Fréttablaðið - 10.07.2012, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 10.07.2012, Blaðsíða 20
KYNNING − AUGLÝSINGMyndavélar og ljósmyndavörur ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 20122 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Elsa Jensdóttir elsaj@365.is sími 512 5427 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Framköllunarþjónustan í Borgarnesi hefur þjónað íbúum á Vesturlandi í nær aldarfjórðung. Fyrirtækið veitir alla hefðbundna framköllunar þjónustu en hefur auk þess lagt áherslu á ýmiss konar hönnunarvinnu fyrir viðskiptavini sína. Svanur Steinarsson, framkvæmdastjóri, segir framköllunar- þjónustu í dag vera mun fjöl- breyttari en áður fyrr. „Hefð- bundin framköllun hefur eðli- lega minnkað mikið með tilkomu stafrænna ljósmynda- véla en ýmis sérvinnsla fyrir viðskiptavini spilar hins vegar stærri þátt en áður.“ Fram- köllunarþjónustan býður meðal annars upp á fram- köllun á striga og svokallaður MDF-plötur. Einnig eru passa- myndatökur alltaf vinsælar. „Við framköllum einnig mynd- ir á gler og ál. Þannig höfum við til dæmis sett ljósmyndir í rúður í anddyri á heimilum þar sem myndin sést beggja megin frá.“ Auk þess segir Svanur að framköllun á stafrænum ljósmynd- um fari sífellt fjölgandi ár frá ári. „Pappír virðist vera öflugasta geymslan fyrir ljósmyndir. Mér finnst fólk almennt vera farið að átta sig á því að það þýðir ekki að geyma stafrænar myndir í 20-30 ár í tölvunni sinni. Þá er ansi hætt við því að myndir glatist. Við erum auðvitað að tala um mjög verðmætar minningar sem fólk vill eiga alla ævi.“ Séu stafrænar myndir ekki framkallaðar strax mælir Svanur með því að þær séu geymdar á einum til tveimur hörðum diskum en ekki á geisladiskum eða í heimatölvu. Þótt Framköllunarþjónustan sé staðsett í Borgarnesi þá sinnir hún mun stærra svæði. Fyrirtækið er með tíu móttökustaði, frá Akranesi út á Snæfellsnes og norður á Strandir. „Svo erum við náttúrulega farn- ir að þjóna öllu landinu gegnum vefinn okkar. Það er mikið að gera hjá okkur fyrir jólin og þá koma pantanir frá öllu landinu til okkar.“ Inni á vef Framköllunarþjónustunnar má finna allar upplýsing- ar um þjónustuframboð fyrirtækisins. Þar geta viðskiptavinir meðal annars hlaðið inn stafrænum ljósmyndum til framköllunar. „Nú þarf fólk ekki að hlaða niður þungum búnaði heima fyrir til að framkalla stafrænar myndir. Það er nóg að fylla út formið á síðunni og senda myndirnar inn. Þetta er jafneinfalt og að senda tölvupóst.“ Nánari upplýsingar má finna á framkollunarthjonustan.is. Varðveisla minninga Hefðbundin framköllun og ýmis sérvinnsla er einkenni Framköllunarþjónustunnar í Borgarnesi. Hefðbundin framköllun og ýmis sér- þjónusta einkenna starfsemi Framköll- unarþjónustunnar í Borgarnesi. MYND/ÚR EINKASAFNI Á tímum stafrænnar ljós-myndunar virðast allir við-burðir ljósmyndaðir í bak og fyrir af atvinnumönnum sem og leikmönnum. Engu að síður lítur út fyrir að heimildir í formi ljósmynda frá upphafsárum stafrænu bylt- ingarinnar, 1998-2002, verði fáar sem engar í framtíðinni. Sigríður Kristín Birnudóttir, ljósmyndari hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur, segir að í upphafi hafi menn ekki áttað sig á hvernig halda ætti utan um gögnin: „Margar skrár eru í lít- illi upplausn, sumar hafa gleymst í gömlum tölvum og diskar hafa hrunið í stórum stíl. Eins hefur komið í ljós að geisladiskar eyði- leggjast hraðar en menn áttu von á. Filmur er alltaf hægt að skanna aftur en stafræna skráin er horf- in að eilífu ef eitthvað kemur fyrir hana. Hér eru filmur fram til 2002 en eftir það sýnist mér ekki vera neinar filmur.“ Safnið Safnið tekur við myndefni frá atvinnumönnum, dagblöðum og einkasöfnum, bæði albúmum og fjölskylduljósmyndum. Sigríður segir þó að Ljósmyndasafnið sé ekki farið að taka á móti stafrænu efni að neinu ráði. Gamalt efni er enn að berast til þeirra, helst úr dánarbúum og einnig filmuefni starfandi ljósmyndara sem hafa ekki lengur aðstöðu til að geyma það. „Við reynum að búa þannig um efnið að maður geti alltaf geng- ið að því vísu og heilu. En maður veit auðvitað aldrei hvað getur gerst,“ segir Sigríður og bætir við: „Markmið okkar er að allt okkar efni sé skráð, pakkað í sýrufríar umbúðir og varðveitt í geymslu. Í geymslunni eiga að vera kjörað- stæður fyrir filmuefni og jafnt hita- og rakastig.“ Skráning er stöðug vinna Það er stöðug vinna sem fer í að skrá og pakka og söfnin sem ber- ast eru mjög mismunandi. Sumum hefur verið komið vel fyrir í upp- hafi og eru skráð en önnur eru handahófskenndari. „Atvinnu- ljósmyndarar héldu flestir skrá yfir þá sem komu í portrettmyndatöku. Þessar nafnaskrár eru aðgengileg- ar almenningi hjá okkur. Segjum að einhver hafi farið í fermingar- myndatöku árið 1952, þá er hægt að leita eftir nafni viðkomandi.“ A f komendu r ljósmy nda ra koma gjarnan með efni til safns- ins en Sigríður segir jafnmikilvægt að varðveita myndir frá almenn- ingi. „Okkur finnst myndirnar kannski ekki merkilegar í dag en eftir fimmtíu ár verða þær orðnar mikilvæg heimild um okkar dag- lega líf.“ Í mörgum tilfellum fylgja hvorki merkingar né skráningar með myndunum. Ljósmyndasafnið hefur svokallaða aðfangaskrá yfir slík söfn. „Þá er aðfanginu lýst; hver var eigandinn og hver kom með það og svo gerð stutt inni- haldslýsing; hvað sést á myndinni. Öll þessi vinna er langhlaupsv- inna. Þetta gerist á löngum tíma,“ útskýrir Sigríður. Hjálp frá almenningi Ljósmyndasafnið heldur uppi Fa- cebook-síðu og þar fær það oft hjálp frá almenningi við að skrá myndirnar. „Í síðustu viku send- um við út Ljósmynd vikunnar sem var tekin í Ingólfsstræti og þá feng- um við ábendingu frá konu um að þetta væri mynd af móður henn- ar,“ segir Sigríður. „Þegar mynd- ir fara í umferð fáum við oft upp- lýsingar.“ Höfundarréttur Ljósmyndasafn Reykjavíkur gerir höfundarréttarsamninga við ljós- myndara. Handhafar höfund- arréttar gera samning um að Ljósmyndasafnið fari með höf- undarrétt fyrir þeirra hönd og höf- undarréttargreiðslur skiptast jafnt á milli safnsins og handhafanna. Hlutur safnsins fer þá í rekstrar- kostnað sem felst meðal annars í varðveislunni og húsaleigu. Stafræn gloppa Heimildir í formi ljósmynda frá upphafsárum stafænu byltingarinnar, 1998 til 2002, verða líklega fáar sem engar í framtíðinni enda vissu menn í fyrstu ekki hvernig best væri að halda utan um og varðveita slíkar myndir. Mynd frá1955-1965. Kona fær klippingu. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR Grímsstaðir á Grímsstaðaholti. Karólína Magnúsdóttir leikur á fiðlu. Úr einkasafni Magnúsar Karls Péturssonar og Ingibjargar Magnadóttur. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR Vefurinn ljósmyndakeppni.is er vef- samfélag fyrir áhugafólk um ljós- myndun með spjallborði, sölutorgi og fleiru. Stöðugt eru í gangi ljós- myndasamkeppnir þar sem notend- ur setja inn og kjósa bestu myndina hverju sinni. Stofnandi og ábyrgðar- maður er Sigurður Jónas Eggertsson tölvunarfræðingur. „Ég hef gaman af ljósmyndun og vildi sameina áhugamálið og vinn- una og ákvað því að stofna netsam- félag utan um áhugamálið,“ segir Sigurður. Vefurinn var stofnað- ur árið 2004 og eru nokkur þúsund notendur skráðir þó mismargir séu virkir hverju sinni. Gefnar hafa verið út fimm bækur undir nafninu Ljós- ár, þar sem meðal annars má finna allt það besta úr ljósmyndakeppn- unum. „Keppnirnar eru hugsaðar sem hvati fyrir fólk til að fara út og taka myndir sem það myndi annars ekki taka. Þess vegna erum við oft með eitt þema fyrir hverja keppni. Stundum eru farið í ljósmyndaferð- ir og á miðvikudögum hefur ákveð- inn hópur fólks af vefnum komið saman á kaffi Babalú. Einnig hafa félagar á Akureyri verið að hitt- ast. Það hafa orðið til nokkur pör út frá þessum hittingum, og allavega eitt barn. Ég tek þó enga ábyrgð á því,“ segir Sigurður og hlær. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér vef- inn ættu að fara inn á slóðina www. ljosmyndakeppni.is. Þar er margt að skoða, bæði myndir og upplýsingar um allt sem tengist ljósmyndun og ljósmyndavélum. Lifandi ljósmyndavefur Fegurð fuglana. Tekin af Bjarna Sæmundssyni sem sigraði í flokknum Mynd júni-mánaðar.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.