Fréttablaðið - 10.07.2012, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 10.07.2012, Blaðsíða 28
10. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR20 BAKÞANKAR Kolbeins Óttarssonar Proppé 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta Segi þér einhver að hann eða hún spái ekkert í útlitið þá er viðkomandi að ljúga. Við spáum vissulega mismikið í útlit- ið, en öll veltum við því fyrir okkur. Hafir þú, lesandi góður, greitt þér í fegrunar- skyni, litað varirnar, snyrt skeggið, látið lita á þér hárið eða skerða það með annað en þægindi í huga, ekki keypt þægilega skó þar sem þeir voru forljótir, kreist á þér bólu, eða hvað annað sem við gerum í dagsins önn; þá hefurðu vissulega spáð í útlitið. ÉG TALDI sjálfum mér lengi trú um að svo gilti ekki um mig. Eins og með svo margt annað í lífinu taldi ég mig, í hroka mínum, upp yfir slíkt hafinn og benti gjarnan á að greiða hefur ekki snert hár mitt í tuttugu ár, nema í hönd- um hárskera. En auðvitað var það ekk- ert nema blekking. Kannski hélt ég mig vera slíkan bóhem að útlit skipti mig engu, að ég lifði á astralplaninu þar sem einungis háleitar hugsanir ríkja og ver- aldlegt pjatt, eins og útlit þess hulsturs sem hýsir mína leitandi sál, skipti mig engu. Svo gafst ég upp á þeirri sjáfsblekkingu og fór í ræktina. ÞAÐ ER sérkennileg reynsla fyrir mann sem þekkir lítið til slíkra stofnana að stunda ræktina. Það er eins og að ganga inn í menningar- heim sem var manni hulinn, því menning er það. Alls kyns fólk hamast við að koma sér í form, stæla þolið, stækka vöðv- ana eða hvað það er sem er markmið hvers og eins. Appelsínugulir og bleikir spandex- gallar hamast við, hvort sem markmiðið er öfugur blómavasavöxtur úr Disney-mynd eða eitthvað annað. Og svo kemur sturtan. ÞAÐ ER virkilega skemmtileg menning sem ríkir í karlaklefanum í ræktinni. Þarna spjöllum við naktir, fullorðnir karlmenn að gera eitthvað í okkar málum. Og það er ástæða fyrir því að speglar þekja alla veggi í þurrkrýminu. Við viljum sjá hvernig okkur gengur. SUMIR okkar fara laumulega í þetta. Við spennum vöðvana svo lítið á beri á meðan við þurrkum okkur, fullvissir um að fylgist einhver með líti hann á kreppta vöðva sem merki um öflugan þurrk. Aðrir eru ekkert að lauamst. Þeir standa og spenna sig á alla kanta, horfa á maga, síðu og rass og dæsa af aðdáun. Það er eitthvað skemmtilega frels- andi við slíka pukurslausa sjálfsdýrkun. ÞAÐ ER auðvelt að fara út í öfgar í útlits- dýrkun og félagslegur þrýstingur í þá veru getur beinlínis verið skaðlegur. En við sem höfum gert eitthvað sem við teljum gera okkur flottari, mættum oft sýna því sem annað fólk gerir í sama tilgangi meiri skilning. Öll dýrkum við útlitið ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. varsla, 6. eftir hádegi, 8. aur, 9. matjurt, 11. eyrir, 12. langt op, 14. fet, 16. kringum, 17. gljúfur, 18. gogg, 20. skst., 21. þefja. LÓÐRÉTT 1. viðartegund, 3. frá, 4. örvandi efni, 5. viður, 7. hálsfesti, 10. yfirbreiðsla, 13. sarg, 15. flauel, 16. dvelja, 19. í röð. LAUSN LÁRÉTT: 2. vakt, 6. eh, 8. for, 9. kál, 11. fé, 12. klauf, 14. skref, 16. um, 17. gil, 18. nef, 20. no, 21. anga. LÓÐRÉTT: 1. tekk, 3. af, 4. koffein, 5. tré, 7. hálsmen, 10. lak, 13. urg, 15. flos, 16. una, 19. fg. Til Fredda! frá Trölla! Hvað fannstu til í ár? Þú getur rétt ímyndað þér! Vá! þú hefur verið heillengi að safna þessu! Heilt ár! gleðileg jól, Freddi! Í fyrra voru bara lyklar og skipti- mynt! Hei! Bang- símonsokk- arnir mínir! Voðalega ertu þreyttur, Palli. Ekki skrítið. Ég var vakandi til þrjú í nótt. En með ótrúlegri þrautsegju og nánast ofurmannlegum krafti tókst mér að klára heimaverkefni gærdagsins í lífeðlisfræði! En hvað er þetta? Heimaverkefni dagsins í líf- eðlisfræði. En hvernig getum viÐ veriÐ sam- mála um nokk- urn skapaÐan hlut þegar hann krefst þess aÐ fá líka aÐ tala. Má ég fá skrúfjárn? Hvers vegna þarft þú skrúfjárn? Má ég fá skrúfjárn? Venjulegt, stjörnu eða kannski sexkant?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.