Fréttablaðið - 10.07.2012, Síða 18
FÓLK|HEILSA
■ TANNHEILSA
Sýrustig eða PH-gildi gos-
drykkja og annarra drykkja getur
valdið skemmdum á glerungi.
Eftir því sem drykkurinn er súr-
ari og ph-talan lægri þeim mun
meiri hætta er á að hann skemmi
glerung. Ef ph-gildið mælist
undir 5,5 getur drykkurinn haft
skaðleg áhrif. Flestir kolsýrðir
drykkir eru undir þessum
mörkum og því súrir. Ph-
gildi hreins sódavatns er
yfir 5,5. Sé það hins
vegar bragðbætt
með sítrónu um
fellur það niður í
4,17.
Heimild: Læknablaðið
HUGIÐ AÐ
SÝRUSTIGINU
Súrir drykkir geta valdið
glerungseyðingu.
V afalaust tengja flestir Íslendingar brimbretti við fjarlægar og sólríkar strendur. Brimbretta-íþróttin hefur þó notið aukinna vinsælda hér
á landi undanfarin ár þótt enn séu strendur landsins
ekki fullar af brimbrettaköppum í löðrandi brimi.
Í Þorlákshöfn býður Iceland Activities upp á
kennslu fyrir byrjendur í brimbrettanotkun. Úlfar
Jón Andrésson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins,
segir Íslendinga vera mjög áhugasama um íþróttina.
„Best er að við fáum fólk á öllum aldri á námskeið
hjá okkur, ekki bara ungt fólk. Hingað hefur komið
fólk um sextugt og í fyrra kom 72 ára kona frá Banda-
ríkjunum á námskeið. Enda þurfa þátttakendur ekki
að vera í neinu sérstöku formi heldur bara sæmilega
vel á sig komnir.“ Iceland Activities leggur áherslu
á að bjóða kennslu í fámennum hópum og einblínir
á góða og persónulega kennslu. Sjálfur segist hann
hafa stundað íþróttina síðan árið 2006 þegar vinur
hans kynnti brimbretti fyrir honum.
Það kemur mörgum á óvart að sögn Úlfars að
Ísland bjóði upp á marga góða staði sem henta vel
fyrir brimbrettaíþróttina. „Strandlengjan við Þorláks-
höfn er mjög góð fyrir byrjendur. Það þarf þó að læra
inn á veður- og ölduspána en það tekur skamman
tíma.“
Brimbrettaíþróttin er ekki aðeins
sumaríþrótt eins og margir halda sjálfsagt. Úlfar
segir íþróttina vera stundaða árið um kring hér-
lendis. „Öldurnar eru oft betri á vorin og haustin en
sjórinn er auðvitað heitastur yfir sumartímann. Við
klæðumst þykkum göllum ofan í sjónum og því geta
sumrin oft verið ansi heit. Því er ekkert verra að
stunda íþróttina fram á vetur.“
Ísland hefur hingað til ekki verið þekktasti við-
komustaður brimbrettamanna en það gæti breyst á
næstu árum. Úlfar segir sífellt fleiri ferðamenn koma
til landsins til að stunda brimbrettaíþróttina. „Það er
yfirleitt mest talað um Ástralíu, Indónesíu og vissa
staði í Bandaríkjunum en á sama tíma erum við að
fá rosalega góðar öldur að Íslandi. Einn af kostunum
við Ísland er sá að þegar þú ert ofan í sjónum eru
ekki margir aðrir í sjónum með þér, þú átt ölduna
yfirleitt einn. En
erlendis ertu
að berjast við
þrjátíu aðra
um ölduna og
einhver er örugg-
lega betri en þú.“
BEÐIÐ EFTIR ÖLDUNNI
ÆVINTÝRI Brimbrettaíþróttin nýtur sífellt meiri vinsælda á Íslandi. Hægt
er að stunda hana hér stóran hluta ársins víðs vegar um landið. Sífellt fleiri
erlendir ferðamenn ferðast til Íslands til að stunda íþróttina.
Eru flugur, flær eða
maurar að ergja þig
og bíta?
áhrifaríkur
og án
allra
eiturefna.
Allt að
8 tíma
virkni.
Fæst í flestum apótekum,
heilsubúðum og hjá N1
www.gengurvel.is
Við erum á Facebook
5000 kr.
dagur í Flash
• Kjólar
• „Leðurjakkar“
• Mussur
• Toppar
• Gallabuxur háar í mittið
• Rauðar og bláar buxur
• Og margt, margt fleira
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
SJÓR OG SÆLA Hægt
er að stunda íþróttina
stóran hluta ársins hér-
lendis.
MYND/STYRMIR KÁRI