Fréttablaðið - 10.07.2012, Side 4

Fréttablaðið - 10.07.2012, Side 4
10. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR4 ÞEKKIR ÞÚ TIL? Sendu okkur ábendingu á meira@frettabladid.is. Ranghermt var í frétt blaðsins í gær að Ingibjörg H. Bjarnason, fyrsta konan til að setjast á Alþingi, hafi verið gift. Þá skal áréttað að Guðrún Erlendsdóttir hæstaréttardómari gegndi jafnframt um tíma stöðu forseta Hæstaréttar, fyrst kvenna. Auk þess skal áréttað að Jóhanna Sigurðardóttir varð forsætis- ráðherra árið 2009. LEIÐRÉTT KAMBÓDÍA, BLOOMBERG Læknar telja líklegt að gin- og klaufaveiki sé valdur að miklum barnadauða í Kambódíu. Uppruni veikindanna liggur þó ekki endanlega fyrir. Veikindin eru sögð hafa dregið 57 börn til dauða á síðustu fjórum mánuðum. Flest hafa börnin verið á aldrinum tveggja til þriggja ára og aðeins eitt lifað sjúkdóminn af. Meðal sjúkdómseinkenna eru hár hiti og öndunarerfiðleikar. Börnunum hrakaði skjótt og á seinni stigum veikinnar fengu þau heilabólgu og lungnablöðrur eyði- lögðust. Stór hluti barnanna lét lífið innan sólarhrings eftir inn- lögn á spítala. Hugsanlegt þykir að miklu fleiri en þessi 57 börn hafi smitast og í raun hafi faraldur brotist út. Flest börn hafi fengið væg einkenni en lítill hluti smitaðra ekki ráðið við veirusýkinguna. Eitt afbrigði gin- og klaufaveiki hefur tilhneigingu til að ráðast á heilastofninn og getur það skýrt hversu erfiða fylgikvilla sum börn- in hafa glímt við. Gin- og klaufaveiki er algeng hjá ungum börnum og einkennin yfirleitt léttvæg. Í flestum tilfell- um gengur veikin yfir á nokkrum dögum. Unnið er að frekari rann- sóknum. - ktg Fjöldi barna hefur látist í kjölfar veikinda sem upp komu í Kambódíu: Orsökin líklega gin- og klaufaveiki KAMBÓDÍA Kona bíður eftir að barnið hennar fái læknisskoðun á barnaspítal- anum í Kuntha Bopha. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FINNLAND Ummæli fjármálaráð- herra Finnlands, Juttu Urpil ainen, um að Finnland kæmi ekki til með að verja evruna hvað sem það kost- aði hafa vakið talsverða athygli, að því er greint er frá á vef Hufvud- stadsbladet. Urpilainen sagði í við- tali í síðustu viku að Finnland væri ekki reiðubúið að taka þátt í sam- starfi um sameiginlega ábyrgð á skuldum. Fyrir nokkrum vikum benti bandaríski fjármálavefurinn Mar- ketwatch á að möguleg lausn á evrukreppunni væri útganga Finn- lands úr evrusamstarfinu. - ibs Fjármálaráðherra Finnlands: Evrusamstarfi mögulega hætt LÖGREGLUMÁL Manninum sem grunaður er um að hafa nauðgað konu á Bestu útihátíðinni hefur verið sleppt úr haldi lögreglu. Rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi fer með málið. Nauðgunin var kærð aðfara- nótt laugardags. Konan var flutt á Neyðarmóttöku fórnarlamba fyrir kynferðisafbrot í Reykjavík. Bæði brotaþoli og árásarmaðurinn eru á þrítugsaldri. Málið er enn í rann- sókn og bíður lögregla eftir niður- stöðum úr rannsóknum og frekari gögnum. - bþh Málið rannsakað á Selfossi: Grunuðum nauðgara sleppt HEILBRIGÐISMÁL Staðfest er að náttúruvaran SagaPro sem unnin er úr íslenskri ætihvönn virki vel við næturþvaglátum. Klínísk rannsókn sem gerð var á vörunni og birt í virtu lækna- tímariti sýnir fram á að varan eykur blöðrurýmd og dregur úr tíðni næturþvagláta. SagaMedica framleiðir vöruna. Rannsókn á SagaPro var gerð á 69 karlmönnum með tiltekin ein- kenni í þvagfærakerfi. Einhverjir fengu lyfleysu og aðrir SagaPro. Rannsóknin sýndi fram á að karlar með góðkynja stækkun í blöðruhálskirtli geta notað vör- una til góðs. SagaPro inniheldur einnig blöðruslakandi efni. Varan er nú þegar seld í yfir 200 verslunum vestanhafs og stefnt er að markaðssetningu í Evrópu. - bþh Náttúruvara úr ætihvönn: Minna þarf að pissa um nætur UNNIÐ ÚR HVÖNN SagaPro er unnið úr ætihvönn. NORDICPHOTOS/GETTY TÆKNI Norðurlöndin eru í sér- flokki í Evrópu hvað varðar útbreiðslu háhraðatenginga. Þetta kemur fram á vef Póst- og fjar- skiptastofnunar. Háhraðatengingar hafa jafnan verið mun útbreiddari á Norður- löndum en gengur og gerist í ESB- löndunum. Í fyrra voru þar 80 til 92% með aðgang að slíku en með- altalið í ESB er 67%. Þá er almenn netnotkun meiri á Norðurlöndum, þar sem milli fjögur og níu pró- sent íbúa hafa aldrei notað inter- netið, samanborið við 24% íbúa að meðaltali í ESB löndunum. - þj Standa ESB-löndum framar: Norðurlöndin í sérflokki Á NETINU Nær allir Norðurlandabúar hafa nýtt sér netið, en tæpur fjórðungur í ESB-löndum aldrei. ÖRYGGISMÁL Isavia mun yfirfara öryggiseftirlit sitt með starfsemi á Keflavíkurflugvelli eftir að tveir menn komust inn á flughlað og upp í vél Icelandair aðfara- nótt sunnudags. Í tilkynningu frá Isavia segir að atvikið sé litið mjög alvarlegum augum. Mennirnir tveir, sem eru ungir hælisleitendur og búsettir á gisti- heimili í Reykjanesbæ, komust inn á svæðið með því að fara yfir girðingu og komust þaðan inn á flughlað og upp í flugvél Ice- landair, sem var á leið til Kaup- mannahafnar. Í fyrrnefndri tilkynningu Isavia segir að „ekkert athuga- vert“ hafi komið í ljós við skoðun á verklagi öryggisstarfsmanna Isavia á þeim tíma er atvikið átti sér stað. Mennirnir tveir hafi „greinilega verið vel skipulagðir“. „Öryggisdeild Isavia, sem fer með öryggis- og flugverndarmál á Keflavíkurflugvelli, starfar eftir mjög ströngu verklagi sem samþykkt er af Flugmálastjórn Íslands,“ segir þar. Öryggiskerfið er sagt hafa virk- að þar sem að áhöfn Icelandair hafi fylgt verklagsreglum og fundið mennina inni á salerni vél- arinnar áður en hún fór í loftið. Forsvarsmenn Icelandair vildu ekki tjá sig um málið þegar Fréttablaðið leitaði viðbragða í gær. Ekki náðist í forstjóra Isavia, en Þórólfur Árnason stjórnarfor- maður sagði aðspurður um hvort öryggismál Isavia væru í góðum málum að lögregla væri að rann- saka málið. „Við verðum að bíða og heyra hvað lögreglan hefur að segja,“ sagði Þórólfur. Lögreglan á Suðurnesjum rann- sakar málið. thorgils@frettabladid.is Mál laumufarþega sagt mjög alvarlegt Isavia boðar yfirferð á öryggiseftirliti á Keflavíkurflugvelli eftir að tveir ungir hælisleitendur komust fram hjá gæslu og upp í flugvél Icelandair. Öryggiskerfið hafi þó virkað þar sem mennirnir fundust. Þeir hafi verið vel skipulagðir. KOMUST INN Á FLUGHLAÐ Mennirnir sem hugðust smygla sér með með vél Icelandair til Kaupmannahafnar klifruðu yfir girðingu og komust þannig upp í vélina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI GENGIÐ 09.07.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 219,9017 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 127,97 128,59 198,27 199,23 157,47 158,35 21,167 21,291 20,962 21,086 18,219 18,325 1,608 1,6174 192,46 193,6 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 31° 24° 24° 16° 23° 24° 18° 18° 26° 19° 19° 29° 34° 17° 20° 25° 19° Á MORGUN Hæg breytileg átt. FIMMTUDAGUR Hægviðri. 8 7 10 12 14 14 16 13 12 11 7 2 4 4 3 4 3 3 3 7 8 3 15 15 14 14 16 16 17 18 16 16 ALVÖRU SUMAR Veðrið breytist lítið í vikunni og er rétt að tala um alvöru sumarblíðu í öllum landshlut- um. Hitinn hækkar um norðan- og austanvert landið á morgun og gæti náð víða yfi r 15°C á fi mmtudag og föstudag. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.