Fréttablaðið - 10.07.2012, Qupperneq 8
10. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR
HVER ÞREMILLINN! Sendið okkur myndir og upplýsingar um sóðaskap, hirðu-leysi, slysagildrur og fleira. thremillinn@frettabladid.is
Það er ófögur sjón sem blasir við vegfarend-
um sem ganga niður Frakkastíginn neðan við
Hverfis götu í Reykjavík. Þar er autt svæði sem
ber merki mikils hirðuleysis.
Sami aðilinn á þarna nokkrar samliggjandi
lóðir og er skikinn í hálfgerði biðstöðu. Ráðast á
í miklar framkvæmdir og uppbyggingu á reitn-
um á næstunni.
„Þetta er í leigu hjá samtökunum Veraldarvinum
og þetta fólk er búið að lofa okkur í tvo mánuði
að taka dótið sitt, en svíkur það alveg jafnóðum,“
segir Pétur Björnsson, stjórnarformaður Hverfils,
sem er skráður eigandi að lóðinni.
„Hins vegar er þetta okkar lóð og þetta verður
ekki svona til langframa,“ segir Pétur.
Forsvarsmaður Veraldarvina, Þórarinn Ívars-
son, segir ábyrgðina liggja hjá verktakanum.
„Við höfum þrifið óhemju mikið þarna í kring
í gegnum tíðina, en þarna er fullt af drasli sem
tengist yfirvofandi framkvæmdum og það er ekki
á okkar ábyrgð,“ segir Þórarinn.
„Við höfum verið í miklum hreinsunarstörfum
hérna við Hverfisgötuna á undanförnum árum og
getum alveg hreinsað þetta líka,“ segir Þórarinn.
Hann ætlar að senda menn í hreinsunarleið-
angur á svæðið í dag. - ktg
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
London Stansted og Gatwick, verð frá:
verð frá:
Leyfðu þér
London
Ármúla 7 | 108 Reykjavík | 5 500 600 | www.icelandexpress.is
*Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum.
Takmarkað sætaframboð og valdar dagsetningar.
*Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum.
Takmarkað sætaframboð og valdar dagsetningar.
15.700 kr.
16.700 kr.
*
*
Opnaðu fyrir
Edinborg
TILBOÐ!
TILBOÐ!
frá hádegi til miðnættis
TÍMA TILBOÐ
12
ÓREIÐA Verktakinn hefur sett grindverk fyrir lóðina svo erfitt
hefur verið fyrir sorphreinsunarfólk að athafna sig á svæð-
inu. Haugur af svörtum ruslapokum ber þess skýr merki.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Ruslið hleðst upp við Frakkastíg
UMFERÐ Sveitarfélög fyrir austan
fjall eru ósátt við nýjar takmarkan-
ir á vöruflutningum um þjóðgarðinn
á Þingvöllum.
„Þetta heftir alla umferð til
og frá Vesturlandi og höfuðborg-
inni,“ segir Ingibjörg Harðardóttir,
sveitar stjóri Grímsness- og Grafn-
ingshrepps sem krefst þess að tak-
markanirnar verði felldar úr gildi
þar til umsögn sveitarstjórna á
svæðinu hefur verið aflað eins og
lög geri ráð fyrir.
Vegagerðin bannaði 8. júní síð-
astliðinn umferð vöruflutninga-
bíla yfir átta tonnum um þjóðgarð-
inn og einnig allra ökutækja með
vatnsspillandi og hættulegan farm.
Umferð hópferðabíla er þó áfram
leyfð, óháð þyngd.
„Það er ekki eins og það séu
hundrað flutningabílar á dag. Við
erum að tala um einn og einn,“ segir
Ingibjörg sem kveður mikið óhag-
ræði af þessu fyrir verktaka í sveit-
unum í kring. Sömuleiðis fyrir verk-
taka í Borgarfirði sem vilja stytta
sér leið yfir Uxahryggi á kvöldin og
nóttunni yfir sumartímann.
Þá bendir Ingibjörg á að varla sé
betra að beina þessari umferð um
Grafning því vegurinn þar sé illa
farinn og beri slíka þungaflutninga
alls ekkert betur en vegurinn um
þjóðgarðinn.
G. Pétur Matthíasson, upplýs-
ingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir
að við byggingu Lyngdalsheiðar-
vegar hafi verið nefnt að til slíkra
takmarkana gæti komið. Umferð
flutningabíla um þjóðgarðinn hafi
aukist eftir að vegurinn kom.
„Vegurinn í þjóðgarðinum er
ekki hannaður fyrir slíka þunga-
umferð,“ segir G. Pétur sem kveð-
ur takmarkanirnar einnig settar á
að ósk þjóðgarðsvarðar og þeirra
sem hafi með þjóðgarðinn að gera.
„Þar að auki er hann á heimsminja-
skránni og menn hafa ekki viljað
taka óþarfa áhættu með því að fara
með spilliefni þar í gegn.“
Ingibjörg segir vekja undrun að
hvaða rúta sem er, hversu þung
sem hún er, megi keyra um þjóð-
garðinn þegar venjulegum flutn-
ingabílum sé bannað að fara þar
um. G. Pétur segir að það séu ekki
einstaka bílar sem skipti öllu máli
fyrir álagið á veginn heldur líka
heildarmagn umferðarinnar. „Það
verður að vera einhver skynsemi
í því sem menn eru að gera. Þjóð-
garðurinn er náttúrulega viðkomu-
staður ferðamanna. Þess vegna er
sú leið farin að heimila þeim að
fara en ekki vöruflutningunum.“
Ingibjörg kveðst skilja að menn
vilji ekki risastóra flutningabíla og
flutninga með eldsneyti um þjóð-
garðinn en telur of langt gengið.
„Til hvers var verið að eyða fleiri
hundruð milljónum í að búa til
Lyngdalsheiðarveg ef svo má ekki
keyra þetta?“ segir sveitarstjórinn.
gar@frettabladid.is
Bann við vörubílum
í þjóðgarði gagnrýnt
Sveitarstjóri segir lokun á vörubíla á Þingvöllum bagalega. Vegurinn er ekki
hannaður fyrir svo þunga bíla segir Vegagerðin sem þó lokar ekki fyrir stórar
rútur: „Það verður að vera einhver skynsemi,“ útskýrir upplýsingafulltrúinn.
Það er ekki eins og
það séu hundrað
flutningabílar á dag. Við erum
að tala um einn og einn.
INGIBJÖRG HARÐARDÓTTIR,
SVEITARSTJÓRI GRÍMSNESS-
OG GRAFNINGSHREPPS
ÞINGVELLIR Vegagerðin og stjórn þjóðgarðsins vilja vernda friðlandið fyrir vaxandi
þungaflutningum en sveitarstjórnir á svæðinu telja of langt gengið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SÝRLAND Kofi Annan, sendifulltrúi
Sameinuðu þjóðanna, og Bashar al-
Assad, forseti Sýrlands, sögðu að
loknum fundi sínum í Damaskus í
gær að viðræður þeirra hefðu verið
uppbyggjandi, að því er greint var á
vef sænska ríkisútvarpsins.
Um liðna helgi sagði Annan í við-
tali við franskt dagblað að friðar-
áætlun hans væri búin að vera.
Assad sagði aftur á móti í viðtali
við þýska sjónvarpsstöð á sunnu-
dag að svo væri ekki, áætlun Ann-
ans væri góð. Hins vegar væru til
lönd sem ekki vildu að hún heppn-
aðist. Assad sakar Bandaríkin um
að koma á ójafnvægi í Sýrlandi með
pólitískum stuðningi við stjórnar-
andstöðuna. Hann sakar einnig
Sádi-Arabíu, Tyrkland og Katar um
að styðja stjórnarandstæðinga.
Að loknum fundinum í gær virtist
sem Annan ætlaði að gefa áætlun-
inni enn eitt tækifærið. Frá Dam-
askus hélt hann til Írans þar sem
hann hugðist ræða við ráðamenn
um ástandið í Sýrlandi.
Samtímis bárust þær fregnir frá
Rússlandi að stjórnvöld ætluðu ekki
að svo stöddu að afhenda Sýrlend-
ingum herflugvélarnar fjörutíu sem
undirritað var samkomulag um í lok
síðasta árs. Það samkomulag hefur
sætt harðri gagnrýni.
Um helgina biðu að minnsta kosti
eitt hundrað manns bana í átökum í
Sýrlandi. - ibs
Kofi Annan fundaði með Bashar al-Assad Sýrlandsforseta í Damaskus í gær:
Assad ánægður með friðaráætlun
Í DAMASKUS Kofi Annan og Bashar
al-Assad ræðast við. NORDICPHOTOS/AFP