Fréttablaðið - 24.04.2012, Qupperneq 38
24. apríl 2012 ÞRIÐJUDAGUR30
popp@frettabladid.is
Hilmir Snær Guðnason, Damon
Younger og Þorsteinn Bachmann
fara allir með lítil hlutverk í
kvikmyndinni Falskur fugl.
Tökum á henni lauk á sunnudag
og gengu þær eins og í sögu.
„Við vorum mest í Hafnarfirði.
Við fengum hús þar sem var
notað sem aðaltöku staðurinn,“
segir leikstjórinn Þór Ómar
Jónsson en tökudagarnir voru 23
talsins.
Myndin er byggð á samnefndri
bók Mikaels Torfasonar sem kom
út árið 1997 og fjallar um Arnald
Gunnlaugsson, 16 ára ólíkindatól,
sem leiðist inn á rangar brautir
í lífinu. Margir ungir leikarar
leika í myndinni og er Þór Ómar
mjög ánægður með frammi-
stöðu þeirra. „Krakka hópurinn
var alveg lygilega flottur og
góður. Þetta eru allt, þannig séð,
óreyndir krakkar.“
Hilmir Snær mætti á síðasta
tökudaginn og lék Óla róna í
stórri senu. Hlutverk Damons
Younger er mjög frábrugðið ill-
menninu sem hann lék í Svartur
á leik því í þetta sinn leikur hann
fósturpabba Möggu, sem er
kærasta Arnaldar. Arndís Hrönn
Egilsdóttir, sem hefur leikið í
sjónvarpsþáttunum Pressu, og
Hinrik Ólafsson eru einnig á
meðal leikara.
Eins og Fréttablaðið hefur áður
greint frá fer hinn nítján ára Styr
Júlíusson með hlutverk Arnaldar
og þau Davíð Guðbrandsson og
Alexía Björg Jóhannesdóttir
leika foreldra hans. Falskur fugl
verður frumsýnd 25. janúar á
næsta ári. - fb
Kunnir kappar í
Fölskum fugli
Sjarmatröllið Jude Law sást í inni-
legum atlotum með óþekktri ljósku
á bar á Manhattan í síðustu viku.
Law og leikkonan fagra Sienna
Miller slitu samvistum í annað
sinn í febrúar á síðasta ári og gáfu
þá út að sambandi þeirra væri
endanlega lokið. Þau höfðu tekið
saman á nýjan leik árið 2009, eftir
að hafa slitið trúlofun sinni árið
2006 í kjölfar framhjáhalds Laws
með barnfóstru sinni.
Nýja daman í lífi folans
er sem áður segir óþekkt og
virðist Law ætla að halda því
þannig þar sem hann þvertók
fyrir allar myndatökur með
skvísunni. Hvort hér sé um að
ræða framtíðar lífs förunaut
kappans eða einnar nætur ástar-
ævintýri er óvitað, en ef marka
má heimildarmenn virtist hún í
það minnsta eiga hug hans allan
þetta kvöld.
Law með nýja ljósku
ÓÞEKKT DAMA Jude Law sást kyssa og knúsa óþekkta dömu á bar í New York.
Fræðimaðurinn og leikskáldið John W. Bandler flytur opinn fyrirlestur í
Háskólanum í Reykjavík fimmtudaginn 26. apríl klukkan 16:00.
Í fyrirlestrinum mun Bandler, sem er talinn einn fremsti fræðimaður heims á sviði
rafmagnsverkfræði, fjalla um hvernig ná megi árangri í akademískum rannsóknum.
Bandler tekur sérstaklega fyrir hvernig skapa megi hvetjandi rannsóknarumhverfi
og stjórna rannsóknum til árangurs og dregur fram máli sínu til stuðnings
áhugavert yfirlit yfir það sem hann kallar persónulegan árangur og mistök.
Þá varpar Bandler þeirri spurningu fram hvort það sé rannsóknaraðstaðan,
ímyndunarafl fræðimannsins, tækifærin í umhverfinu, stjórnun, greindarvísitala,
útgeislun fræðimannsins eða heppni sem séu forsenda árangursríkra rannsókna.
Fyrirlesturinn er öllum opinn og er aðgangur ókeypis
www.hr.is
LEIÐIN TIL
ÁRANGURS
Í RANNSÓKNUM
Hvenær: Fimmtudaginn 26. apríl kl. 16:00
Hvar: Stofa M101
LEIKA Í FÖLSKUM FUGLI Hilmir
Snær og Damon Younger leika
báðir í Fölskum fugli.
MILLJÓNIR ÍSLENSKRA KRÓNA kostaði
sveitasetrið sem Blake Lively og Ryan Reynolds keyptu
saman á dögunum.
254