Fréttablaðið - 10.07.2012, Síða 21
KYNNING − AUGLÝSING Myndavélar & ljósmyndavörur10. JÚLÍ 2012 ÞRIÐJUDAGUR 3
MYNDAVÉLASÍMAR TAKA YFIR
Seinustu ár hefur sala á myndavélasímum aukist
mikið. Myndavélarnar eru orðnar svo góðar að
fólk hættir að kaupa stafrænar myndavélar. Það
virðist ekki skipta máli hvort gæðin séu jafn góð
og á stafrænu myndavélinni þar sem fólk getur
verið með þetta allt í einu tæki. Alvöru ljósmynda-
áhugamenn falla þó ekki fyrir þessari nýjung og
halda enn áfram að kaupa hágæða ljósmyndavélar.
Ekki er nóg með að símarnir séu að taka myndavélarnar yfir heldur
eru þeir einnig með myndbandsupptöku þar sem hægt er að taka upp í
góðum gæðum. Snjallsímar bjóða upp á miklu meira heldur en stafræn
myndavél. Til eru sérstök forrit þar sem hægt er að breyta og bæta
myndir og myndbönd og deila þeim á netinu.
MYND ÁRSINS
Blaðaljósmyndarafélag Íslands heldur ár hvert
sýningu fréttaljósmynda liðins árs. Sú sýning er fastur
liður hjá félaginu. Um leið er keppni um myndir ársins.
Daníel Rúnarsson ljósmyndari tók mynd síðasta árs að
mati dómnefndar. Myndin var einnig valin Fréttamynd
ársins.
Einungis þeir sem starfa sem fréttaljósmyndarar
við dagblöð, tímarit og sjónvarp, lausamenn og
sjálfstætt starfandi ljósmyndarar sem vinna við
dagblöð, tímarit, netmiðla og sjónvarp eða aðra
sambærilega útgáfu eru gjaldgengir á sýningu BLÍ
svo framarlega sem þeir eru meðlimir í Blaða-
mannafélagi Íslands. Keppt er í eftirfarandi flokkum:
1 Fréttamynd
2 Portrett ársins
3 Íþróttamynd
4 Myndaröð
5 Daglegt líf
6 Tímaritamynd
7 Umhverfismynd
DIANA VIN
SÆLUST
Verslunin Hrím á Laugavegi býður
upp á úrval svokallaðara Lomo-
graphy myndavéla og fylgihluta.
Tinna Brá Baldvinsdóttir, eigandi
verslunarinnar, segir myndavélarnar
afar vinsælar hér á landi: „Fólk er
mjög spennt fyrir þessum vélum.
Myndavélarnar eru ódýrar og ólíkar
svo margir kaupa sér fleiri en eina
gerð.“ Hún segir tegundina Diana
vera vinsælasta en hún býður upp á
mestu möguleikana hvað aukahluti
varðar. „Í Bretlandi er Lomo hálfgert
samfélag. Þar er talað um hinar tíu
gullnu reglur en ein þeirra er sú að
vera alltaf með myndavélina á sér.“
Tinna tekur fram að filmurnar fáist
einnig í versluninni og lítið mál sé
að framkalla þær, enn séu nokkrir
staðir sem framkalla og þá er hægt
að fá filmurnar skannaðar á geisla-
disk í leiðinni.
Hrím er á Facebook en auk þess
með heimasíðuna www.hrim.is þar
sem skoða má úrval myndavéla og
hönnunarvara.
Ljósmyndavörur heitir eitt elsta starfandi ljósmyndafyrirtæki lands-
ins, stofnað 1974. Í fyrra opnaði á heimasíðu þess öflugur framköllun-
arvefur sem býður einstök úrræði til framköllunar.
Bergur G. Gíslason, framkvæmdastjóri í Ljósmyndavörum, hefur
starfað í faginu í tuttugu ár. „Í dag eiga flestir góðar myndavélar og
menn verða fljótt snjallir ljósmyndarar með stafræna myndavél. Ís-
lendingar eru því orðnir mun betri ljósmyndarar nú en fyrir tveim-
ur áratugum og eiga í fórum sínum mýmörg listaverk sem með litlum
tilkostnaði, vinnu og hugmyndaflugi er hægt að gera úr einstæða
dýrgripi,“ segir Bergur. Hann bætir við að flestir geymi á harða diski
tölvu sinnar stór ljósmyndasöfn sem aldrei hafa verið framkölluð.
„Því miður gerist svo reglulega að harðir diskar hrynja og með
þeim myndir liðinna ára sem glatast að eilífu. Sum augnablik koma
aldrei aftur, eins og breytilegt aldursskeið barna, ferðalög og sérstak-
ir viðburðir lífsins. Því er aldrei nógu oft brýnt fyrir fólki að velja úr
bestu myndirnar og setja sem fyrst í varanlegra form en tölvudisk.”
Á framköllunarvefnum er meðal annars hægt að setja mynd-
ir á ljósmyndapappír, , striga, bolla, púsluspil, dagatöl, bækur og
boli og stækka þær upp. „Vefurinn er einfaldur í notkun og hægt að
dunda sér við listaverkin í rólegheitunum heima. Eftir að fólk kynn-
ist honum einu sinni kemur það aftur og aftur, bæði til þess að gera
myndum sínum hátt undir höfði til heimilisnota eða til að skapa ein-
stakar tækifærisgjafir handa öðrum,“ segir Bergur.
Ljósmyndavörur eru í Skipholti 31. Sjá www.ljosmyndavorur.is.
Sjón er sögu ríkari
Skipholti 31, sími 568-0450 ljosmyndavorur.is
Kynnum með stolti Fujifilm X seríuna, myndavélar sem þú skilur ekki eftir heima.
Frábærlega vel hannaðar
Léttleiki og lítil fyrirferð
Framúrskarandi myndgæði
X10 – 99.900
X100 – 199.000
X-Pro 1 – 269.000 (án linsu) X100 TIPA verðlaunin 2011 og X Pro 1 TIPA verðlaunin 2012
úrval af lomography
myndavélum og aukahlutum
Hrím Hönnunarhús!
Laugavegi 25 - S: 553-3003
H ö n n u n a r
h ú s
Taktu þátt í Ljósmyndasamkeppni
með LOMOGRAPHY myndunum þínum
Nánari upplýsingar á www.hrim.is