Fréttablaðið - 10.07.2012, Side 6

Fréttablaðið - 10.07.2012, Side 6
10. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR6 Sími 570 2400 · oryggi.is Stöndum vaktina allan sólarhringinn láttu okkur vakta heimilið Farðu áhyggjulaus í fríið Góð ráð frá Trausta á facebook.com/oryggi Fáðu tilboð í Heimaöryggi á oryggi.is eða í síma 570 2400 SJÁVARÚTVEGUR Hrafnreyður ehf. hefur uppi áform um að auka enn frekar hrefnuveiðar. Í fyrra voru veiddar um fimmtíu hrefnur en að sögn Gunnars Bergmanns Jónssonar framkvæmdastjóra er stefnt að því að veiða um áttatíu dýr í ár. Markmiðið er að neyt- endum standi hrefnukjöt til boða allan árs- ins hring. „Við erum núna að safna kjöti og ætlum svo að þíða það á viku eða tveggja vikna fresti svo við getum sett marinerað hrefnu- kjöt á helstu sölustaði allan ársins hring,“ segir framkvæmdastjórinn. Hann segir að birgðir hafi aðeins enst fram í janúar í fyrra fyrir helstu sölustaði. Aðeins hefur dregið úr vinsældum hrefnukjöts sem var til dæmis vinsælasti vöruliðurinn í grillmat hjá Kaupási í fyrra. Nú skipar hrefnukjötið þriðja sætið á þess- um sölulista. Samtals er búið að selja um eitt og hálft tonn í verslunum Krónunnar en Kaupás rekur þær. Guðmundur Marteins- son, framkvæmdastjóri Bónuss, segir að þar sé hrefnukjötið ekki meðal þriggja efstu vöruliða en hafi þó selst sæmilega, eins og hann kemst að orði. Guðmundur segist sáttur við þessar tölur. „Ef við erum á meðal þeirra efstu og sjáum þar með að hrefnukjötið er að festa sig í sessi á grillborði landsmanna þá erum við mjög sáttir. Þetta hefur selst vel þó við höfum ekkert auglýst.“ - jse Auka á hrefnuveiðar í ár og koma afurðunum á helstu sölustaði allan ársins hring: Í fyrra entust kjötbirgðirnar fram í janúar VIÐ VINNSLU Á HEIMSTÍMINU Það verður nóg að gera við veiðar og vinnslu en Hrafnreyður ætlar að auka framboð á hrefnu. MYND/GUNNAR BERGMANN SAMGÖNGUR Icelandair flaug allra flugfélaga mest frá Íslandi í júní. Flugfélagið stóð fyrir tæpum 70 prósentum allra utanlandsfluga frá landinu, eða tæplega tólf hundruð ferðum. Túristi.is hefur tekið saman upplýsingar um ferðir allra flugfélaga sem héðan flugu í júní. Níu prósent þessara ferða voru með vélum merktum Ice- land Express og sex prósent með vélum WOW air. Fjölmörg erlend flugfélög fljúga hingað til lands í sumar. Meðal þeirra eru Airberlin og SAS sem samanlagt stóðu fyrir 6,5 prósentum allra fluga í júní. - bþh Flugsamgöngur frá landinu: Icelandair flaug oftast frá Íslandi ICELANDAIR Flugfélagið sem flaug oftast frá Íslandi í júní er Icelandair og ber höfuð og herðar yfir keppinauta hvað það varðar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR EFNAHAGSMÁL Fjárhagsstaða íslenskra sveitarfélaga batn- aði á árinu 2011. Meðalhagn- aður 28 stærstu sveitarfélaga fyrir afskriftir jókst milli ára úr 13,9 prósentum í 15,7 prósent, sem hlutfall af rekstrartekjum. Fjallað var um málið fyrir helgi í markaðspunktum greiningar- deildar Arion banka. Í nýjum sveitarstjórnarlögum kemur fram að heildarskuldir samstæðu sveitarfélaga megi ekki vera yfir 150 prósentum af reglulegum tekjum. Í markaðs- punktunum kemur fram að þrett- án af 28 stærstu sveitarfélögum landsins skuldi meira en sem nemur 150 prósenta viðmiðinu og þurfi því að grípa til frekari aðhaldsaðgerða. - mþl Betri staða en í fyrra: 13 sveitarfélög skulda of mikið GRINDAVÍK Grindavík er hið eina af 28 stærstu sveitarfélögum landsins sem er svo til skuldlaust. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SVÍÞJÓÐ Umboðsmaður barna í Sví- þjóð og ráðherra fjölskyldumála vilja breyta lögum svo að foreldri sem myrt hefur hitt foreldri barna sinna missi forræði yfir þeim. Kallað er eftir breytingunni í kjölfar þess að faðir þriggja og sex ára gamalla stúlkna, sem í febrúar horfðu upp á hann myrða móður þeirra, gat lagt stein í götu þess að þær fengju áfallahjálp og aðra þjónustu, í krafti forræðis síns. Hann samþykkti fyrir viku að þær fengju sérstakan forráða- mann. - ibs Morðingjar halda forræðinu: Vilja lagabreyt- ingu eftir morð Hlutdeild flugfélaga Hlutfall af öllum flugferðum frá Íslandi í júní 1. Icelandair 68,5% 2. Iceland Express 9% 3. WOW air 6% 4. Airberlin 3,5% 5. SAS 3% - Önnur flugfélög 10% HEIMILD: TÚRISTI.IS Ferð þú á útihátíð í sumar? JÁ 11,3% NEI 88,7% SPURNING DAGSINS Í DAG Fylgist þú með fréttum af erlendum atburðum? Segðu þína skoðun á Vísir.is Vöruskiptaafgangur minni Afgangur af vöruskiptum við útlönd var rúmir 4,8 milljarðar króna í júní samkvæmt tölum sem Hagstofan hefur birt. Til samanburðar var 8,7 milljarða afgangur í júní í fyrra. EFNAHAGSMÁL KAÍRÓ, AP Hæstiréttur Egypta- lands gerði að engu í gær tilskip- un forsetans, Mohammeds Morsi, um að þingið kæmi aftur saman. Hæstiréttur hafði úrskurðað þingið ólöglegt, þar sem ágall- ar hefðu verið á kosningunum. Forsetinn tilkynnti hins vegar á sunnudag að þingið kæmi saman á ný. Ljóst er að ólíkar fylkingar tak- ast á í æðstu stjórnarstofnunum Egyptalands. Herinn hefur verið lengi verið ein öflugasta valda- stofnun landsins og allir fjórir forsetar lýðveldisins, á undan Morsi, komu úr röðum hans. Eftir byltinguna í Egyptalandi í fyrra var boðað til þingkosninga. Tveir þriðju hlutar egypska þingsins eru kosnir af flokkslist- um en einn þriðji einstaklings- kjöri. Hæstiréttur úrskurðaði í síðasta mánuði að ólöglegt hefði verið að frambjóðendur stjórn- málaflokka hefðu boðið sig fram í einstaklingskjöri. Undirliggjandi er valdabarátta í landinu, en öflugasti flokkur landsins er harðlínuflokkurinn Bræðralag múslima. Tilkynning Morsi, um endur- komu þingsins, kom nokkuð á óvart og var litið á hana sem leik í valdatafli hans við herinn. Með henni hafi hann viljað styrkja sig í sessi sem forseta, en landinu er í raun stjórnað eftir tilskipunum hersins. Morsi tilkynnti einnig um að kosið yrði að nýju til þings innan 60 daga frá því að ný stjórnar- skrá tæki gildi, en ekki er búist við að hún verði tilbúin fyrr en seint á þessu ári. Forsetinn og herinn takast á um völdin Hæstiréttur Egyptalands hefur hafnað tilskipun forsetans um að þingið komi aftur saman. Undirliggjandi er deila um nýja stjórnarskrá. Herforingjaráðið áminnti forsetann um að stofnanir ríkisins þyrftu að fylgja tilskipunum þess. Bræðralag múslíma hefur varað við annarri byltingu ætli herinn sér að halda völdum. Morsi er fyrsti lýðræðislega kjörni forseti landsins og staða hans er því nokkuð sterk, en Morsi var frambjóðandi Bræðralagsins. Hann sigraði síðasta forsætisráðherra Mubaraks, Ahmed Shafiq, naumlega í júní. Herinn hefur hins vegar úrskurði æðsta dómstóls landsins sín megin og þann mátt sem vopn hans boða að auki. Hvorugur aðilinn virðist vilja að deilan magnist svo líklegt er að reynt verði að leysa hana friðsamlega. Forsetinn og æðstu herforingjar sátu hlið við hlið á útskrift úr herskóla í gær. Hvað gerist nú? AUÐUR SALUR Hermenn stóðu vörð um þinghúsið í gær, en ekki kom til átaka. Fylgjendur forsetans sýndu stuðning sinn á götum úti og ástandið er eldfimt í landinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Herinn stóð vörð um þinghús- ið í gær, en ekki voru allir þing- menn sáttir við ákvörðun forset- ans. „Hvernig getum við komið saman þvert á úrskurð Hæsta- réttar?“ sagði Imad Gad, frjáls- lyndur þingmaður. „Við verðum að halda lög og stofnanir ríkisins í heiðri.“ kolbeinn@frettabladid.is KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.