Fréttablaðið - 10.07.2012, Síða 12
10. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR12
Ingólfstorg og Kvosin eru
viðkvæmir staðir í borg-
inni og fjölmargir hafa
skoðun á því hvernig upp-
byggingu þar skuli háttað.
Nú hefur verið tilkynnt um
sigurvegara í samkeppni
sem ráðist var í af Reykja-
víkurborg og eiganda húss-
ins. Fréttablaðið kynnti sér
tillöguna.
Samkvæmt verðlaunatillögu
ASK arkitekta, eftir þá Þorstein
Helgason og Gunnar Örn Sig-
urðsson, halda gömlu húsin á
reitnum sér en talsvert er byggt
í kringum þau. Gunnar segir að
þeir hafi reynt að hlusta á allar
raddir sem heyrst hafi um mál-
efnið. „Við tökum hótelið og setj-
um það að mestu leyti inn í bygg-
ingar sem eru þarna fyrir, en
byggjum aðeins við það. Þetta
eru um 150 herbergi, sem er
meðalstórt hótel. Svo var að leysa
þetta með hefðina fyrir skemmti-
stað, sem er greinilega vilji
margra borgar búa,“ segir hann.
Hann segir eðlilegt að umræður
skapist um málið, en menn verði
að vanda sig í umræðunni.
Dómnefndin sem valdi tillög-
una segir í umsögn að um metn-
aðarfulla tillögu sé að ræða sem
taki tillit til sögu Kvosarinnar en
sýni um leið áhugaverða þróunar-
möguleika. „Hún sýnir mark-
vissa uppbyggingu án niðurrifs
eða tilfærslu á gömlum húsum.“
Hótel í Landsímahúsið
Samkvæmt tilögunni mun Land-
símahúsið verða að hóteli auk þess
sem nýbygging mun rísa fyrir
framan það og snúa að Kirkju-
stræti. Þar verður aðalinngangur
hótelsins en einnig verður hægt að
komast þar inn frá Austurvelli og
Víkurgarði. Gert er ráð fyrir því að
opið rými verði á jarðhæðinni og
veitingastaður geti nýtt útisvæði
á Austurvelli. Þá verður byggð ein
hæð ofan á hluta hótelsins.
Nasa haldi sér
Aðalstræti 7 sem einnig er kall-
að frændahúsið, Vallarstræti 4
sem einnig er kallað Hótel Vík
og Thorvaldsenstræti 2, Sjálf-
stæðishúsið, halda sér í tillög-
unni. Byggð verður nýbygging á
milli Vallarstrætis og Aðalstræt-
is. Húsið fyrir aftan Sjálfstæðis-
húsið, sem nú hýsir Nasa, verður
rifið en byggt upp á ný. Salurinn
verður látinn líkjast þeim sem nú
er á Nasa og samkvæmt tillög-
unni kemur til greina að nota ein-
hverjar af sömu innréttingunum.
Nýja húsið verður hins vegar graf-
ið meira niður en nú er og byggt
verður ofan á það. Í tillögunni er
gert ráð fyrir að áfram verði hægt
að nota salinn fyrir tónleika- og
skemmtanahald. Gunnar segir að
til standi að salurinn verði hljóð-
einangraður og þannig verði hægt
að samnýta rekstur.
Ingólfstorgi breytt talsvert
Þá er gert ráð fyrir því í vinn-
ingstillögunni að skipulagi við
Ingólfstorg verði breytt. Austur-
stræti og Aðalstræti eru látin
tengjast á ný og nýbyggingar
byggðar á milli Vallarstrætis
og Austurstrætis, inni á því sem
nú er Ingólfstorg. Torgið minnk-
ar því talsvert þeim megin en í
staðinn er gert ráð fyrir því að
hús í hinum enda torgsins, við
Hafnarstræti, verði fjarlægð.
Lokað verður fyrir bílaumferð
um Hafnarstræti og Veltusund.
Páll Hjaltason, formaður
skipulagsráðs Reykjavíkurborg-
ar, hefur sagt þennan hluta til-
lögunnar hvað róttækastan. Það
tengist ekki hóteluppbyggingunni
og nýbygging á torginu þarfnist
frekari útfærslu og almennrar
umræðu.
Tillögurnar ekki lokaorðið
Í umsögn dómnefndar er bent á
að einn helsti veikleiki tillögunn-
ar sé sú hlið hótelsins sem snúi
að Kirkjustræti, en hún þarfn-
ist endurskoðunar. „Sama gildir
um þá hlið hótelsins sem snýr að
Víkurgarði og aðkomu að hótelinu
þaðan. […] Einnig þarf að huga
betur að ásýnd nýbyggingar frá
Austurvelli.“
FRÉTTASKÝRING: Samkeppni um Ingólfstorg og Kvosina
Þórunn Elísabet
Bogadóttir
thorunn@frettabladid.is
FYRIRHUGUÐ UPPBYGGING Rauðu byggingarnar eru nýjar og sýna breytingarnar samkvæmt verðlaunatillögunni.
STOFNAÐ 1971
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT REYKJAVÍKURSVÆÐIÐ: Hagkaup, Smáralind. VESTURLAND: Hljómsýn, Akranesi. Hagkaup, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Hrannarbúðin Grundarfirði. Skipavík, Stykkishólmi. VESTFIRÐIR: Verslunin Ranglátur, Tálknafirði. Fjölval, Patreksfirði. Kaupfélag
Steingrímsfjarðar, Drangsnesi. Snerpa Ísafirði. NORÐURLAND: KF Steingrímsfjarðar, Hólmavík. KF V-Húnvetninga, Hvammstanga. Smárabær, Blönduósi. Skagfirðingabúð, Sauðárkróki. Valberg, Ólafsfirði. SR Byggingavörur, Siglufirði. Hagkaup, Akureyri. Heimilistæki, Akureyri. Víkurraf,
Húsavík. AUSTURLAND: Tölvulistinn, Egilsstöðum, Kauptún, Vopnafirði. Nettó, Höfn Hornafirði. SUÐURLAND: Mosfell, Hellu. Fossraf, Selfossi. Geisli, Vestmannaeyjum. REYKJANES: Tölvuþjónusta Benna, Grindavík. Heimilistæki, Reykjanesbæ. Hagkaup, Njarðvík.
MYNDAVÉLATILBOÐ
ADOBE LIGHTROOM 3 AÐ VERÐMÆTI 20.000 FYLGIR.
TILBOÐ 79.990
ideas for life
Panasonic DMCGF3C
Miðbærinn breytist
Ekki eru allir á eitt sáttir um vinningstillöguna. Björn Stefán Hallsson, arkitekt og
byggingarfulltrúinn í Reykjavík, er einn þeirra sem er óánægður. Hann segir gömlu
húsin í miðborginni einstök og sérstök menningarverðmæti. „Gera þarf eins
mikið úr tilvist þeirra og framast er kostur þannig að þeirra verði notið sem best í
borgarumhverfinu. Þetta felst ekki í tillögum sem valdar hafa verið til verðlauna í
samkeppninni um Ingólfstorg,“ sagði hann í grein í Fréttablaðinu á dögunum.
Hann nefndi mörg atriði sem hann er óánægður með. „Tillagan gerir ráð fyrir
að byggja við Landsímahúsið að gangstéttarbrún gagnstætt húsunum með 4 til 5
hæða stórbyggingu og í byggingarstíl sem er afar framandi fyrir umhverfið í heild.
[…] Upp við þak Nasa norðanvert og að Hótel Vík er gert ráð fyrir nýbyggingu
álíka hárri Landsímahúsinu. Nasa er samkvæmt því þvingað inn í kverk á milli
nýbyggingarinnar og brunagafls Landsímahúss og smágert húsið borið ofurliði
stórbygginga.“ Þá segir hann nýbyggingu milli Hótel Víkur og Aðalstrætis bera þau
hús ofurliði sökum stærðar og hlutfalla. Framlenging á Vallarstræti sé jafnframt
dæmd til að vera dimmt sund í skugga hárra bygginga.
Byggingarfulltrúinn ósáttur
Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður er hluti af BIN-hópnum – Björgum
Ingólfstorgi og Nasa, sem mótmælir fyrirhuguðum breytingum og setur
í dag af stað undirskriftasöfnun og heimasíðu vegna málsins á slóðinni
ekkihotel.is. Hann segir hópinn hafa fundað reglulega frá árinu 2009. „Þá
mótmæltum við hugmyndum um að færa gömlu timburhúsin til á torginu,
framar inn á Ingólfstorg. Mótmælin urðu til þess að hætt var við þessar
framkvæmdir á sínum tíma. Þessar nýju tillögur eru helmingi verri,“ segir
hann. Hann segir bestu lausnina á málinu vera að Alþingi kaupi Land-
símahúsið og reki sem skrifstofur Alþingis. „Ég veit að það er viðkvæmt að
Alþingi sé eitthvað að fara að skipta sér af málum Reykjavíkur-
borgar, en ég vona og bið að þetta verði lausnin. Eins og ásýnd
hússins verður frá Austurvelli þá verða þrír ólíkir byggingar-
stílar sem eru til móts við völl. Þessar framkvæmdir valda líka
rosalegu rask þar.“
Páll Óskar hefur barist hart gegn lokun Nasa og segir
ekki búið að bjarga staðnum þrátt fyrir fréttir um að húsið
standi. „Þetta verður ráðstefnu- og veislusalur eins og
á Hilton Nordica, kannski einstaka árshátíðir eða brúð-
kaupsveislur haldnar þarna inn á milli, en þeim lýkur
þá alltaf klukkan eitt til að styggja ekki hótelgesti. Ég er
búinn að troða upp í meira en tuttugu ár og alltaf skal
sagan endurtaka sig – það er reynt að halda tónleika
eða skemmtanir í veislusölum hótela, en alltaf endar
það eins, tónleikarnir lúffa. Hótelrekstur og tónleika-
hald fer ekki saman. Ég hef ekkert á móti hótelum og
það er frábært að túrismi sé að aukast á Íslandi, en
hótel plús tónleikahús er eitur í mínum beinum.“
Ekki búið að bjarga Nasa
GÖTUMYNDIR Á efri myndinni má sjá hvernig vestasti hluti Austurstrætis liti út
eftir breytingar, og á þeirri neðri er Ingólfstorg.