Fréttablaðið - 24.04.2012, Qupperneq 37
ÞRIÐJUDAGUR 24. apríl 2012 29
Möguleikhúsið frumsýnir nýja leikgerð af
Ástarsögu úr fjöllunum, barnasögunni vin-
sælu eftir Guðrúnu Helgadóttur sem kom
fyrst út árið 1981, sunnudaginn 29. apríl í
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Leik-
gerð og söngtextar eru eftir Pétur Eggerz,
sem einnig annast leikstjórn, en höfundur
tón listar er Guðni Franzson. Þátttakendur
í sýningunni eru leik- og söngkonan Alda
Arnardóttir og tónlistarmaðurinn Kristján
Guðjónsson sem einnig sér um að útsetja
tónlistina. Leikmynd og búningar eru eftir
Messíönu Tómasdóttur.
Ástarsaga úr fjöllunum, sem fjallar um
tröllskessuna Flumbru og tröllastrákana
hennar átta, hefur notið mikilla vinsælda og
verið þýdd á fjölda tungumála. Fyrir um ára-
tug samdi Guðni Franzson tónverk við söng-
texta Péturs Eggerz sem byggðu á sögunni.
Guðni flutti verkið síðan með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands á skólatónleikum í Háskólabíói
auk þess sem það var flutt í Ríkis útvarpinu.
Síðar hefur m.a. tónlistarhópurinn Caput
flutt verkið ásamt söngvaranum Agli
Ólafssyni. Verkið hefur nú verið sniðið að
flutningi með einum tónlistarmanni og
leikara/ söngvara. Aukið hefur verið á leik-
rænan þátt verksins frá því sem var í tón-
leikaútgáfunni, söngatriðum fjölgað og ýmis
meðul leikhússins nýtt til upp setningarinnar.
Auk sýninga í Gerðubergi verður ferðast
með sýninguna milli leik- og grunnskóla
landsins líkt og verið hefur með fyrri
sýningar Möguleikhússins.
Ný leikgerð vinsællar barnasögu
ÁSTARSAGA ÚR FJÖLLUNUM Alda Arnardóttir og
Kristján Guðjónsson í hlutverkum sínum.
Opnunarhátíð verður haldin í
Víkingaheimum í Reykjanesbæ
í dag klukkan 15, í tilefni af því
að húsið og umhverfi þess hefur
gengið í gegnum mikla endur-
nýjun síðustu vikur. Þar verður
framvegis hægt að sjá og upp-
lifa margar nýjar sýningar, bæði
innan dyra og utan.
Á útisvæðinu er ný útikennslu-
stofa sem býður upp á tækifæri
til alls kyns fræðilegrar vinnu
fyrir hópa. Þar er jafnframt land-
námsdýragarður og verið er að
leggja lokahönd á leiksvæði þar
sem leikir og íþróttir víkinga
verða í fyrirrúmi. Þá er hægt að
heimsækja Þurrabúðina Stekkjar-
kot í útjaðri svæðisins.
Inni í húsinu sjálfu eru fimm
sýningar í gangi. Fyrst má
telja Íslending, víkinga skipið
sem sigldi til Ameríku árið
2000, en þar eru að auki fjórar
sýningar: Sýningin Víkingar
Norður-Atlants hafsins, sýning
á merkum fornleifum af Suður-
nesjum, kynning á helstu sögu-
slóðum á Íslandi og sýningin
Örlög goðanna. - hhs
Fleiri sýningar í
Víkingaheimum
VÍKINGAHEIMAR Hafa gengið í gegnum
endurnýjun síðustu vikur og opna á ný í
dag klukkan 15.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Þriðjudagur 24. apríl 2012
➜ Félagsvist
20.00 Félagsvist verður spiluð
hjá Félagi eldri borgara í Reykjavík,
Stangarhyl 4.
➜ Sýningar
17.00 Sýning á verkum nemenda
á myndlistarbraut Fjölbrautaskólans
í Garðabæ opnar í aðalsafni Borgar-
bókasafns Reykjavíkur, Grófarhúsi,
Tryggvagötu 15. Allir eru velkomnir og
aðgangur er ókeypis.
17.00 Ásgeir Valur Sigurðsson,
listamaður, opnar sýningu með verkum
sínum hjá Samtökunum ‘78 að Lauga-
vegi 3. Ásgeir vinnur verk sín með olíu
og akrýl á striga og pappír. Sýningin
stendur til 12. maí næstkomandi. Allir
velkomnir.
➜ Umræður
18.00 Félag kvikmyndagerðamanna
býður á kynningarfund og pallborðs-
umræður um skyldu tryggingar og aðrar
tryggingar fyrir verktaka í kvikmynda-
gerð. Fundurinn fer fram í Bíó Paradís
og býður FK félagsmönnum sínum upp
á öl, popp og ókeypis í bíó á finnsku
gamanmyndina Iron Sky, eða mynd
að eigin vali á Laxnesshátíðinni, að
umræðum loknum.
➜ Tónlist
20.30 Reykjavík Swing Syndicate spilar
á tónleikum jazztónleikaraðarinnar
á KEX Hostel, Skúlagötu 28. Tónlist
sveitarinnar tengist swingi fjórða ára-
tugarins, Django djassi og bannáragleði.
Eldhús KEX verður opið og hægt að
kaupa þar veitingar. Allir eru velkomnir
og aðgangur er ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
Við bjóðum afslátt á
afmælistónleika
25% afsláttur á 25 ára afmælistónleika
Nýdanskrar í Hörpu og Hofi
Piltarnir síungu hafa aldrei verið í betra formi og
halda upp á 25 ára afmælið með stórtónleikum
í Eldborgarsal Hörpu 22. september og í
menningarhúsinu Hofi, Akureyri 29. september.
Gestir:
KK, Högni Egilsson (Hjaltalín), Sigríður Thorlacius
(Hjaltalín), Urður Hákonardóttir (Gus Gus),
Svanhildur Jakobsdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir,
Samúel Jón Samúelsson.
Forsala fyrir viðskiptavini Íslandsbanka hefst
þriðjudaginn 24. apríl en almenn miðsala 26. apríl.
Viðskiptavinum Íslandsbanka bjóðast miðar á
þennan einstaka tónlistarviðburð á 25% afslætti.
Afslátturinn fæst þegar greitt er með greiðslukorti
frá Íslandsbanka eða Byr í miðasölu Hörpu í
síma 528 5050 eða á midasala@harpa.is og í
miðasölu Hofs í síma 450 1000 eða á midasala@
menningarhus.is.
Tilboðið gildir ekki í netsölu.