Fréttablaðið - 10.07.2012, Side 2
10. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR2
LANDBÚNAÐUR Miklir þurrkar hafa
haft veruleg áhrif á bændur víða
um land. Gunnar Þórarinsson,
bóndi á Þóroddsstöðum í Hrúta-
firði í Vestur-Húnavatnssýslu,
segir að ef fram haldi sem horfir
muni hann þurfa að fækka fé.
„Það er þannig ástatt að líkleg-
ast er einn fjórði partur af túninu
allverulega brunninn og þar er
nær engin uppskera,“ segir hann.
„Á þeim stöðum sem eitthvað hey
var að hafa var uppskeran ágæt en
gæðin eru eflaust eitthvað slakari.“
Hann segir þetta þriðja sumar-
ið í röð sem þurrkar setja strik í
reikninginn en þó hafi það aldrei
verið jafn slæmt og í ár. Hann var
reyndar búinn að búa sig undir
þurrkatíð, ásamt öðrum bændum,
en þeir fjárfestu í sérstökum vökv-
unarbúnaði til að vera við sem
flestu búnir. „En við fengum hann
aðeins of seint, það var allt vatn
búið þegar við fengum hann enda
allir lækir hér uppþornaðir og
lindirnar sem við höfum aðgang að
duga engan veginn í þetta,“ segir
hann. Hann vonast þó til að úr ræt-
ist fyrir seinni sláttinn. „En það er
náttúrulega ekkert þægileg staða
að þurfa að horfa til himins og
vona að úr rætist svo ekki þurfi að
fækka fé,“ bætir hann við en hann
hefur um 450 ær.
Húnvetningum til huggunar
má geta þess að á Vestfjörðum
virðast bændur hafa verið bæn-
heyrðir en þar var útlitið veru-
lega svart en svo hefur ræst úr að
sögn Bjarna Hákonarsonar á Haga
á Barðaströnd og Jóns Bjarnason-
ar í Hvestu í Arnarfirði. „Útlitið
var verulega svart en svo rætt-
ist úr þessu þegar það rigndi hér
í fjóra eða fimm daga,“ segir Jón
sem er sæll eftir fyrri slátt. „Hey-
skapurinn tefst kannski um viku,
tíu daga en það gerir ekkert til,“
bætir hann við.
Undir Eyjafjöllum hafa menn
hins vegar ekki yfir neinu að
kvarta. „Hér er spretta góð, korn-
ið farið að skríða, hitinn yfirleitt
um átján til tuttugu stig og sveitin
fjölsótt af ferðamönnum svo að við
höfum ekki yfir neinu að kvarta,“
segir Ólafur Eggertsson, bóndi og
ferðamannafrömuður á Þorvalds-
eyri. jse@frettabladid.is
VEISTU UM DÆMI?
Sendu okkur ábendingu á
meira@frettabladid.is
Bjarni, er þetta ekki spenn-
andi ferðamáti?
„Jú, það er rafmögnuð spenna sem
fylgir þessu.“
Bjarni Jakob Gíslason notar rafknúið
reiðhjól við ferðalög í og úr vinnu, allan
ársins hring. Rætt var við Bjarna í Frétta-
blaðinu í gær.
NÁTTÚRA Rúmlega 1200 jarðskjálft-
ar mældust í júní með mælakerfi
Veðurstofunnar. Stærsti skjálftinn
reyndist 3,7 að stærð og mældist í
skjálftahrinu þrjátíu kílómetrum
frá Kolbeinsey.
Aukin skjálftavirkni mældist
í Mýrdalsjökli í júní, en þar urðu
360 jarðskjálftar og áttu 274 af
þeim upptök innan Kötluöskjunnar.
Jarðskjálftavirkni innan öskj-
unnar jókst verulega eftir 7. júní
og er talið að smáhlaup hafi komið
úr Múlakvísl í kringum 11. júní.
Stærsti skjálftinn á þessu svæði
mældist rúmlega þrír að stærð. - ktg
Jarðskjálftamælingar í júní:
Rúmlega 1200
jarðskjálftar
SJÁVARÚTVEGUR Strandveiðar verða
stöðvaðar á svæði A frá og með
deginum í dag. Um er að ræða
landið vestanvert og vestfjarða-
kjálkann, frá Snæfellsnesi til Súða-
víkur. Á morgun verða veiðarnar
stöðvaðar á svæði D sem nær yfir
Suðurland og Suðvesturhornið,
frá Hornafirði yfir Faxaflóann til
Borgarness. Samkvæmt reglugerð
um strandveiðar er landinu skipt
í fjögur svæði. Svæðunum fjórum
er svo úthlutað aflamark fyrir
hvern mánuð í sumar, frá maí út
ágúst. - bþh
Veiðbann út af Vesturlandi:
Strandveiðar
stöðvaðar
VIÐSKIPTI Vodafone á Íslandi
hefur samið við fyrirtækjaráð-
gjöf Íslandsbanka um að vinna
að undirbúningi skráningar
Vodafone í Kauphöllina. Þá
mun Íslandsbanki annast sölu á
bréfum Framtakssjóðs Íslands
í Vodafone en sjóðurinn er aðal-
eigandi fyrirtækisins í dag.
Í aðdraganda fyrirhugaðrar
skráningar er ráðgert að halda
almennt hlutafjárútboð þar sem
fjárfestum og almenningi gefst
kostur á að kaupa hluti í félaginu.
Stefnt er að skráningu Voda-
fone í Kauphöllina fyrir árslok
2012. - mþl
Sömdu við Íslandsbanka:
Vodafone senn
skráð á markað
VODAFONE Vodafone verður þriðja
íslenska fyrirtækið sem skráð verður í
Kauphöllina frá hruni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LANDHELGISGÆSLAN Óskað var eftir
aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunn-
ar þrisvar í gær, tvisvar til að
flytja slasaða eftir umferðarslys. Í
fyrra skiptið flutti þyrlan slasaða
frá Hólmavík til Reykjavíkur. Þar
hafði orðið tveggja bíla árekstur
um klukkan fimm.
Þegar þyrlan var að lenda við
Landspítalann í Fossvogi barst
annað kall um neyðarflutning.
Fimm erlendir ferðamenn lentu í
umferðaróhappi á Landvegi, móts
við Búrfell í umdæmi lögreglunn-
ar á Hvolsvelli. Þyrlan lenti með
slasaða um níuleytið í gærkvöldi.
Þá var óskað eftir aðstoð þyrl-
unnar til að berjast við sinuelda
nærri Borgarnesi. - bþh
Þyrla Landhelgisgæslunnar:
Þyrlan flaug
þrisvar í gær
SPURNING DAGSINS
Þarf að fækka fé ef
ekki vöknar í bráð
Bændur í Hrútafirði eru uggandi vegna þurrka. Ef ekki rætist úr þarf að fækka
fé, segir einn þeirra. Eftir svart útlit virðist ætla að rætast úr sprettu á Vest-
fjörðum. Undir Eyjafjöllum una bændur hins vegar glaðir við góða sprettu.
En það er náttúrlega
ekkert þægileg staða
að þurfa að horfa til himins
og vona að úr rætist svo ekki
þurfi að fækka fé.
GUNNAR ÞÓRARINSSON
BÓNDI
LÖGREGLUMÁL Hæstiréttur Íslands
staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms
Reykjavíkur síðan á föstudag um
gæsluvarðhald yfir tveimur mönn-
um sem grunaðir eru um innbrot,
þvinganir og fjölmörg innbrot.
Lögregla hafði upp á mönnunum
þegar þeir komu með þriðja mann-
inn í útibú banka á höfuðborgar-
svæðinu. Þar ætluðu þeir að neyða
hann til að taka út peninga af reikn-
ingi í bankanum. Þeir höfðu sparkað
upp hurðinni á heimili brotaþolans,
ógnað honum með hamri og neytt
hann út úr íbúðinni og í bankann.
Lögreglumennirnir voru á vett-
vangi að ræða við vitni þegar menn-
irnir komu að. Þeir eru grunaðir um
fjölmörg innbrot í júní og það sem
af er júlí.
Saksóknari fór fram á gæsluvarð-
hald yfir mönnunum vegna rann-
sóknarhagsmuna til föstudagsins
13. júlí. Málinu var skotið til Hæsta-
réttar af varnaraðila með þeim rök-
stuðningi að ekki hafi verið tekin
formleg skýrsla af varnaraðila hjá
lögreglu. Hæstiréttur hefur hins
vegar staðfest úrskurð Héraðsdóms
um gæsluvarðhald til klukkan 16 á
morgun, miðvikudag.
- bþh
Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð yfir mönnum sem réðust í íbúð:
Brutu upp hurð og neyddu í banka
„Samkvæmt skýrslum lögreglu hafi
hurð íbúðarinnar verið sparkað upp
og manni ógnað með hamri og hafi
hann verið neyddur út úr íbúðinni
og í útibú […] banka þar sem hann
hafi tekið út peninga, en málið virðist
tilkomið vegna peningaskuldar. Lög-
regla hafi verið stödd á vettvangi að
ræða við vitni þegar kærði og með-
kærði ásamt brotaþola hafi komið
þar að. Hafi þeir verið handteknir í
framhaldinu og færðir á lögreglustöð
vegna rannsóknar málsins.“
SVEITARSTJÓRNIR Samband
íslenskra sveitarfélaga boðar til
fundar í næsta mánuði til að ræða
kosti þess og galla að afnema lög
um húsmæðraorlof.
Í fundarboði sambandsins er
vísað til erindis frá Hafnarfjarðar-
bæ um að sambandið og Alþingi
beiti sér fyrir afnámi laganna.
„Hafa umrædd lög um langt skeið
sætt mikilli gagnrýni af hálfu
sveitarstjórnarmanna,“ segir sam-
bandið sem kveður erindi Hafn-
firðinga í samræmi við sjónarmið
sem borist hafi frá öðrum sveitar-
félögum. Eru þar nefnd Garðabær,
Hveragerði, Akranes og Mosfells-
bær. - gar
Vísað til erindis Hafnarfjarðar:
Afnám orlofs
húsmæðra rætt
ÞURRKAR Þurrkar setja víða strik í reikninginn hjá bændum. Svona eru túnin á Þóroddsstöðum í Hrútafirði. MYND/GUNNAR ÞÓRARINSSON
Úr úrskurði Héraðsdóms
SVEITARSTJÓRNIR Byggðaráð Borgarbyggðar hyggst
láta kanna umfang og samfélagsleg áhrif stang-
veiða í sveitarfélaginu. Efnahagslegt virði lax-
veiðanna í Borgarbyggð er áætlað 3,2 milljarðar
króna. Er þar tekið tillit til beinna, óbeinna og
afleiddra áhrifa.
Að því er segir í fundargerð byggðaráðs kemur
fram í lokaverkefni Önnu Steinsen til BS-gráðu í
viðskiptafræði frá 2011 að laxveiði í Borgarbyggð
var að meðaltali rúmlega fjórðungur af heildar-
laxveiði af náttúrulegum stofnum á Íslandi á
árunum 1974-2009. Fjórar af tíu fengsælustu lax-
veiðiám á Íslandi eru í sveitarfélaginu.
Eignarhald á veiðijörðum í Borgarbyggð hefur
jafnt og þétt færst úr héraðinu. „Árið 2009 er 41
prósent af veiðijörðum í Borgarbyggð í eigu aðila
með lögheimili utan sveitarfélagsins en árið 1990
var það hlutfall 27 prósent,“ segir í fundargerð-
inni.
Meðal annars á að kanna vannýtt sóknarfæri
í stangveiði, hversu stór hluti starfa í beinum
tengslum við stangveiði er unninn af heimamönn-
um og sömuleiðis hversu stór hluti af aðföngum og
þjónustu er keyptur innan héraðs. Einnig mögu-
leika á því að efla hlut sveitarfélagsins og íbúa
þess í auðlindinni, svo sem með aukinni atvinnu-
þátttöku, verslun og þjónustu. - gar
Kanna á áhrif og umfang stangveiði sem metin er á 3,2 milljarða í Borgarbyggð:
Eignarhald veiðijarða flyst úr héraði
LANGÁ Ein margra laxveiðiáa í Borgarbyggð sem veltir miklum
fjármunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GARÐAR
TF-LÍF Eina þyrla Landhelgisgæslunnar
sem sinnt getur slökkvistörfum.