Fréttablaðið - 10.07.2012, Síða 28
10. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR20
BAKÞANKAR
Kolbeins
Óttarssonar
Proppé
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
Segi þér einhver að hann eða hún spái ekkert í útlitið þá er viðkomandi að
ljúga. Við spáum vissulega mismikið í útlit-
ið, en öll veltum við því fyrir okkur. Hafir
þú, lesandi góður, greitt þér í fegrunar-
skyni, litað varirnar, snyrt skeggið, látið lita
á þér hárið eða skerða það með annað en
þægindi í huga, ekki keypt þægilega skó þar
sem þeir voru forljótir, kreist á þér bólu, eða
hvað annað sem við gerum í dagsins önn; þá
hefurðu vissulega spáð í útlitið.
ÉG TALDI sjálfum mér lengi trú um
að svo gilti ekki um mig. Eins og með
svo margt annað í lífinu taldi ég mig, í
hroka mínum, upp yfir slíkt hafinn og
benti gjarnan á að greiða hefur ekki
snert hár mitt í tuttugu ár, nema í hönd-
um hárskera. En auðvitað var það ekk-
ert nema blekking. Kannski hélt ég mig
vera slíkan bóhem að útlit skipti mig
engu, að ég lifði á astralplaninu þar sem
einungis háleitar hugsanir ríkja og ver-
aldlegt pjatt, eins og útlit þess hulsturs
sem hýsir mína leitandi sál, skipti
mig engu. Svo gafst ég upp á þeirri
sjáfsblekkingu og fór í ræktina.
ÞAÐ ER sérkennileg reynsla fyrir
mann sem þekkir lítið til slíkra
stofnana að stunda ræktina. Það er
eins og að ganga inn í menningar-
heim sem var manni hulinn, því
menning er það. Alls kyns fólk hamast við að
koma sér í form, stæla þolið, stækka vöðv-
ana eða hvað það er sem er markmið hvers
og eins. Appelsínugulir og bleikir spandex-
gallar hamast við, hvort sem markmiðið er
öfugur blómavasavöxtur úr Disney-mynd eða
eitthvað annað. Og svo kemur sturtan.
ÞAÐ ER virkilega skemmtileg menning
sem ríkir í karlaklefanum í ræktinni. Þarna
spjöllum við naktir, fullorðnir karlmenn
að gera eitthvað í okkar málum. Og það er
ástæða fyrir því að speglar þekja alla veggi
í þurrkrýminu. Við viljum sjá hvernig okkur
gengur.
SUMIR okkar fara laumulega í þetta. Við
spennum vöðvana svo lítið á beri á meðan
við þurrkum okkur, fullvissir um að fylgist
einhver með líti hann á kreppta vöðva sem
merki um öflugan þurrk. Aðrir eru ekkert
að lauamst. Þeir standa og spenna sig á alla
kanta, horfa á maga, síðu og rass og dæsa af
aðdáun. Það er eitthvað skemmtilega frels-
andi við slíka pukurslausa sjálfsdýrkun.
ÞAÐ ER auðvelt að fara út í öfgar í útlits-
dýrkun og félagslegur þrýstingur í þá veru
getur beinlínis verið skaðlegur. En við
sem höfum gert eitthvað sem við teljum
gera okkur flottari, mættum oft sýna því
sem annað fólk gerir í sama tilgangi meiri
skilning.
Öll dýrkum við útlitið
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. varsla, 6. eftir hádegi, 8. aur, 9.
matjurt, 11. eyrir, 12. langt op, 14. fet,
16. kringum, 17. gljúfur, 18. gogg, 20.
skst., 21. þefja.
LÓÐRÉTT
1. viðartegund, 3. frá, 4. örvandi efni,
5. viður, 7. hálsfesti, 10. yfirbreiðsla,
13. sarg, 15. flauel, 16. dvelja, 19. í
röð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. vakt, 6. eh, 8. for, 9. kál,
11. fé, 12. klauf, 14. skref, 16. um, 17.
gil, 18. nef, 20. no, 21. anga.
LÓÐRÉTT: 1. tekk, 3. af, 4. koffein, 5.
tré, 7. hálsmen, 10. lak, 13. urg, 15.
flos, 16. una, 19. fg.
Til
Fredda!
frá Trölla!
Hvað
fannstu
til í ár?
Þú getur
rétt
ímyndað
þér!
Vá! þú
hefur verið
heillengi að
safna þessu!
Heilt ár!
gleðileg
jól,
Freddi!
Í fyrra voru
bara lyklar og
skipti-
mynt!
Hei! Bang-
símonsokk-
arnir mínir!
Voðalega ertu
þreyttur, Palli.
Ekki skrítið. Ég
var vakandi til
þrjú í nótt.
En með ótrúlegri þrautsegju
og nánast ofurmannlegum
krafti tókst mér að klára
heimaverkefni gærdagsins í
lífeðlisfræði!
En hvað
er þetta?
Heimaverkefni
dagsins í líf-
eðlisfræði.
En hvernig getum
viÐ veriÐ sam-
mála um nokk-
urn skapaÐan
hlut þegar hann
krefst þess aÐ fá
líka aÐ tala.
Má ég fá
skrúfjárn?
Hvers vegna
þarft þú
skrúfjárn?
Má ég fá
skrúfjárn?
Venjulegt,
stjörnu eða
kannski
sexkant?