllívers eftir Jonathan Swift. Þýðingar eru stór hluti af höfundar verki Gyrðis, sem hefur þýtt ljóð og skáldsögur samhliða frumsömdum skrifum í rúmlega tvo áratugi. Í dómnefnd sátu þau Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson formaður, Jórunn Sigurðardótt- ir og Ólöf Pétursdóttir. Í umsögn nefndarinnar segir að með vali sínu vilji hún „verðlauna ljóðlist heimsins, gömul ljóð og nýrri – og það að þeim hafi nú verið beint inn í húsið okkar – okkur gefið tækifæri til að lifa með þeim og njóta. Þýðingar Gyrðis á ljóð- um ýmissa höfunda frá mörg- um löndum og ólíkum tímum eru mikill hvalreki í sjálfu sér, en þarna opnast jafnframt nýjar víddir. Hér er á ferðinni mjög persónulegur lestur þýðandans sem aflar sér fanga og fer vítt. Hér sýnir sig líka ný sköpunar- leið sem skáldið fetar. Verkið er samsett úr mörgum gjörólíkum þáttum – og það sem sameinar þessa þætti er tungutak skálds á Íslandi.“ Í ljóðasafninu, sem kom út á vegum Uppheima í apríl í fyrra, safnar Gyrðir saman kveðskap skálda víða úr heiminum sem hafa fylgt honum í gegnum tíð- ina, sér í lagi kínverskra og jap- anskra skálda. Sem kunnugt er fékk Gyrð- ir Bókmenntaverðlaun Norð- urlandaráðs í fyrra fyrir smá- sagnasafnið Milli trjánna og í síðustu viku kom út ljóðabókin Hér vex enginn sítrónuviður. bergsteinn@frettabladid.is Þýðingaverðlaunin til Gyrðis VERÐLAUNIN VEITT Kristján Kristjánsson, útgefandi hjá Uppheimum, Gyrðir Elíasson og Katrín Jakobsdóttir, sem afhenti verðlaunin. ÞÓRA OG SIGURÐUR STANDA VIÐ ORÐIN Gestir leiksýningarinnar Orð skulu standa í Þjóðleikhús- kjallaranum næstkomandi fimmtudagskvöld, 26. apríl, verða Þóra Arnórsdóttir og Sigurður Guðmundsson tónlistarmaður. Að vanda koma einnig fram í sýningunni Sólveig Arnarsdóttir, Guðmundur Steingrímsson og Pálmi Sigurhjartarson. RÓBERT ABRAHAM OTTÓSSON

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.