Fréttablaðið - 10.07.2012, Qupperneq 26
10. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR18
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÚN HALLDÓRSDÓTTIR
fyrrverandi stöðvarstjóri Pósts og síma,
frá Ísafirði, til heimilis að Dvalarheimilinu
Höfða, Akranesi,
er látin. Útförin fer fram í kyrrþey.
Guðbjörg Hringsdóttir Páll G. Guðmundsson
Hjörleifur Hringsson Elín Baldursdóttir
Sigrún Edda Hringsdóttir Hafsteinn Jónsson
Hinrik Hringsson Ingibjörg H. Þráinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓN FINNBOGASON
frá Skálmarnesmúla,
andaðist 7. júlí sl. á Landspítalanum við
Hringbraut. Útförin fer fram
frá Árbæjarkirkju, fimmtudaginn 19. júlí
kl. 13.00. Jarðsett verður á Skálmarnesmúla.
Steinunn Pétursdóttir
Finnbogi Jónsson Þuríður Kristjánsdóttir
Kolbrún Jónsdóttir Þorvaldur Ottósson
Nanna Áslaug Jónsdóttir Gísli Ásberg Gíslason
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
LINDA KRISTJÁNSDÓTTIR
Greniteig 2, Keflavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði,
laugardaginn 7. júlí. Útförin fer fram frá
Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 12. júlí
kl. 13.00.
Björgvin Þorvaldsson
Kristján Björgvinsson Elínborg Sigurðardóttir
Sigrún Björgvinsdóttir Smári Friðriksson
Björgvin Björgvinsson
Linda Rós Björgvinsdóttir Benedikt Viggósson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri frændi og vinur,
EYJÓLFUR EYJÓLFSSON
frá Botnum, í Meðallandi,
Sundlaugavegi 24, Reykjavík,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu
Klausturhólum, fimmtudaginn 5. júlí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Birna Halldórsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HELGA ÞORKELSDÓTTIR
Kleppsvegi 62,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn
30. júní. Útför hennar fer fram frá Áskirkju
fimmtudaginn 12. júlí kl. 15.00.
Una Sigurðardóttir Ólafur Gíslason
Sigfús Jón Sigurðsson Ragnheiður Sæland Einarsdóttir
Zophanías Þorkell Sigurðsson Guðrún Ívars
Alma Sigurðardóttir Magnús Ægir Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
TRAUSTI KRISTINSSON
vörubifreiðastjóri,Laufásvegi 50,
Reykjavík,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu Mörk
fimmtudaginn 28. júní, verður jarðsunginn
frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 12. júlí
kl. 15.00.
Halla Guðný Erlendsdóttir
Málhildur Traustadóttir Guðmundur Vésteinsson
Anna Erla Guðbrandsdóttir Egill Sveinbjörnsson
Margrét Traustadóttir Ámundi Halldórsson
Hjördís Steina Traustadóttir Kristinn Jónsson
Erlendur Traustason Björg Sigrún Ólafsdóttir
Þórður Ólafur Traustason Ágústa Ragnarsdóttir-
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær bróðir okkar, faðir, mágur og frændi,
VILHELM ÖRN OTTESEN
Efstahjalla 13, Kópavogi,
varð bráðkvaddur á heimili sínu
fimmtudaginn 5. júlí. Útför hans fer fram frá
Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu laugardaginn
14. júlí kl. 13.00. Blóm og kransar
vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vildu
minnast hans er bent á Frú Ragnheiði-skaðaminnkun, verkefni
Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands, reikn.nr.: 0526-26-5320,
kt.: 530269-1839, skýring: v/Vilhelms.
Ásta Ottesen Páll H. Jónsson
Gunnlaug Ottesen Friðrik Diego
Þórhallur Ottesen Elín Margrét Jóhannsdóttir
Kristín Ottesen Sigmundur Ásgeirsson
Jón Ívar Vilhelmsson Ellert Heiðar Vilhelmsson
og frændsystkini.
Minn ástkæri eiginmaður, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HALLDÓR BJARNASON
Gullsmára 5, Kópavogi,
lést fimmtudaginn 28. júní. Jarðarförin hefur
farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir til
starfsfólks Landspítala Fossvogi, deild A4,
fyrir hlýhug og góða umönnun.
Sigurbjörg Valsdóttir
Sigríður Halldórsdóttir Jón Þórir Jónsson
Guðrún Halldórsdóttir Guðmundur Ingason
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg dóttir okkar og systir,
INGA BIRNA HJALTADÓTTIR
Sunnakri 2, Garðabæ,
lést 1. júlí á gjörgæsludeild Landspítalans
í Fossvogi. Útför hennar fer fram frá
Vídalínskirkju miðvikudaginn 11. júlí kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hennar er bent á Von,
félag til styrktar skjólstæðingum á gjörgæsludeild LSH í Fossvogi.
Kristjana Axelsdóttir Hjalti Páll Ingólfsson
Anna Lovísa Hjaltadóttir
Lilja Katrín Hjaltadóttir
og aðrir aðstandendur.
Merkisatburðir
1875 Í Biskupstungum gerir haglél með miklum stormi,
þrumum og eldingum og stóð í þrjár klukkustundir.
1937 Danskur maður fellur um 70 metra niður í gljúfrið við
Dettifoss. Hann lifir fallið af.
1948 Vígð hengibrú yfir Jökulsá á Fjöllum. Við það styttist veg-
urinn á milli Norðurlands og Austurlands um 70 kílómetra.
1951 Íslendingar sigra í norrænni sundkeppni með miklum
yfirburðum er fjórði hver landsmaður synti 200 metra á tíma-
bilinu frá 20. maí til 10. júlí.
1973 Bahamaeyjar fá sjálfstæði frá Bretlandi.
1980 Fimmta hrina Kröfluelda hefst; hún stóð í rúma viku og
var mesta hrinan fram að því.
2009 Hótel Valhöll á Þingvöllum brennur til kaldra kola.
Hinn 10. júlí 1980 var fyrsta kredit kortið gefið út á Íslandi
af fyrir tækinu Eurocard. Sjö dögum síðar notaði þáverandi
forstjóri fyrirtækisins kreditkort fyrstur manna á Íslandi í
viðskiptum sínum við verslunina Tékk Kristal. Í fyrstu tóku
einungis 150 fyrirtæki við kortunum og fengu handhafar
kortanna bækling með upplýsingum um hvar þau mætti nota.
Upphaflega var ekki hægt að nota íslenskt kreditkort
erlendis vegna gjaldeyrishafta Seðlabankans. Því þurftu
Íslendingar að reiða sig á hefðbundinn gjaldeyri þar til hægt
var að sækja sérstaklega um leyfi til erlendrar kortanotkun-
ar hjá Seðlabanka Íslands.
Ekki þótti öllum kortin vera af hinu góða og vakti Guðrún
Helgadóttir, þáverandi þingkona Alþýðubandalagsins, athygli
á að kortin kynnu að leiða til umframeyðslu. Í framhald-
inu spunnust miklar umræður en í grein Haraldar Haralds-
sonar, forstjóra Kredit korta, sem birtist í Morgunblaðinu,
vísaði hann ásökunum á bug og sagði kortin alls ekki leiða til
umframeyðslu.
ÞETTA GERÐIST: 10. JÚLÍ 1980
Íslensk kreditkort líta dagsins ljós
Vesturland, líf og land kallast sýning
í Galleríi gersemi að Brákarbraut 10
í Borgarnesi með myndum Friðþjófs
Helgasonar, ljósmyndara og kvik-
myndatökumanns frá Akranesi. Þar
eru fjölbreyttar landslags- og dýra-
lífsmyndir frá Vesturlandi, enda segir
Friðþjófur þar allt vera að finna; fjöll,
ár, hraun, jökla, strendur, hálendi,
hella, hveri og heitar laugar. „Í raun má
segja að á Vesturlandi megi sjá þver-
skurð af náttúru Íslands,“ segir hann
og er ekki í vandræðum með að fanga
þessa dýrð með myndavélunum.
Friðþjófur er staddur úti í Kína
þegar þetta er ritað. Hann hefur komið
mjög víða við á sínum ferli, meðal ann-
ars á hinum ýmsu fjölmiðlum. Fyrsta
stóra verkefni hans sem atvinnuljós-
myndara var Heimaeyjargosið og leið-
togafundur Reagans og Gorbatsjov var
fyrsta stóra kvikmyndatökuverkefn-
ið. Þá vann hann hjá RÚV.
Níu ljósmyndabækur hafa komið
út eftir Friðþjóf á liðnum árum, sú
tíunda er í burðarliðnum og hún ku
einmitt vera um Vesturland. Frá árinu
2000 hefur hann verið sjálfstætt starf-
andi myndatökumaður og starfað mikið
með Páli Steingrímssyni í Kvik kvik-
myndagerð.
Sýning Friðþjófs verður opin á opn-
unartíma Gallerís gersemi til 8. ágúst.
- gun
Hellar, hverir og heitar
laugar í Gallerí gersemi
SÝNINGIN SETT UPP Friðþjófur heldur hér á einni af myndunum í Galleríi gersemi sem nefnist
Skarfar í tilhugalífi. MYND/ÞORKELL
Sami Folk Duo kemur fram á Café
Rósenberg í kvöld. Það skipa Niillas
Holmberg og Roope Mäenpää, ungir
tónlistarmenn frá Finnlandi sem hafa
verið að gera það gott í heimalandinu.
Þeir nýta menningarlegan og tónlistar-
legan bakgrunn sinn og skapa þægileg-
an bræðing þar sem greina má áhrif
frá þjóðtónlist Sama og bandarískri
sveitatónlist undir klassískum hljóð-
færaleik.
Niillas Holmberg er Sami frá Utsjoki
sem er með nyrstu þorpum Finnlands.
Sextán ára flutti hann til Tampere
til tónlistarnáms, þar kynntist hann
hinum fjölhæfa tónlistarmanni Roope
Mäenpää frá Tampere en hann stund-
aði selló- og tónsmíðanám við sama
skóla. Síðan þá hafa þeir unnið saman
að tónlist og ætla nú loksins að leyfa
Íslendingum að heyra.
Niillas og Roope komu fram á Þjóð-
lagahátíð á Siglufirði síðastliðinn
fimmtudag en í kvöld, 10. júlí, munu
þeir halda tónleika í Reykjavík. Tón-
leikarnir verða á Café Rósenberg á
Klapparstíg og hefjast þeir kl. 21.
Samasöngvar á
Café Rósenberg
SAMI FOLK DUO Leikur á
Rósenberg í kvöld.