Fréttablaðið - 10.07.2012, Side 10
10. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR10
FERÐAÞJÓNUSTA Sú mikla aukning
á fjölda ferðamanna sem orðið
hefur hér á landi síðustu tvö ár
hefur áhrif víðar í hagkerfinu en
hjá fyrirtækjum í ferðaþjónustu.
Eitt dæmi um áhrifin er fjölgun á
notendum símkerfa símafyrirtækj-
anna yfir sumarmánuðina.
Greint var frá því nýverið að
sennilega hefðu aldrei jafn margir
ferðamenn verið í Reykjavík á
einum degi og hinn 18. júní síð-
astliðinn. Þann dag lögðu fjögur
skemmtiferðaskip að bryggju við
höfnina en samanlagður fjöldi far-
þega í skipunum var 6.500 manns.
Þennan skyndilega topp í fjölda
ferðamanna á Íslandi má glögglega
sjá séu skoðaður tölur yfir fjölda
erlendra notenda innlendra sím-
kerfa. Á línuritinu hér til hliðar
sést þróun á fjölda erlendra ferða-
manna sem tengst hafa símkerfi
Vodafone í júní. Hinn 18. júní voru
þannig 33% fleiri erlendir farsím-
ar í dreifikerfi Vodafone en á sama
degi í fyrra.
Hrannar Pétursson, fram-
kvæmdastjóri samskiptasviðs
Vodafone, segir símnotkun gefa
glögga mynd af því sem um er að
vera í samfélaginu. „Við sjáum oft
skýr merki í símnotkun. Við sam-
drátt í efnahagslífinu minnkar
notkun og þegar vindurinn kemur
aftur í seglin sést það. Þegar lands-
liðið í handbolta er að spila eða
þegar Eurovision er í gangi þá
sjáum við það líka,“ segir Hrannar
og bætir við að fjöldi notenda sím-
kerfis Vodafone aukist yfir sumar-
mánuðina vegna ferðamanna.
Hrannar segir langflesta ferða-
menn sem hingað koma nota inn-
lend símkerfi. „Flestir einfaldlega
kveikja á símanum sínum þegar
þeir koma til landsins og nota hann
inni á því símkerfi sem þeir tengj-
ast sjálfkrafa en stór hópur kaupir
líka íslensk númer til að nota á
meðan á dvölinni stendur.“
Hrannar segir símkerfin ráða
Ferðamenn fyrirferðar-
miklir í símkerfunum
Símnotkun á Íslandi tekur greinilegan kipp á sumarmánuðum þegar erlendum
ferðamönnum fjölgar til muna á Íslandi. Ferðamönnum sem fara um Leifsstöð
hefur fjölgað um ríflega fimmtung frá árinu í fyrra sem þó var metár.
ERLENDIR FERÐAMENN Frá áramótum til og með maí hafa ríflega 170 þúsund
erlendir ferðamenn farið frá landinu um Leifsstöð. Hefur þeim fjölgað um
fimmtung frá árinu á undan. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
Arges PROFESSIONAL
Einfasa rafstöð HD3800
Bensín m/rafstarti 3,2KW
79.900,-
Ryk/blautsuga
15 lítrar HKV 1000w
21.900,-
Slípirokkur
HDA 436 1050w
7.990,-
Rafhlöðuborvél, HDA2544
17.900,-
Rafmagnsborvél,
HDA 310
12 .990,-
að fullu við aukið álag. „Það er alls
ekki þannig að þetta kalli á aðgerð-
ir, það eru miklu heldur einhverj-
ir sértækir viðburðir sem reyna á
kerfin, til dæmis Menningarnótt
eða Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum,“
segir Hrannar.
Loks segir Hrannar ferðamanna-
strauminn hafa jákvæð áhrif á
rekstur Vodafone. Það gefi auga-
leið að hundruð þúsunda notenda
sem skráist inn á innlend símkerfi
yfir árið, til viðbótar við þá sem
búa á Íslandi, séu búbót fyrir síma-
fyrirtækin.
Frá áramótum til og með maí
hafa 170.560 erlendir ferðamenn
farið frá landinu um Leifsstöð sem
er 20,7% aukning frá árinu áður.
magnusl@frettabladid.is
Hægist á húsnæðismarkaði
Alls 92 kaupsamningar voru þinglýstir
á höfuðborgarsvæðinu vikuna 29.
júní til 5. júlí. Heildarvelta á húsnæð-
ismarkaði var 2.745 milljónir króna
sem er nokkru minna en síðustu vikur
sem hafa verið fjörlegar á markaðn-
um. Vikuleg meðalvelta það sem af er
árinu hefur verið 2.930 milljónir.
FASTEIGNAMARKAÐUR
HEILBRIGÐISMÁL Á vef Náttúrufræði-
stofnunar má nú nálgast upplýs-
ingar um magn frjókorna í lofti á
hverjum virkum degi. Birtar eru
tölur frá mælingastöð í Urriðaholti
í Garðabæ.
„Ég held að þetta sé mjög gagn-
legt, ef sjúklingurinn lítur yfir
sveiflur á ákveðnum stað síðustu
daga og vikur getur hann dregið
vissar ályktanir út frá því. En það
þarf að huga að veðurfari líka, til
dæmis ef það er rigning, þá eru
voða fá frjókorn,“ segir Davíð
Gíslason ofnæmislæknir. Hann
segist hvetja fólk með ofnæmi til
að kynna sér vel veður og frjótölur
áður en það leggur af stað í útilegu
eða ferðalög. Aðstæður á staðnum
skipti einnig miklu máli.
„Það er til dæmis gott að tjalda
þar sem stendur af hafi og tjalda
þá niðri við sjó. Svo er mikilvægt
ef fólk ætlar að vera í tjaldi að vel
sé slegið í kring.“
Davíð varar þó við því að fólk
dragi ályktanir um útlönd út frá
frjótölum á Íslandi. „Ég minni oft
fólk á að kanna hvernig frjótíminn
er á staðnum sem það er að fara á,
því frjótíminn þar er annar en hér
á Íslandi.“ - ktg
Fólk með frjókornaofnæmi er hvatt til að kynna sér mælingar:
Magn frjókorna í lofti birt daglega
TJALDSVÆÐI Vissara er fyrir ofnæmis-
sjúka að kynna sér vel aðstæður áður
en haldið er í ferðalag. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
UMHVERFI Ísland hefur undirrit-
að Landslagssamning Evrópu,
en fullgilding þess samnings er
á meðal markmiða í samstarfs-
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
frá 2009. Berglind Ásgeirsdóttir,
sendiherra í Frakklandi, undir-
ritaði samninginn fyrir Íslands
hönd.
Markmið samningsins er að
stuðla að verndun, stýringu og
skipulagi landslags og koma á fót
evrópsku samstarfi um landslag.
Í samningnum er að finna almenn
ákvæði um fjögur meginatriði, að
því er fram kemur í tilkynningu
frá umhverfisráðuneytinu:
■ Að veita landslagi ákveðinn
sess í lögum og viðurkenna mikil-
vægi þess í umhverfi landsins.
■ Að móta og framfylgja stefnu
um landslag sem miðar að vernd-
un, nýtingu og skipulagi þess.
■ Að tryggja aðkomu almenn-
ings og fleiri að mótun stefnu um
landslag.
■ Að huga að landslagi við aðra
stefnumótun, svo sem um byggða-
þróun, menningarmál, landbúnað,
félagsmál og efnahagsmál.
„Með þátttöku í Landslags-
samningi Evrópu er staðfestur
vilji stjórnvalda til að stuðla að
landslagsvernd og að taka ákveð-
in skref í þá átt í samræmi við
leiðbeiningar samningsins. Þá
getur Ísland nýtt sér vinnu sem
þegar hefur farið fram í tengslum
við samninginn í öðrum ríkum
Evrópu,“ segir á heimasíðu
umhverfisráðuneytisins. - kóp
Stuðlað að verndun, stýringu og skipulagi landslags með undirritun samnings:
Undirrita Landslagssamning Evrópu
HJÁLPARFOSS Samkvæmt samningnum
þarf að huga að landslagi við aðra
stefnumótun, svo sem varðandi félags-
og efnahagsmál. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Presturinn rífur útihús
Séra Geir Waage hefur fengið heimild
Borgarbyggðar til að rífa eldri hluta
útihúsanna í Reykholti. Er þar um
að ræða fjárhús og hlöðu frá fjórða
áratug 20. aldar. Kirkja hefur staðið í
Reykholti frá því á 11. öld, en frá því
snemma á 12. öld hefur verið þar
staður og kirkjumiðstöð.
REYKHOLT
NOREGUR Glæpamenn með tengsl
við Svíþjóð og Balkanskaga eru
taldir standa á bak við svindl í
fótboltaleikjum í Noregi, að því er
segir á fréttavef VG.
Stjórn norska knattspyrnusam-
bandsins telur að um nokkra leiki
kunni að vera að ræða. Sambandið
aflýsti á sunnudag leik í annarri
deild vegna gruns um fyrirfram
ákveðin úrslit.
Til stendur að funda með þeim
félögum og leikmönnum sem
grunur leikur á að eigi aðild að
málinu. - ibs
Knattspyrna í Noregi:
Mafía á bak við
keypt úrslit
2,5
2,0
1,5
1
Erlend númer í kerfi Vodafone í júní*
1. júní 10. júní 18. júní
■ 2011
■ 2012*Af samkeppnisástæðum vill Vodafone ekki gefa
upp nákvæman fjölda erlendra ferðamanna í
símkerfinu en hér má sjá hlutfallslega þróun
fjöldans fyrstu 18 dagana í júní í ár og í fyrra.
1. Hvað er gert ráð fyrir að Reyk-
víkingum muni hafa fjölgað mikið
frá því sem nú er árið 2030?
2. Hvað heitir bardagakappinn
íslenski sem samið hefur við UFC-
bardagasambandið?
3. Hvað er langt um liðið
síðan kona tók í fyrsta sinn sæti á
Alþingi?
SVÖRIN
1. Um tuttugu og fimm þúsund hið
minnsta. 2. Gunnar Nelson. 3. Níutíu ár.
Meiri Vísir.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir,
meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf,
meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á vísi.
Á Veiðivísi, nýjum veiðivef Vísis, getur þú nálgast helstu fréttir,
ítarlega umfjöllun og gagnlegar upplýsingar um veiði, hvort heldur
sem er stangveiði eða skotveiði. Fylgstu með í sumar og nýttu þér
allt sem Vísir hefur upp á að bjóða.
VEISTU SVARIÐ?